Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990. 23 Yfirverkfræðingurinn Steinarr Farestveit hitti samstúdenta sína eftir 35 ár: íslenski bjargvættur- inn í Stokkhólmi íslendingurinn Steinarr Farestveit er yfirmaöur brúarverkfræöideildar Stokkhólmsborgar og var hann í dag- blöðum þar nýiega nefndur bjarg- vættur „Slussens" þar í borg. Slussen stendur í gamla borgar- hlutanum, fyrir framan Stadsmuse- et, og fjölfarna skiptistöð fyrir neðan- jarðarlest. Vandamálið er að Slussen sígiu- þar sem neðanjarðargöngin hggja og er hlutverk Steinars og hans fólks meðal annars að skipuleggja framkvæmdir sem koma í veg fyrir sigið sem nemur 11 mihímetrum á ári - og framkvæmdimar mega helst ekki raska umferð neðanj arðarlest- arinnar. 40 manns vinna undir stjórn Stein- arrs við verkfræðideildina en hún sér um hönnun brúarmannvirkja, útreikninga og teikningar. í borginni eru um átta hundrað brýr og stöðugt bætast fleiri viö, að sögn Steinarrs. Sonurverslunar- mannsins og refa- bóndans Steinarr er nú staddur hér á landi í tilefni af 35 ára útskriftarafmæli bekkjar- og skólafélaga hans úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1955. Hann hefur verið búsettur er- lendis síðan hann útskrifaðist úr menntaskóla. Hann nam verkfræði í Þrándheimi þar sem hann kynntist þarlendri konu sinni og eiga þau fimm börn, þar af þrjú fósturbörn og eru tvö þeirra 14 og 19 ára gamlar stúlkur frá Eþíópíu. Hjónin fluttu til Svíþjóðar árið 1959 og hafa búið þar síðan. Þau skildu fyrir nokkrum árum. Steinarr er elstur fimm bama Ein- ars Farestveit og Guðrúnar Farest- veit Pálmadóttur, kaupmanns á Hvammstanga. Einar er Norðmaður og kom hann fyrst hingað til lands árið 1933 þegar hann hóf refarækt á Hvammstanga. Einar hefur stundað verslunarrekstur í Reykjavík ásamt öðru með tveimur sonum sínum á síðustu áratugum. Bjami Fel og Friðrik Ólafsson Þegar Steinarr kom í frí til íslands fyrir stuttu hélt hann til Stykkis- segja sænsk dagblöö nýlega um hann . j f- > > , ' C >'í> < ;■ ; r >'■ Steinarr Farestveit á fimm börn, þar af þrjú fósturbörn. Hann er nú í heimsókn hér á landi með tveimur fóstur- dætrum sínum frá Eþíópíu. DV-mynd GVA hólms og Breiðaijaröareyja með út- skriftarárganginum úr MR frá 1955. Hópurinn dvaldist þar saman um eina helgi og var meðal annars farið í bátsferð um Breiðafjörð. Bekkjarfélagar Steinarrs úr MR eru margir þjóðkunnir. Bjami Felix- son íþróttafréttamaður, Friðrik Ól- afsson, stórmeistari í skák og skrif- stofustjóri Alþingis, Margrét Hein- reksdóttir, fréttamaður hjá Sjón- varpinu, Jón Arnalds borgardómari, Jóhann Már Maríusson, aðstoðarfor- stjóri Landsvirkjunar, og fleiri. Um helmingur bekkjarfélaga Steinarrs úr MR varð verkfræðingar og lang- flestir komust vel áfram menntaveg- inn og hafa komist í góðar stöður. Friðrik og Jón urðu samferðamenn Steinarrs strax í bamadeild Laugar- nesskóla. Steinarr segir að hann hafl haldið sambandi við Bjarna Felixson sem hefur heimsótt hann tvívegis til Svíþjóðar á undanfórnum árum. Hitti mörg eftir 35 ár „Það var mjög merkilegt að hitta skólafélaga sína aftur. Bekkurinn hefur oft hist í millitíðinni en þetta var í fyrsta skipti sem ég sá flesta úr hópnum síðan í menntaskóla. Það var misjafnt hvaö maður þekkti fólk vel. Ég var dáhtið kvíðinn og var smeykur um að þekkja ekki alla aft- ur. En þetta kom allt jafnóðum og ég hitti fólkið. Ég var líka búinn að skoða nýlegar myndir af mörgum þeirra áður til að rifja upp,“ sagði Steinarr í samtali við helgarblaðið. Aöspurður um skemmtileg atvik frá menntaskólaárunum sagðist Steinarr helst muna eftir því þegar Friðrik Ólafsson kom frá skákmót- inu í Hastings þar sem hann stóð sig mjög vel: „Þegar Friðrik kom heim voru mikil hátíðahöld til að fagna honum. Við fengum frí í skólanum og þaö þótti fólki ekki amalegt,“ segir Stein- arr. Steinarr er orðinn sænskur ríkis- borgari og kann vel við sig í Svíþjóð. „Ég hugsa sjaldan um það hvort ég sé Islendingur eða Svíi. Ég kann vel við mig í landinu og hef búið lengur þar en hér. Ég hef htil samskipti við Islendinga en hef þó farið tvisvar á skemmtanir með þeim. -ÓTT Z-bekkurinn sem útskrifaðist úr MR árið 1955. Annar frá vinstri í efri röð er Bjarni Felixson, ungur maður sem átti framtíðina fyrir sér. Steinarr Farestveit er sjötti frá vinstri í sömu röð. Annar frá vinstri í miðröðinni er Friðrik Ólafsson, stórmeistari í skák og skrifstofustjóri Alþingis. Jón Arnalds er annar frá hægri i miðröðinni. Guðmund- ur Arnlaugsson, fyrrverandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, situr í neðstu röð. Margrét Heinreksdóttur situr yst til hægri i neðstu röð. "iarhar JfCIi I ICiIv ^HiM 3.0 Fullkomið fjárhagsbókhald á aðeins 18.924 krónur með vsk. Full endurareiðsla ef kerfinu er skilao innan 30 daga. Engin takmörk á fjölda ára. Engin takmörk á fjölda reikninga. Engin takmörk á fjölda fyrirtækja. Hámark 10 milljón fylgiskjöl á einu ári. Taktu enga áhættu í kaupum á fjárhagsbókhaldi. Hjá hugKORNi getur þú skilað kerfinu innan 30 daga og fengið | fulla endurgreiðslu ef það hentarþér ekki. Eldri notendur af FjárhagsKORNi eða HeimilisKORNi fá FjárhagsKORN 3,0 með nýjum handbókum og diskum fyrir jjj 2,500 krónur með vsk. Auðlært er á FjárhagsKORN og fylgir því ítarleg handbók. Höfum einnig mörg önnur forrit til sölu á góðu verði. Sími 91 -689826

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.