Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Síða 29
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990. _________±- Sælkerinn Sögulegar sættir Valgeir Sigurðsson, veitinga- maður með meiru í Lúxemborg, hefur nú í yfir 10 ár framleitt brennivínið „Svarta dauða“. í mörg ár var Valgeir í stríði við ÁTVR vegna þessa máls þar sem ÁTVR vildi ekki selja áfengisteg- undir Valgeirs vegna þess að mið- amir á flöskunum (en á þeim er mynd af hauskúpu) þóttu ósmekk- legir. í þessari rimmu féllu mörg þung orð. En nú hafa náðst sættir. Hauskúpan er komin með hatt og ÁTVR er farin að framleiða „Black death schnapps". Og að auki mun fyrirtæki Valgeirs fara að selja ein- hveijar af þeim tegundum sem ÁTVR framleiðir. Svarti dauðinn hans Valgeirs, sem ÁTVR er nú að fara að framleiða, er að mati Sæl- kerasíðunnar mun betri en ís- lenska brennivínið. Væri ekki möguleiki á að Valgeir og ÁTVR Umsjón Sigmar B. Hauksson hæfu samvinnu um framleiðslu á góöu hvannarótarbrennivíni? Upp- lagt væri að framleiða „essens" úr íslenskri hvannarót. Við gætum þá boðið brennivín sem væri íslenskt og hefði algjöra sérstöðu. "V. Úr víngarði Torres - fjölskyldunnar Líklegast hefur villtur vínviður vaxið alls staðar í kringum Mið- jarðarhafið löngu áður en vínrækt hófst á ströndinni vestur af Barcel- ona fyrir meira en 2000 árum. Barcelona er höfuðborg Katalón- íuhéraðs. Katalóníumenn eru stolt- ir og menning þeirra sérstök. Þeir tala eigið tungumál, „catalan", sem lengi var bannað. Katalóníumenn eru þekktir fyrir dugnað sinn enda ríkir efnahagsleg velmegim í Ka- talóníu. Helstu tengsl Islendinga við Katalóníu eru þau að við höfum selt þangað saltfisk og drekkum töluvert af hinum ágætu Torres- vínum sem framleidd eru í Pene- dés, skammt frá Barcelona. Eftir að áfengisbannið var numið úr gildi hér á landi voru nær eingöngu flutt inn spænsk vín enda byggðust viðskiptin við Spánverja á vöru- skiptum. Torres-vínin hafa í áratugi verið allvinsæl hér á landi. Torres-fjöl- skyldan hóf a,ö framleiða vín þegar árið 1628. Frá 1870 hefur sonur tek- ið við af fóður og síðan þá hafa vin- in verið flutt út. í dag eru Torres- vínin flutt út til yfir 80 landa. Vín- ekrur Torres-fjölskyldunnar eru flestar í Penedés, við strönd Mið- jarðarhafsins. Torres-vínin hafa þótt „sólbrennd" vín, ilmrík, mat- armikil og áfeng. Á seinustu árum hafa Torres-vínin þróast verulega. Núverandi forstjóri Torres er Miguel Torres. Eldri sonur hans, Miguel yngri, er einn af þekktustu vínfræðingum Evrópu. Hann nam vínfræði viö háskólann í Bordeaux og hefur skrifaö nokkrar ágætar bækur um vín. Ein þeirra hefur m.a. komið út á norsku. Torres-fjölskyldan hóf fyrir nokknun árum víðtækar tilraunir í vínframleiðslu sem hafa vakið verulega athygli í vínheiminum. Þessar tilraunir byggjast vitaskuld á hinni löngu reynslu fjölskyld- unnar á þessu sviði og þekkingu Torres yngri sem vísindamanns. Þessar tilraunir byggjast meðal annars á landfræðilegri staðsetn- ingu vínakranna. Penedés-ströndin er hæðótt og Torres-fjölskyldan hóf vínrækt í mun meiri hæð en áður hafði tíðkast. Með markvissri til- raunastarfsemi hefur hún fundið kjörskilyröi fyrir hinar ýmsu teg- undir vínrunna. Sumir akranna eru í 800 m hæð, aðrir í 500 og enn aðrir í 250 m hæð yfir sjávarmáh. Þá hafa þeir gert miklar tilraunir á sjálfri vínframleiöslunni. Þar skiptir hvert smáatriði miklu máh, eins og hvaðan eikin kemur sem vinámurnar eru gerðar úr. Athug- að hefur verið hvort heppilegra sé að eikin vaxi við vatn eða utan í hæð. Of langt mál er að segja frá þessum tilraunum hér en Torres- fjölskyldunni hefur tekist aö fram- leiða vín á strönd Miðjaröarhafsins sem áður var tahð útilokað. Meðal þeirra vína mætti nefna hið ágæta hvítvín Vina Esmeralda sem fæst hér í verslunum. Þetta vín minnir á gott Rínar- eða Elsass-vín eða kannski enn frekar gott ástralskt vin. Annað sérlega gott vín frá Torres er rauðvínið Vina Magdala sem einnig fæst hér í verslunum. Vínakrarnir eru í 500 m hæð og minnir vínið á Búrgundarvín en samt hefur það spönsk sérein- kenni. Eitt af einkennum Torres- vínanna er hve gæðin eru jöfn og sagt er að þau komi sjaldnast á óvart. Miðað við gæði og verð eru góð kaup í þeim vínum sem hér hafa verið nefnd. Vina Esmeralda er til dæmis kjörið að bjóða sem fordrykk og Vina Magdala er ljóm- andi með glóðarsteiktum mat og lambakjöti. Þess má geta að Torr- es-fjölskyldan metur íslendinga mikhs og er ein af vínekrum fjöl- skyldunnar köhuð „íslandsekra". Torres eldri og yngri og á milli þeirra er systirin Marimar sem stjórnar fyrirtækinu i Bandaríkjunum. Hún hefur meðal annars skrifað athyglisverða matreiðslubók um spænska matargerðarlist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.