Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990. '3 dv Viðtalid Nafn: Sigurbjörn Bárðar- son Stari: Tamningamaður Aldur: 38 ára Nú er nýlokiö landsmóti hesta- manna. Margir héldu sigurreiflr heim á leið eftir vel heppnaö mót. Einn þeirra var Sigurbjörn Báröarson. „Landsmótiö tókst mjög vel og ég er ánægöur meö útkomuna. Ég keppti á yfir 20 hestum. Hæst her þó sigur sonar míns, Stein- ars, í bamaflokki," sagði Sígur- bjöm. Þegar hann var beðinn um að telja upp afrek sin á landsmótinu kom heillangur listi. Sem dæmi má taka fyrsta sæti í EM-flór- gangskeppni sem er alþjóðleg keppni meistara 12 þjóða, fyrsta sæti í 250 metra skeiði, íjórar hryssur með fyrstu verðlaun og svona mætti lengi telja. Auk þess hlaut hestur, sem Sigurbjöm sat, Svartur frá Högnastöðum i Hálsasveit, hæstu einkunn sem gefln hefUr verið á íslandi í A- flokki gæöinga, 9,27. Sigurbjörn er fæddur og uppal- inn í Reykjavík. Hann hefur alitaf búið á höfúðborgarsvæöinu en býr nú rétt utan við borgina. „Ég lauk gagnfræðaprófi og lærði svo blikksmíði i Iðnskól- anum. Svo hef ég öll próf og gráð- ur innan tamningastéttarinnar á íslandi. Til útianda hef ég íarið til kennslu og kyimingar á ís- lenska hestinum. Islenski hestur- inn vekur alltaf gífurlega athygli erlendis. Ég er með mikiö af hestum. Það eru einhverjir tugir í gangi i tamningu." Veikur fyrir bílum Sigurbjöm á sér fleiri áhuga- mál en hesta. „Ég hef alltaf verið veikur fyrir bílum og hef haft í maganum aö fara út í keppni. Það vill svo til að ég tók þátt í fyrstu rallkeppninni hérlendis.“ Öll fjölskyldan er á kafi í hesta- mennsku og lítill timi er aflögu. „Mestur tími manns fer í hest- ana. Alltaf er verið aö tala um hesta og jafhvel gestir, sem koma, tala varla um annað. Yngsta dótt- ir okkar er byrjuö í hesta- mennsku líka eins og aörir í flöl- skyldunni. Líflð gengur ekki út á annað en hesta og það má segja aö lifið sé hestur." Sjaldnast gefst timi fyrir sumarirí hijá hestamanni „Við fórum helst í hestaferðalag í þijá eða fjóra daga en skipu- leggjum það ekki langt fýrirfram. Eg hef mikið ferðast á hestum innanlands og mikið á hálendinu. Svo hefur maður farið keyrandi hringinn í kringum landið með námskeið og ráðgjöf." En verður Sigurbjöm aldrei þreyttur á hestum? „Maöur getur orðið þreyttur en aldrei leiður. Þá þarf maður að kúpla sig frá hestunum og gera eitthvað ann- að,“ sagði Sigurbjöm Bárðarson. Sigurbjöm er giftur Fríöu Hildi Steinarsdóttur. Böra þeirra eru Steinar, 13 ára, Styrmir, sem er 10 ára, og Silvía en hún er 5 ára. -hmó Fréttir Laxagengd á Suðumesjum: Ólöglegar laxveiðar í sjó - Vogalax sendir flugvélar til að fylgjast með veiðum við ströndina Lögreglan í Keflavík gerði á mánudag upptæk net hjá tveimur veiðimönnum vegna gruns um að þeir ætluðu sér að stunda ólöglegar laxveiðar í Njarðvíkurhöfn. Höfðu netin verið lögð á þremur stöðum i höfninni en einn veiðimannanna náði sínum netum upp áður en lög- reglan kom á staðinn. -J.Mar Allnokkur laxagengd hefur verið meðfram allri strönd Suðurnesja að undanfómu og er það haíbeitar- lax frá Vogalaxi í Vogum á Vatns- leysuströnd sem er á leið á heima- slóðir. Suðurnesjamenn hafa tekið laxinum fagnandi og hefur sést til íjölda manns við veiðar á bryggj- unni í Keflavík, Njarðvík og í Höfn- um. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að leggja net í sjó til að fá sem mestan lax. „Við getum orðið fyrir mjög til- fmnanlegu tjóni þegar menn eru famir að beita nær öllum tiltækum ráöum til aö veiða hafbeitarlax sem er að ganga upp í stöðina aftur,“ sagði Vilhjálmur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Vogalaxi. „Með þessu eru menn að grafa undan atvinnustarfsemi sem búið er að leggja hundruð milfjóna króna í. Við höfum enga hugmynd um hversu mikið af laxi veiðist með þessu móti. Ég hef farið fram á það viö lögregluna í Keflavík að hún fylgist með hvort menn séu að veiða lax úr sjó en'þaö er bannað samkvæmt lögum. Einnig hef ég leigt flugvélar til að fljúga meðfram strandlengjunni til að fylgjast með hvort menn séu að leggja net í sjó til að veiða lax.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.