Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990. * Fréttir Svavar Valdimarsson tekur við lyklunum fyrir hönd stjórnar verkmannabústaða úr hendi byggingaraðilans, Hilmars Þ. Björnssonar frá Selósi. DV-mynd Kristján Selfoss: Ibúðir afhentar í óvenjulegri blokk Kristján Emaisson, DV, Selfossi: Nokkrar íbúðir í 13 íbúða blokk, sem Byggingafyrirtækið Selós hf. á Selfossi hefur byggt, voru afhentar nýlega en í apríl 1988 gengu Selfoss- bær og stjóm verkamannabústaöa frá kaupsamningi á íbúðum í vænt- anlegri blokk. Mánuði síðar var . grafið fyrir grunni hússins og nú er það fullgert. Flatarmál hússins er 1180 m2 á þremur hæðum og kjallara. Það sem gerir húsið frábrugðið öðrum húsum hér um slóðir er að útvegg- ir eru einangraðir að utanverðu og klæddir meö Steni-klæðningu. All- ar vatnslagnir eru einnig utan á húsinu. Þeim fjölgar stöðugt, jafnt innlendum sem erlendum, sem leggja leið sína i Bláa lónið. Það er greinilega að verða einn vinsælasti staður landsins. Talið er að hátt á fjórða þúsund manns hafi komið þangað sl. sunnudag og nýttu margir sér aðstöðuna þar til sólbaða á baðströnd lónsins. Myndin að ofan gæti þess vegna eins verið frá sólar- strönd við Miðjarðarhaf. DV-mynd Sigríður Gunnarsdóttir, Hveragerði Andlát Ingibjörg Sigvaldadóttir, Reyni- hvammi 6, Kópavogi, lést í Land- spitalanum 11. júh. Ingunn Guðvarðardóttir, Vallar- braut 11, Akranesi, lést þriðjudaginn 11. júh. Jarðarfarir Ingibjörg G. Theodórs frá Stóraholti lést á elliheimilinu Grund þann 29. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Elísabet Bjarnveig Guðbjartsdóttir verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 14. júlí kl. 14. Erlingur Jóhannsson, fyrrum bóndi og skógarvörður í Asbyrgi, lést á Landakotsspítala aðfaranótt 27. júní sl. Erlingur var fæddur í Amarnesi í Kelduhverfi 2. nóvember 1903 og voru foreldrar hans þau Jóhann Jó- hannsson og kona hans, Sigurveig Árnadóttir. Erlingur stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri á árunum 1924-1926. Erlingur gegndi mörgum ábyrgðarstörfum jafnframt því að vera bóndi og skógarvörður, m.a. var hann í hreppsnefnd Keldu- neshrepps á árunum 1933 til 1938 og oddviti þar 1942 til 1961. Sýslunefnd- armaður var hann á árunum 1938 til 1961. Erhngur fluttist til Reykjavíkur árið 1961 og starfaði hann þá hjá Búnaðarbanka íslands. Erhngur kvæntist Sigrúnu Baldvinsdóttur frá Ófeigsstöðum í Ljósvatnshreppi og eignuöust þau ijögur börn. Útför Erl- ings verður gerð frá Kópavogskirkju í dag kl. 13.30. Guðrún S. Þórðardóttir andaðist 2. júlí sl. Guðrún var fædd 14. október 1916 að Björk í Grímsnesi. Foreldrar hennar voru Katrín Pálsdóttir, fv. bæjarfuhtrúi í Reykjavík, og Þórður Þórðarson. Guðrún giftist Þorgrími Friðrikssyni kaupmanni 18. júlí 1942. Þau ráku saman verslunina Grens- Athugasemd í frétt um Trausta Valgeir Sigurðs- son og slæmar aðstæður í kjölfar bíl- veltu í Reykhólasveit, þar sem hann haföi nær misst annan fótinn, kemur fram að hann hafi þurft að bíða á Borgarspítalanum í hálfan annan tíma eftir að komast í aögerð. Hafa sumir hlutaðeigandi skihð fréttina á þann veg að ekkert hafi verið fyrir hann gert á þeim tíma. Hins vegar áskjör til ársins 1978 er þau seldu verslunina. Eftir það rak Guðrún leikfangaverslun í nokkur ár á Hlemmtorgi en fór síðan að vinna sem matráðskona hjá Tryggingamið- stöðinni og SÍF. Guðrún og Þorgrím- ur eignuðust þrjú börn. Útför Guð- rúnar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 15. Sigríður Kristjánsdóttir hjúkrunar- kona lést 9. júlí sl. Sigríður fæddist á Kirkjubóli, Helgustaðahreppi, S- Múlasýslu 15. janúar 1902 og voru foreldrar hennar Kristján Benja- mínsson bóndi og eiginkona hans, Salgerður Jónsdóttir. Sigríður lauk burtfararprófi frá Hjúkrunarskólá íslands árið 1938 og hóf þá störf í Landspítalanum, eftir stuttan tíma á Landspítalanum hóf hún störf sem hjúkrunarkona við Kleppsspítalann og þar starfaði hún það sem eftir var af starfstímanum sem hjúkrunar- kona. Sigríður var gift Helga Helga- syni trésmíðameistara. Útför Sigríð- ar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag kl. 15. Námskeið Gronn á Vopnafirði Á vegum Gronn eru haldin námskeið fyrir ofætur sem vilja hætta ofáti. Nám- skeið verður haldiö á Vopnafirði 22.-25. júlí. Fyrirlestur verður haldinn mánu- daginn 16. júlí. Fyrirlestrarnir standa yfir í u.þ.b. klukkustund. Þeir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Námskeið- in standa yfir í u.þ.b. 14. klst. og þátttöku- gjald er 6.000 kr. fyrir manninn. Skráning í námskeiðin fer fram á fyrirlestrum. vegna slyss gerði starfsfólk Borgarspítalans aht sem það gat til að lina þjáningar hans, með tilheyrandi lyfjum og öðru. Að ekki voru nógu margir læknar á spítalanum við komu Trausta má samkvæmt heimildum blaðsins rekja til villandi upplýsinga sem spítalinn fékk fyrir komu Trausta um eðli meiðslanna. -hlh Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 Fjölmiðlar Frelsi til að Að venju var sjónvarpsdagskrá- in ekki upp á marga laxa í gær- kvöldi. Fréttimar telur maður aö vísu ómissandi þátt í tilverunni, hvort sem þær eru klukkan átta eða átta fimmtíu, og íþróttum er ekki mögulegt að gera betri skil en gegnum sjónvarp. Annað sem sjón- varpið bauð upp á var slakt. Útvarpsrásimar eru sjö ef mér telst rétt til og er meö ólíkindum aö ahar þurfi þær að hljóma eins og vera allar jafhbragðdaufar. Sama var hvað maður skipti oft um rás, alltaf virtist maður vera í sömu sporunum. Allar matreiddu þær ofan í mann sömu tónhstina og maöur haföi það einhvem veginn á tilfinningunni að sami maðurinn stjórnaði þeim öhum. Hvers vegna þurfti Ljósvakinn að leggja upp laupana? Einn þátt tókst mér þó að umbera th enda. Það var þáttur um k venna- mál Seifs í umsjón Ingunnar Ás- dísardóttur. Hún fékk i hð með sér góða leikara th þess aö lesa upp úr grískum fomritum þar sem fjallað var um með afbrigöum afkastamik- ið ástarhf æðsta guðsíns. Breytti guðinn sér í allra kvikinda líki til velja aó elta uppi og „þóknast“ bæði dauölegum og guðlegum verum. Kona hans og systir, Hera, var vist htiö hrifin af skemmtanalífi eighi- mannsins enda segir í danskri orðabók að hún sé fyrsta kvenrétt- indakona sögunnar, Þetta fallega júlikvöld stóð hið ritaða mál upp úr öðm í fjölmiðl- um. í gær var það hin magnaöa skáldsaga „Animal Farm“ eftir George Orweh sem stytti mér stundir. Enn einu sinni sannast það að skáldsagan getur á margan hátt lýst því sem „raunverulega“ gerð- ist betur en nokkurt sagnfræðirit getur með upptalningu „stað- reynda". -Pálmi Jónasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.