Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1990, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 1990.
3
Fréttir
Mengun frá fyrirhuguðu álveri:
200.000 kíló af flúor
árlega út í umhverfið
- óvíst hvort krafa verður gerð um vothreinsibúnað
Mengun frá álverum er einkum
þrenns konar: flúormengun, brenni-
steinsdíoxíðmengun (SO-2) og ryk-
mengun. Aðalmengunarvaldurinn
er ílúor. Hollustuvernd kemur til
með að setja staðla um hversu mikil
flúormengunin má vera. Talað er um
að það verði eitthvað nálægt einu
kílói af flúor á hvert framleitt tonn
af áh. Það jafngildir þvi að 200.000
kíló af flúor sleppi árlega út í um-
hverfið.
Hollustuvemd þarf einnig að setja
staðla um vatnsmengun, mengun í
úrgangi, hvernig eftirliti verði hátt-
að, hvaða rannsóknir verði gerðar
áður en starfsemi hefst o.s.frv.
Mengun frá álveri getur verið
skaðleg gróðri, búfénaði og heilsu
manna og er því reynt að draga úr
henni með hreinsibúnaði. Sums stað-
ar verður nauðsynlegt að stýra land-
búnaðarstarfseminni í næsta ná-
grenni við álverið og jafnvel leggja
búskap af á sumum stöðum.
Reiknað er meö því að álverið full-
nægi kröfum um mengunarvarnir,
hvar sem það verður reist, með þeim
búnaði sem almennt er settur í ál-
ver. Þá er aðeins átt við svokallaðan
þurrhreinsibúnað.
Þurrhreinsibúnaðurinn virkar í
raun eins og kafíisía. Mörg lög af filt-
erum eru sett fyrir útblásturinn og
taka út fostu efnin, flúor og ryk. Efn-
in era síðan endurannin og notuð
aftur í vinnslunni.
Þurrhreinsibúnaður er mjög dýr.
Kostnaður við hann er örugglega
ekki undir tveim milljörðum króna.
Við það bætist kostnaður vegna loft-
ræstikerfls og lokur á kerunum. Hins
vegar verður að athuga það að aldrei
er hægt að hreinsa allt flúor frá. Það
skiptir því miklu máli hvað verður
um þau efni sem sleppa út. Kerin eru
Hans Brunhart, forsætisráðherra Liechtenstein, og kona hans komu í gær
í opinbera heimsókn til íslands í boði Steingríms Hermannssonar forsætis-
ráðherra. Þau verða hér fram á fimmtudag. DV-mynd JAK
Synti sunnudags-
sprettinn út í Vigur
faga Dan, DV, faafirði'
Kjartan Hauksson á ísafirði fékk sér
sundsprett á sunnudaginn líkt og
hann er vanur. í þetta sinn brá hann
sér út í Vigur úr Tjaldstaðatangan-
um, nesi milli Seyðisfjarðar og Hest-
fjarðar sem er næst eyjunni en þó i
tveggja kílómetra fjarlægð.
Kjartan sagði að sjórinn hefði lík-
lega verið um níu .stiga heitur og
hann hefði ekki þurft að búa sig sér-
staklega fyrir sundiö. Það var ágætis
veður en svolítill straumur og bára.
Kjartan er vanur kafari bg segir að
þetta hafi í sjálfu sér ekki verið meira
en vanalegt sund, þótt ekki sé endi-
lega stefnt út í eyju. Hann var innan
við klukkutíma á leiðinni.
Laugames:
Bátur tekinn
ófrjálsri hendi
Átján feta plastbát, sem stóð á
kerra í Laugamesi í Reykjavík, var
stolið aðfaranótt fimmtudagsins 28.
júní. Báturinn, sem er hvítur aö Ut,
er af gerðinni Flugfiskur.
Eigandi bátsins var búinn að rífa
aUar innréttingar úr honum.
Ekkert hefur spurst til þeirra sem
tóku bátinn og ekki er vitaö hvar
hann er niðurkominn. Vitað er að
hvítur bíll með R-númeri dró bátinn
burt.
-sme
að jafnaði lokuð en þegar skipta þarf
um rafskaut eða tappa málmi af ker-
unum eru þau opin og þá sleppur
alltaf eitthvað út.
í því sambandi skiptir miklu máU
hvemig veðurfarsskilyrði eru á við-
komandi stað, ríkjandi vindátt,
hversu opið svæðið er, hitafar o.fl.
Þröngir daUr eru því ekki góðir kost-
ir hvað þetta varðar.
Gera má ráð fyrir að minnst eins
til tveggja kílómetra belti umhverfis
verksmiðjuna verði fyrir flúormeng-
un. Hægt er að afskriifa það belti fyr-
ir hefðbundinn landbúnað og að
óæskilegt verði að fólk búi á því
svæði. Þetta á þó aöeins við um opin
svæði. í þröngum fjörðum getur
þetta svæði verið sjö til átta kílómetr-
ar.
Ef hins vegar á að hreinsa brenni-
steinsdíoxíð úr útblæstri þarf svo-
kaUaðan vothreinsibúnað. Slíkur
búnaður er notaður á nokkram stöð-
um í heiminum, m.a. á Norðurlönd-
unum. Sérstaklega er hann notaður
þar sem byggö er nálægt álverum,
viðkvæmur gróður eða há fjöll af-
marka svæöið.
Vothreinsibúnaðurinn virkar
þannig að sjó er dælt í gegnum kerf-
ið og saltið bindur SO-2 agnir sem
síðan er dælt út í sjó. Með þessu er
komiö í veg fyrir súrt regn þar sem
þetta berst ekki út í andrúmsloftið
og fellur því ekki til jarðar. Kostnað-
ur við vothreinsibúnaðinn er hins
vegar mikill, eða um einn milljarður
króna, auk rekstrarkostnaðar, en
sjódæling er nokkuð dýr.
Ekki er búið að ákveða hvort kraf-
ist verði vothreinsibúnaöar. íslend-
ingar eru mjög smáir hvað shka
mengun varðar en það gæti orðið
pólitísk ákvörðun hvort íslendingar
eiga að ganga á undan með góðu for-
dæmi hvað umhverfisvernd varöar.
-PÍ
Það dettur engum í hug
lengur að kaupa hjónarúm
án þess að skoða úrval okkar
fyrst og síðast. Víð bjóðum
yður úrvals rúm - regluleg
þægíndí í svefnherbergíð
- val úr 40 tegundum setta.
FAX 91-6735J1
SÍMI 91-681199
BÍLDSHÖFÐI 20 112 REYKJAVÍK