Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1990, Side 13
vxwwwww
ÞBIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 1990.
13
Lesendur
Við innritun flugfarþega. - Þyngdarvottorð takk! Eða: Vinsamlega stíga á vigtina! - Eitthvað verður að gera, að
mati bréfritara.
Yflrvigt flugfarþega innan- eða utanklæða:
Farþegar standi
jafnt að vígi
Daglaunamaður skrifar:
Ég sá að einhver var að skrifa í DV
um hvað það getur verið dýrt að vera
með of þungan farangur þegar fólk
ferðast með flugvélum. Það er svo
sem ekkert undan því að kvarta þótt
flugfélögin reikni sér ákveðnar tekj-
ur af þessu, þar sem þungur farangur
minnkar sjálfsagt möguleika þeirra
á að flytja fragt með flugvélunum.
Eitt er það hins vegar sem ég hef
aldrei skihö, en það er að þyngd far-
þeganna skuli ekki vera tekin með.
Fyrir fáeinum árum dvaldi ég um
nokkurra mánaða skeið í útlöndum.
Eins og gefur að skilja var ég með
töluverðan farangur þegar ég hélt
heim eða þrjár ferðatöskur. Ég þurfti
því aö borga fyrir yfirvigt og flaug
heim með töskurnar mínar á rúm-
lega einu og hálfu fargjaldi. Fyrir
framan mig í röðinni á flugvellinum
ytra var maður sem var með eina
tösku. Hann greiddi því einungis eitt
fargjald. Þessi maður var hins vegar
um 120 kíló á þyngd. Ég er hins veg-
ar ekki nema 70 kíló og þótt ég haldi
á þremur ferðatöskum er ég eftir sem
áður léttari en þessi maður. - Hann
tók því meira af burðargetu flugvél-
arinnar en ég, en eftir sem áður
þurfti ég að greiða eitt og hálft far-
gjald en hann aðeins einfalt.
Ég skil ekki hvers vegna flugfélög-
in vigta ekki farþega með töskum
sínum svo að hver um sig greiði réttl-
átan hluta af kostnaði við ferðina.
Það er eins og flugfélögin líti á það
sem einhverjar náttúruhamfarir að
fólk leggist í spik. Eins og það sé eitt-
hvað sem fólk ræður ekki við og því
þurfi að deila byrðinni á allan al-
menning. Það er hins vegar löngu
þekkt hvað veldur því að fólk fitnar.
Það borðar einfaldlega meira en það
þarf. - Fólk getur því minnkað átið
eða hreyft sig meira til að halda sér
í eðlilegu ástandi.
Mér finnst því réttlátt að þeir sem
bera yfirvigtina innan klæða greiði
fyrir hana á sama hátt og þeir sem
hafa hana með sér í töskum. Það
örlitla hlutfall af feitu fólki sem getur
lítið að líkamsþyngd sinni gert, t.d.
vegna rangra efnaskipta eða þvílíku
gæti hins vegar fengið sérstaka passa
frá landlæknisembætinnu, og með
framvísun þeirra fengið yfirvigtina
endurgreidda frá Almannatrygging-
um.
Kennarar
Kennara vantar til starfa við Seyðisfjarðarskóla næsta
vetur. Um er að ræða kennslu yngri barna.
Boðið er upp á ódýrt húsnæði og greiddur flutnings-
styrkur. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-21365 og yfirkennari í síma 97-21351.
Kennarar
Grunnskóli Beruneshrepps í Hamraborg auglýsir eft-
ir kennara í ca 2/3 stöðu. Ennfremur laus fleiri störf
við skólann. Starfinu fylgir frí íbúð í skólahúsinu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-88988 og
skólanefndarformaður í síma 97-88978. Umsóknar-
frestur til 3ja ágúst.
mffrc /Ukcnú,
AÖeins þab
hœfír þeim bestu
Hoffell
INNLENT
FERÐABLAÐ II
Miðvikudaginn 25. júlí nk. mun annað
innlent ferðablað íylg'a DV
í blaðinu verður fjailað um
útihátíðir um verslunarmannahelgina
(4.-6. ágúst) en meðal annars efnis verður til
dæmis fjallað um grill og girnilegar griliuppskrift-
ir, nesti ferðalangsins og útbúnað, kort um ferða-
möguleika, þ.e. rútuflug og ferjur, minnislista
ökumannsins, Breiðafjarðareyjar
hellaferðiro.fl. o.fl.
✓
Þeir auglýsendur, sem áhuga hafa á að augiýsa
í þessu aukablaði, vinsamlegast hafi samband
við auglýsingadeild DVhið fýrsta i síma 27022.
Ath! Skilafrestur auglýsinga er til 19. júii.
Auglýsingadeild
Bili bíllinn
getur rétt staðsettur
VIÐVÚRUNAR
ÞRÍHYRNINGUR
skipt öllu máli
ulUMFERÐAR
Uráð
Nauðungaruppboð á eftirtalinni fasteign fer fram að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, mánud. 23. júli ’90, kl. 10.00: Kveldúlfsgata 26, 3.h C, Borgamesi, talinn eigandi Guðbjörg Erlendsdótt- ir. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Gísli Kjartans- son hdl. og Lögmannsstofan, Lauga- vegi 178, R.
Lundur 2, Lundarreykjadalshreppi, talinn eigandi Snorri Stefánsson. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands og Baldur Guð- laugsson hrl.
Engjaás 1, Borgamesi, þingl. eigandi Loftorka hf. Uppboðsbeiðendur eru Iðnlánasjóður og Byggðastofhun.
Sýsluraaður Mýra- og Borgar§arðarsýslu Reitur, Reykholtsdalshi-eppi, þingl. eigandi Þórðui' Þórðarson. Uppboðs- beiðendui' em Innheimtudeild ríkis- sjóðs og Búnaðarbanki íslands. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, mánud. 23. júlí ’90, kl. 10.00:
Björk, Reykholtshreppi, þingl. eig. Jón Péturss., Þórvör E. Guðmundsd. Uppboðsbeiðandi er innheimtumaður ríkissjóðs