Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Síða 2
18
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
Ef þú VÍIt Út
að borða
VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI
A. Hansen
Vesturgötu 4, Hf.. sími 651 693.
American Style
Skipholti 70. sími 686838.
Argentína
Barónsstígur 11 a. sími 19555.
Amarhóll
Hverfisgötu 8-10. sími 18833.
Asía
Laugavegi 10, sími 626210
Askur
Suöurlandsbraut 4. sími 38550
Suöurlandsbraut 14. sími 81344.
Á alþingi
Þönglabakka 6 (Mjóddin). s. 79911.
Árberg
Ármúla 21. sími 686022.
Bandidos
Hverfisgötu 56. sími 21630
Bæjarins besti fiskur
Naustin, sími 1 8484
Café Hressó
Austurstræti 18. sími 14353.
Duus hús
v/Fischersund. sími 14446.
Eldvagninn
Laugavegi 73. sími 622631.
Fimman
Hafnarstræti 5, sími 11212.
Fjörukráin
Strandgötu 55. sími 651 21 3.
Fógetinn,
Aöalstræti 10. sími 16323.
Gaukur á Stöng
Tryggvagötu 22. sími 11556.
Gullni haninn
Laugavegi 178, sími 34780.
Hallargaróurinn
Húsi verslunarinnar. sími 30400.
Hard Rock Café
Kringlunni. sími 689888.
Hjá Kim
Ármúla 34. sími 31 381.
Horniö
Hafnarstræti 1 5, sími 1 3340.
Hótel Borg
Pósthússtræti 11, sími 11440.
Hótel Holt
Bergstaöastræti 37. sími 25700.
Hótel ísland
v/Ármúla. sími 687111.
Hótel Lind
Rauðarárstíg 18. sími 623350.
Hótel Loftleiöir
Reykjavíkurflugvelli, sími 22322.
Hótel Óöinsvé
v/Óðinstorg. símig25224.
Hótel Saga
Grilliö. sími 25033.
Súlnasalur, sími 20221.
Skrúður. sími 29900.
Hrafninn,
Skipholti 37, sími 685670.
Ítalía
Laugavegi 11. sími 24630.
Jónatan Livingston mávur.
Tryggvagötu 4-6. sími 1 5520
Kabarett, Matkrá
Austurstræti 4, sími 10292.
Kaffivagninn
Grandagaröi. sími 1 5932.
Kínahofiö
Nýbýlavegi 20. sími 45022.
Kína-Húsiö
Lækjargötu 8. sími 11014.
Kringlukráin
Kringlunni 4, sími 680878.
Krókurinn
Nýbýlavegi 26. sími 46080.
Lauga-ás,
Suöurlandsbraut 2. sími 689509.
Lækjarbrekka
Bankastræti 2. sími 14430.
Madonna
Rauðarárstíg 27-29, sími 621988
Mamma Rósa
Hamraborg 11. sími 42166
Mandaríninn
Tryggvagötu 26, sími 23950.
Mongolian Barbecue
Grensásvegi 7, sími 688311
Myllan, kaffihús
Kringlunni. sími 689040.
Naustiö
Vesturgötu 6-8. sími 17759.
Ópera
Lækjargötu 2. sími 29499.
Pétursklaustur
Laugavegi 73. sími 23433.
Pizzahúsiö
Grensásvegi 10, sími 39933.
Pizzaramí
Hringbraut 119. sími 21066.
Pizzusmiöjan
Smiðjuvegi 14 D. sími 72177
Potturinn og pannan
Brautarholti 22. sími 11690.
Punktur og pasta
Amtmannsstig 1. sími 13303.
Rauða Ijónið
Eiðistorgi. simi 611414.
Rauði sófinn
Laugavegi 126. sími 16566, 612095
Samlokur og fiskur
Hafnarstræti 5. sími 1 8484.
Setriö
Sigtúni 38. sfmi 689000.
Siam,
Skólavörðurstlg 22. slmi 28208.
Singapore
ReyKjavíkurvegi 68. sími 54999.
Sjanghæ
Laugavegi 28. sími 16513.
Staupasteinn
Smiðjuvegi 14 D. slmi 607347
Svarta pannan
Hafnarstræti 17, sími 16480.
Sælkerinn
Austurstræti 22. slmi 11633.
Taj Mahal, Tandori og Sushi bar.
Laugavegi 34a, sími 1 3088.
Tveir vinir og annar í fríi.
Laugavegi 45. slmi 21255.
Veitingahúsiö 22
Laugavegi 22. sími 13628.
Við Tiörnina
Templarasundi 3. sími 1 8666.
Viva Strætó
Lækjagötu 2.
ölkeldan
Laugavegi 22. slmi 621036.
Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús:
Verðið er svipað
en gæðin eru ólík
Staöarskáli er meö betri veitingastöðum við hringveginn.
Ferðamenn á norðurleið eiga
kost á ýmsum matstöðum við
hringveginn eða í nágrenni hans.
Sameiginlegt með þeim flestum er
verðiö, sem er tiltölulega hátt, ef
til dæmis er miðað við gæðastað á
borð við Laugaás í Reykjavík.
Lengra nær samanburðurinn
ekki, því að staðir þessir eru gjöró-
líkir að öðru leyti. Flestir eru frá-
hrindandi og örfáir notalegir.
Nokkrir búa yfir fagmennsku í eld-
húsi, en í flestum er hvorki beitt
fagmennsku né tiifinningu. Þaö er
því afar misjafnt, sem feröamaður-
ínn fær fyrir peninginn.
Blönduskálinn
Blönduskálinn er dæmigerður
áningarstaður við hringveginn.
Hann er benzínstöð, sem smám
saman hefur vaxið upp í að hafa
mat á boðstólum, þótt mest áherzla
sé lögð á ruslfæöi, eins og hvar-
vetna við þjóðvegi landsins.
Blönduskáhnn er ekki aðlaðandi,
fremur en aðrir slíkir skálar. Kapp-
klæddir útlendir ferðamenn sitja á
einfoldum stálstólum við einfold
stálborð og velta fyrir sér, hvernig
þeim datt í hug að fara á hjara ver-
aldar. Þetta gæti verið í fangabúð-
um í Síberíu. Samt eru pottablóm
í gluggum.
Réttur dagsins var aðeins einn.
Það var soðinn lax með kartöflum
og óbræddu smjöri í álpappír. Lax-
inn var allt of lengi soðinn, greini-
lega án nokkurrar minnstu þekk-
ingar á matreiðslu eða tifinningar
fyrir henni. Laxinn varð þurr sem
túnfiskur, raunar eins og tíðkaðist
hér í veitingahúsum í gamla daga.
Laximnn fylgdi sæmileg súpa og
kaffi. Þetta kostaði 1.180 krónur.
Þaö finnst mér nokkuð mikið mið-
að við útht staðarins og elda-
mennsku, en er auðvitað í stíl við
það, sem ferðamenn eru látnir sæta
hvarvetna á leið þeirra um landið.
Staðarskáli
Staðarskáh hefur mér löngum
þótt betri en margir aðrir áningar-
staðir við þjóðveginn. Ræður þar
mestu um, að eigandinn er á stöð-
ugu vakld til að hta eftir, að aUt sé
í lagi. Margt fer nefnilega úr skorð-
um, ef veitingamaður fer í for-
stjóraleik.
Staðarskáh er snyrtilegri en flest-
ir áningarstaðir, þótt hann sé stór
og þröng sé oft á þingi. Miklu máli
skiptir, að skilið er á milh sjoppuaf-
greiðslunnar og matarafgreiösl-
unnar.
Þá hefur StaðarskáU þá sérstöðu,
að þar er oft lærður kokkur við
eldavéUna. Það munar töluverðu,
svo sem ég komast að raun um,
þegar ég var síðast þar á ferð um
daginn.
Einn af réttum dagsins var viðar-
kola-reyksteikí lambakjöt, mjög
gott og skeruntílegt. Mér kom
raunar mjög á óvart, hvað þessi
réttur var góður. Viðarkolin gáfu
kjötinu æsUegan keim. Og óvenju-
legur var rétturinn óneitanlega,
gott dæmi um, aö ekki hafa enn
verið fuUreyndir aUir möguleikar
á aö venja fólk við lambakjötsát.
Súpa og kaffi voru innifalin í
veröi lambakjötsins á 1.150 krónur.
Það er hagstætt í samanburði við
Ula eldaöan laxinn á 1.180 krónur
í Blönduskála. Auk þess var í Stað-
arskála hægt að velja sér ódýrari
mat, < óUas á 990 krónur og djúp-
steik. ýsuflök á 790 krónur, hvort
Þ'eggja meö súpu og kaffi.
Þetta er nokkum veginn sama
verð og í Laugaási í Reykjavík og
lægra en gerist og gengur við
hringveginn.
Dalakofinn
Ef vikið er út af hringveginum,
má finna athyglisverðar matstofur.
Ein þeirra er Dalakofinn á Sauðár-
króki, þar sem boðið er upp á mat
í notalegu umhverfi og við nokkuö
góða þjónustu.
Húsbúnaöur er vandaður í Dala-
kofanum, málmrörastólar með
áklæði og ber tréborö með diska-
mottum. Á borðum eru gerviblóm
og fremur þykkar pappírsþurrkur.
Á veggjum hanga gamlar ljós-
myndir af Sauöárkróki.
I framhaldi af veitingasalnum,
sem rúmar um 40 manns, er um
20 manna garðstofa undir glerþaki.
Þar er gengt út í garð, þar sem sett
eru út borð í góðviðri. Þetta er hinn
notalegasti staður á hlýju sumar-
kvöldi.
Matreiöslan var veiki punktur-
inn, greinilega hvorki framin af til-
finningu né lærdómi. Blómkáls-
súpa var heit og var það hið eina
jákvæða við hana. Kaffi eftir mat-
inn var í lagi, borið fram með kon-
fektmolum.
Steikt ýsuflök voru borin fram
með frönskum kartöflum, hrásalati
og remúlaði, gamalkunnu for-
múlumeðlæti. Þau voru mjög
hrikalega þakin raspi, afar þunn
og grimmdarlega steikt. Ég borðaði
þau af óbilandi hugsjón fræði-
mannsáhugans, en hefði aldrei
snert á þeim sem ferðamaður.
Þetta virtist hafa verið fryst vara,
sem síðan hafði verið látin hggja
allt of lengi í örbylgjuofni. Ég átti
von á betri fiski í útgerðarbæ sem
þessum. Sjaldan hef ég raunar
fengið öllu verri fisk, enda var
hann líklega úr pökkum tilbúinna
rétta, sem ætlaöir eru varnarlaus-
um skólabörnum og föngum í
Bandaríkjunum.
Þetta hefur þá verið skólabókar-
dæmi um svokallaðar unnar fiskaf-
urðir, útflutningsstolt íslendinga,
sem hampaö er á kostnað óunnins
fisks, en það er nýyrði yfir ætan
fisk ferskan.
Raspfiskur með súpu og kaffi
kostaði 890 krónur. Einnig var
hægt að fá lambakótilettur á 1290
krónur og hangikjöt á 1350 krónur.
Þetta er svipaö verð og gildir við
hringveginn.
í Dalakofanum var einnig sér-
réttaseðill með nokkrum dýrari
réttum, svo og vínlisti, þar sem ein-
göngu var að finna léleg vín.
Dalakofinn hefur stigið hálft
skref frá hversdagsleika ferða-
mannastaða. Húsakynnin eru
hugguleg. En það kostar lítiö sem
ekkert til viðbótar aö elda matinn
almennilega og það vantar alger-
lega enn.
Mælifell
Á Sauðárkróki er annar veitinga-
salur, á hótelinu Mælifelh. Þar er
verð örlítið hærra en í Dalakofan-
um, fiskur með súpu og kaffi á 1.100
krónur og grísasteik með súpu og
kaffi á 1.550 krónur.
Hins vegar er Mælifell alvöru
matstaður og engin ferðamanna-
gildra. Þar er notalegt umhverfi,
fagleg þjónusta og matreiðsla í góð-
um flokki. Allt er þetta á sam-
keppnishæfu verði, ef miðað er við
Reykjavík.
Þetta er sex herbergja hótel viö
aöalgötu Sauðárkróks, skammt frá
Dalakofanum. í matsalnum er
dimmur viður í hólf og gólf, bæði
í veggjum og lofti, svo og í þungum
viöarhúsgögnum. Á boröum eru
diskamottur og þykkar pappírs-
þurrkur.
Súpur dagsins reyndust ágætar,
í eitt skipti borin fram meö heitu
hvítlauksbrauði, afar góðu. Þá er
ís hússins fremur góður, skreyttur
á fagmannlega vísu. Kaffi er gott,
ekki úr dunkum.
Pönnusteiktur silungur var
fremur lítið eldaöur og þess vegna
nokkuð góður. Grísakötilettur
voru hæfilega Mtiö eldaðar, næst-
um bleikar, mjög góöar. Með þeim
var borinn fram ferskur maís í
klemmu. Ég hef ekki oft fengið
mikið betur eldað grísakjöt hér á
landi.
Á Mælifelh er einnig sérréttaseð-
ill með dýrari réttum. Þá er þar
vínlisti, þar sem nota má hvítvínin
Riesling Hugel og Hochheimer
Daubhaus og rauðvínin Chteau
Barthez de Luze og Santa Cristina.
Mér finnst ekki óeölileg krafa, að
matstaðir við hringveginn séu á
svipuöu stigi verðs og gæða og
Staðarskáli og að hinir vandaðri
staðir í nágrenni hans séu á svip-
uðu stigi verðs og gæða og Hótel
Mælifell.
Þrír Frakkar hjá Úlfari
Baldursgötu 14, slmi 23939.
Ölkjallarinn
Póstfiússtræti 17. slmi 13344.
Ölver
v/Álfheima, sími 686220.
AKUREYRI:
Bautinn
Hafnarstræti 92, sími 21818.
Fiðlarinn.
Skipagötu ‘14, sími 27100.
Hlóðir
Geislagötu 7, sími 22504 og 22600
Hótel KEA
Hafnarstræti 87—89, sími 22200.
Hótel Stefanía.
Hafnarstræti 83-85, sími 26366
Laxdalshús
Aðalstræti 1 1, sími 26680.
Sjallinn
Geislagötu 14. sími 22970.
Smiðjan
Kaupvangsstræti 3, sími 21818.
Uppinn
Ráðhústorgi 9. sími 241 99
VESTMANNAEYJAR:
Muninn
Vestmannabraut 28. sími 11422
Skansinn/Gestgjafinn
Heiðarvegi 1, slmi 12577.
Skútinn
Kirkjuvegi 21. sími 11420.
KEFLAVÍK:
Edinborg
Hafnargötu 30, sími 12000.
Glaumberg/Sjávargull
Vesturbraut 1 7, sími 14040.
Glóðin
Hafnargötu 62, sími 11777.
Flughótelið
Hafnargötu 57, sími 1 5222.
Ráin
Hafnargata 19 sími 14601.
SUÐURLAND:
Gjáin
Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555.
Hótel Selfoss
Eyravegi 2, Selfossi. sími 22 500
Hótel Örk, Nóagrill
Breiðumörk 1. Hverag.. s. 34700.
Inghóll
Austurvegi 46. Self.. sími 21356.
Skíðaskálinn, Hveradölum
v/Suðurlandsveg. sími 98-34414.
VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS
Arnargrill
Arnarbakka 2. sími 77540.
Á næstu grösum
Laugavegi 26, sími 28410.
Bigga-bar - pizza
Tryggvagötu 18. sími 28060.
Blásteinn
Hraunbæ 102. sími 67331 T.
Bleiki pardusinn
Hjallahrauni 13, sími 652525.
Brauðstofan Gleymmérei
Nóatúni 17, sími 15355.
Chick King
Suðurveri. Stigahlíö 45-47. s. 38890.
Eikapíta
Hverfisgötu 82. sími 25522.
Eldsmiðjan
Bragagötu 38 A, sími 14248.
Gafl-inn
Dalshrauni 1 3. sími 54424.
Gnoðagrill
Gnoðavogi 44. sími 678555
Hér-inn
Laugavegi 72. sími 19144.
Höfðakaffi
Vagnhöfða 10. sími 696075.
Ingólfsbrunnur
Aðalstræti 9. sími 1 3620.
Jón bakan
Nýbýlavegi 1 4, sími 4661 4
Kentucky Fried Chicken
Hjallahrauni 1 5, sími 50828.
Lauga-ás
Laugarásvegi 1. sími 31620.
Lúxus kaffi
Skipholti 50b, slmi 83410.
Marinós pizza
Njálsgötu 26. slmi 22610.
Mokka-Expresso-Kaffi
Skólavörðustíg 3a. slmi 21174
Múlakaffi
v/Hallarmúla. sími 37737.
Nespizza, Austurströnd 8,
Austurströnd 8. sími 61 2030.
Norræna húsið
Hringbraut. sími 21522.
Næturgrillið
heimsendingarþj.. slmi 77444.
Óli prik
Hamraborg 14. sími 40344.
Pizzahúsið
Öldugötu 29, sími 623833.
Pizzaofninn
Gerðubergi. slmi 7901 1.
Pizza snögg-sneið
Skólavörðustíg 2. sími 1 3320
Gerðubergi. slmi 79011
Pítan
Skipholti 50 C. sími 6881 50.
Seibitinn
Eiðistorgi 13-15, simi 611070.
Smáréttir
Lækjargötu 2. sími 1 3480.
Smiðjukaffi
Smiöjuvegi 1 4d. sími 72177.
Sprengisandur
Bústaðavegi 1 53. sími 33679.
Sundakaffi
Sundahöfn. sími 36320.
Tíu dropar
Laugavegi 27. slmi 19380.
Toppurinn
Bíldshöföa 12. sími 672025.
Uxinn
Álfheimum 74, sími 685660.
Veitingahöllin
Húsi verslunarinnar. slmi 30400.
Vogakaffi
Smiójuvegi 50. simi 38533.
Western Fried, Mosfellssveit
v/Vesturlandsveg. sími 667373.
Winny’s
Laugavegi 116, slmi 25171.
AKUREYRI:
Crown Chicken
Skipagötu 12. sími 21464.
Keflavík:
Langbest, pizzustaður
Hafnargötu 62, sími 14777