Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Síða 5
20
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1990.
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1990.
21
Messur
Guðsþjónustur
Árbæjarprestakall: Guösþjónusta kl.
11 árdegis. Sönghópurinn Án skil-
yrða annast kirkjusöng í fjarveru
organista og kirkjukórs. Sr. Guö-
mundur Þorsteinsson.
Ásprestakall: Guösþjónusta kl. 11.
Sr. Ámi Bergur Sigurbjömsson.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Sr. Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Organ-
leikari Marteinn Hunger Friðriks-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Viðeyjarkirkja: Messa kl. 2 e.h.
Andrea Gylfadóttir syngur einsöng.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson leikur
undir á klassískan gítar. Dómkórinn
leiðir messusönginn. Organisti Mar-
teinn Hunger Friðriksson. Sr. Þórir
Stephensen.
Ellheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Ólafur Jóhannsson
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
með léttum söng kl. 20.30. Þorvaldur
Halldórsson og félagar sjá um söng-
inn. Umsjón Ragnheiður Sverris-
dóttir djákni.
Grensáskirkja: Messa kl. 11. Jóna
Hrönn Bolladóttir stud. theol. préd-
ikar. Organisti Árni Arinbjamarson.
Sr. Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur:
Fyrirbænaguösþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl
Sigurbjömsson
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Tóm-
as Sveinsson. Kvöldbænir og fyrir-
bænir em í kirkjunni á miðvikudög-
um kl. 18. Prestamir.
Hjallaprestakall: Fyrirhuguð guðs-
þjónusta í messuheimili Hjaliasókn-
ar í Digranesskóla fellur niður vegna
viðgerða í skólanum. Sr. Ólafur Jó-
hannsson
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta fellur
niður vegna þátttöku organleikara
og kirkjukórs á söngnámskeiði í
Skálholti. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Org-
anisti Ólafur Finnsson. Kór kirkj-
unnar syngur. MolakafFi eftir stund-
ina. Sóknarnefndin.
Laugarneskirkja: Guðsþjónustuna í
Hátúni 10B, 9. hæð, á laugardaginn
kl. 11. Sóknarprestur
Neskirkja Messa kl. 11. Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Miðviku-
dagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Organisti Gyða Halldórsdóttir. Sr.
Guðmundur Öm Ragnarsson.
Þriðjudagur: Samkoma kl. 8.30.
Sönghópurinn Án skilyrða, stjóm-
andi Þorvaldur Hálldórsson
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
Ferðalög
Útivistarferöir
Helgarferöir 24.-26. ágúst
Þórsmörk - Básar - Fimmvörðuháls.
Fariö veröur í Bása á Goðalandi í kvöld
kl. 20. Á laugardagsmorgun verður ekið
að Skógum og gengið yflr Fimmvörðu-
háls á laugardag. Brottfór frá BSÍ, bens-
ínsölu.
Sunnudagur 26. ágúst
Dagsferð i Bása á Goöalandi kl. 0S.
Þórsmerkurgangan, 14. áfangi kl. 08.
Lambey - Aurasel - Stóri Dimon.
Gengið veröur um Aurana að Stóra Dím-
Ustasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Jónas Ingi-
mundarson
á þriðjudags-
tónleikum
Á þriðjudagstónleikum í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar næst-
komandi þriðjudag, 28. ágúst, kl.
20.30 mun Jónas Ingimundarson
píanisti leika verk eftir Chopin.
Jónas er tónleikagestum Lista-
safns Sigurjóns Ólafsson vel kunn-
ur, því í fyrrasumar hélt hann ein-
leikstónleika og fyrr í sumar lék
hann undir söng Sólrúnar Braga-
dóttur í sal safnsins. Er skemmst
frá því að segja að endurtaka þurfti
báða tónleikana vegna mikillar
aðsóknar og urðu samt margir frá
að hverfa. Jónas er nýkominn frá
Englandi þar sem hann hélt tón-
leika með Kristni Sigmundssyni á
listahátíð í Stratford upon Avon.
Að venju munu tónleikarnir
standa í um það bil klukkustund
Jónas Ingimundarson píanisti leik- og verður kaffistofa safnsins opin
ur verk eftir Chopin. að þeim loknum.
Nessöfnuður fer í sina árlegu síðsumarferð á laugardag. Að þessu sinni
verður farið i Borgarfjörð og sögufrægir staðir verða barðir aiigum.
Fararstjóri verður séra Guðmundur Óskar Óiafsson.
Sigurður og Daníel leika í Mývatnssveit og á Húsavik um þessa helgi.
Norðurland:
Tónleikaferð Sigurð-
ar og Daníels
Sverrir er sjálfmenntaður í tísku-
hönnun og fatagerð.
Gallerí 15:
Handmálað-
ir silkijakkar
ogtísku-
teikningar
Sverrir Sv. Sigurðarson heldur
um þessar mundir sýningu á hand-
máluðum módel samkvæmisjökk-
um úr silki í Gallerí 15, Skólavörðu-
stíg 15, kjallara. Þar gefst einnig
kostur á að skoða tískuteikningar
Sverris frá árunum 1986-89. Sverr-
ir er 22 ára að aldri og er hann sjálf-
menntaður í tískuhönnun og fata-
gerð.
Sýningin er opin á laugardag og
sunnudag og er opið báða dagana
frá kl. 13-18.
Sigurður Halldórsson sellóleikari og
Daníel Þorsteinsson píanóleikari eru nú á
ferð um landið og um þessa helgi halda
þeir tónleika á Norðurlandi. Á laugardag
leika þeir félagar í Skjólbrekku í Mývatns-
sveit og á sunnudag í samkomusal Bama-
skólans á Húsavík. Sigurður og Daníel
flytja „Arpeggione" sónötu Schuberts, só-
nötu í A dúr eftir Beethoven, ásamt verkum
eftir Fauré, Martinu og Boccherini.
Á tónleikum í byrjun árs 1983 hófst ára-
langt samstarf þeirra Daníels og Sigurðar
á sviði fijálsrar spunatóniistar. Reyndist
það hinn ákjósanlegasti jarðvegur er þeir
fóru aö spila saman sígilda tónlist fyrir
þremur árum, eftir að hafa stundað hefð-
bundið tónlistamám, hvor í sínu horni frá
unga aldri.
Daníel lærir nú við Sweelink Tónlistar-
háskólann í Amsterdam undir leiðsögn.
Willems Brons, en Sigurður lauk námi fyr-
ir nokkru frá Guildhall School of Music and
Drama í London og sækir enn tíma hjá
aðalkennara sínum þar, Raphael Somm-
er.
Borgames:
Vatnslita-
myndir í
Félagsbæ
Á laugardag verður opnuð í Fé-
lagsbæ í Borgamesi sýning á vatns-
litamyndum Soffíu Þorkelsdóttur
frá Álftá.
Soffía stundað nám 1974-86 undir
handleiðslu Eiríks Smith. Nokkrar
myndanna era úr nágrenni Borg-
arness.
Sýningunni lýkur 2. september.
Á mánudag hefst söngnámskeið á
vegum Svanhvítar Egilsdóttur i
húsnæði Tónlistarskólans í
Reykjavik á Laugavegi 178. Svan-
hvít hefur haldið námskeið víða,
m.a. í Japan, Tawain, Austurríki,
Finnlandi og að sjálfsögðu hér-
lendis.
Djúpið:
Klippimyndir
Þorra Hringssonar
Á laugardag verður opnuð sýning í Djúp-
inu á verkum Þorra Hringssonar. Á sýn-
ingunni verða klippimyndir sem allar eru
unnar á þessu ári.
Þorri Hringsson er fæddur í Reykjavik
árið 1966. Hann lauk námi frá málaradeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands 1989 og
stundar nú nám við Jan Van Eyck Aka-
demíuna í Maastricht í Hollandi.
Sýningunni á verkum Þorra lýkur
sunnudaginn 9. september.
Þorri sýnir klippimyndir sem ailar eru unnar á þessu ári.
Danielle leggur verk sín undir dóm íslenskra listunnenda.
Gallerí 11:
Danielle Lescot
A laugardag verður opnuð i Gall-
eríi 11 sýning á verkum Danielle
Lescot frá Frakklandi.
Danielle er ung Parísarkona með
próf í sálarfræði en hefur að und-
anförnu einungis helgað sig list-
sköpun sinni en hún málar olíu-
verk og vinnur skúlptúra. Frá ár-
inu 1985 hefur hún tekið þátt í 10
samsýningum í París og annars
staðar í Frakklandi. Danielle kom
fyrst til íslands fyrir ári og heillað-
ist þá mjög af landi og þjóð. Eftir
heimsóknina vaknaði hjá henni
löngun til þess að leggja verk sín
undir dóm íslenskra listunnenda.
Því er hún komin aftur til landsins
til þess að sýna verk sín og vinna
ný verk í íslenskri náttúru.
Sýningin stendur til 6. september
og hún er opin alla daga frá kl.
14-18.
Aðalbjörg Jónsdóttir sýnir málverk og tvö veggspjöld með myndum af
handprjónuðum kjólum í Þrastarlundi við Sog um þessar mundir. Aðal-
björg hefur áður haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýning-
um.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl7
Art-Hún hópurinn sýnir skúlptúrverk,
graflk og myndir, unnar í kol, pastel og
olíu, í sýningarsal sínum að Stangarhyl 7.
Árbæjarsafn
sími 84412
Safniö er opiö alla daga nema mánudaga
kl. 10-18. Kafflhús safnsins, Dillonshús,
er opiö á sama tíma og safnið.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði eru
unnin í olíu og með vatnslitum, eru frá
árunum 1905-1930 og eru þau einkum frá
Suðurlandi. Sumarsýningin í safni Ás-
gríms Jónssonar stendur til ágústloka og
er opin alla daga nema mánudaga kl.
13.30 til 16.
Djúpið
Hafnarstræti
Á morgun verður opnuð sýning í Djúpinu
á verkum Þorra Hringssonar. Á sýning-
unni verða klippimyndir sem allar eru
unnar á þessu ári. Þorri Hringsson er
fæddur í Reykjavík 1966. Hann lauk námi
frá málaradeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1989 og stundar nú nám við
Jan Van Eyck akademíuna í Maastricht
í Hollandi. Sýningunni lýkur sunnudag-
inn 9. september.
FÍM-salurinn
Garðastræti 6,
Þar stendur yfir sumarsýning félags-
manna. Yfir 40 listamenn, eldri og yngri,
eiga verk á sýningunni og eru þau öll til
sölu. Sýningin stendur til 27. ágúst. Opið
er frá kl. 14-18 virka daga en lokað um
helgar.
Gallerí 8
Austurstræti 8
Þar eru sýnd og seld verk eftir um það
bil 60 höfunda, ohu-, vatnshta- og grafík-
verk, teikningar, keramik, glerverk, silf-
urskartgripir, höggmyndir, vefnaður og
bækur um íslenska llst. Opið aha daga
kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Sýning á verkum í eigu safnsins. Opið
daglega kl. 14-18.
GalleríH
Á morgun verður opnuð sýning á verkum
Daniehe Lescot frá Frakklandi. Á sýning-
unni verða olíumálverk og skúlptúrar.
Sýningin verður opin aUa daga kl. 14-18,
nema opnunardaginn frá kl. 15. Sýningin
stendur til 6. september.
Gallerí 15
Skólavörðustíg 15,
Ákveðið hefur verið að framlengja sýn-
ingu Sverris Sv. Sigurðssonar á hand-
máluðum silkijökkum og tískuteikning-
um. Virka daga er opið kl. 16-21 og um
helgar kl. 13-18. Sýningunni lýkur 30.
ágúst.
oni, síðan eftir varnargarðinum aö Mark-
arfljótsbrú. Skemmtileg gönguferð með
stórbrotnu útsýni. Staðfróður Rangæing-
ur verður meö í fór. Brottfór frá BSÍ,
bensínsölu að veryu. Stansað verður við
Árbæjarsafn, á Selfossi við Fossnesti kl.
09, á Hellu viö GriUskálann kl. 9.30.
Ingólfsfjall
FjallahringsgöngurÚtivistar, 8. ferðin.
Brottför frá BSI, bensínsölu kl. 13.
Hjólreiðaferð kl. 13.30. Hjólað verður um
götur og hestastíga við EUiðavatn, stutt
leið í hijúfu landslagi.
Ferðafélag íslands
Helgarferðir 24.-26. ágúst
1. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Skipulagöar gönguferðir
um Mörkina.
2. Landmannalaugar - Krakatindsleið
- Álftavatn. Gist fyrri nóttina í sæluhúsi
FÍ í Laugum, en þá seinni í sæluhúsi FÍ
við Álftavatn á FjaUabaksleið syðri. Upp-
lýsingar og farmiðasala á skrifstofunni,
Öldugötu 3.
Dagsferðir sunnudaginn 26. ágúst
1. kl. 08 Þórsmörk - dagsferð. Verð kr.
2.000. Enn er ástæða til aö huga að sumar-
leyfisdvöl hjá Ferðafélaginu í Þórsmörk.
Kannið tílboðsferð á lengri dvöl.
2. Kl. 9 Geysir - Hólar - Sandá. (Af-
mælisgangan 10. ferð). Gangan hefst við
Geysi og Uggur leiðin í grennd við þjóð-
veginn aUt að Tungufljóti en þaðan verð-
ur gengið frá Kjóastöðum vestan vegar
að Sandá. Verö kr. 1.700.
3. Kl. 9 Hagavatn - ökuferð. Hagavatn
er stöðuvatn, austan undir HagafeUi í
Langjökh. Gengið verður að vatninu og
litast um. Göngubrú er yfir. Farið viö
útfaU vatnsins. Verð kr. 2.000. Brottför
frá Umferðarmiöstöðinni, austanmegin.
Farmiðar við bU. Frítt fyrir böm að 15
ára aldri í fylgd fuUorðinna.
Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins
1. 24.-24. ágúst. Síðasta skipulagða
gönguferðin um „Laugaveginn“ á
þessu sumri. Gengiö frá Landmanna-
laugum til Þórsmerkur. Nokkur sæti
laus.
2.30. ágúst til 2. september. Milli Hvítár
og Þjórsár.
Ökuferð með göngustígum um afrétti
Gnúpveija- og Hrunamanna. Litast um í
Leppistungum, Kerlingargljúfri og Gljúf-
urleit. Svefnpokagisting. Farastjóri:
Kristján M. Baldursson. Upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofu FI, Öldugötu 3.
Pantið tímanlega. AUir velkomnir í ferðir
Ferðafélagsins.
Fundir
Aglow, kristileg
samtök kvenna
verða með fund í kaffisal Bústaðakirkju
mánudaginn 27. ágúst. Björg Davíðsdóttir
og Guðlaug Hanssen verða ræðukonur
fundarins sem hefst með kaffiveitingum
kl. 20. Fundurinn er öllum konum opinn.
Aglow er alþjóðleg samtök kvenna úr
mörgum kirkjudeUdum. Á mánaðarleg-
um fundum samtakanna hittast konur
og eiga ánægjulega og notalega stund um
leið og þær lofa guð saman, hlusta á vitn-
isburð og einnig er boðið upp á fyrirbæn-
ir. Eins og áður sagði eru aUar konur
velkomnar og þær hvattar til að kynna
sér starfið.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur hjá Félagi
tónlistarskólakennara
Mánudagskvöldið 27. ágúst nk. mun Pet-
er Renshaw halda fyrirlestur í sal BSRB-
hússins, að Grettisgötu 89, 4. hæð. Fyrir-
lesturinn hefst kl. 20.30. Peter Renshaw
er enskur að ætt og uppruna. Hann er
tónlistarmaður (fiðluleikari, söngvari og
stjómandi). Hann var skólastjóri Yehudi
Menuhin-skólans, sem er skóh fyrir börn
með afburða tónhstargreind, frá 1975.
Hann haföi árið 1984 forgöngu um stofn-
un nýrrar deUdar við tórUistar- og leik-
listarskólann GuUdhaU School of Music
and Drama i London. DeUdin ber nafnið
„Communication and performance
skiUs“. (CPS). CPS hefur víða vakið at-
hygh og má nefna að hhðstæðar deUdir
eru nú einnig starfandi við tónhstar-
háskólana í Gautaborg, Lundi og Osló.
Tilkyimingar
Ferðaþjónustubæir sem
bjóða upp á berjatínslu
Brennistaðir i Flókadal: Ágætis spretta,
aðaUega krækiber. Ókeypis fyrir gesti.
Garðar i Staöarsveit: Mjög góð beija-
spretta, aUar tegundir af beijum en mest
af krækibeijum. Ókeypis fyrir gesti.
Lýsuhóll i Staðarsveit: Góð beija-
spretta, krækiber, bláber og aðalbláber.
Suöur-Bár i Eyrarsveit: Góð berja-
spretta, krækiber og bláber.
Stóra-Vatnshorn í Haukadal: Góð
beijaspretta, krækiber og aðalbláber.
Staður í Reykhólahreppi: Mjög mikíð
af beijum, ahar tegundir.
Fossá á Barðaströnd: Ágætt beijaland,
aUar tegundir.
Alviðra i Dýrafirði: Góð beijaspretta,
aðaUega krækiber.
Rauðamýri við Djúp: Ágætis spretta,
mest af aðalbláberjum.
Melstaður í Miðfirði: Ágætis berjaland,
mest af blábeijum.
Syðri-Hagi á Árskógsströnd: Gott beija-
land, mikið af blábeijum en ekki fuh-
þroskuð fyrr en í endaöan ágúst.
Ytri-Vik á Árskógsströnd: Mjög góð
beijalönd, mest af blábeijum og aðalblá-
beijum.
Fosshóli í Bárðardal: Mjög góð spretta,
aUar tegundir, en mest af krækibeijum.
Narfastaðir i Reykjadal: Mikið af öUum
tegundum af berjum.
Rauðaskriða i Aðaldal: MikU beija-
sjiretta, krækiber, biáber og aðalbláber.
Okeypis fyrir gesti.
Hraunbær í Aðaldal: Mikið af beijum 1
næsta nágrenni, leyfi seld á næsta bæ
(Ódýrt).
Skúlagarður í Keiduhverfi: Ágæt
spretta, aðaUega krækiber.
Fell i Bakkafirði: Góð spretta, mest af
krækibeijum en mikið af blábeijum og
einnig aðalbláberjum.
Syðri-Vík í Vopnafirði: Þónokkuð af
beijum í firðinum, bæði krækiber og blá-
ber.
Stapi i Borgarfiröi eystri: Ágætis
spretta, mest af krækibeijum og blábeij-
um.
Skipalækur í Fellum: Ágætis beija-
spretta, aöaUega krækiber.
Haugar í Skriðdal: SæmUeg spretta, aU-
ar tegundir af berjum.
Fell í Breiðdal: Ágætt beijaland, kræki-
ber og bláber.
Gistiheimilið Sólbrekka i Mjóafirði:
Mjög góð beijaspretta, aUar tegundir en
mest af krækibeijum.
Brattholt í Biskupstungum: Mikið af
beijum, krækiber og bláber.
Ahugaverð upp-
eldisnámskeið
Fjórða árið í röð býður Kramhúsið upp
á námskeið í tónlistar- og hreyfingarupp-
eldi. Hingað til hafa þessi námskeið nær
eingöngu verið sótt af kennurum, enda
markmið þeirra verið að auka áhuga
kennara á skapandi kennsluaðferðum í
skólastarfi með áherslu á rödd, hreyf-
ingu, tónlist og spuna. Nú er ramminn
hins vegar víkkaður þannig að fóstrum
og leiðbeinendum í almennu félagsstarfi
er einnig boðið aö njóta leiðsagnar úr-
valskennara með margháttaða menntun
og reynslu. Námskeiðin fara fram dagana
27.-31. ágúst nk. Nánari upplýsingar í
Kramhúsinu, Skólavörðustíg 12, símar:
15103 og 17860.
NOM-ráðstefna á
vegum Stúdentaráðs
Dagana 24.-26. ágúst verður haldin
NOM-ráðstefna á vegum Stúdentaráðs
Háskóla íslands i fundasal gömlu Hjóna-
garða. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hús-
næðismál stúdenta, almennt og tengt
Nordplus. En Nordplus er áætlun á veg-
um Norðurlandaráðs um samstarf Há-
skóla á Norðurlöndum. NOM er skamm-
stöfun á Nordisk Ordförande Möte. NOM
vinnur að sameiginlegum hagsmunamál-
um stúdenta á Norðurlöndunum og eru
ráðstefnur sem þessi haldnar 2 sinnum á
ári. Á NOM-ráðstefnur mæta fuhtrúar
stúdentaráða háskóla á öUum Norður-
löndum.
Nessöfnuður
Síðsumarferð inn Borgaríjörð á morgun,
laugardag. Lagt af stað kl. 10 ftá Nes-
kirkju. Veitingar í Reykholti, beija-
spretta könnuð. Nánari upplýsingar hjá
kirlguverði milh kl. 16 og 18 í síma 16783.
Leikhús
Ferðaleikhúsið
Sýningar Ferðaleikhússins á Light
Nights eru í Tjamarbíói við Tjörnina í
Reykjavik (Tjamargötu lOe). Sýningar-
kvöld em fjögur í viku, fimmtudags-,
föstudags, laugardags- og sunnudags-
kvöld. Sýningar hefjast kl. 21 og lýkur
kl. 23. Light Nights-sýningamar em sér-
staklega færðar upp til skemmtunar og
fróðleiks enskumælandi ferðamönnum.
Efnið er aUt íslenskt en flutt á ensku.
Meðal efnis má nefna þjóðsögur af huldu-
fóUd, tröUum og draugum, gamlar gam-
anfrásagnir og einnig er atriði úr EgUs-
sögu sviösett. Þetta er 21. sumarið sem
Ferðaleikhúsið stendur fyrir sýningum á
Light Nights í Reykjavík.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10. Nú stendur
gróður í mestum blóma og ætlunin er að
taka strætó í austurbæinn og kanna nýj-
ar slóðir en labba svo tU baka. Nýlagað
molakaffi.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar hittast nk. laugardag kl.
10 í Nóatúni 17. ÞingvaUaferð 1. sept.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félags-
ins, s. 28812. Nokkur sæti laus í FjaUa-
baksleið þriðjudaginn 28. ágúst. Farar-
stjóri Pétur H. Ólafsson. Upplýsingar á
skrifstofu félagsins eða ferðaskrifstofu
BSÍ, s. 623320.
DRÖGUM ÚRFERðI
ÁÐUR EN VIÐ
BEYGJUM! |
UMFERÐAR
RÁÐ