Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Side 18
 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990. þróttir Auðvelt hjá Stjömunni - sigraðu Gróttu, 27-20 Stjörnumenn uxuiu auðveldan sigur á Gróttu, 27-20, í 1. deildinni í Garðabæ í gærkvöldi. Garö- bæingar þurftu ekki að hafa mik- ið fyrir hlutunum því Gróttu- menn voru vægast sagt mjög lé- iegir. í leikhléi var staðan 12-8 og munurinn jókst í 11 raörk um í miðjan seinni hálfleik. Undir lok- > in duttu Stjörnumenn niður á - sama plan og gestir þeirra og x Gróttumönnum tókst að minnka muninn í 7 mörk undir lokin. Skúli Gunnsteinsson og Haf- steinn Bragason voru bestir í annars jöfnu liði Stjörnunnar en erfitt er að dæma liðið því mót- . staðan var ekki mikil. Svavar Magnússon stóð einna : helst upp úr hjá Gróttumönnum. Guöjón Sigurðsson og Hákon Sigurjónsson dæmdu leikinn og komust þokkalega frá sínu. Mörk Stjömunnar Hafsteinn • Bragason 7, Skúli Gunnsteinsson 6, Magnús Sigurðsson 4/1, Patrek- ur Jóhannesson 4, Sigurður Bjamason 3/1, Hilmar Hjaltason ' 2 og Axel Björnsson 1. ^ Mörk Gróttu: Svavar Magnús- son 6, Vladimir Alexej vich 5, Stef- án Arnarsson 4, Páll Björnsson 2, Ólafúr Sveinsson 1, Sverrir : Sverrisson 1 og Friðleifur Frið- leifsson 1. -RR ÍRsaxaði á f orskotið y - Víkingur vann, 24-27 „í fyrri hálfleik voru leikmenn minir mjög taugaveiklaðir, kom- ust ekki í gang, og höfðu ekki trú á því sem þeir vom að gera og fyrir þá var lagt. Þeír sýndu þó sitt rétta andlit síðustu 20 mínút- urnar og meö smá heppni hefðum við getað náð hagstæðari úrslit- um,“ sagði Guömundur Þórðar- son, þjálfari 1. deildar liös ÍR-inga I handknattleik, eftir að Víkingar höfðu sigrað þá, 24-27, í Seljaskó- lanum í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 12-7, Vík- ingum í vil, og í síðari hálfleik, þegar staðan var 21-12, virtist fátt geta komið i veg fyrir stórsig- f ur þeirra. En meö miklu harð- fylgi náðu ÍR-ingar að minnka muninn 1 þrjú mörk, 21-24, en lengra komust þeir ekki. Ámi Indriðason, liösstjóri Vík- ings, sagði að leiksiokum að síð- ustu 20 mínútur leiksins hefðu leikmenn hans misnotað upplögð marktækifæri. „Sóknir voru stuttar og ÍR-ingar svöraðu af bragði með hröðum upphlaup- um,“ sagöi Ámi. Bestir ÍR-inga voru Ólafur Gylfason og Hallgrímur Jónasson markvörður sem varði oft glæsi- Iega. Bestan leik Víkinga áttu Ámi Friðleifsson og Björgvin Rúnarsson. Mörk ÍR: Ólafur Gylfason 10/1, Jóhann Ásgeirsson 5, Frosti Guð- laugsson 4, Magnús Ólafsson 2, Róbert Rafhsson 2, Njörður Ámason 1. Mörk Víkings: Ámi Friðleifs- son 6, Björgvin Rúnarsson 5, Karl Þráinsson 4, Birgir Sigurðsson 4, Alexej Trufan 4/2, Hilmar Sigur- gíslason 3, Guðmundur Guð- mundsson l. Dómarar voru Stefán Amalds- son og Rögnvald Erlingsson og vorugóðiraðvanda. -GG Frestað Leik ÍBV og Fram í 1. deild Irnrla í handknattleik, sem fara átti fram í Eyjum í gærkvöldi, var frestað til laugardags þar sem flugvöUurinn í Eyjum er lokaöur • á kvöldin þessa dagana. - - . • Valdimar Grímsson skoraði 11 mörk fyrir Val gegn FH í gærkvöldi. Hér er hann stöðvaður af Hálfdáni Þórðar- syni og Pétur Pedersen er einnig tilbúinn til hjálpar. DV-mynd G£ Sigurmark Vals á síðustu sekúndu Sport- stúfar íslenska unglingalandsliðið, karla og kvenna, í frjálsum íþróttum tekur á næstunni þátt í Evrópukeppni félagsliða. Kvennakeppnin verður haldin í Manchester 22. september en karlakeppnin í London 29. sept- ember. Vegna sérstöðu íslands verða landshð send á umrædd mót. ísland hefur einu sinni áöur sent kvennalið en karlaliðið hef- ur þrisvar áður keppt á þessu móti. Unglingarnir hafa jafnan staðið sig ágætlega og er vonandi að það sama verði upp á teningn- um að þessu sinni. West Ham vann Þrír leikir fóra fram í 2. deild ensku knatt- spymunnar í gær- kvöldi. Brighton sigr- aði Porsmouth, 3-2. Millwall og Hull skildu jöfn, 3-3, og West Ham sigraði Ipswich á heima- velh, 3-1. Belgar og UEFA þræta Ekki era öll kurl komin til grafar varðandi harmleikinn sem varð á Haysel leikvanginum í Belgíu árið 1985 þegar 39. áhorfendur á leik Juventus og Liverpool létu lífið. Hans Bangerter, fyrram að- alritari UEFA, var í júní síðast- hðnum dæmdur saklaus af ákær- um um að bera ábyrgð á harm- leiknum vegna ónógrar öryggis- gæslu á velhnum en í gær úr- skurðaöi áfrýjunardómstóll í Belgíu Bangerter í skilsorðs- bundið þriggja mánaða fangelsi auk sektar. Belgar höfðu fyrir- hugað að sækja um að halda úr- shtakeppni Evrópukeppni lands- liða árið 1996 en eftir belgíski dómstólinn dæmdi fyrrum aðal- ritarann hafa stjómarmenn UEFA, með formanninn Lennart Johansson í fararbroddi, bragöist harkalega við og hafa hótað Belg- um að þeir fái ekki að halda Evr- ópukeppnina. - Valur vann meistaraslaginn gegn FH í gærkvöldi, 25-24 Bikarmeistarar Vals sigruðu Is- landsmeistara FH, 25-24, á Hhðar- enda í gærkvöldi, í 1. deild karla í handknattleik. Júlíus Gunnarsson skoraði sigurmark Vals á síðustu sekúndum leiksins. Leikurinn var spennandi síðustu mínúturnar og höfðu dómararnir, Guðmundur Lárasson og Guðmund- ur Stefánsson, gjörsamlega misst tökin á honum, og sjónar á því sem gerðist inni á leikvehinum. Valur náði 7-3 forystu í fyrri hálf- leik og leiddi í hálfleik, 13-10. Liðið hélt uppteknum hætti í síðari hálf- leik, jók jafnt og þétt forskot sitt þar th staðan var 19-11, og fátt virtist geta komið í veg fyrir öruggan sigur þeirra. Þá kom Bergsveinn Berg- sveinsson í mark FH fyrir Guðmund Hrafnkelsson og varði vel og breytti gjörunnri stöðu Vals í æsispennandi leik síðustu 20 mínúturnar. Valsmenn höfðu þó ávallt undir- tökin, eins th tveggja marka forystu, þar til Óskar Ármannsson jafnaði, 24-24. Leikur hðanna var bráð- skemmthegur og spilaður var góður handknattleikur miðaö við árstíma. Valsmenn hófu leikinn á því að spha 5/1 vörn en breyttu henni fljót- lega í 6/0. Vöm þeirra var mjög sterk framan af í leiknum, leikmenn voru hreyfanlegir og baráttuglaðir og léku þeir best ungu mennirnir, Finnur Jóhannesson og Ingi Rafn Jónsson, bráðefnilegir piltar, og geta eldri leikmenn Vals tekið þá sér til fyrir- myndar. Fyrir aftan góða vörn Vals stóö Einar Þorvarðarson og hefur hann engu gleymt. Sóknarleikur Vals var mjög góður nær allan leikinn, hðiö leikur ein- faldan sóknarleik, samleikur milli tveggja og þriggja manna þar sem hornamennimir Valdimar Grímsson og Jakob Sigurðsson, ásamt góðum leikstjórnanda, Jóni Kristjánssyni, era í aðalhlutverkum. Hraða- upphlaup liðsins voru beinskeytt og ihviðráðanleg. íslandsmeistarar FH hafa átt mis- jafna leiki á undirbúningstímanum og liðið hefur ekki ennþá náð fyrri styrkleika. Liðið var heillum horfið fyrstu 45 mínúturnar en náði upp geyshega góðri baráttu seinni hlut- ann, og náði þá að spila ágæta vöm sem hafði fram að þeim tíma verið götótt. Liðið leikur 3/2/1 vöm á hefð- bundinn hátt, shk vörn krefst mikhs hreyfanleika og krafts og virðist FH geta náð tökum á henni með mikilli æflngu. FH-ingar leika kerfisbundinn handknattleik þar sem hver sókn er niðurnjörvuð og fastákveðin. Lands- liðsmennirnir Guðjón Árnason og Óskar Ármannsson voru talsvert frá sínu besta, en sýndu svo klærnar í síðari hálfleik. Stefán Kristjánsson var besti maður FH í leiknum og hélt liðinu á floti í fyrri hálfleik. Mörk Vals: Valdimar Grímsson 11/4, Jakob Sigurðsson 4, Finnur Jó- hannesson 3, Jón Kristjánsson 2, Brynjar Harðarson 2, Júlíus Gunn- arsson 2, Ingi R. Jónsson 1. ■ Mörk FH: Stefán Kristjánsson 9/2, Guðjón Árnason 5, Óskar Ármanns- son 4, Hálfdán Þórðarson 3, Gunnar Beinteinsson 2, Pétur Pedersen 1. -GG Clogh framlengir samning sinn við Forest Brian Clough, framkvæmdastjóri Nottingham Forest, hefur gert nýjan þriggja ára samning við félagið. Clough hefur verið fram- kvæmdastjóri hjá Nottingham Forest frá því árinu 1975 og hefur starfað lengst allra fram- kvæmdastjóra á Englandi hjá sama félagi. Undir stjórn hans hefur félagið tvisvar sinnum hampað Evrópubikarnum, þrisv- ar sinnum hefur liðiö unnið enska meistaratitihnn og fjórum sinnum orðið enskur bikarmeist- ari. íslandsmótið í karate á laugardaginn Á laugardaginn verður haldið ís- landsmót í karate, nánar tUtekið í frjálsum bardaga (kumite). Mót- ið fer fram í íþróttahúsi Haga- skólans og hefst kl. 14. Keppt verður í þyngdarflokkum og 1 sveitakeppni. FH-stúlkur unnu á Hlíðarenda Valsstúlkur tóku á móti FH í Vals- heinúlinu í gærkvöldi og lauk leikn- um með sigri FH, 18-16, eftir að stað- an í hálfleik hafði verið 12-7, FH í vil. Þegar 13 mínútur voru tU leiksloka stóð 16-9 fyrir FH-stúlkur og Valslið- ið var þó ekki búið að segja sitt síð- asta orð og náði að minnka muninn í 16-15 og 4 mínútur til leiksloka en FH var sterkara á endasprettinum. • Mörk Vals: Anita Pálsdóttir 6/3, Una Steinsdóttir 4, Ama Garðarsdótt- ir 3, Berglind Ómarsdóttir 2/2, Ásta Sveinsdóttir 1. • Mörk FH: Amdís Aradóttir 6/4, Eva Baldursdóttir 3, Rut Baldursdóttir 2, Hildur Harðardóttir 2, María Sig- urðardóttir 2, Kristín Pétursdóttir 1, Berglind Hreinsdóttir 1, Helga Gils- dóttir 1. Öruggur sigurFram Gróttustúlkur fengu Fram í heim- sókn og urðu að sætta sig við 21-12. Fram breytti stöðunni úr 6-5 fyrir Gróttu í 6-10 sér í vU. Undir lokin lokaði Fram vörninni og skoraði mikið úr hraöaupphlaupum. Sólveig varði mjög vel í Gróttu- markinu en annars var hðið frekar jafnt. Hjá Fram stóð aöallega Þórunn upp úr frekar mistæku liði. • Mörk Gróttu: Laufey Sigvalda-' dóttir 5/2, Helga Sigmundsdóttir 3/2, Gunnhildur Ólafsdóttir 2, Erna Hjalte- sted 1, Elísabet Þorgeirsdóttir 1, • Mörk Fram: Guðriður Guðjóns- dóttir 7/6, Þórunn Garðarsdóttir 4, Ing- unn Bernódusdóttir 3, Ósk Víðisdóttir 3, Sigrún Blomsterberg 2, Hafdís Guö- jónsdóttír 1, Inga H. Pálsdóttir 1. Yfirburðir Stjörnunnar í Garðabæ náðu nýhðar Selfoss að halda í við Stjörnuna tU að byrja með. Staðan var 5-4 en síðan 13-7 í hálfleik. í síðari hálfleik gekk Stjarn- an hreinlega yfir nýhðana og vann ylirburðasigur, 29-10. • Mörk Stjörnunnar: Guðný Gunn- steinsdóttir 7, Erla Rafnsdóttir 5, Drífa Gunnarsdóttir 5, Ragnheiöur Stephen- sen 4, Sigrún Másdóttir 3, Margrét Theodórsdóttir 2, Ásta Kristjánsdóttir 1, Herdís Sigurbergsdóttir 1, Harpa Magnúsdóttir 1. • Mörk Selfoss: Guðbjörg Bjarna- dóttír 3, Auður Hermannsdóttir 3, Hulda Hermannsdóttir 1/1, Hulda Bjamadóttir 1, Inga Tryggvadóttir 1, Guðrún Hergeirsdóttir 1. -ÁBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.