Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Ás skrift - Dreiftng: Simi 27022 -
i
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990.
Kona ákærð:
Keyrðiá
fulltrúann
í Sakadómi Reykjavíkur er til méð-
<• ^ ferðar mál þar sem kona er ákærö
fyrir að hafa ekið vísvitandi á full-
trúa tollstjórans í Reykjavík. Fulltrúi
tollstjórans kom við annan mann til
að taka bifreið konunnar - þar sem
lögtak hafði gert í bifreiðinni.
Samkvæmt ákærunni var konan
ósátt við aðgerðina og settist inn í
bifreiðina, gangsetti og ók vísvitandi
á fulltrúann en aðstoðarmaðurinn
slapp. -sme
Bílvelta á
Reykjanesbraut
Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir
bílveltu viö Strandaheiði á Reykja-
nesbraut um klukkan fimm í nótt.
ísing var á veginum og akstur því
varhugaverður. Bíllinn valt eina
veltu og skemmdist hann töluvert.
Meiðsl þeirra sem voru í bílnum voru
þó ekki talin alvarleg.
Nýtt slitlag hefur verið lagt á
nokkra kafla á Reykjanesbrautinni.
Engar mið- né kantlínur hafa þó enn
verið málaðar á dökkt malbikið.
Akstur getur þvi verið mjög var-
hugaverður, aö sögn lögreglu.
-ÓTT
Akureyri:
Sviptur ökuleyfi
en ók strax aftur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ungur maður, sem var sviptur öku-
leyfi á Akureyri í gær vegna hrað-
aksturs innanbæjar, var strax kom-
inn út í umferðina aftur í gærkvöldi
og hélt uppteknum hætti.
Kvartað var undan glannalegum
akstri tveggja bifreiða í miðbænum
í gærkvöldi enda höfðu bifreiðarnar
■’ '** ausið möl yfir kyrrstæða bifreið og
skemmt hana. Lögreglan hafði upp á
ökumönnunum og kom þá í ljós að
sá sem sviptur hafði verið ökuleyfl
fyrr um daginn var aftur kominn á
stjá og hafði ekkert lært.
Maðurinn sem lést
Maðurinn, sem lést í vinnuslysi í
vöruskemmu á Keflavíkurflugvelh í
fyrradag, hét Axel Davíðsson, til
heimilis að Vesturgötu 40 í Keflavík.
Hann var 68 ára. Slysið varð með
þeim hætti að Axel féll ofan af Mtlum
skúr sem stendur inni í vöruskem-
munni. Hann starfaði sem trésmiður
. — fyrir varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli. -ÓTT
LOKI
Ætli þeir hafi ekki sofnað
með gæsahúð?
n
Eg hef aldrei lent
í öðru eins veðri“
„Þaö var bijálað veður á þriðju-
dag. Ég hef farið yfir þijátiu ferðir
og hef aldrei lent í öðru eins veðri.
Þetta var eins og um hávetur,“
sagði Ólafiir Jónsson í Eystra-
Geldingaholti í Gnúpveijahreppi.
Sjö ríðandi leitarraenn og Ólafur,
sem er á dráttarvél, hafa lent í
miklum hrakningum við eftir-
safnsleit á Gnúpveijaafrétti. Hóp-
urinn fór til leitar á laugardag.
Hann kemur til byggða í kvöld ef
allt gengur að óskum en mikill
snjór er nú á afréttiiium.
„Þaö var um klukkan níu á
þriðjudagsmorgun sem byrjaði að
snjóa. Hálftíma síðar var orðið al-
brjálað veður. Það var ekkert hægt
að leita vegna veðurs, Leitarmenn
komust við illan leik i Bjarnarlækj-
arbotna. Þeir héldu síðan til í leit-
armamiaskálanum við Gljúfurieit
Venjulega tekur tvær og hálfa
klukkustund að fara þessa leið en
þeir voru sjö klukkustundir. Þeir
voru orðnir kaldir og þrekaðir.
Ég varð að moka dráttarvéhna í
gegnum gil. Það_ tók mig fjórar
klukkustundir. Ég varð að fara
varlega þar sem í gilinu er beygja
og hhðarhalli. Ég ætlaði að reyna
að fara yfir auöan mel en það var
ekki hægt þar sem hann var eitt
drullufen. Eg varö að vera í drátt-
arvélinni aðfaranótt miövikudags-
ins og bíða þess að hiálpin bærist.
Leitarmennirnir vissu ekki um mig
og ég ekki um þá. Ég óttaðist að
þeir færu að leita min en það hefði
verið mjög erfitt eins og veðrið var.
Það gerði öllum erfiðara fyrir að
vita ekki hver um annan,“ sagði
Ólafur Jónsson.
Ölafur sagði að þar sem jörð væri
það blaut undir snjónum eftir mikl-
ar rigningar hefði hann ekki getað
ekið dráttarvélinni utan braut-
anna. Þegar rætt var við Ólaf, síð-
degis í gær, höföu leitarmenn fund-
ið rúmlega tuttugu ær. Ölafur sagði
að til stæði að fara eina leitarferð
til, þaö er að segja ef veður lejTði.
-sme
Kirkjan á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði fauk af grunni sinum í rokinu sem gekk yfir landið í fyrrakvöld. Kirkjan var
i endurbyggingu og stóð á tjökkum að hluta. Litlar skemmdir urðu á munum í kirkjunni en altaristaflan skemmdist
þó aðeins. Endurbyggja verður kirkjuna frá grunni næsta sumar en hún er frá 1878. DV-mynd Ægir Kristinsson
Gæsaskyttur í vanda:
Steigí
gegn um
bátinn
Þórhafiur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Ekki byijaði veiðitímabihð áfalla-
laust hjá tveimur gæsaskyttum á
Sauðárkróki og Mtlu munaði að illa
færi.
Skytturnar tvær fóru kvöld eitt
fyrir skömmu út í Eyhildarholts-
hólma í Héraðsvötnum. Farkostur-
inn var slöngubátur af einfóldustu
tegund. Þegar þeir félagar höfðu
skotið nægju sína og hugðust halda
heim á leið tókst ekki betur til en að
annar maðurinn steig í gegn um bát-
inn. Ekki var um annað að ræða fyr-
ir þá en hírast úti í hólmanum þar
til hjálp barst og sváfu þeir undir
bátnum alla nóttina. Sem betur fer
var veður með skásta móti miðað við
það sem verið hefur undanfarið.
Eiginkonur mannanna var farið að
lengja eftir þeim og gerðu þær björg-
unarsveitinni viövart. Gæsaskyttun-
um létti því mikið þegar björgunar-
báturinn birtist klukkan átta um
morguninn. Voru félagarnir þá orðn-
ir kaldir og hraktir, enda ekki undir-
búnir fyrir svefn undir berum himni
á þessum árstima.
Veðrið á morgun:
Víða létt-
skýjað
syðra
Á morgun verður norðanátt,
víða aMhvöss. Snjókoma norð-
austanlands og norðantM á Aust-
urlandi en él norðvestanlands.
Víða léttskýjað syðra.
Hiti verður á bMinu 0-5 stig,
hlýjast á Suðausturlandi.
VIDEO kem*r
Fákafeni 11, s. 687244