Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1990, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990. 15 Er fjármálaráð- herra stjórn- málafræðingur? Ronald Reagan, fyrrv. forseti, og Margaret Thatcher, fyrrv. forsætisráö- herra. - „Þau þurftu ekki að skipta um skoðun eða breyta um stefnu á neinn hátt til þess að kalda striðið tæki enda.“ í Þjóðviljanum, málgagni sósíal- isma, verkalýðshreyfingar og þjóð- frelsis, þann 23. nóvember sl. var viötal við Ólaf Grímsson fjármála- ráðherra, stjórnmálafræðing og æviráðinn kennara við Háskóla ís- lands, vegna þeirrar ákvöröunar frú Margaretar Thatcher að gefa ekki kost á sér í annarri umferð leiðtogakjörs breska íhaldsflokks- ins. í viðtalinu fór Ólafur með fullyrð- ingar sem eiga sér enga stoð í raun- veruleikanum. í viðtalinu sagði Ólafur orðrétt að...það væru því mikil tíðindi að íhaldsflokkurinn breski skuh nú gera það sem ekki hefur verið gert áður og fella for- mann sinn úr sessi og þar með stefnu hennar og Reagans.“ Þetta er alveg dæmalaust rugl. í fyrsta lagi hefur frú Thatcher aldr- ei verið formaður breska íhalds- flokksins heldur leiðtogi. Embætti formanns hefur Kenneth nokkur Baker gegnt með skemmtilegum og eftirtektarverðum hætti síðustu misseri. í öðru lagi hefur þaö gerst áður að íhaldsflokkurinn hafi fellt leið- toga sinn úr sessi. Það gerðist t.d. þegar frú Thatcher varð leiðtogi árið 1975. Þá fehdi hún þáverandi leiðtoga flokksins, Edward Heath, með afgerandi hætti í fyrstu um- ferð leiðtogakjörsins. Heath mátti þola þá niðurlægingu að fá minni hluta atkvæða í fyrstu umferð. KjaHarinn Glúmur Jón Björnsson efnafræðinemi í HÍ í þriðja lagi talar Ólafur Gríms- son um „stefnu Thatcher og Reag- ans“ og á þar við efnahagsstefnu. Þetta er ákaflega vafasamt því þótt frú Thatcher og Reagan hafi bæði lækkað skatta þá sá frú Thatcher jafnframt til þess að útgjöld ríkisins yrðu lækkuð á mnti og kom þar með í veg fyrir liaila á ríkissjóði. Alþjóðavitund Ólafs Ragnars Ólafi Grímssyni væri nær að tala um saméiginlega alþjóðastefnu frú Thatcher og Reagans. Þá einörðu og staðfostu stefnu sem þau fylgdu gagnvart kommúnískum harð- stjórum i Varsjárbandalaginu og gagnvart hryðjuverkamönnum eins og kunningja Steingríms Her- mannssonar og Gaddafl Líbýuein- valdi og nú síðast gagvart íraks- forseta. (Reyndar eiga Ólafur Grímsson og íraksforseti það sam- eiginlegt að vera ánægðir með af- sögn frú Thatcher.) í inngangi að stefnuskrá Alþýðu- bandalagsins frá því í vor segir Ólafur Grímsson að breytt sam- skipti austur og vesturs séu mest- megnis „friðarsinnum og jafnaðar- mönnum“ á Vesturlöndum að þakka. Og á hann þar m.a. við þær hreyfingar sem ni.a. þáöu fjár- styrki frá KGB og reyndu að grafa undan samstöðu Vesturlanda gagnvart Varsjárbandalaginu. Hann sá hins vegar ekki ástæðu til að minnast á menn eins og Lech Walesa, Václav Havel og Andrei Sakarov sem eiga mun meiri þátt í aö binda enda á kalda stríðið en þeir sem slógust við lögreglu V- Evrópu í nafni friðar og með fjár- stuðningi KGB. Ólafur getur þess ekki heldur að það var ekki stefnu- breyting Reagans og frú Thatcher heldur stefnufesta sem átti þátt í að binda enda á kalda stríðið. Þau þurftu ekki að skipta um skoðun eða breyta um stefnu á neinn hátt til þess að kalda stríðið tæki enda. Að þessu leyti les „stjórnmála- fræðingurinn" í fjármálaráðuneyt- inu alþjóðastjórnmál einnig vit- laust. Raunveruleikabandalagið í áðumefndu viðtali í Þjóöviljan- um lét „stjórnmálafræðingurinn" einnig þau orð falla að hann teldi það „eftir öðru ef Sjálfstæðisflokk- urinn yrði síðasta vigi Thatcher- ismans." Þetta er sérstaklega bros- legt í ljósi þeirrar nýju stefnu sem Ólafur Grímsson hefur verið að troða upp á Alþýðubandalagið. Sú stefna teygir sig að mörgu leyti i átt að Thatcherismanum. Þó vant- ar þar margt upp á og „raunveru- leikabandalag“ Ólafs Grímssonar virðist ekki vera að fullu reiðubúið til að horfast í augu við raunveru- legan árangur og sigur Thatcheris- mans.“ Þetta á „raunveruleikabandalag- ið“ reyndar sameiginlegt með Verkamannaflokki Neils Kinnock, en hann hefur gjörbreytt um stefnu á valdatíma frú Thatcher og sumir segja að árangur og sigur Thatc- herismans sjáist ef til vill best á þessari stökkbreytingu Verka- mannaflokksins. Einnig hljóma þessi ummæli um „siðasta vígi Thatcherismans" eins og hófadynur á hafi úti eftir að John Major tók við af frú Thatc- her. Hann hefur verið einn dygg- asti stuðningsmaður hennar og mun vafalítið halda áfram að byggja Bretland upp með þeirri stefnu sem kennd er við frú Thatc- her. Var einhver að tala um að það þyrfti að afnema æviráðningar há- skólakennara? Glúmur Jón Björnsson „Raunveruleikabandalag“ Ólafs Grímssonar viröist ekki vera aö fullu reiðubúið til að horfast í augu við raun- verulegan árangur og sigur Thatcher- ismans.“ _ Skot - en gróf lega framhjá „Á ráðstefnu knattspyrnuþjálfara 1985 „uppgötvuðu" þeir að unglingarn- ir væru úthaldslausir." Halldóri Halldórssyni, blaða- manni hjá DV, er mikið miðri fyrir í SKOT grein sinni í DV 19. nóv. Þar tekur hann upp umræðu síð- ustu daga í fjölmiðlum í framhaldi af því að Anton Bjarnason hefur farið á milli dagheimila og skóla viða um land með fyrirlestur og leiðbeiningar fyrir kennara og fóstrur um þaö hvernig megi auka hreyfiþroska barna á meðan þau eru á dagheimilum og eftir að þau heija skólagöngu. Hefur hann gjarnan bent á þær skoðanir sínar að hreyfiþroski barna fer hrakandi og hefur hann sínar skýringar á því. Margir eru honum sammála og gera sér grein fyrir vandanum eftir að hafa hlustað á fyrirlestur hans. Ekki ný uppgötvun Þetta er ekki ný uppgötvun, hún er eldri en frá 1985, þannig að ekki má ætla að ekkert hafl verið gert til að draga úr áhrifunum. Það er fyrst núna sem umræðan verður almenn. Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta en við getum verið sam- mála um að vandamálið er til stað- ar og orsakanna er að leita m.a. í breyttum þjóðfélagsháttum. Halldór Halldórsson segir að þeir nemendur, sem koma út úr grunn- skólanum og vilji heíja íþróttaæf- ingar, séu í mjög slæmri æfingu. Halldór Halldórsson virðist ekki vita þaö að þeir sem á annað borð hefja æfingar hjá íþróttafélagi gera það langflestir á unga aldri, 7-9 ára, en ekki 15-16 ára. Ég skal vera fyrstur manna til að viðurkenna að íþróttakennarar geta gert betur og reyndar hef ég KjaUaiinn Páll Ólafsson iþróttakennari verið gagnrýninn á stéttina á und- anfórnum árum. Víða er pottur brotinn en fiestir sinna starfi sínu af kostgæfni. Við tökum bara frek- ar eftir hinu neikvæða en lúnu já- kvæða. Á ráðstefnu knattspyrnuþjálfara 1985 „uppgötvuöu" þeir að ungling- arnir væru úthaldslausir. Þá virð- ast þeir hafa gert Janus Guðlaugs- son ábyrgan fyrir úrbótum. Átti Janus að gera kraftaverk? Hann er líklegur til þess en það er við meira en ofurefli að etja að eiga við ríkis- báknið og þar gerast ekki koll- steypur í uppeldismálum. Hafa náð langt Anton Bjarnason fær sinn skerf frá Halldóri Halldórssyni. Helst fann hann honum til foráttu að nemendur hans stæðu hinir róleg- ustu við blaknetin og „dangluðu boltanum á milli sín, gjörsamlega átakalaust". Spyr hann síðan um gildi slíkra æfmga. Veit Halldór Halldórsson ekki að það er miklu meiri vandi fyrir byrjendur að spila blak af viti heldur en fyrir byrjend- ur að leika knattspyrnu? Dettur þér í hug, Halldór Hall- dórsson, að Anton Bjamason kunni ekki að kenna blak, knatt- spyrnu handbolta eða körfubolta? Ef hann heldur að þjálfarar séu einir færir um að kenna sérgreinar sínar skal bent á að fjölmargir þjálfarar hjá íþróttafélögunum eru starfandi íþróttakennarar og hafa náð langt með sín lið og ef þeir em ekki færir um að ná því sama út úr nemendum sínum, hverju er þá um að kenna? íþróttakennarar hafa í gegnum tíðina beint efnilegum nemendum skólanna til íþróttafélaganna og stutt þannig við starfsemi þeirra. Ekki alhæfa Ég held að Halldór Halldórsson hafi skotið yfir markið með grein sinni í DV19. nóv. fpróttakennarar em tilbúúir að gera betur fái þeir fleiri vikustundir í íþróttum en þeir em á móti því að fela þjálfur- um úti í bæ alfarið kynningu á ein- staka íþróttagreinum. Komi til þess leita þeir til stéttarbræðra sinna sem hafa sérhæft sig í viðkomandi grein. Halldór, okkur er annt um starf okkar og flestir leggja sig fram en það leynist misjafn sauður í þessari slétt eins og öllum öðrum stéttum. Við megum ekki alhæfa þótt eitt- hvað fari úrskeiðis. Knattspymu- þjálfarar og aðrir þjálfarar fá mjög oft vel þjálfaða einstaklinga út úr skólakerfinu. í lokin skal á það bent að skóla- íþróttir em almennt kallaðar íþróttir í stundatöflu skólanna og starfsheiti okkar er íþróttakennari en ekki leikfimikennari. Það heiti spannar aðeins hluta af okkar starfi. Meðíþróttakveðju. Páll Ólafsson „Eg skal vera fyrstur manna til að við- urkenna að íþróttakennarar geta gert betur og reyndar hef ég verið gagnrýn- inn á stéttina á undanförnum árum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.