Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1990, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990. Fólk í fréttum Hjörleifur Guttormsson Hjörleifur Guttormsson hefur verið í fréttum DV en hann kom í veg fyrir þingrof með þeirri yfirlýs- ingu sinni að hann mundi sitja hjá við afgreiðslu bráðabirgðalaganna. Starfsferill Hjörleifur er fæddur 31. október 1935 á Hallormsstað og lauk diplomgráðu í líffræði við háskól- ann í Leipzig 1963. Hann var assist- ent viö Hygiene-Institute háskólans 1963 og fór í kynnisferð til Banda- ríkjanna vegna skólamála 1973. Hjörleifur var kennari í nútímais- lensku í norrænudeild háskólans í Leipzig 1958-1961 og var starfsmað- ur á rannsóknarstofu Fjórðungs- sjúkrahússins í Neskaupstað 1963- 1964. Hann var kennari í Gagn- fræöaskólanum í Neskaupstað 1964-1973 og vann að náttúrurann- sóknum, einkum á Austurlandi, 1968-1978. Hjörleifur undirbjó stofn- un Náttúrugripasafnsins í Neskaup- stað 1965-1971 og var forstöðumaöur þess 1971-1978. Hann vann margvís- leg störf á vegum Náttúruverndar- ráðs og Safnastofnunar Austur- lands 1972-1978 og vegna undirbún- ings menntaskóla á Austurlandi 1973-1978. Hjörleifur var forgöngu- maður að stofnun Náttúruverndar- samtaka Austurlands 1970, formaö- ur þeirra 1970-1979 og kynnti sér náttúruverndarmál í Bandaríkjun- um 1971. Hann var formaður Al- þýðubandalagsfélagsins í Neskaup- stað 1965-1967 Og 1976-1978 og for- maður kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi 1966- 1968. Hjörleifur var í Náttúruvernd- arráði 1972-1978 og hefur verið í Þingvallanefnd frá 1980. Hann hefur verið alþingismaður Austurlands- kjördæmis frá 1978 og var iönaðar- ráðherra 1978-1983. Fjölskylda Hjörleifur kvæntist 18. desember 1957 Kristínu Guttormsson, f. 12. október 1935, lækni á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað. For- eldrar Kristínar eru: Willy Bartl, starfsmaður verkalýðfélags í Halle í Þýskalandi, og kona hans, Anna Klara Bartl, f. Schuster, verkamað- ur i Dresden. Sonur Hjörleifs og Kristínar er Einar, f. 24. desember 1958, í doktorsnámi í sjávarlíffræði í Rode Island háskólanum, kvæntur Hildigunni Erlingsdóttur og eiga þau tvö böm. Systkini Hjörleifs samfeðra eru: Bergljót, f. 5. apríl 1912, gift Ólafi H. Bjarnasyni, fyrrv. deildarstjóra í Rvík; Páll, f. 26. maí 1913, skógfræð- ingur á Egilsstöðum; Sigurður, f. 27. júlí 1917, d. 1968, b. á Hallormsstað, kvæntur Arnþrúði Gunnlaugsdótt- ur; Þórhallur, f. 17. febrúar 1925, kennari í VÍ, kvæntur Önnu Þor- steinsdóttur. Systkini Hjörleifs eru Margrét, f. 28. september 1932, kenn- ari, gift Jóhannesi Helga Jónssyni, rithöfundi í Björgvin í Noregi; Gunnar, f. 31. október 1935, deildar- stjóri í iðnaöarráðuneytinu, kvænt- ur Sigrúnu Jóhannesdóttur, starfs- manni hjá Námsgagnastofun; Loft- ur, f. 5. apríl 1938, dósent í KHI, kvæntur Hönnu Kristínu Stefáns- dóttur, kennara, nú starfsmanni hjá Námsgagnastofnun, og Elísabet, f. 22. maí 1943, félagsráðgjaíi, gift Páli Skúlasyni, lögfræðingi. Ætt Foreldrar Hjörleifs voru Guttorm- ur Pálsson, f. 12. júlí 1884, d. 5. júní 1964, skógarvörður á Hallormsstað, og seinni kona hans, Guðrún Mar- grét Pálsdóttir, f. 23. september 1904, d. 19. nóvember 1968. Föðursystir Hjörleifs er Sigrún, móðir Sigurðar Blöndals, fyrrv. skógræktarstjóra. Guttormur var sonur Páls, ritstjóra á Hallormsstað, bróöur Björgvins, afa Helga Þorlákssonar sagnfræð- ings. Páll var sonur Vigfúsar, prests í Ási, Guttormssonar, bróður Guð- laugar, langömmu Péturs Thor- steinssonar sendiherra. Bróðir Vig- fúsar var Jón, langafi Ólafs Stefáns- sonar, skrifstofustjóra í dómsmála- ráðuneytinu. Móðir Vigfúsar var Margrét Vig- fúsdóttir, prests á Valþjófsstað, Ormssonar, íoður Ingunnar, langömmu Þorsteins Gíslasonar, ritstjóra og skálds. Bróðir Margrét- ar var Guttormur, langafi Herdísar Þorvaldsdóttur leikkonu, móður Hrafns Gunnlaugssonar. Móðir Margrétar var Bergljót Þorsteins- dóttur, systir Hjörleifs, langafa Ein- ars Kvarans, afa Ævars Kvarans og langafa Ragnars Arnalds. Annar bróðir Bergljótar var Guttormur, langafi Þórarins á Tjöm, fóður KristjánsEldjárns. Móðir Páls var Björg Stefánsdótt- ir, prófasts á Valþjófsstað, Árnason- ar. Móðir Stefáns var Björg Péturs- dóttir, sýslumanns á Ketilsstöðum, Þorsteinssonar, fóður Guðmundar, langafa Önnu, langömmu Ragnars Halldórssonar. Móðir Bjargar Stef- ánsdóttur var Sigríður Vigfúsdóttir, systir Margrétar í Vallanesi. Móðir Guttorms skógarvarðar var Elísabet Sigurðardóttir, prófasts og alþingismanns á HaUormsstaö, bróður Gunnars yngri, afa Gunnars Gunnarssonar skálds og langafa Soffiu, móður Haralds Sveinssonar, framkvæmdastjóra Árvakurs. Ann- ar bróðir Sigurðar var Stefán, lang-' afi Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv. ráðherra. Sigurður var sonur Gunn- ars, b. á Hallgilsstöðum áLanga- nesi, Gunnarssonar, b. í Ási, Þor- steinssonar, ættfóður Skíða-Gunn- arsættarinnar. Móðir Elísabetar var Elísabet Guttormsdóttir, systir Vig- fúsaríÁsum. Meðal móðursystkina Hjörleifs eru Gissur rafverktaki og Gyðríður, móðir Jóns Helgasonar alþingis- manns. Guðrún var dóttir Páls, b. í Þykkvabæ í Landbroti, Sigurðsson- ar, bróður Sigríðar, ömmu Ingólfs Guðbrandssonar. Móðir Páls var Guðríður Bjarnadóttir, b. í Ytri- Tungu, Jónssonar og konu hans, Sigríðar Jónsdóttur á Kirkjubæjar- klaustri Magnússonar, langafa Ka- rítasar, móður Jóhannesar Kjarvals Móðir Guðrúnar var Margrét El- íasdóttir, b. á Syðri-Steinsmýri, Gissurarsonar og konu hans, Gyð- ríðar Þórhalladóttur, b. í Mörk, Runólfssonar, bróður Halldóru, langömmu Guðmundar, föður Al- berts sendiherra, fóður Inga Björns, alþingismanns. Halldóravar einnig móðir Sigurðar, langafa Óla Kr. Sig- urðssonar í Olís. Þórhalli var sonur Runólfs, b. í Hvammi, Gunnsteins- sonar, bróður Egils, langafa Jó- hönnu Egilsdóttur, verkakvenna- foringja, ömmu Jóhönnu Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra. Afmæli Hafsteinn Egilsson Guðlaugur Hafsteinn Egilsson veitingastjóri, Eiðistorgi 15, Sel- tjarnarnesi, er fertugur í dag. Starfsferill Hafsteinn er fæddur í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði til fjórtán ára aldurs. Þá flutti hann til Reykja- vikur og hefur síðan búið í Vestur- bænum. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Hagaskólanum, hóf síðan nám í framreiðslu á Hótel Sögu 1968 og útskrifaðist frá Hótel- og veitinga- skólanum 1971. Hafsteinn hefur síð- an unnið á Hótel Sögu. Fyrstu þrett- án árin var hann þjónn og barþjónn í Grillinu, síðan framreiðslumaður í Átthagasal í sjö ár en er nú veit- ingastjóri í Súlnasal. Hafsteinn stofnaði, ásamt konu sinni og syni, Veitingahúsið Rauða sófann 1989 sem þau starfrækja enn. Hafsteinn hefur verið félagi í Bar- þjónaklúbbi íslands frá 1978, hefur setið í stjórn þess lengst af frá þeim tíma, var gjaldkeri félagsms í fjögur ár og formaður þess frá 1986. Þá er Hafsteinn mikill áhugamaður um knáttspymu og situr í stjóm knatt- spyrnudeildarKR. Kona Hafsteins er María Hilmars- dóttir, f. 28. október 1958, fram- reiðslumaöur. Foreldrar Maríu eru: Hilmar Vigfússon, sendibílstjóri á Þresti, og kona hans, Ingileif Jóns- dóttir. Hafsteinn á tvo syni frá fyrra hjónabandi. Þeir eru Níels, f. 2. júlí 1968, framreiðslumaöur og þjónn í Súlnasal auk þess sem hann rekur Rauða sófann með fóður sínum og Mariu, og Trausti, f. 5. nóvember 1973, menntaskólanemi. Bræður Hafsteins eru Siguijón Magnús, f. 17. janúar 1954, blaða- maður á Pressunni, kvæntur Maríu Friðjónsdóttur læknaritara og eiga þau tvo syni; Egill, f. 18. ágúst 1956, stýrimaður á Rifsnesinu frá Rifi, búsettur á Hellissandi, kvæntur Kristborgu Kristinsdóttir og á hún einn son, og Gunnar Smári, f. 11. janúar 1961, ritstjóri Pressunnar. Bróðir Hafsteins sammæðra er Kristján Rúnar Kristjánsson, f. 19. mars 1970, verkamaður í Reykjavík. Ætt Foreldrar Hafsteins eru Egill Hansen, f. 1. nóvember 1929, bif- vélavirki og húsvörður við Voga- skóla, og kona hans, Guðrún Rann- veig Guðmundsdóttir, f. 14. nóvemb- er 1931, matráðskona hjá RÚV. Kjör- foreldrar Guörúnar voru Guð- mundur Siguijónsson, sjómaður í Hafnarfirði, og kona hans, Dóróthea Ólafsdóttir. Egill er sonur Hinriks Hansens, sjómanns í Hafnarfirði, Andréssonar Hansens, b. á Brunna- stöðum, bróður Jóhanns, langafa Jensínu, kaupkonu í Hafnarfirði Nönnu söngkonu og Svanhvítar, prófessors í Tónlistarháskólanum í Vín, Egilsdætra. Systir Andrésar var Anna, langamma Halldóru, móður Ragnars S. Halldórssonar, stjómarformanns ÍSALS. Andrés var sonur Péturs Hansens, beykis í Rvík, Hinrikssonar Hansens, kaup- manns á Bátsöndum, langafa Soffiu, móður Árna Thorsteinssonar tón- skálds. Móðir Andrésar var Valborg Einarsdóttir, systir Mariu, ömmu Ara Johnsen, söngvara. Móöir Hinriks í Hafnarfirði var Þórunn Hallgrímsdóttir, prests í Göröum, Jónssonar, vigslubiskups á Staðastað, bróður Skúla landfóg- eta. Jón var sonur Magnúsar, prests á Húsavík, Einarssonar, prests í Garði í Kelduhverfi, Skúlasonar, prests í Goðdölum, Magnússonar, prests á Mælifelli, Jónssonar. Móðir Skúla var Ingunn, systir Þorláks biskups, Skúladóttir, b. á Eiríks- stöðum í Svartárdal, Einarssonar og konu hans, Steinunnar Guð- brandsdóttur, biskups á Hólum, Þorlákssonar. Móðir Hallgríms var Þórunn Hansdóttir Scheving, systir Vigfús- ar, fóður Guðrúnar, konu Magnúsar Stephensen konferensráðs og Ragn- heiðar, konu Stefáns Thorarensen, amtmanns og konferensráðs á Möðruvöllum. Þórunn var dóttir Hans Scheving, klausturhaldara á Möðruvöllum, sonar Lárusar Sche- ving, sýslumanns á Möðruvöllum, ættfööur Schevingættarinnar. Móð- ir Þórunnar var Guðrún Vigfús- dóttir, stúdents, á Hofi á Höfða- strönd, Gíslasonar, rektors á Hól- um, Vigfússonar. Móðir Guörúnar var Helga Jónsdóttir, biskups á Hól- um, Vigfússonar, bróður Gísla. Móðir Þórunnar Hallgrimsdóttur var Guðrún Egilsdóttir, systir Sveinbjarnar rektors. Móðir Egils var Gíslína, systir Ólaiiu, móður Egils Ólafssonar. safnvarðar á Hnjóti. Gíslína var dóttir Egils, b. á Sjöundá, Árnason- ar, b. á Lambavatni, Jónssonar. Móðir Árna var Guðrún Jónsdótir, b. á Sjöundá, Þorgrímssonar. Móðir Egils var Halldóra Ólafsdóttir, b. á Stökkum, Rögnvaldssonar. Móðir Gíslínu var Jónína Gísladóttir, b. í Hærri-Rauðsdal, Þorgeirssonar og konu hans, Guðrúnar Ólafsdóttur. Móðursystir Hafsteins er Bene- Guðlaugur Hafsteinn Egilsson. dikta, móðir Hákonar Hákonarson- ar, framkvæmdastjóra Alþýðu- blaðsins. Guðrún er dóttir Karls, starfsmanns viö Reykjavíkurhöfn, Karlssonar, talinn launsonur Kristjáns IX. Danakonungs og bróð- ir Friðriks IX., fóöur Margrétar II. Danadrottningar. Kristján var einn- ig langafi Georgs VI. Englandskon- ungs, fóður Elísabetar II. Englands- drottningar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Ólafsdóttir, ökumanns í Rvík, Þorvarðarsonar, b. á Geld- ingaá í Melasveit, Þorsteinssonar. Móðir Guðrúnar var Hallfríður, systir Jóns, langafa Karls Steinars Guðnasonar alþingismanns. Hall- fríður var dóttir Jóns, b. í Eyhól í Kjós, Jónssonar og konu hans Guð- rúnar Halldórsdóttur, systur Þór- halla, langafa Gríms, föður Ólafs Ragnars fjármálaráðherra. Móðir Guðrúnar var Guðríður Guðmunds dóttir, systir Lofts, langafa Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Bróðir Guðríðar var Þorsteinn, langafi Sol- veigar, móöur EinarsOlgeirssonar alþingismanns. Hafsteinn tekur á móti gestum í Ársal á Hótel Sögu kl. 17-19 á afmælisdaginn. HUGSUM FRAM A VEGINN A uæ IFEROAR Til hamingju með af- mælið 6. desember 85 ára Björg Guðmundsdóttir, Þórunnarstræti 131, Akureyri. 80 ára Anna Guðjónsdóttir, Dvalarheimilmu Lundi, Hellu. 75 ára Aðalbeiöur Sigurðardóttir, Austurbrún 2, Reykjavík, 70 ára Halldóra K. Siguröardóttir, Austurbrún 25, Reykjavík. 60 ára Oddur Jónsson, Þormóðsgötu 34, Siglufirði. 50 ára Guðrún Sigríður Jónsdóttir, Dvergabakka 32, Reykjavík. María Guðmundsdóttir, Vallarflöt 6, Stykkishólnú. Elin Hafdis lngólfsdóttir, Eyktarási 14, Reykjavík. Guðrún Björk Guðmundsdóttir, Deildarási 20, Reykjavik. 40 ára Tryggvi E. Þorsleinsson, Austurbergi 28, Reykjavík. Franz Arason, Sogavegi 133, Reykjavík. Jón Þór Sverrisson.j Eikarlundi 14, Akureyri. Gísii Geir Sigurjónsson. Hæðargarði 17, Nesjahreppi. Kristin Þorsteinsdöttir, Dverghamri 12, Vystmannaeyjum. Hinrik Pétursson, Ásbúð 41, Garðabæ. Sigrún Kristjana Óskarsdóttir, Nönnugötu 14; Reykjavik. Þorkell R. Ingimundarson, Starengi 10, Selfossi. Margrét Tómasdóttir, Hrísmóum 9, Garöabæ. Berghildur Valdimarsdóttir, Stapasíðu 15C, Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.