Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Síða 7
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990.
27
• íslandsmót einstaklinga í pilukasti verður haldið í Ölveri í Glæsibæ um helgina. Keppt verður bæði i
kvenna- og karlaflokki. Þessi iþróttagrein nýtur æ meiri vinsælda hér á landi.
íslandsmót
í pílukasti
Íþróttalíf um helgina verður með
allra rólegasta móti í langan tíma.
Jólin nálgast óðfluga og því ósköp
eðlilegt að íþróttamenn dragi sam-
an seglin. Körfuknattleiksmenn
eru fyrir allnokkru komnir í frí frá
úrvalsdeildinni en landsliðið tekur
um helgina þátt í smáþjóðamótinu
í Wales.
Aðeins tveir leikir verða í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik um
helgina. Sá fyrri verður í kvöld og
leika þá Fram og KA í Laugar-
dalshöllinni kl. 20. Á laugardag
leika síðan Haukar og ÍBV í íþrótta-
húsinu við Strandgötu og eftir því
sem blaðið kemst næst hefst leikur-
inn kl. 16.30.
í 2. deild karla verða þrír leikir í
kvöld. Þór og Keflavík leika á Ak-
ureyri kl. 20.30, Njarðvík og ÍS og
Afturelding og Ármann leika kl, 20.
íslandsmót einstaklinga í pílu-
kasti fer fram á laugardag og
sunnudag. Keppt verður bæði í
kvenna- og karlaflokki og er móts-
staður Ölver í Glæsibæ. Forkeppni
verður á laugardag kl. 15.30. 16
efstu menn forkeppninnar komast
áfram í milliriðla. Á sunnudag
hefst keppnin einnig kl. 15.30. Þeir
átta leikmenn, sem skipa landslið
íslands í pílukasti, fá sjálfkrafa rétt
tii keppni í milliriðlum.
-JKS
Sýningar
Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar
Feðginin Sigrún Steinþórsdóttir og Stein-
þór Marinó Gunnarsson halda þar sam-
sýningu. Á sýningunni er listvefnaður,
unninn úr íslenskri ull og jute, eftir Sig-
rúnu og olíumálverk og myndverk, unn-
in með blandaðri tækni, eftir Steinþór
Marinó. Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga kl. 14-19 og stendur til 19.
desember. í KafFistofú Hafnarborgar
sýna 12 hafnflrskir myndlistarmenn verk
sín. Listamennirnir eru: Kristrún
Ágústsdóttir, Elín Guðmundsdóttir, Að-
alheiður Skarphéðinsdóttir, Jóna Guð-
varðardóttir, Janos Probstner, Sigríður
Erla, Sigríður Ágústsdóttir, Pétur
Bjarnason, Rúna, Gestur Þorgrímsson,
Gunnlaugur Stefán Gíslason og Sverrir
Ólafsson. Sýningin stendur fram á Þor-
láksmessu. Kaffistofan er opin alla daga
frá kl. 11-19.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiöjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, flmmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Þar standa yfir tvær sýningar. í vestur-
sal sýnir Sigfús Halldórsson málverk og
í austursal sýnir Gísli Sigurðsson mál-
verk. Sýningamar standa til 23. desemb-
er. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl.
11-18 og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
Listasafn Háskóla íslands
íOdda
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
kl. 14-18. Aögangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Þar stendur yfir sýning sem nefnist Ald-
arlok. Þetta er fyrsta sýningin á íslandi
á sovéskri samtímalist. Listamennirnir
eru Andrej Fílíppov, Sergej Mírónénko,
Vladimir Mírónénko, Oleg Tístol og
Konstantín Reúnov. Hér er um að ræða
samvinnuverkefni milli íslands og Sovét-
ríkjanna. Listasafn íslands er opið alla
daga nema mánudaga kl. 12-18. Kaffistofa
safnsins er opin á sama tíma. Aðgangur
er ókeypis.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
í Listasafni Siguijóns í Laugamesi er nú
til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur-
jóns frá tímabilinu 1927-1980. Safnið er
opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
og þriðjudaga kl. 20-22. Kaffistofa safns-
ins er opin á sama tíma.
Listhús
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir aðventusýning Listmál-
arafélagsins. Þeir listamenn, sem verk
eiga á sýningunni, em Bjöm Bimir,
Bragi Ásgeirsson, Einar G. Baldvinsson,
Ellas B. Halldórsson, Guðmunda Andrés-
dóttir, Hafsteinn Austmann, Jóhannes
Jóhannesson, Jóhannes Geir, Kjartan
Guðjónsson, Kristján Davíðsson, Pétur
Már, Helga Magnúsdóttir og Kristín
Geirsdóttir. Sýningin, sem er sölusýning,
er opin til jóla alla daga kl. 14-18. Aðgang-
ur er ókeypis.
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Anton Einarsson sýnir landslagsmyndir.
Sýningin stendur út desember.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Gísli Bergmann og Róska halda samsýn-
ingu í Nýlistasafninu. Á sýningunni em
málverk, klippimyndir, tölvugrafik, ljós-
myndir og fleira. Sýningin stendur til 23.
desember.
Norræna húsið
í anddyri Nomæna hússins stendur yfir
sýning á myndum, unnum með sérstakri
ljósmyndatækni, „hólógraiiu" eða heil-
myndun. Er leysigeislum beitt við mynd-
gerðina og er útkoman þrívíðar myndir.
Opið kl. 14-19.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Álfabakka 14
Þar stendur yfir sýning á verkum Daða
Guðbjörnssonar. Listamaðurinn sýnir 16
myndir, þar af 10 olíumálverk sem flest
em máluð á sl. tveimur ámm. Daði hefur
haldið fjölda einkasýninga innanlands og
erlendis. Auk þess hefur hann tekið þátt
í samsýningum víða um lönd og hér á
landi. Sýningin verður opin til 22. febrúar
á afgreiöslutíma útibúsins, kl. 9.15-16, ffá
mánudegi til föstudags. Sýningin er sölu-
sýning.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar em til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Sýning í
menntamálaráðuneytinu
í menntamálaráðuneytinu stendur nú
yfir sýning tveggja ungra listamanna.
Guðjón Bjamason sýnir rúmlega 60 olíu-
málverk og skúlptúra og Sigríður Rut
Hreinsdóttir sýnir 20 vatnslitamyndir.
Sýningin er opin á venjulegum skrif-
stofutíma kl. 9-17 alla virka daga og
stendur til 5. janúar 1991.
Sýning á vatnslitamyndum
Myndlistarkonan Svava Sigríður Gests-
dóttir hefur opnað sýningu í bókasafni
Kópavogs, listastofu. Hún hefur haldið
10 einkasýningar og tekið þátt í samsýn-
ingum. Myndimar em byggðar á áhrif-
um ffá landslagi, strönd og fjalli. Sýning-
in er opin á á sama tíma og safnið, kl.
9-21, til 15. desember.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið sunnudaga kl. 14-16.
BJÓRWÍHÖUJNhf
HELGAKniÐ
Föstudagurinn 14. desember og
laugardagurinn 15. desember
Hinn vinsæli hljómborðsleikari,
Guðmundur Haukur,
sér um flörið.
Sunnudagurinn 16. desember
Guðmundur Haukur leikur frá
kl. 22.00-01.00.
Mánudagurinn 17. desember
Einar Jónsson skemmtir gestum.
Opið í hádeginu frá 12-15
laugardag og sunnudag.
Munið dansgólfið þar sem léttir
snúningar eiga sér stað.
Snyrtilegur klæðnaður.
Opið í hádeginu kl. 12-15 laugardag og sunnudag.
BJORf HOLUN
HF.
GERDUBERG11
111REYKJAVÍK SÍMI 74420
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRADA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
yujjERtw,
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum tasteignum
fer fram á skrifstofu embættisins,
Aðaistræti 92, Patreksfirði,
á neðangreindum tíma:
Lækjarbakki, Tálknafirði, þingl. eig-
andi Herbert Guðbrandsson, miðviku-
daginn 19l desember 1990 kl. 9.00.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður.
Jörðin Brjánslækur H, Barðaströnd,
þingl. eigandi Kirkjugarðasjóður,
miðvikudaginn 19. desember 1990 kl.
9.30. Uppboðsbeiðendur eru Bygging-
arsjóður ríkisins, Búnaðarbanki Is-
lands og Ingvar Bjömsson hdl.
Frysti- og vinnsluhús ásamt vélum og
tækjum, þingl. eigandi Flóki hf., mið-
vikudaginn 19. desember 1990 kl.
10.00. Uppboðsbeiðendur eru Fisk-
veiðasjóður fslands, Byggðastofnun
og Búnaðarbanki íslands.
Kjarrholt 4, Barðaströnd, þingl. eig-
andi Kristín Theódóra Ragnaredóttir,
miðvikudaginn 19. desember 1990 kl.
10.30. Uppboðsbeiðandi er Byggingar-
sjóður verkamanna.
Jörðin Neðri-Rauðsdalur, Barða-
strönd, þingl. eigandi Ragnar Guð-
mundsson, miðvikudaginn 19. des-
ember 1990 kl. 11.00. Uppboðsbeiðend-
ur eru Byggingarsjóður ríkisins, Ami
Pálsson bdl. og Ingvar Bjömsson hdl.
Kjarrholt 1, Barðaströnd, þingl. eig-
andi Guðrún Sigfríður Samúelsdóttir,
miðvikudaginn 19. desember 1990 kl.
11.30. Uppboðsbeiðandi er Byggingar-
sjóður verkamanna.
Kjarrholt 3, Barðaströnd, þingl. eig-
andi Kristján Sigurbrandsson, mið-
vikudaginn 19. desember 1990 kl.
13.00. Uppboðsbeiðandi er Byggingar-
sjóður verkamanna.
Gilsbakki 1, Bíldudal, talinn eigandi
Haukur Kristinsson, miðvikudaginn
19. desember 1990 kl. 13.30. Uppboðs-
beiðandi er Byggingarsjóður verka-
manna. y.
Gilsbakki 2, 1. h. 1, Bíldudal, talinn
eigandi Ágúst Sörlason, miðvikudag-
inn 19. desember 1990 kl. 14.00. Upp-
boðsbeiðandi er Byggingarsjóður
verkamanna.
Sæbakki 6, Bfldudal, þingl. eigandi
Kristján H. Kristinsson, miðvikudag—
inn 19. desember 1990 kl. 14.30. Upp-
boðsbeiðandi er Byggingarsjóður
verkamanna.
Miðtún 2, 2b, Tálknafirði, þingl. eig-
andi Ólafúr Gunnbjömsson, miðviku-
daginn 19. desember 1990 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur em Landsbanki
íslands og Gunnar Sæmundsson hrl.
Brunnar 6, Patreksfirði, þingl. eigandi
Eiður B. Thoroddsen, miðvikudaginn
19. desember 1990 kl. 16.00. Uppboðs-
beiðendur em Byggingarsjóður ríkis-
ins og Guðmundur Ób Guðmundsson
hdL______________________________
Þórsgata 12, Patreksfirði, þingl. eig-
andi Iðnverk hf., miðvikudaginn 19.
desember 1990 kl. 17.00. Uppboðs-
beiðandi er Ásgeir Þór Ámason hdl.
Bensi BA-46, þingl. eigandi Leifúr
Halldórsson, miðvikudaginn 19. des-
ember 1990 kl. 17.30. Uppboðsbeiðandi
er Ásmundur S. Jóhannsson hdl.
Mb. Eleseus BA-328, þingl. eigandi
Skúli Magnússon, talrn eign Stein-
bjargar hf., fimmtudaginn 20. desemb-
er 1990 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur
eru Fjárheimtan hf., Byggðastoíhun,
Búnaðarbanki íslands, Lífeyrissjóður
Vestfirðinga, Fiskveiðasjóður íslands,
Jón Ingólísson hdl., Jón Steinar
Gunnlaugsson hdl., Sveinn Seinsson
hdl., Gísfi Kjartansson hdl. og inn-
heimtumaður rfldssjóðs.
SÝSLUMAÐUR BARÐASTRANDARSÝSLU