Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
3
ÐV Viötalið
Verðlaunin á
bankabók
V. i ...
Nafn: Áslaug Helgadóttir
Aldur: 37 ára
Starf: Plöntuerfðafræðingur
Doktor Áslaug Helgadóttir,
plöntuerföafræðingur Rjá Rann-
sóknastofnun landMnaöarins,
hlaut nýlega hvatningarverðlaun
Rannsóknaráðs ríkisins 1990.
Markmið þessara verðlauna er
að hvetja unga vísindamenn til
dáða og vekja athygli almennings
á gildi raimsókna fyrir þjóðfélag-
ið. Þessi verðlaun eru veitt vís-
indamönnum 40 ára og yngri.
Áslaug er fædd og uppalin í
Reykjavík. Faðir hennar er úr
Reykholtsdal í Borgarfirði og
móðir hennar er af Snæfellsnesi.
Áslaug gekk i Laugalækjarskóla
og kom aðeins við í Gaggó Aust,
eins og hann var kallaður. Þaðan
lauk hún landsprófi og fór siðan
i Menntaskólann við Hamrahlíð.
Áslaug útskrifaðist sem stúdent
1973. Eftir það lá leiðin til Man-
itoba í. Kanada þar sem hún
stundaði nám í háskóla og lauk
bachelor-gráðu árið 1976. Þá kom
Áslaug heim og starfaði hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
Ins í eitt og hálft ár áður en hún
fór til náms við Háskólann í Re-
ading í Englandi. Hún lauk dokt-
orsprófi í hagnýtri grasafræði
árið 1982 og eftir þaö hefur Áslaug
starfað hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins.
Kynbætt grös í túnrækt
„Þessi staða, sem ég er í, á að
sinna og sjá um plöntukynbætur
og stofnaprófanir. Og það felst í
þvi að leita að eða kynbæta grös
og aörar plöntutegundir sem
hægt er að nota í túnrækt og til
uppgræðslu. Svo hef ég fengist
við ýmislegt sem tengist þessu
bæði beint og óbeint.“ Hvatning-
arverðlaunin eru 1,5 milljónir
króna en Áslaug segist ekki vera
búin að ákveða hvað hún ætli að
gera við peningana. „Ég set þá
væntanlega inn á bankabók til
að byrja með.“
Mikill tónlistaráhugi
á heimilinu
Áhugamál Áslaugar, fyrir utan
starfið, eru ýmisleg. .,Eg hef heil-
mikið verið í tónlist og sungið i
kórum og spila svolítið á píanó.
Við erum mikið í tónlist á heimil-
inu. Börnin eru að læra og mað-
urinn minn syngur og spilar á
fiðlu. Síðan les ég heilmikið og
hef áhuga á því sem tengist ís-
Iensku máli. Svo hef ég gaman
af að stunda kvenlega iðju eins
og handavinnu. Ég hef gaman
bæði af að sauma og pijóna.
Meira kemst ég nú ekki yfir.“
Áslaug ekur um á gömlum
Citroen-bíl en hún segist ekki
vera bílaáhugamanneskja. Ekki
segist Áslaug geta nefnt neitt
sérstak í mat sem hún tekur fram
yfir annað. „Mér fmnst allur
matur góöur."
Áslaug er gift Nikulási Hall,
kennslustjóra við Tölvuháskóla
Verslunarskólans, og þau eiga
þrjú börn á aldrinum 1 til 8 ára.
-ns
mww
jIhdiMshntis
raeð 800 K drifi og 1 Mb innra minni
á sécstoku jólatilboðsverði,
aðeins 64.409.- kr. eða
aðeins 139.677.-kr. eða
maoo,--
Nú á sérstöku
Við bjóðum Munalán, sem er greiðsludreifing fyrir þá sem kaupa verðmætari muni.
f>á eru greidd 25% við afhendingu og afgangurinn á 3,6,9,12,18,21,24,27 eða allt að 30 mánuðum. Kynntu þér Munalán!
Greiöslukjör til
allt aö 30 mán.
\