Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
7
dv Sandkom
Stræka
Áftindikga-
ogtextahöf-
uiula í vikumii
numhatakom-
iötil umræöu
mál er Lengist
viðbrögöum út-
vanisstoðvnr
viðunmiælum
eins tónlistarmanns um sömu stöð í
einhvetju viðtali. í stuttu (og skiljan-
legu) máli er hér um aö ræöa við-
brögð á útvarpsstööinni Stjömunni
við ummælum Rúnars Þórs Péturs-
sonar um sömu stöð í einhverj u viö-
tali við Rúnar fyrir einhverju síöan.
Rúnar raun vist ektó vera ýkja hrif-
inn af Stjömunni og var ekkert að
liggja áþeirri skoðun sinni i viðtal-
inu. Stjörnumenn munu hafa móðg-
ast eitthvað við ummælunum og í
Kjölfarið mun hafa verið hengdur
upp núðií hljóðstofu þeirra þar sem
plötusnúðum var uppálagt að spik
ekki plötur Rúnars Þórs. Það getur
verið að Rúnari Þórsé hjartanlega
sama um þessi (annarlegu) viðbrögð
Sljörnumanna en það er laga- og
. textasmiöum ekki, enda ansi hart að
geta ekki sagt hreinskilnislega frá
skoðunum sinum án þess að vera
iagður í einelti á einn eða annan hátt.
Sósulógía
rokksins
Laga-og
textahöfundar
létuekkiþar
vidsiijaá |n—
umfundisín-
umogfórnúað
hitnavemlegaí
kolunum. Tii
umræðuvar
nýútkomin bók Gests Guðmundsson-
ar, Rokksaga íslands. Til að gera
langa sögu stutta voru menn ekkert
allt of hrifnir af verkinu og töldu
hæpið aö nota bókina sem heimild
um sögu rokksins á íslandi vegna
staðreyndavillna. Þá fór i taugarnar
á mönnum að Gestur skyldi ekki
hafa getað lagt félagsfrseðigleraugun
á hiUuna af ogtil við skriftimar og
leitt iesendur inn í annan og alls ekki
ómerkilegri veruleikarokksögunnar
þar sem af meira en nógu er að taka
í þeim eíhum. Þá þótti mönnum Gest-
ur fera yfir strikið í að hampa ein-
staka tóniistarmönnum óskaplega og
gera um leið litið (um of og á leiðin-
legan hátt að sumara mati) úr öðrum.
Það er meira en nóg að gera í þessum
félagsskap fyrir jóhn.
Svörtjól
á Húsavík
Mennliafe
þaö nuiyrir
sattáHúsavík
'aöþaðsésælla
aðsteiaen
kaupa.Einsog
í flestumkaup-.
stöðumlands-
insvarsettupp
stórt jólatré í miöjum bænum í des-
ember en óprúttnir bæjarbúar hafa
haft það að leik siöan að stela liósa-
perunum af trénu. Varla hefttr líðíð
sú nótt að ekki hafi einhveijar pemr
horfið. Einn morguninn, þegar bæj-
arstarfsmenn mættu til vinnu, var
búið að stela 60 pemm afjólatrénu
og var það met. Bæjaryfirvöld hafa
þvi þurit að fjárfesta í nýjum og nýj-
um perum á hverjum morgní og er
nú svo komið aö ljósaperur em að
verða uppseldar í bænum.
Elsta blað
Sandsins
Bændablaðið
oglandsbyggð-
inerblaösem
bændasynir
gefa út. Petta er
hiðfróðlegasta
blaö.Ilinsveg-
arkomeittá
óvartþegar
gluggað vari síðasta tölublað þess
því þar segir svo: Þótt ekki hafi verið
á margra vitorði er blaðið Lands-
byggðin elsta blað sem út er gefið
hérlendis. Það var stofnað af fyrsta
landnámsmaiminum, Náttfera, ein-
hvem tlmann í kringum 870 og gefið
út handskrifaö í einu eíntaki af af-
komendum Náttfara þar til karUegg-
ur hans dó út snemma árs 1988 og
núverandi ritstjórar tóku við.
Umsjón: Jóhanna Margrét Elnarsdóttir
Fréttir
Öldruð hjón á sunnudagsgöngu 1 Hveragerði urðu fyrir árás:
Hundur réðst á
konuna svo hún
féllíqötuna
Stór hundur réðst að rosknum
hjónum þegar þau voru á gönguferð
á Arnarheiði í Hveragerði síðdegis á
sunnudag. Fyrst réðst hann að kon-
unni en gerði sig síöan líklegan til
að ráöast á manninn þegar hann fór
að sækja hjálp.
„Við vorum í gönguferð þegar stór
og svartur hundur kom allt í einu á
móti okkur. Hann gjammaði og gelti
rétt við hliðina á okkur. Þegar konan
mín sussaöi á hann þá skipti engum
togum að hann réðst á hana,“ sagði
maðurinn í samtali við DV. Hann er
71 árs en konan er sjötug.
„Konan féll í götuna og hundurinn
glefsaði í hana. Það blæddi samt
hvergi úr henni. Þegar hundurinn
glefsaði í gúmmístígvélið hennar fór
ég að sussa á hann en þá gerði hann
sig líklegan til að ráöast á mig líka.
En ég náði í stein og varði mig með
því að henda að hundinum.
Ég vissi að hundurinn á heima
þarna rétt hjá og ákvað að fara þang-
að. Konan lá eftir á jörðinni dauð-
hrædd. Á leiðinni að húsinu gerði
hundurinn sig alltaf líklegan til að
ráðast á mig. Þegar ég komst að dyr-
unum æpti ég á hjálp. Þegar eigand-
inn kom út var hann hinn hjálpleg-
asti og hljóp strax að konunni,“ sagði
eiginmaðurinn.
Hann sagðist hafa krafist þess af
eigandanum að hann sæi til þess aö
hundurinn yrði aílífaður. Eigandinn
tók því ekki illa. Atvikið var ekki
kært til lögreglu. Að sögn lögregl-
unnar á Selfossi hefur ekki verið
mikið um að kvartanir hafi borist
vegna hunda sem ganga lausir í
Hveragerði. -ÓTT
Stritóð á Akureyri:
Gyiii Khstjámsson, DV, Akureyri:
„Þetta er toppurinn á vertiöinni
hjá okkur, eins konar fiugelda-
sýning svona í lok ársins og fram-
leiðslan gengur mjög vel,“ segir
Haukur Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri og einn af eigend-
um Striksins á Akureyri, einu
skóverksmiðju landsins.
Haukur og meðeigendur hans
keyptu skóverksmiðjuna af iðn-
aðardeild Sambandsins árið 1988
og hófu rekstur þá í ágúst. Síðan
hefur ekki verið litið til baka,
framleiðslan hefur sífellt aukíst
og reksturinn gengur vel.
„Ég get ómögulega sagt til um
það hversu margir landsmenn
rounu klæðast jólaskóm frá okk-
ur. Þótt okkar framleiðsla hafi
aukist um 50% miöað við þennan
árstíma í fyrra er þetta svo geysi-
lega stór markaöur eins og gefur
aö skiija að við erum’ ekki stórir
þar, en viö erum aö framleiða um
3500 pör á mánuði sem er all-
nokkuö,“ sagði Haukur.
Kominn frá Kúvæt:
Sameh Issa
prófessor
Ríkisstjórnin hefur skipað Sameh
Issa gistiprófessor við Háskóla ís-
lands. Þegar Gísh Sigurðsson læknir
kom frá Irak var Sameh Issa eini ís-
lenski ríkisborgarinn sem var enn í
Miðausturlöndum. Hann dvaldist í
Jórdaníu.
Sameh Issa er Palestínuarabi en
hefur veriö með jórdanskt vegabréf.
Þegar Gísh fór tÚ Bagdad í lok nóv-
ember komst Sameh til Amman í
Jórdaníu. Hann kom heim á sunnu-
dag.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra segir að Sameh Issa sé skipað-
ur af mannúðarástæðum. Hann er
byggingarverkfræðingur að mennt
og er starfið til hálfs árs. Sameh Issa
er kvæntur Kristínu Kjartansdóttur
en þau vilja ekki tala við fjölmiöla.
-ns
Sj ómannasambandið:
Átkvæði greidd
um kjarasamn-
ingtiláramóta
Atkvæðagreiðslu sjómanna um
kjarasamning Sjómannasambands-
ins og Landsambands íslenskra út-
vegsmanna hófst þann 10. desember
síðstliðinn og henni á að ljúka þann
30. þessa mánaðar. Þann 4. janúar fer
svo talning fram hjá ríkissáttasemj-
ara.
Um 3.000 félagsmenn eru innan
vébanda Sjómannasambandsins og
fengu þeir atkvæöaseðla senda í pósti
í nóvember en enn sem komiö er
hafa fáir skilað inn atkvæðum sín-
um.
-J.Mar
Aðstoðarlæknar:
Svara tilboði
frá ríkinu í dag
Forsvarsmenn lækna fengu frest
þar til í dag til að svara tilboði frá
samninganefnd ríkisins vegna kjara-
deilu aðstoðarlækna.
Gunnar Björnsson í samninga-
nefnd ríkisins segir að tilboðið hafi
áður verið lagt fram munnlega.
Haukur Þórðarson, _ formaður
Læknafélags íslands, ítrekaði í sam-
tah við DV nauðsyn þess að leysa
deiluna sem fyrst.
-ns
BESTA VERÐIBÆNUM
ÓTRÚLEGT ÚRVAL GEISLADISKA
TILLÖGUR AÐ
TÓNLISTARGJÖF
»FRÁ JAPIS
TENORAKONSERTINN
MIKLI
□ CARRERAS - DOMINGO - PAVAROHI
OKKAR VERÐ 1490 - ALMENNT VERÐ 1899
■ SINFÓNÍUR BEETHOVENS,
** I FIMM DISKA SETT
□ HERBERT VON KARAJAN & BERLINER PHIL-
HARMONIKER - LÍKLEGA BESTA ÚTGÁFAN Á MARK-
AÐINUM. VERÐ AÐEINS KR. 3990.
NÚ VEIST ÞÚ HVAR ÞÚ ÁTT AD FÁ VERK-
IN SEM ÞIG VANTAR f GEISLADISKA-
SAFNID.
FALLEG TONLIST
FYRIR FLAUTU
□ ASHILDUR HARALDSDOTTIR - JOUEUSE DE FLUTE,
KR. 1690.
□ MANUELA WIESLER - TÓNLIST FYRIR MANUELU
EFTIR ÍSLENSK TÓNSKÁLD, KR. 1190.
MUNIÐ GULL-
ALDARDISKANA
GJAFIR SEM KOMA A OVART OG VEKJA SKEMMTI-
LEGAR MINNINGAR. SÍGILD DÆGURTÓNLIST, VERÐ
FRÁ KR. 690.
JAZZ, BLUES
OG HEIMSTÓNLIST
HVERGI BETRA URVAL
ALLAR NYJU UTGAFURNAR FAANLEGAR A GEISLA-
DISKUM. VERÐ KR. 1890 - ALMENNT 1999.
Sendum í póstkröfu samdægurs
GOÐAR OPERUR A
GÓÐU VERÐI T.D.:
□ MOZART - DON GIOVANNI 3-CD, VERÐ KR. 4990.
NÝ OG EINSTAKLEGA SPENNANDI ÚTGÁFA FRÁ
DECCA MEÐ KRISTNISIGMUNDSSYNI í HLUTVERKIIL
COMMENDATORE. ÚTDRÆTTIR ÚR ÖLLUM ÞEKKT-
USTU ÓPERUM MEÐ HEIMSÞEKKTUM FLYTJENDUM.
VERÐ KR. 1190-1490. ALMENNT VERÐ 1399-1899.
ÓDÝRU KLASSISKU
GEISLADISKARNIR
FRÁ NAXOS KOSTA AÐEINS KR. 690. STAFRÆNAR
GÆÐAUPPTÖKUR MEÐ ÚRVALS LISTAMÖNNUM.
MEIRA EN 300 TITLAR ÞEGAR i BOÐI. VID MÆLUM
MEÐ NAXOS GJAFABOXUNUM. ÞÚ VELUR:
D 3 KLASSÍSKA NAXOS DISKA Í BOX. VERÐ KR. 1990.
□ 5 KLASSÍSKA NAXOS DISKA i BOX. VERÐ KR. 3190.
3 DISKAR A
AÐEINS KR. 1990
O THE VERY SPECIAL CHRISTMAS COMPACT DISC.
ELVIS PRESLEY, MAHALIA JACKSON & BING CROS-
BY. ÞRJÁR ÞEKKTUSTU JÓLAÚTGÁFUR ALLRA TÍMA
SAMAN í BOXI.
NÝJAR ERLENDAR
ÚTGÁFUR
□ RUBAIYAT - SYKURMOLARNIR O.FL.
GLÆNÝ SAFNPLATA MEÐ SYKURMOLUNUM - MOT-
ORCYCLE MAMA, METALLICA, TRACY CHAPMAN,
CURE, GYPSY KINGS O.FL. 2 DISKAR, VERÐ KR. 2.790
- ALMENNT 3900.
□ CURE - MIXED UP, NÝ SAFNPLATA MEÐ EINNI
VINSÆLUSTU UNGLINGAHLJÓMSVEIT HEIMS. VERÐ
KR. 1390 - ALMENNT 1899.
□ VAN MORRISON - ENLIGHTENMENT, VERÐ KR.
1390. ALMENNT 1899. EINHVER BESTA PLATA VAN
MORRISON PL ÞESSA. TILVALIN JÓUGJÖF FYRIR
UNNENDUR GÓÐRAR POPPTÓNLISTAR.
JAPISS
Gelsladlskadolld Brautarhoiti 2, siml 625200
1