Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1990, Síða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990.
Menning
Snillingur og ævintýramaður
Gils Guðmundsson rithöfundur hefur lagt
í það mikla verkefni að semja bók um lífs-
hlaup skáldsins, ævintýramannsins og at-
hafnamannsins Einars Benediktssonar.
Þetta er mikið verk að vöxtum, heilar 418
bls. í stærsta bókarbroti og með frekar smáu
letri. Samt nær hann ekki nema að stikla á
stóru í lífshlaupi þessa merka skálds og æv-
intýramanns. Við lestur bókarinnar vaknar
löngun til að vita miklu meira um athafnir
Einars Benediktssonar. Einkum og sér í lagi
langar mann að vita meira um það tímabil
ævinnar sem hann bjó mestmegnis erlendis.
Gils gerir í upphafi grein fyrir kynstaf Ein-
ars Benediktssonar og þá alveg sérstaklega
foreldrum hans - stormasamri sambúð
þeirra og hjúskaparslitum sem viröast hafa
haft mikil áhrif á Einar, þá ungan dreng.
Til að skrásetja þessa bók, Væringiann
mikla, hefur Glls Guðmundsson dregið að
sér ógrynni heimilda. Alveg sérstaklega á
þetta við um blaðaútgáfu, ritstörf og stjóm-
málabaráttu Einars Benediktssonar. Eða þar
til hann lætur af starfi sýslumanns Rang-
æinga og snýr sér að því að vinna hugmynd-
um sínum um virkjun vatnsaíls á íslandi
fylgi meðal erlendra peningamanna árið
1907. Af eðlilegum ástæðum eru ekki til jafn-
góðar heimildir um búsetu hans erlendis
þótt allnokkrar séu. Þá er og ítarlega fjallað
um útkomu ljóðabóka Einars og þá dóma
sem þær fengu í blöðum þess tíma.
Við sem höfum lesið ljóð Einars Benedikts-
sonar fáum á vissan hátt nýja innsýn í Ijóöa-
gerð hans í þessari bók. Um það verður ekki
deilt aö fjölmörg ljóð Einars Benediktssonar
er þung, tyrfin og sum hreinlega leiðinlegt
samansafn uppskrúfaðra lýsingaroröa. Svo
eru aftur önnur sem eru svo vel ort að þau
sitja á hæsta tindi íslenskrar ljóðagerðar.
Mörg þeirra uppfull af mannviti og speki, svo
sem Einræður Starkaðar, svo að dæmi sé
tekið. Enn önnur með því ljóðrænasta sem
gerist. Við lestur þessarar bókar kemur í ljós
að mörg þessi upphöfnu fossa- og fjármagns-
hvatningarkvæði Einars eru einmitt ort þeg-
ar mest gekk á hjá honum í peningasöfnun
og fyrirtækjastofnunum erlendis. Skýrt er
frá tilurð ýmissa hans fegurstu kvæða. Þau
virðast vera ort þegar hugur hans fékk hvíld
frá hinu veraldlega amstri.
Gils gerir ekki mikið að því að tína til þjóð-
sögurnar sem spunnust um Einar Benedikts-
son - sumar sannar, aðrar ósannar en flestar
mjög skemmtilegar. Þó hygg ég að stór hluti
þeirra sé sannur. Það sýnir sagan af því þeg-
ar hann var í fáeina klukkutíma samferða
þýskum auðjöfri í jámbrautarlest. Þeir höfðu
aldrei hist fyrr. Samt gekk Einar út úr lest-
inni með 25 þúsund þýsk mörk sem áttu að
ganga til einhvers af þeim fjölda hlutafélaga
sem hann stofnaði erlendis um vatnsaflið á
íslandi. Þetta' er sönn saga því sá þýski
heyrði aldrei í Einari meir en kom til íslands
og ætlaði að hafa uppi á honum. Þaö tókst
auðvitað aldrei því að Einar bjó þá erlendis.
Hann átti einbýlishús í London, Kaup-
mannahöfn og sjálfan Höfða í Reykjavík, allt
á sama tíma. Hann átti líka fastpöntuð her-
bergi á fínustu hótelum víða um lönd ef hann
þurfti að bregða sér milli landa með htlum
eða engum fyrirvara. Og hann var alltaf stór
í sniðum. Þegar aðrir gáfu betlurum skilding
gaf hann þeim seðla.
Einar Benediktsson - væringinn mikli.
Bókmenntir
Sigurdór Sigurdórsson
Það er hreint með óhkindum hvað Einari
hefur tekist að vefja fjármálamönnum í Eng-
landi, Danmörku, Noregi og Kanada um fmg-
ur sér. Og á þessu tókst honum að lifa eins
og greifi í ein 20 ár. Þeim mun sorglegri og
furðulegri eru ævilok þessa einstaka manns.
Hann endar ævina aö kalla eignalaus maður
suður í Herdísarvík, kominn upp á náð konu
sem dáði hann og dýrkaði sem skáld.
Eflaust verður öll ævisaga Einars Bene-
diktssonar aldrei skrifuð. Það verður ekki
komist mikið lengra en Gils gerir í þessu
mikla ritverki sínu. Til þess vantar of mikið
af gögnum frá árum Einars erlendis. Gögn-
um sem sennilega eru ekki lengur th, ef þau
hafa þá einhvern tíma verið það, nema þá í
hugum þeirra sem fylgdu honum eftir og
enginn virðist hafa fylgt honum á öllum þeim
miklu ferðalögum sem hann efndi til um
ævina.
Það er hins vegar rétt sem Ghs segir á ein-
um stað í bókinni að það er sannarlega verð-
ugt verkefni einhverra sagnfræðinga að
skrifa fræðirit um ævi þessa merka manns.
Gils segir líka að hér sé ekki um ævisögu í
venjulegum skhningi að ræða. Heldur sé efn-
ið vahð og tengt saman með þeim hætti að
úr verði sæmilega greinargott yfirht um fer-
h skáldsins og verk þess. Sannarlega hefur
Gils tekist það. Enda þótt kaflinn um stjóm-
málaþátttöku Einars, og blaðaútgáfu hans
henni samfara, sé ef th vih greinarbesti hluti
bókarinnar, vegna þess hve auðvelt er að
komast að góðum heimhdum þar, er kaflinn
um skáldskap hans og thurð ýmissa ljóða
vel þeginn okkur nútímamönnum sem yndi
höfum af mörgum ljóðum hans.
Ghs Guðmundsson hefur unnið enn eitt
afrekið á rithöfundarferh sínum með þessari
bók.
Væringinn mikli
Höfundur: Gils Guðmundsson
Menningarsjóður
Vinsamlegur vitnis-
burður um ísland
„Þeir hermenn voru því miður of margir sem höfðu
tungur tvær og töluðu sitt með hvorri,“ skrifar Louis
E. Marshall, 87 ára gamah lögmaður í San Antonio í
Bandaríkjunum. Hann var í bandaríska herliðinu á
íslandi á árunum 1943-45 og eignaöist íslenska ástkonu
hér á landi, þó svo að hann væri kvæntur maður heima
í Bandaríkjunum, og er hann faðir eins af „ástands-
bömunum" svonefndu. En sjálfur lítur hann ekki svo
á að hann hafi talað tungum tveim. Bók hans virðist
a.m.k. að einhverju leyti vera hugsuð sem „vamar-
ræða“ vegna framkomu við' íslenska vinkonu og son
þeirra. Sem vamarræða er bók lögfræðingsins ekki
sérlega sterk, þó vissulega sé auðvelt að skilja að hann
hafi orðiö ástfanginn hér á landi eins og svo fjölmarg-
ir landar hans. í bókarlok virðist hann líka efins um
að „nokkur maður skilji" hvers vegna hann breytti
eins og hann geröi. En auðvitað er frásögnin af ástar-
ævintýri hans til þess fallin að gefa bókinni persónu-
legri blæ og að draga að fleiri lesendur en ella. Það
eykur sömuleiðis á læsileika bókarinnar að höfundur
skuli ekki láta nægja að greina frá dvöl sinni hér á
landi heldur íjalla einnig ahítarlega um æsku sína og
uppmna þannig aö lesandinn þekkir hann ahvel er
hann stígur fæti á íslenska grund í fyrsta sinn.
Gildi bókarinnar felst að sjálfsögðu einkum í því að
hér er kominn vitnisburður um hvaða augum banda-
rískur hermaður leit íslensku þjóðina. Það er skemmst
frá því að segja að hann gefur íslendingum yfirleitt
mjög vinsamlegan vitnisburö. „Þeir vom stoltir og
þetta stolt kom ekki sízt fram í gestrisni og hve eigin-
legt þeim var að endurgjalda hvers konar vinsemd og
persónulega greiða,“ skrifar Marshah. Það kemur
enda fram að hann hefur eignast marga góða íslenska
vini og sýnt íslenskri menningu, einkum tónhst og
leikhst, mikinn áhuga. Hann lagði það líka á sig að
læra dáhtið í íslensku hjá Sigurði Skúlasyni magister
og fór kennslan fram í Háskólanum. Þar stautaði hann
sig fram úr „Gagni og gamni“. Meðal þess sem hann
hreifst sérstaklega af hér á landi voru norðurljósin
og segist hann hafa fyllst lotningu frammi fyrir þeirri
undrafegurð.
Fomtnilegt er að lesa lýsingar hans á lífinu í „Trí-
pólí-kampi“, t.d. af heimsókn þekktra skemmtikrafta
eins og Marlene Dietrich. Segir hann að því fari fjarri
að Klúbburinn í Trípólí hafi verið eitthvert spilhngar-
bæh þar sem engir íslendingar kæmu nema lauslátt
kvenfólk. Siöferði hafi þvert á móti yfirleitt verið gott
með íslendingum. Hann neitar því þó ekki að vændi
hafi átt sér stað á þessum tíma, enda voru um tíma
jafnmargir erlendir hermenn í landinu og íbúar höfuð-
borgarinnar.
Höfundurinn fyrir framan barra í Trípóli á stríðsárun-
um. .
Bókmeimtir
Gunnlaugur A. Jónsson
Hann segir frá því að 17. júní 1944 hafi Bandaríkja-
menn samfagnað íslendingum af hehum hug en ekki
vitað hvemig þeir áttu að sýna það í verki. „Við gerð-
um það eina sem við gátum gert, opnuðum Klúbbinn
og létum boð út ganga að allir væru velkomnir. Eins
og við var að búast kom enginn. Daginn þann höfðu
íslendingar öðru að sinna en erlendum her.“
Þó að það sé fátt sem komi á óvart í þessari bók þá
er fengur í henxú. Hún sýnir okkur „lúna hhðina“ á
styijaldarárunum.
Louis E. Marshall
Hernámið. Hin hliðln
Áslaug Ragnars bjó til prentunar
ísafold 1990
Síðan skein sól.
Síðan skein sól - Halló, ég elska þig
Rokk og sól
Fáar hljómsveitir hafa náð jafnmikilli hylli á jafnskömmum tíma hér
á landi og hljómsveitin Síðan skein sól. Hún hefur enda verið á stöðugum
tónleikaferðum vítt og breitt um landið og er í dag tvímælalaust vinsæl-
asta rokkhljómsveit landsins.
Þar er reyndar ekki um neina stórskostlega samkeppni að ræða því þær
eru ekki ýkja margar hljómsveitimar hér á landi sem leika þetta glað-
væra hálfhráa rokk sem Síðan skein sól leikur á tónleikum. Engu að síð-
ur er það engin spuming að hljómsveitin er fiörugasta rokkhljómsveit
landsins og ekkert skrítiö þótt hún hafi fengið gælunafnið Síðan skein
Stones með tílvísun til Rohing Stones-áhrifa sem merkja má í tónlist sveit-
arinnar.
Og þessi nýja plata ber þess ótvíræð merki að hljómsveitin var búin
að vera í mikilh tónleikarispu þegar hlaupið var í hljóðver; tónleikafjörið
er áberandi í öllum rokkaðri lögum plötunnar og þar keyrir hljómsveitin
Nýjarplötur
Sigurður Þór Salvarsson
eingöngu á einföldu melódísku rokki þar sem aðeins er notast við hljóm-
sveitarmeðlimi sjálfa; engin aukahljóðfæri. Þessi rokklög em sum hver
með þeim allra bestu sem komið hafa út á plötu hérlendis, lög eins og
Nóttin hún er yndisleg og titihagið Hahó, ég elska þig; bæði fjörug og
grípandi og fyrirtaks danslög.
En Síðan skein sól á sér aðra hhð og það er rólega hhðin sem var svo
áberandi á síðustu plötu en fær minna pláss núna. Að mínu mati er sú
hhð hljómsveitarinnar ekki síðri og hðsmenn sveitarinnar virðast vera
jafnvígir á báðar hliðamar. ÖUu meira virðist lagt í útsetningar rólegu
laganna, ýmis aukahljófæri koma th sögunnar eins og fiðlur, harmóníka,
blásturshljóðfæri og orgel.
Textar Helga Bjömssonar söngvara heyrast mér vera með ágætum,
hann heldur sig mikið við ástina sem fyrr en erfitt er að leggja raun-
verulegt mat á textagerðina því að eins og á flestum plötum sem Skífan
gefur út um þessi jól vantar textablað og nánar upplýsingar um hljóð-
færaskipan í einstaka lögu. Ef þetta er gert í spamaðarskyni er þetta
vondur spamaður sem bitnar á kaupendum. Þessi plata er hins vegar
aUs góðs makleg og enginn svikinn sem hana kaupir.