Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991. Fréttir Mikið tjón er þak fauk af flárhúsinu í Gröf í Breiðuvíkurhreppi: Héldum hvert í annað er við huguðum að fénu - segir Jenný Guðjónsdóttir húsfreyja sem telur tjónið um hálfa milljón króna Þakplötur fuku af fjárhúsi þar sem inni voru um 120 Qár á bænum Gröf í Breiðuvíkurhreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi aðfaranótt fimmtudags- ins. Um hálfrar milljóna króna tjón varð í ofsaveðrinu sem gekk yfir, að sögn Jennýar Guðjónsdóttur, hús- freyju að Gröf. Þakið var ekki súðklætt og í gær stóð féð því innan veggja fjárhússins með aðeins sperrur og himininn yfir sér. Byrja átti aö negla fyrir undir kvöld í gær, enda var veðrið þá að Hitaveita Reykjavíkur: Kalt hjá um Ijörutíu þús- und manns - á höfuðborgarsvæðinu Hátt í fjörutíu þúsund íbúar Kópavogs, Garðabæjar, Hafnar- fjarðar og Bessastaöahrepps misstu liita af híbýlum sínum og höfðu ekkert heitt vatn um miðj- ann daginn í gær. Ástæða þessa var að gat kom á Reykjahbðaræð Hitaveitu Reykjavíkur sem meðal annars liggur í gegnum Höfðabakka- brúna. Bilunin varð í brúnni miöri og reyndist því erfiöleikum bundið að koma lagfæringum við. Gunnar Kristinsson hitaveitu- stjóri sagði í gærkvöldi að óvíst væri hvort tækist að gera við bil- unina í nótt en fyrr verður heitu vatni ekki veitt á kerfið. Hann sagði ólíklegt að um fullnaðarvið- gerö yrði að ræða, slíkt yrði að bíöa ffam á sumar. Hann sagöi liklegt að gatíð á leiðslunni hefði myndast snemma í gærmorgun en hún hefði þó fyrst fundíst um hádegisbil. „Svona bilanir geta alltaf orðiö og nýverið kom svipað fyrir á Álfhólsvegi. Munurinn er hins vegar sá að þar var mjög aúðvelt að komast að biluninni. Bilunin núna er mun erfiðari viðfangs því það er illmögulegt að komast aö henni. Ég vona hins vegar að það taki okkur ekki langan tíma. Nóg er fyrir af vandamálunum." -kaa Fokkervél náði í Fokkervél Landhelgjsgæslunn- ar kom til Reykjavíkur í gær- kvöldi með barn sem fæöst haföi fyrir tímann á Vopnafirði. Fok- kerinn fór fyrst með hitakassa til Egilsstaöa þar sem minni flugvél tók við honum og flutti til Vopna- fjarðar. Sú flugvél náði síöan í barnið og flaug meö það í kassan- um til Egjlsstaða þar sem Fokker- inn beið. Komið var til Reykjavík- ur um klukkan sex. Bamið var síðan flutí á fæðingardeild Landspítalans. -ÓTT ganga niður. „Þegar viö fórum út að huga að fénu vorum við öll saman og héldum hvert í annað - gátum gripið í það sem næst var. Við vorum þó inni í versta óveðrinu um nóttína. Við heföum ekkert haft út að gera í það veður - það hefði ekki verið við neitt ráðið. En féð er þama núna. Það fer ekkert illa um það í alull og þolir það aö minnsta kosti á meðan ekki gerir ófæruveður," Sagði Jenný í samtah viö DV í gær. „Járnið fauk allt í burtu af fjár- húsinu nema ein plata sem féll niður en skaðaði. engan. Féð hefur verið hrætt á meðan á ósköpunum gekk. Þetta gengur ekki hávaðalaust fyrir sig. Plöturnar fuku út í veðrið í átt að ströndinni. Þegar fór að lægja á fimmtudaginn reyndum við að negla fyrir það sem hægt var. Plöturnar byrjuðu að fjúka af á miðvikudags- kvöld. Það stóð yfir fram eftir fimmtudegi. Þetta var alveg bijálað veður,“ sagði Jenný. Hún segir að austnorðaustanátt hafi verið þegar verst lét: „Þetta var óvenjuleg norðaustanátt miðað viö að það var svo gríðarlega byljótt. Það verður oft mjög hvasst héma, þó oft sé hægara sitt hvorum megin við okkur.“ Ætlunin var að negla fyrir þakið á íjárhúsinu undir kvöld í gær en plöt- ur og efni í súð var þá væntanlegt frá Borgamesi. Jenný telur að tjónið nemi ekki minna en hálfri milljón króna. Fjárhúsið er foktryggt. Viðgerðarmenn vinna enn að því við erfiöar aðstæður að gera við rafmagnslínur á Norðurlandi þar sem ríflega þrjú hundruð staurar hafa brotnað. Þessir viðgerðarmenn voru að störfum i gær í Langadal. DV-mynd Magnús Ólafsson Norðurland: Stór svæði eru enn rafmagnslaus - allt tiltækt lið Rafmagnsveitna ríkisins við viðgerðarstörf „Það er alveg ljóst að stór svæði víðs vegar um Norðurland verða raf- magnslaus fram eftir helgí. Við höf- um fundið um 300 staura sem brotn- uðu undan ísingunni og rokinu á Norðurlandi undanfama daga. Allt þaö lið, sem við höfum tiltækt, er nú komið norður tíl að gera við línum- ar. Við höfum einnig fengið aðstoð frá björgunarsveitum, bændum og hnudeild Landsvirkjunar en vegna veðurs hafa viðgerðirnar gengið hægt. Vonandi tekst okkur þó að koma á rafmagni á nokkram stöðum í kvöld og nótt,“ sagði Kristján Jóns- son rafmagnsveitustjóri ríkisins í gærkvöldi. Á Noröurlandi vestra brotnuðu minnst 120 staurar og era þar nú um 100 manns við viðgerðarstörf. Krist- ján sagði að vonandi tækist að koma rafmagni fljótlega í lag á Blönduósi, Hofsósi og Skagaströnd, í Blönduhhð og í hluta Langadals og Lýtingsstaða- hreppi. Þá sagði hann að í Skagafirði væri verið að vinna á fullu en fyrir- séð að einhveijir bæir þar og á Skag- anum yrðu án rafmagns eitthvað áfram. Á Norðurlandi eystra brotnuðu minnst 100 staurar og meðal annars rofnaði rafmagn af dælustöð Hita- veitu Akureyrar aö Syðra-Lauga- landi og á Húsavíkurlínunni einni brotnuðu 15 staurar. Þar era nú um 70 manns við viðgeröarstörf. Krist- ján segir rafmagn hafa verið skammtað á Húsavík en vonast til að viðgerð ljúki þar bráðlega. Kristján kvaðst ekki treysta sér til að meta kostnaðinn af því tjóni sem Rafmagnsveitur ríkisins hafa orðið fyrir vegna þessara hamfara. Hann sagði þó ljóst að tjónið næmi tugum milljóna. „Hver staur, sem brotnað hefur, kostar um hundrað þúsund þannig að einungis í staurum tahð er tjónið hátt í 30 milljónir. Þessu til viðbótar er hins vegar mikih kostnaður, til dæmis vegna launa og tækjavinnu.“ -kaa Tjón varð einnig á bænum Hraunsmúla undir Kolbeinsstaða- fjalli á sunnanverðu Snæfellsnesi og víðar þegar óveðrið gekk yfir að- faranótt fimmtudagsins. Á Hraunsmúla lagðist gafl inn í hlöðu og plötur fuku. Gaflinn stórskemmdi dráttarvél og tæki sem voru inni í hlöðunni. í gær átti eftir að kanna skemmdir nánar. -ÓTT Hitaveita Akureyrar: Rafmagn komiðá dælustöðina „Það er búið aö gera við raflín- una aö dælustöðinni á Syðra- Laugalandi þannig að nú ætti að vera hægt að dæla heita vatninu til Akureyrar. Veðrið er hins veg- ar vont og rafmagnið gæti farið aftur af hvenær sem er,“ sagði Franz Ámason, hitaveitustjóri á Akureyri, í gærkvöldi. Hiti fór af húsum á Akureyri í gær í kjölfar óveðursins sem geis- að hefur að undaníörnu. Ástæðan var að rafmagn rofnaðí af dælu- stöð sem sér Hitaveitu Akureyrar fyrir heitu vatni. Aö sögn Franz fór heita vatnið af fyrstu húsun- um í bænum um tíuleytið í gær- morgun og þremur tímum seinna fór hitinn af síðustu húsunum, „Við gátum haldið uppi hita á sjúkrahúsinu, elhheimilum og nokkrum öðrum byggingum en að öðra leyti var bæiinn án hita. Það var sem betur fer ekki kalt þannig að það var ekki mjög kalt í húsunum né fraus vatn i leiðsl- um. Mér vitanlega varð því ekk- ert tjón vegnaþessa." -kaa Togarinn Örvar: Fjarskiptastöð almannavarna Togarinn Örvar á Skagaströnd er nú í hlutverki íjarskiptastööv- ar sem kemur skilaboðum á milli björgunar- og viðgerðarmanna í Húnavatnssýslum, almanna- varnarnefndar og almennings. „Við vorum beðnir um að hafa vakt héma og koma skilaboðum áleiðis. Þetta er öryggisatriöi. Viö erum útbúnir farsíma og tal- stöövum þannig aö viö eigum að ná sambandi við aðila ef þörf krefur," sagöi skipstjórinn áörv- ari í samtali við DV í gærkvöldi. Síminn um borð í Örvari er 985-22017. Einnig er hægt að koma boðunráleiðis í síma 95-22667. -ÖTT Jafntefli Helgi Ólafsson geröi jafntefli við King í gær á skákmótinu í Hastings. Helgi er sæti á mótinu. nú í íjórða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.