Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Side 13
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991, 13 dv LífsstHl Heil umferð er leikin í ensku deild- inni á laugardögum. Þrír íslendingar leika þar og hér sést einn þeirra, Guðni Bergsson, en hann er leik- maður Tottenham Hotspur. eru Sigurður Jónsson, Arsenal, Guðni Bergsson, Tottenham Hot- spur, og Þorvaldur Örlygsson, Nott- ingham Forest. Að auki leikur Guð- mundur Torfason með St. Mirren í Skotlandi. Tvö fyrsttöldu liðin eru bæði frá norðurhluta Lundúna og hafa eldaö grátt silfur í gegnum árin. Arsenal gengur betur um þessar mundir en htið hefur farið fyrir framgöngu íslendinganna hjá báðum þessum hðum það sem af er vetri. Heil umferð er leikin í 1. deildinni á hverjum laugardegi og hér fylgir hsti yfir helstu leikina í London í janúarmánuöi en athygli er vakin á því að laugardaginn 26.janúar er fjórða umferð ensku bikarkeppninn- ar á dagskrá. Chelsea - Q.P.R. (12/1) Tottenham - Arsenal (12/1) Wimbledon - Derby Co. (12/1) Arsenal - Everton (19/1) Crystal Pal. - Norwich (19/1) Q.P.R. - Man. Utd (19/1) Vaxmyndasafnið og allthitt Söfnin eru auðvitað á sínum stað. Flestir fara á Vaxmyndasafnið, kíkja á konungshöllina og skoða Tower- brúna en ef skoða ætti öh söfn og merkilega staði þyrfti sennilega að taka aht sumarfríið í það og meira til. Rétt er að vekja sérstaka athygli á Herminjasafninu sem er ekki langt ffá Waterloo-brautarstöðinni en það var opnað aftur fyrir ahnokkru eftir gagngerar endurbætur og er nú hið glæsilegasta. Best er að fá sér bækl- ing um hvenær áhugaverðustu stað- irnir eru opnir strax við komuna því ekki er opið ahs staðar á sama tíma og sum söfn eru lokuð vegna við- gerða eða endurbóta. Bjórþyrstum ferðalöngum er rétt að benda á grein um pöbba sem birt- ist í DV þann 17. október síðastliðinn og ef áhugi er á að heyra Breta tjá sig um landsins gagn og nauðsynjar má gera það með því að kíkja í Hyde Park Corner. Lögreglan í Bretlandi er einkar vinsamleg og ekki skal hik- að við að spyrja th vegar eða um aðrar upplýsingar. Lögreglumenn í London hafa reyndar gripið til fjalla- hjólsins og fara nú margir hverjir allra sinna ferða á þessu farartæki. Þessi nýbreytni lögreglunnar var tekin upp th að hafa hendur í hári vasaþjófa en af þeim er nóg í borg- inni og fuh ástæða th að vara sig á shkum kauðum. Aðrir kumpánar kunna einnig að verða á vegi manna og eru það götuljósmyndarar sem eru boðnir og búxúr th að taka mynd af fólki gegn vægri greiðslu og senda svo myndina heim th íslands. Gah- inn er bara sá að myndin kemur aldr- ei. Leigubílar í London eru tvenns konar. Annars vegar þessir svörtu sem ahir þekkja, svo og mini-cabs sem eru venjulegir fólksbhar í eigu bílstjórans eða hths einkafyrirtækis. Þessir svörtu aka oftast nær sam- kvæmt gjaldmæli en við hina má semja og með þeim hætti má oft fá ódýran akstur út á flugvöh. Takið ekki bílaleigubíl ef þið æthð aðeins að dvelja í miðborginni. Það er vonlaust mál að fá stæði og að standa í vinstri umferðar akstri. Neðanj arðarlestimar eru druhugur og óspennandi en þær eru fljótar í förum og auðveldar í notkun. Kaupið ykkur dagskort eða vikukort, allt eft- ir þörfum og fáið ykkar kort af lesta- kerfinu og samgöngum ykkar er borgið. Kortið ghdir einnig í strætó sem þið verðið að prófa að sitja í enda er það hluti þess að kynnast lífinu í London. -GRS ---------------------------------------------------------------: S. Lögreglumenn í Bretlandi eru sérlega vinsamlegir og hjálplegir. Magnús Steinþórsson, 18 ára skiptinemi frá Vestmannaeyjum, hafði aldrei spilað amerískan fótbolta er hann kom til Bandarikjanna fyrir fimm mánuðum. Hftir eina æfingu sló hann öll fyrri skólamet i íþróttagreininni og á framtíðina fyrir sér með háskólaliðunum. íslenskur skiptinemi í Bandaríkjunum: Sló í gegn í ameríska boltanum „Það hafa birst allmörg viðtöl við mig og greinar í blöðum hér. Stærsta blaðið var Pittsburg Press en annars hafa þetta verið bæjar- blöðin. Ég er í fimmtán þúsund manna bæ stutt frá Pittsburg," sagði 18 ára gamall skiptinemi, Magnús Steinþórsson frá Vest- mannaeyjum, sem dvahð hefur í Bandaríkjunum í fimm mánuði en hefur þegar slegið í gegn og það reyndar fyrir misskhning. I skiptinemaumsókn sinni merkti Magnús við orðið footbah en enska orðið yfir venjulegan fótbolta er soccer. Magnúsi brá því í brún þeg- ar þjálfari skólahðsins í rugby (am- erískum fótbolta) hafði samband við foreldra hans ytra th að spyija hvenær hann kæmi í liðið því æf- ingar væru hafnar. „Ég lét tiheið- ast og fór á æfingu th að fylgjast með enda vissi ég ekkert hvemig ameríski fótboltinn væri. Einn strákanna í hðinu kom þá th mín og spurði hvort ég vhdi ekki prófa, sem ég gerði og það gekk svona vel,“ sagði Magnús. í öðrum leik hðsins var Magnús svo skotfastur að hann gerði sér htið fyrir og sló tólf ára gamalt skólamet. Liðsmenn skólahðsins stóðu á öndinni yfir afreki phtsins og hefur hann síðan verið orðaður við atvinnumennsku í ameríska boltanum. Eins og í bíómyndum „Rugby er aðahþróttagreinin hér og sú alvinsælasta. Hins vegar leika skólahðin aðeins frá þvi í byijun september fram í nóvember en þá tekur önnur íþróttgrein við. Núna er það körfuboltinn og í fe- brúar verða það frjálsar íþrótt- ir.“ Magnús segir að mjög mikið sé gert í kringum rugbyleiki. Áhorf- endur eru fjölmargir, jafnt skólafé- lagar sem foreldrar þeirra. Þá eru klappstýrumar ómissandi þáttur leiksins. „Þetta er alveg eins og maður sér í bíómyndum," sagði Magnús. í ragby nota hðsmenn líkamann meira en þeir gera í þeim fótbolta sem við þekkjum enda hafa þeir bæði hjálma og mikla axlapúða. „Ég þarf ekki að eiga svo mikið á hættu að meiðast þar sem ég er svokahaður „kicker" eða sparkari. Þeir sem eru í vörninni mega hins vegar búast við öhu,“ segir þessi ungi leikmaður. Magnús hefur stundað fótbolta með Tý í Vestmannaeyjum í mörg ár og var kominn í annan flokk þegar hann fór utan. Nú hefur ameríski boltinn heihað hann. „Rugby er skemmthegra. Við kepp- um í riðlum og skólarnir keppa hver á móti öðram. Þetta hverfi, sem ég bý í, er með bestu fótbolta- mennina í Pennsylvaniu." Magnús segist kunna vel við sig í Bandaríkjunum enda hafi hann ahtaf verið ákveðinn í að kpmast sem skiptinemi þangað. „Ég er mjög heppinn með skóla. Nemend- ur eru innan við þúsund sem þykir lítið á amerískan mælikvarða - minnir s frekar á litlu skólana heima," segir hann. Áframtíðina fyrir sér Skóhnn hjá Magnúsi hófst í fyrradag eftir jólafrí en fótboltinn er ekki lengur á dagskrá. Meðan hann var vora æfingar fimm daga vikunnar frá klukkan þijú th sex. í bandarískum úrkhpþum, sem Vestmannaeyjablaðinu Fréttum barst, er meðal annars viðtal við þjálfara hans sem segir Magnús eiga mjög góða möguleika á að komast í 1. deildina í háskólunum. Frami Magnúsar í rugby getur jafnvel orðið til að hann hafi áhuga á framlengingu á dvöl sinni að skiptinemaárinu hðnu næsta sum- ar. „Ég hef fengið thboð frá einum háskóla sem er með aðra deild í ragby en þá fæ ég skólastyrk í fjög- ur ár. Hins vegar ætla ég að bíða og sjá hvort ég fæ betra thboð, t.d. í fyrstu deild, en þaö myndi veita mér tækifæri til atvinnumennsku. Ef ég fæ slíkt thboð með fuhum skólastyrk slæ ég vissulega th,“ segir Magnús. „Það verður þó ekki fyrr en í febrúar, mars sem eitt- hvað gerist í þeim rnálurn." -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.