Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Side 18
18
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991.
Veiðivon
DV birtir opið bréf Lúðvíks Gizurarsonar til landbúnaðráðherra:
Um lengingu laxveiðitímans
Eins og kunnungt er þá er
laxveiði á stöng takmörkuð við
þijá mánuði á sumri. Veiði er
því hætt í laxveiðiám á haustin
í samræmi við þann dag sem
þær voru opnaðar á snemma
sumars. Tilgangurinn er meðal
annars sá að tryggja nægan
hrygningarstofn.
í dag á sú stefna vaxandi fylgi
að nota sleppingu gönguseiða
til að tryggja áframhaldandi
laxveiði, sbr. þann árangur sem
náðist í Rangánum í sumar. Við
slíkar aðstæður virðast tak-
mörkun laxveiðitímans ekki
eiga við. Á haustin er víða tek-'
inn klaklax og þá í net. Þau
skemma laxinn, enda úr fínum
nylonþræði. Til bóta væri að
ná klaklaxinum á flugu og þá
með lengri veiðitíma.
Náðst hefur samkomulag um
að taka upp laxanet í Hvítá í
Borgarfirði. Þetta skapar nýja
og óþekkta möguleika til laxa-
ræktar á þessu svæði. En upp-
takan kostar fé. Hvernig væri
að greiða aukinn kostnað með
því að lengja laxveiðitímann? Á
það má benda að vaxandi íjöldi
veiðimanna vili njóta þeirrar
ánægju sem laxveiði hefur upp
á að bjóða. Það eru ekki allir
sem vilja vera á dýrasta tíma.
Auðvitað yrði lenging veiði-
tíma í hverju einstöku tilfelh
háð samþykki viðkomandi
veiðifélags og Veiðimálastjóra,
en möguleikann þarf að opna
með því að breyta laxveiðilög-
um.
Óskir eru háværar um meira
framboð veiðileyfa á viðráðan-
legu verði. Lenging laxveiði-
tímans mun auka heildartekjur
bænda af slíkri veiði, þegar til
lengri tíma er litið og yrði gert
án styrkja eða opinberrar að-
stoðar sem svo mjög er gagn-
rýnd í dag.
Viða um land munu veiðimenn eflaust tanga lengingu laxveiðitímans en á
myndinni eru þeir Dagur Garðarsson og Pétur Björnsson með stórlaxa úr Laxá
í Dölum. DV- mynd Gunni Björns
Veiðimaður vippar laxi, sem tók flugu, úr Ægissíðufossi síðasta sumar.
DV-mynd LL
Rangámar:
Dýrasti dagur-
inn 15 þúsund
„Það er mjög erfitt að spá fyrir um
næsta sumar með veiðina en þessi
hækkun á veiöileyfum er ekki mikil,
miðað við veiðivon og aðrar veiði-
ár,“ sagði Aöalbjörn Kjartansson hjá
Búfiski í gærdag.
„Við vonum að tveggja ára laxinn
skili sér næsta sumar í einhverjum
mæli,“ sagði Aðalbjöm í lokin.
En fyrir skömmu var ákveðið verð
á veiðileyfum í ánum næsta sumar.
Eins og veiðimenn áttu von á eftir
hið góða sumar j Rangánum hækka
veiðileyfm þónokkuð næsta sumar.
Mjög misjafnt er hvað veiðileyfm
kosta í Rangámar, allt frá 2500 kr.
upp í 15.000 kr. dýrast. Þetta er á
svæði tvö í ánni sem dagurinn er
seldur á þessu verði, en í fyrra kost-
aði hann 6000 kr. Þetta þýöir um
120% hækkun á milli ára.
-G.Bender
Þjóðar-
spaug DY
Of margir
hringir
Skömmu eftir að hringtorg eitt
var búiö til, í einum af stærri
bæjum landsins, fannst heima-
mönnum það heilmikið sport að
aka hring eftir hring. Það var
ekki af ástæðulausu að bæjar-
starfsmenn settu upp skilti viö
hringtorgið sem á stóð;
„Bannaö að aka fleiri en einn
hring í einu.“
Dræm
kirkjusókn
Prestur í Reykjavik undraðist
eitt sinn hina háværu og óvenju-
legu klukknahringingu einn
sunnudagsmorguninn sem kom
frá kirkju hans. Hann snaraði sér
því upp í kirkjuturninn og spurði
hringjarann hvaö í ósköpunum
eiginlega gengi á.
„Ef þessir andskotar koma ekkí
til kirkju núna þá má fjandinn
hirða mig fái þeir einhvern svefn-
friðsvaraði hringjarinn.
Kona ein, sem hafði mikið yndi
af krossgátum og þurfti stundum
hjálp viö úrlausnimar, vaknaði
eitt sinn við að heslur hneggjaði
uti í garði. Hún hnippti því í eigin-
mannsinn og spurði;
„Hvað er þaö sem veldur því
að hestur hneggjar úti í garði um
miðja nótt?“
„Hvað eru það margir stafir?“
umlaði eiginmaðurinn.
Elskið
eðasldlið
fslensk hjón, sem voru að ferð-
ast í Nýju-Mexíkó, sáu eítt sinn
bíl þar í borg sem indíáni ók. Á
afturrúðu bílsins var stórt merki,
sem á stóð:
„Elskiði Ameríku, eða skilið
heirni aftur."
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Artec útvarpstæki með
segulbandi að verðmæti
kr. 4.900,-
2. Artec útvarpstæki með
segulbandi að verðmæti
kr. 4.900,-
Verðlaunin koma frá
versluninni Opus,
Skipholti 7, Reykjavík
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 87
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir áttu-
gustu og fimmtu getraun
reyndust vera:
LPéturSveinsson,
Akralandi 108, Reykjavík.
2. Unnur Melsted,
Hvassaleiti 10,103 Reykjavík.
Vinningarnir verða
sendir heim.