Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
9
Utlönd
Dimitri Jasov, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, hefur að sögn lengi beðið eftir tækifæri til að styrkja herinn.
Hann hefur nú náð mikilvægum áfanga. Símamynd Reuter
Aukin spenna 1 Sovétríkjunum:
Herf lutningar til
lýðveldanna hafnir
Mikill ótti er nú í Sovétríkjunum
viö að spenna fari vaxandi í kjölfar
þess að stjórnin hefur ákveðið að
senda fjölda fallhlífarhermanna til
sjö lýðvelda þar sem órói hefur verið
mikill á undanförnum mánuðum.
Tilgangurinn með herflutningun-
um er að vara þjóðernissinna við að
ganga of langt í frelsiskröfum og aö
tryggja að herskyldir menn hlýði
herkvaðningu. í mörgum lýðveldum
hafa heimamenn nær algerlega
hundsað herinn.
Hermenn verða sendir til Eystra-
saltsríkjanna, Kákasuslýðveldanna,
Moldóvu og hluta Úkraínu. Af hálfu
varnarmálaráðuneytisins sovéska er
látið svo heima að hermennirnir eigi
að hafa eftirlit með skráningu nýliða
í herinn en þó er öllum ljóst að þeitn
er ekki ætlað að vinna skrifstofu-
störf.
í yfirlýsingu ráðuneytisins er sagt
að þrjóska manna í lýðveldunum sjö
veiki varnir landsins og því sé óhjá-
kvæmilegt að grípa til þessara að-
gerða. Málefni hersins verða rædd í
Æðsta ráðinu í dag en þar er einnig
ætlunin að ræða fjárlög þessa árs.
Ráðið kemur saman í dag eftir hlé
um áramótin.
Aukin spenna í Sovétríkjunum
endurspeglast líka i deilum um fjár-
lögin. Gorbatsjov forseti lýsti því yfir
fyrir helgi að samkomulag hefði
náðst við lýðveldin um fjárlögin.
Boris Jeltsín hefur hafnað þessu fyr-
ir hönd rússneska lýðveldisins og
sagt að ekki komi til greina að stjórn
þess greiði það til miðstjórnarinnar
í Kreml sem Gorbatsjov vill.
Stjórnarandstæðingar í Sovétríkj-
unum óttast að ef til styrjaldar kem-
ur við Persaflóa noti herinn tæki-
færið til að ráðast gegn hópum þjóð-
ernissinna í lýðveldunum. Þeir segja
að sókn á hendur þeim veröi minna
áberandi í augum umheimsins ef
Bandaríkjamenn eiga á sama tíma í
stríði.
Aðrir segja að herflutningarnir nú
séu gagngert hugsaðir til að auka á
spennuna í lýðveldunum i von um
að róstur þar gefi tilefni til að beita
hernum gegn stjórnarandstæðing-
um.
Fréttir hafa borist um að herflutn-
ingarnir séu þegar hafnir og í Eystra-
saltsríkjunum áttu ráðamenn von á
fyrstu hermönnunum i dag. Þar um
slóðir hafa ungir menn á herskyldu-
aldri verið hvattir til að flytja að
heiman svo að ekki náist til þeirra
þegar gengið verður eftir að menn
gefi sig fram til herþjónustu.
Reuter
Alger upplausn í höfuðborg Sómalíu:
Öllu rænt úr banda-
ríska sendiráðinu
Þjófar hafa látið greipar sópa um
sendiráð Bandaríkjanna í Mogadis-
hu, höfuðborg Sómalíu. Aðaldyr
sendiráðsins voru sprengdar upp og
hópur ræningjar ruddist inn, aö sögn
bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Að sögn sendiráðsmanna ríkir nú
algert upplausnarástand í höfuborg-
inni og fráleitt er talið að hægt verði
að semja um frið milli uppreisnar-
manna og Siad Barre forseta. Menn
forsetans halda enn flugvellinum í
Mogadishu þrátt fyrir stöðugar árás-
ir uppreisnarmanna.
Þegar er farið að bera á skorti í
höfuöborginni og óaldarlýður stelur
öllu steini léttara. Úr bandaríska
sendiráðinu var húsgögnum stoliö
og auk þess öllu matarkyns sem þar
var að finna.
í gær tókst að flytja um 280 útlend-
inga frá Mogadishu með flugvélum
rauða krossins. Áður höfðu um 300
manns komist úr landi á laugardag-
inn. Bandaríkjamenn segja að tekist
hafi að koma úr landi öllum löndum
þeirra sem á annað borö vildu fara.
Uppreisnarmenn segja enn að þess
sé skammt að bíða að forsetinn verði
að gefast upp. Umsátrið um forset-
ann og liðsmenn hans á flugvellinum
í Mogadishu hefur nú staðið í meira
en viku án þess að uppreisnarmenn
hafi náð að knýja fram fullnaðarsig-
ur.
Forsetinn heldur til i neðanjarðar-
byrgi við flugvöllinn. Sagt er að bar-
ist hafi verið í næsta nágrenni við
byrgið en mönnum forsetans hafi
tekist að verjast sókninni. Siad Barre
forseti er um áttrætt og hefur stjórn-
að landinu í ríflega tvo áratugi þótt
völd hans hafi aldrei verið mikil utan
höfuðborgarinnar.
Reuter
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! oær-
Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: Viðarhöíði 2, 01-03, þingl. eig. J.L. Byggingavörur sf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 10. janúar ’91 kl. 16.45. Uppboðsbeiðandi er Garðar Briem hdl.
Viðarhöfði 2, 01-06, þingl. eig. J.L. Byggingavörur sf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 10. janúar ’91 kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er Steingrímur Þor- móðsson hdl.
Seilugrandi 2, hluti, þingl. eig. Helga Björk Stefánsdóttir, fer fram á eign- inni sjálfri íimmtud. 10. janúar ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík.
Viðarhöfði 2, 01-04, þingl. eig. J.L. Byggingavörur sf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 10. janúar ’91 kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi er Steingrímur Þor- móðsson hdl.
Viðarhöfði 2, 01-01, þingl. eig. J.L. Byggingavörur sf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 10. janúar ’91 kl. 16.45. Uppboðsbeiðendur eru Steingrímur Þormóðsson hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
Einhell 220/25 W/1
Loftpressa ásamt
verkfærasetti
Kr. 25.974,-
Skeljungsbúðin
Siðumúla33
símar 603878 og 38125
Vinmngstölur laugardaginn
5. jan. 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.927.356,-
2.431m 3 168.530,-
3. 4af 5 111 7.857,-
4. 3af 5 3.760 541,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
6.339.233 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002