Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991. 25 Lífestm DV kannar verö á ljósmyndun á stofu: - Studio Guðmundar og Nýja myndastofan með hagstæðasta verðið Nánast allir þurfa einhvern tíma taka á fermingar-, stúdents-, brúðar- myndir við hátíðleg tækifæri. Þessi að skipta við ljósmyndastofur, þegar eða skírnarmyndir eða hvers konar þjónusta kostar talsverðar fjárhæðir Það kostar nokkur þúsund krónur að fá stækkaða mynd af heimiliskettinum á Ijósmyndastofu. Ljósmyndastofur Stækkaðar myndir Myndir 9x12 cm 13x18 cm 18x24 cm (20x25 cm) 6/7 stk. 8stk. 12 stk. 14/15 stk. Ljósm. Jóhannes Long 2.810 3.755 10.700 Studio Guðmundar 2.200 2.700 4.500 8.000 Ljósmst. Reykjavíkur 2.750 3.700 Ljósmyndastofa Þóris 2.780 3.575 7.400 10.800 Nýja myndastofan 2.190 2.740 8.900 Ljósmst. Kópavogs 7.500 15.000 Ljósmst. Sigríðar Bachmann 2.700 3.700 7.100 9.000 11.800 Svipmyndir, Hverfísgötu 3.010 4.180 7.500 9.500 12.500 og því um að gera að vera vakandi fyrir því hvaða stofur bjóða upp á hagstæðustu kjörin. Stækkanir sjaldnast innifaldar Blaðamaður Neytendasíðu kynnti sér vérðlag á nokkrum ljósmynda- stofum. Þess ber að geta varðandi verðkönnunina að gæði myndanna geta verið æði misjöfn eftir ljós- myndastofum, en ekkert mat verður á það lagt hér. Samanburður allur er erfiður þar sem stofurnar bjóða upp á mjög misjafna þjónustu. Allar samanburðarstofurnar fram- kalla myndir í stöðluðu stærðinni 9x12 cm og því auðvelt að setja þær tölur upp í töflu. Upplag myndanna, sem í boði eru, var frá allt frá 4 mynd- um minnst upp í 12 myndir minnst. Sumar stofur eru með nánast allar tölur þar á milli, aðrar bjóða aðeins upp á tvo möguleika hvað varðar fjölda mynda. Allar ljósmyndastofurnar eru með framköllun bæði í lit og svarthvítu ef frá er tahn Ljósmyndastofa Kópa- vogs sem eingöngu er með litmyndir. Engin stofanna gerir verðmun eftir því hvort framkallaö er í svarthvítu eða lit en flestar krefjast hærra verðs ef beðið er um sambland af hvoru tveggja. Ljósmyndastofa Þóris er undantekning, hún hefur ekki kraf- ist hærra verðs þótt neytandinn biðji um sambland af lit og svarthvítum myndum. Ljósmyndastofan Ljós- myndarinn Jóhannes Long er með . sérstakt afsláttarverð á stúdents- myndum þar sem verðið er meira en 20 af hundraði lægra en á öðrum' sambærilegum myndum. Stækkaðar myndir lagfærðar Aðeins ein ljósmyndastofa er með stækkaðar myndir innifaldar í verði, það er Ljósmyndastofa Kópavogs. Hverri pöntun þar fylgja tvö stækkuð eintök (20x25 cm). Þær eru þó ekki það sem kallað er „redúseraðar", eða lagfærðar. í flestum tilfellum þegar myndir eru stækkaðar er innifalið að myndir séu lagfærðar. Mjög margar ljósmyndastofur eru með opið um helgar á álagstímum, til dæmis í kringum fermingar eða brautskráningu stúdenta. Þær leggja þá eitthvað ofan á verð á þeim tím- um, oftast nær um eða undir 10%. Ef taflan hér til hliðar er skoðuð sést að Ljósmyndastofa Kópavogs hefur engar tölur í reitnum um stækkaðar myndir. Það er vegna þess að stækkunin er innifalin í almennri framköllun og verða menn að reikna Neytendur með því í verði. Sú ljósmyndastofa kemur þó mjög hagstætt út sé það tekið með í reikninginn. Ljósmynda- stofa Reykjavíkur er heldur ekki með neinar tölur í framköllun á myndum í staðlaðri stærð. Þar var verið að breyta verði og lá það því ekki fyrir þegar könnunin var gerð. Stúdíó Guðmundar og Nýja myndastofan hafa nokkra sérstöðu hvað verð varðar. Þær tvær ljós- myndastofur eru með lægst verð í öllum samanburöartölum svo munar töluverðum upphæðum. Þess skal og getið að í verði á stækkuðum mynd- um þaðan er innifalin lagfæring. Þess skal getið að ljósmyndastofur á höfuðborgarsvæðinu eru á fjórða tug en úrtakið er aðeins átta stofur. Þær ættu þó að gefa nokkra mynd af því verði sem í gangi er. ÍS Ný byrjendanámskeið eru að hefjast Þjálfari verður Michal Vachum, fyrrum landsliðsþjálfari frá Tékkóslóvakíu. Æfingar verða í æfingasal félagsins í húsakynnum Sundlauga Reykjavíkur í Laugardal. Innritun fer fram á staðnum milli kl. 17 og 20 þriðjudaga og fimmtudaga. Allar nánari upplýsingar verða veittar í síma 67-95-60. JUDOFÉLAG REYKJAYIKUR H ITABLÁSARAR ER KALT? BORGARTÚNI31 ■ PÓSTHÓLF880 -121 REYKJAVÍK ■ SiMI 62 7222 Iðnaðarmenn og aðrir sem vinna í óhituðum húsum þekkja kosti Master-hitablásaranna. Þeir eru meðfærilegir og sterkbyggðir, henta jafnt fyrir þröng vinnusvæði sem stærstu vöruskemmur og þola notkun við erfiðar aðstæður. Ef þú átt gamlan hitablásara tökum við hann upp í og veitum þér 15% afslátt af nýjum. SINDRI -sterkur í verki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.