Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991. Sérstæð sakamál Dóttirin brá sér í hlut- yerk leynilögreglukonu Dawna Kay Wells varð mjög miður sín þegar henni varð ljóst að móðir hennar var horfin. Lögreglan hóf þegar rannsókn en eftir tvo mánuði hafði henni ekki tekist að verða neins vísari. Þá tók Dawna Kay Wells málið í sínar eigin hendur og henni varð betur ágengt en yfir- völdunum. Niðurstaðan kom á óvart og kvikmyndafélag í Holly- wood hefur keypt réttinn til sög- unnar. Bilaðurbíll Þegar söngkonan Dawna Kay Wells var orðin leið á því að bíða eftir því að rannsókn lögreglunnar færði henni einhverja vitneskju um örlög móður hennar tilkynnti hún að hún hygðist hefja rannsókn á eigin vegum því hún sætti sig ekki við að komast ekki að því hvað um móðurina, Ruby, hefði orðið. Um svipað leyti tilkynnti lögreglan svo að hún hefði hætt rannsókn- inni þar eð ekkert hefði komið fram sem hægt væri að telja vísbending- ar. Það var 4. júní sem Ruby Morris hvarf frá vel búnu heimili sínu í Arizonaeyðimörkinn í Bandaríkj- unum. Reyndar bjó hún í ríkmann- legu húsi ásamt manni sínum, Ga- ylord Earl Morris, og hinni dóttur- inni, Cindy.. Hann hafði farið snemma að heiman þennan dag til að heimsækja Dawna Kay í Kalifor- níu. Nokkram klukkustundum eftir að Gaylord Earl hélt aö heiman, réttara sagt klukkan tíu um morg- uninn, hringdi hann til Dawna Ray til að segja að bíllinn hans hefði bilað á leiðinni og hann yrði að bíða í nokkrar klukkustundir eftir því að fá gert við hann. Sex klukkustundum síðar hringdi hann aftur og sagði að enn hefði ekki tekist að gera við bíhnn og því hefði hann ekki getað haldið áfram ferðinni. Það var svo loks klukkan ellefu um kvöldið að hann hringdi og sagði að bíllinn væri kominn í lag og hann gæti haldið áfram. Áhyggjur af móðurinni Þegar Gaylord Earl ræddi við Dawna Kay um kvöldið gat hún sagt honum frá því að systir henn- ar, Cindy, sem orðið hafði eftir í húsinu í Arizonaeyðimörkinni, hefði hringt til sín. Hún væri áhyggjufuh því móðir þeirra væri ekki heima. Hún hefði ekki sést daglangt en bíh hennar stæði fyrir framan húsiö. Umhverfi garðsins umhverfis húsið var svo gróður- laust og eyðilegt að ólílegt gat tahst að Ruby hefði farið nokkuð fót- gangandi. Dawna Kay sagði því föður sínum að þær systur óttuðust að eitthvað heföi komið fyrir móð- ur þeirra. Gaylord Earl skynjaði hve órótt dætranum var og sagðist mundu snúa heim þegar í staö til að kanna hvað orðið heföi um konu hans. Morguninn eftir flaug Dawna Ray svo til Phoenix til að hefja að leit að móðurinni ásamt föður sínum og Cindy. Það athygiisverða var að þennan dag, daginn eftir að hann fór að heiman, kom faðirinn ekki heim fyrr en klukkan hálfsjö um kvöldið en þar eð hann hafði á ný lent í erfiðleikum með bílinn og orðið að fá far með öðra fólki hugsuöu dæt- urnar ekki meira um það. Logandi bátur Hvorki lögreglan í Arizona né dæturnar tvær vissu að daginn sem Ruby móðir þeirra hvarf hafði lög- reglan í Kaliforníu séð logandi bát úti fyrir San Diego. Þá var klukkan um eitt eftir hádegi. Strandgæsl- unni var gert aðvart og sendi hún þegar bát á staðinn en hann náði ekki þangað fyrir en báturinn log- andi var sokkinn. Þar eð enginn haföi komið nógu nærri honum th að geta séð um hvaða bát var að ræða var atvikið flokkað sem slys og þess getið að hugsanlegt væri að einhver heföi verið um borð og týnt lífinu. Þegar lögreglan í Arizona hafði árangurslaust reynt að upplýsa hvarf Ruby Morris í tvo mánuði var farið að reyna mjög á þolin- mæöi Dawna Ray. Hugur hennar var mjög bundinn við örlög móður- innar þennan tíma og þegar henni var Ijóst að lögreglan væri í þann veginn að hætta rannsókninni ák- vað hún að taka hana í sínar hend- ur þótt hún heföi enga reynslu í slíkum málum. Hún gat einfaldlega ekki sætt sig við aö vita ekki hvað orðið heföi um móður þeirra systra. Dawna Ray fyllist grunsemdum Eitt það fyrsta sem Dawna Ray lét sér til hugar koma var hvort móðir hennar hefði í raun fariö út á bát fjölskyldunnar, HiLo, en það gat einmitt verið hann sem sokkið hafði logandi í djúpið undan San Diego þar sem hann hafði verið geymdur á bátalæginu. Hún fór á fund lögreglunnar í San Diego og fékk staðfestingu á því að vart kæmi annað th greina en það hefði verið HiLo sem sokkið hefði umræddan dag. Þá fékk hún að vita að fréttamenn frá sjónvarps- stöð þar í borginni höföu tekið myndir af bátnum nokkra áður en hann sökk. Þegar hún haföi fengið að sjá myndirnar þóttist hún ekki í neinum vafa um að það heföi ver- ið fjölskyldubáturinn sem sökk log- andi daginn sem móðir hennar hvarf. Miklar grunsemdir í garð fööur- ins vöknuðu nú með Dawna Ray. Hún tók aö íhuga hvort ekki gæti verið að hann heföi komið móður- inni fyrir kattamef og lík hennar lægi á hafsbotni í flakinu af HiLo. Ein af þeim spumingum sem varð þó ekki svarað í því sambandi var hvemig faðir hennar heföi komist th lands heföi hann í raun verið um borð í bátnum. Rætt við bátaleigur Dawna Ray komst að þeirri nið- urstöðu að heföi faðir hennar verið á bátnum heföi hann orðið að hafa annan bát th að geta komist til lands. Þess vegna fór hún að ræöa við eigendur bátaleiga í San Diego th að kanna hvort nafn föður henn- ar, Gaylords Erals Morris, væri á útleigulista þann 4. eða 5. júní. í lok september kom Dawna Ray í Club Nautico og þar kom í ljós að faðir hennar hafði tekið bát á leigu þann 5. júní og notað greiðslu- kort til að borga reikninginn. Hann hafði leigt hraðskreiðan bát klukkan stundarfjórðung yfir níu um morguninn og fram til hádegis þennan dag. Þetta var sönnunin sem Dawna Ray hafði verið að leita að. Grunsemdir hennar höfðu, þeg- ar aht kom til alls, ekki verið ástæðulausar. Þetta sýndi aö faöir hennar hafði logið í þau skipti sem hann hafði hringt heim th að segja að bíh hans heföi bhað. Og það staðfesti kenningu hennar um að hann hefði þurft að hafa aukabát til að komast að landi eftir að hann heföi kveikt í fjölskyldubátnum. Á fund lögreglu Dawna Ray fór strax á fund lög- reglunnar í San Diego og skýrði henni frá grunsemdum sínum og því sem hún haföi komist að. Hún var þegar í stað tekin alvarlega og litu rannsóknarlögreglumennirnir svo á að um morð heföi getað verið að ræða. Nákvæm rannsókn var nú gerð á heimhi Morrishjónanna í Arizona. Þar fundust þá blóðblettir sem reyndust vera úr Ruby Morris. Einnig kom í ljós að bíU Morris- hjónanna hafði staðið á bílastæð- inu á flugvellinum í San Diego að- faranótt 5. júní. Þá var hvergi hægt að finna fjölskyldubátinn, HiLo. „Mér brá óskaplega mikið þegar mér varð ljóst aö líklega heföi faðir minn myrt móður mína,“ sagði Dawna Ray þegar hún tjáði sig loks opinberlega um þessa atburði. „Hann hlaut að hafa skotið hana og flutt hana í bílnum th Dan Diego th þess að geta sökkt líkinu í bátn- um á þúsund metra dýpi. Starfsmenn við höfnina segja mér að Utlar líkur séu á því að flak- ið’finnist eöa líkið. Straumar þarna fyrir utan séu sterkir og bátinn geti hafa borið langt með þeim, jafnvel margra sjómílna leið.“ „Ég elskaði foreldra mína," sagði Dawna Ray ennfremur, „en einkum var samband mitt við föður minn gott. Þe§s vegna má að segja að ég hafi ihisst báða foreldra mína.“ Enginn dregur í efa að það var ákveðni Dawna Ray í að komast að því hver örlög móöur hennar urðu sem varð til þess að málið tók þessa stefnu. Mörgum þykir það hins vegar kaldhæðni örlaganna að athafnasemi hennar skyldi verða til þess að faðir hennar hefur veriö ákærður um morðið á móður hennar. „Mér þykir en vænt um hann,“ segir Dawna Ray, „en ég get aldrei fyrirgefiö honum það sem hann geröi. Ég vona að hann fái lífstíðar- fangelsi." Hver var ástæðan? Rannsóknarlögreglumennirnir hafa mikið velt því fyrir sér hvers vegna Gaylord Earl hafi ákveðið að ráða konu sína af dögum. Játn- ing Uggur ekki fyrir af hans hendi en í ljós er komið að hann stóð í ástarsambandi við mágkonu sína. Mun eiginkonan, Ruby, hafa kom- ist að þessu og farið fram á skhnað og háar greiðslur af hans hálfu, svo háar að hann mun ekki hafa séð sér fært að innan þær af hendi. Hafi hann því séð fram á gjaldþrot. Þegar Gaylord Earl var skýrt frá því hyaða gögn rannsóknarlögregl- an heföi nú með höndum neitaði hann að tjá sig um málið. Saksóknaraembættið telur sig þó hafa nægar sannanir th að fá hann dæmdan. Ekki era þó aUir á því máU. En hvemig svo sem dómur féUi er ljóst að líf hans og dætranna tveggja verður aldrei það sama og áður. MáUð hefur vakið svo mikla at- hygU vestra að verið er að und- irbúa gerð kvikmyndar um það. Er byggt á sögu Dawna Ray en hún er kunn söngkona.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.