Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 43
■ ‘MUé'A'áMböR QiAiWM'-tósh. ------------------ “'51 Afmæli Þýðrún Pálsdóttir Þýðrún Pálsdóttir forstöðumaður, Sæviðarsundi 9, Reykjavík, er sex- tugídag. Starfsferili Þýðrún fæddist á Stóru-Völlum í Landsveit í Rangárvallasýslu og ólst þar upp í stórum systkinahópi. Um tvítugt flutti hún til Reykjavíkur og vann þar hótel- og verksmiðjustörf fyrstu árin en s.l. tuttugu ár hefur hún unnið sem gæslu- og forstöðu- maður gæsluvalla hjá Reykjavíkur- borg. Fjölskylda Þýðrún giftist 1954 Sigurði V. Gunnarssyni, f. 7.12.1929, vélfræð- ingi en hann rekur Vélsmiðju Sig- urðar V. Gunnarssonar að Súðavogi 16, Reykjavík. Foreldrar Sigurðar voru Gunnar Bjarnason vélstjóri og kona hans, Hermannía Sigurðar- dóttir. Synir Þýðrúnar og Sigurðar eru Sigurvin Rúnar, f. 3.12.1952, vél- tæknifræðingur og framkvæmda- stjóri Skipasmíðastöðvarinnar Dröfn hf. í Hafnarfirði, kvæntur Ólafíu G. Kristmundsdóttur og eiga þau tvö börn, Láru Rún, f. 15.6.1977, ogHauk, f. 14.8.1980; Gunnar Her- mann, f. 10.5.1956, véltæknifræð- ingur og deildarstjóri hjá Sements- verksmiðju ríkisins, kvæntur Arn- björgu Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn, Grétu, f. 20.2.1980, og Sig- urð Gunnar, f. 27.5.1982; Pétur Sig- urður, f. 5.5.1962, d. 11.3.1984, vél-^- fræðingur; Sveinn, f. 15.1.1969, vél- virkjameistari og er unnusta hans Sigurborg Hrönn Sigurbjörnsdóttir. Foreldrar Þýðrúnar voru Páll Jónsson, b. á Stóru-Völlum í Lands- sveit, og kona hans, Sigríður Guð- jónsdóttir. Ætt Föðurbróðir Þýðrúnar var Þor- gils, faðir Jóns, framkvæmdastjóra héraðsnefndar Rangárvallasýslu. Páll var sonur Jóns, b. og fræði- manns á Ægissíðu á Rangárvöllum, bróður Jóns í Hlíð, afa Jóns Helga- sonar, prófessors og skálds. Jón var einnig bróðir Skúla, afa Jóns Skúla Sigurðssonar, forstöðumanns loft- ferðaeftirlitsins. Þá var Jón bróðir Júlíu, ömmu Guðrúnar Helgadótt- ur, fyrrv. skólastýru Kvénnaskól- ans. Önnur systir Jóns var Ingiríð- ur, langamma Sigurðar, afa Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhags- stofnunar. Jón var sonur Guðmund- ar, b. á Keldum á Rangárvöilum Brynjólfssonar, b. í Vestri-Kirkjubæ á Rangárvöllum, Stefánssonar, b. í Árbæ á Rangárvöllum, Bjarnsson- ar, b. og hreppstjóra á Víkingslæk, Halldórssonar, ættfóður Víkings- lækjarættarinnar. Móðir Páls var Guðrún, systir Sig- ríðar, langömmu Jóhanns Sigur- jónssonar sjávarlíffræðings. Guð- rún var dóttir Páls, b. á Þingskálum á Rangárvöllum, Guðmundsson- ar,hálfbróður, samfeðra, Jóns á Ægissíðu. Móðir Þýðrúnar, Sigríður, var dóttir Guðjóns, b. í Þúfu í Lands- sveit, Þorbergssonar, b. á Stóru- Völlum í Landsveit, Jónssonar yngsta, b. á Efraseli á Landi, Jóns- sonar, b. og hreppstjóra í Flagveltu og síðarEfraseli. Móðir Jóns yngsta var Þórunn Jónsdóttir eldri, b. á Efraseli á Landi, Bjarnasonar, b. og hrepp- stjóra á Víkingslæk, Halldórssonar. Móðir Guðjóns var Sigríður Þor- steinsdóttir, b. í Köldukinn, Run- ólfssonar, prests í Keldnaþingum, Jónssonar. Móðir Sigríðar Guðjónsdóttur var Sigríður Sæmundsdóttir, b. á Fossi á Rangárvöllum, Ólafssonar, í Húsagaröi á Landi, bróður Guð- brandar á Lækjarbotnum, föður Sæmundar, hreppstjóra á Lækjar- botnum, ættfóður Lækjabotnaætt- arinnar og Sigurðar á Gaddastöð- um, afa Guðmundar Daníelssonar rithöfundar. Móðir Sæmundar á Fossi var Guðný Sigurðardóttir, Þýdrún Pálsdóttir. systir Elínar, móður Sæmundar, hreppstjóra á Lækjarbotnum. Ólaf- ur í Húsagarði var sonur Sæmund- ar, b. á Hellnum á Landi, Ólafsson- ar. Þýðrún ög Sigurður taka á móti gestum í Félagsheimilinu Drangey, Síðumúla 35, Reykjavik, klukkan 17-19.00 í dag, laugardaginn 19.1. Jóhadnna Petra Bj örgvinsdóttir Jóhanna Petra Bjögvinsdóttir, Fellsási, Breiðdal, verður áttræð sunnudaginn 20. janúar. Jóhanna er fædd á Hlíðarenda í Breiðdal og ólst þar upp. Fjölskylda Jóhanna átti tíu systkini, tvö lét- ust í æsku og eru sex á lífi. Jóhanna giftist 1. mars 1940 Páli Lárussyni, f. 20. janúar 1919, b. og síðar húsasmíðameistara á Gilsá í Breiðdal. Foreldrar Páls voru: Lár- us Kristbjöm Jónsson, b. á Hösk- uldsstöðum í Breiðdal, og kona hans, ÞorbjörgPálsdóttir. Synir Jóhönnu eru Björgvin Hlíðar Guð- mundsson, f. 1933, er látinn; Stefán Lárus Pálsson, f. 1940; Sigurður Pálmi Pálsson, f. 1943, og Sigþór Pálsson, f. 1943. Ætt Foreldrar Jóhönnu voru Björg- vin Jónasson, f. 19. september 1882, d. 12. desember 1932, b. á Hlíða- renda í Breiðdal, og kona hans, Sig- urbjörg Erlendsdóttir, f. 10. des- ember 1884, d. 8. október 1965. Björgvin var sonur Jónasar, b. í Geldingi í Breiðdal, Bóassonar. Móðir Jónasar var Guðrún Jóns- dóttir, gullsmiðs á Sléttu í Reyðar- firði, Pálssonar, bróður Sveins, læknis og náttúrufræðings í Vík í Mýrdal. Sigurbjörg var dóttir Erlends, b. á Eyri í Fáskrúðsfirði, Finnboga- sonar, b. í Reyðarfirði, Erlendsson- ar, b. á Kirkjubóli, Þórðarsonar. Móðir Erlends Þórðarsonarvar Sigriður Erlendsdóttir, b. á Ásunn- arstöðum, Bjarnasonar, ættföður Ásunnarstaðaættarinnar. Jóhanna Petra Bjögvinsdóttir. Jóhanna tekur á móti gestum sunnudaginn 20. janúar á Staðar- borg í Breiðdal kl. 15-19. Jóhannes Þórður Jónsson Jóhannes Þórður Jónsson, fv. kaup- félagsstjóri á Suðureyri, Kleppsvegi 50, Reykjavík verður sjötíu og fimm ára á morgun. Starsferill Jóhannes brautskráðist úr Sam- vinnuskólanum 1940 og var kaup- félagsstjóri hjá Kaupfélgi Súgfirð- inga 1940-1965. Hann var inn- heimtustjóri hjá SÍS í Rvik 1965-1973 og deildarstjóri slysa- og ábyrgða- deildar Samábyrgðar íslands á Fiskiskipum 1973-1986. Fjölskylda Jóhannes kvæntist Geirþrúði Valdimarsdóttur, f. 17. mars 1923, d. 3. ágúst 1990. Foreldrar Geir- þrúðar eru: Valdimar Örnólfsson, bókari á Suðureyri og kona hans Guðrún Sveinbjarnardóttir. Börn Jóhannesar og Geirþrúðar eru: Har- aldur, f. 16. október 1944, d. 28. mars 1965; Aðalheiður, f. 9. maí 1946, starfsmaður á auglýsingadeild Morgunblaðins, á hún tvo syni; Þórður, f. 19. júní 1948, kennari í MS, á hann fjögur börn; Guðrún Kristín, f. 24. september 1950, starfs- maður Útvegsbankans, hún á tvö bön og María Þrúður, f. 25. nóvem- ber 1953, gift Arthur Weinberg, rit- höfundi og fyrrv. borgarstjóra í Toughkeeps í Bandaríkjunum og á hún einn son. Systkini Jóhannesar eru: Þóra J. Hjartar, f. 19. desember 1896, d. 31. desember 1982, gift Friðrik Hjartar, skólastjóra á Akranesi, Sigríður, f. 20. ágúst 1899, d. 2. september 1899, Sturla, f. 24. ágúst 1902, oddviti og hreppstjóri á Súgandafirði, kvæntur Kristeyju Hallbjarnardóttur, Kristj- ana Guðrún, f. 7. nóvember 1909, giftFriðbertPéturssynþb.íBotnií ' Súgandafirði, og og Þorlákur Jón, f. 23. desember 1907, rafvirkjameist- ari í Reykjavík, kvæntur Kristjönu Örnólfsdóttur. Ætt Foreldrar Jóhannesar voru Jón Einarsson, f. 9. júní 1873, d. 22. sept- ember 1939, útgerðarmaður á Suð- ureyri, og kona hans, Kristín Kristj- ánsdóttir, f. 28. júní 1874, d. 25. jan- úar 1931. Faðir Jóns var.Einar, b. á Meiribakka í Skálavík, Jónssonar, b. í Þjóðólfstungu, Einarssonar, b. á Meiribakka, Jónssonar. Kristín var dóttir Kristjáns út- vegsmanns á Suðureyri, Alberts- sonar, b. á Gilsbrekku í Súganda- firði, Jónssonar, b. á Tannanesi, Ölafssonar. Móðir Kristínar var Guðrún Þórð- Jóhannes ÞórðurJónsson. ardóttir, b. í Vatnadal, Þórðarsonar, bróður Guðríðar Bjarnadóttur, móður Guðmundínu, ömmu Gils Guðmundssonar, fv. alþingis- manns. Guðríður var einnig móðir Guðnýjar, móður Guðrúnar, móður Jónu Margrétar, ömmu Ólafs Þ. Þórðarsonar alþingismanns og Kjartans Ólafssonar, fv. alþingis- manns og ritstjóra. Guðrún var einnig móðir Guðna „kóngabana" og Rebekku Kristínar, konu Guð- jóns Halldórssonar, járnsmiðs á Suðureyri. Jóhannes verður að heiman. Til hamingju með afmælið 20. janúar 85 ára Baldur Sigurðsson, Akralandi 3, Reykjavik. Ársæll Kj artansson, Háaleitisbraut 103, Reykjavík. 80 ára Björg Andrea Magnúsdóttir, Hamarsgötu 1, Fáskrúðsfiröi, verður áttræð 22. janúar. Tekur á móti gestum á heimili son- arsíns, Eskiholti 13, Garðabæ, sunnudag- inn 20 janúar, kl. 16-19. 75 ára Jóhanna Þórðardóttir, Reykjavöllum, Biskupstungna- hreppu 70 ára Tómas Haukur Jóhannsson, Hólmgarði 38, Reykjavík. 60 ára Haukur Pálsson, Raftahlíð54, Sauðárkróki. Kristinn Sigurðsson, Hjallalandi 19, Reykjavík. Helga Frímannsdóttir, Sunnuvegi 4, Selfossí. Sigfús Agnar Sveinsson, Hólavegi 34, Sauðárkróki. 50 ára___________________ Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, Steinahlíð 5C, Akurey ri. Margrét Jónsdóttir, Álfaskeiði 74, Hafnarfirði. Jens Valgeir Óskarsson, Túngötu 19, Grindavík. Ketill Oddsson, Heiðarlundi 4, Garðabæ. Kj artan Guðmundsson, Hraunhólum 4, Garðabæ. Guðborg Olgeirsdóttir, Stórahjalla 29, Kópavogi. 40 ára BirgirHauksson, Tröð, Norðurárdalshreppi. Ásmundur Þórisson, Skipasundi 21, Reykjavík. Björg Gunnarsdóttir, Hjarðarseli36, Reykjavík. Ólafur Eiríksson, Logafold 31,Reykjavík. Ragnheiður Karlsdóttir, Vesturbergil7, Reykjavík. Hreinn Pálsson, Lyngholti 21, Akureyri. SÍgurborg Gunnlaugsdóttir, Engihlíð, Ijósavatnshrcppi. DV-AKUREYRI Blaðberi óskast í innbæinn frá og með 1. febrúar '91. Upplýsingar á afgreiðslu í síma 96-25013. FYLLIN G AREFNI Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi. Gott efni, lítil rýmun, trostþolið og þjappast ve^ Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi sand og möl af ýmsum grófleika. Sævarhöfða 13 - sími 681833

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.