Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1991, Side 7
MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 1991.
23
* Körfuboltí
I />
Urvalsdeild
Njarövík-KR............... 70-66
Tindastóll - Þór............ 93-102
Snæfell - Njarðvík........ 88-98
Valur - Keflavík............102-107
A-riðill:
Njarðvík....17 13 4 1555-1271 26
KR..........17 10 7 1398-1343 20
Haukar......16 9 7 1340-1335 18
Snæfeli.....17 4 13 1308-1526 8
ÍR..........16 1 15 1251-1520 -2
B-riðill:
Tindastóll... 16 12 4 1540-1452 24
Keflavík....16 12 4 1547-1417 24
Grindavík... 16 11 5 1386-1314 22
Valur.......17 5 12 1417-1481 10
Þór.........16 5 11 1487-1500 10
Stigahæstir:
Rondey Robinson, Njarðvík...437
Ivan Jonas, Tindastól.......423
Jón A. Ingvarsson, Haukum...417
Magnús Matthíasson, Val.....398
David Grissom, Val..........374
Jonathan Bow, KR............347
Cedric Evans, Þór...........317
Falur Harðarson, Keflavík...313
Douglas Shouse, ÍR..........305
Pétur Guðmundsson, Tindastól300
1. deild karla
UÍA - ÍS..................61-59
Víkverji - UBK............78-81
(eftir framlengingu)
Reýnir - Skallagrímur.....78-95
Víkverji..
Skallagr..
UÍA.......
ÍS........
UBK.......
Akranes...
Reynir....
696-661 12
53(M66 10
527-506 10
579-543 8
536-581 6
467-500 4
548-626 4
1. deild kvenna
Haukar - Keflavík......55-58
IS..........9 8
Haukar......9 7
Keflavík....9 5
ÍR..........9 5
KR..........9 2
Grindavík...9 0
472-361 16
490-359 14
574-132 10
450-418 10
386-449
254-607
Taugastríð
í N jarðvík
-Njarðvik-KR 70-66
Ægir Mar Karason, DV, Suðumesjum:
„Þetta var mjög mikilvægur
sigur en ég hugsa að þetta hafi
ekki verið skemmtilegur leikur
fyrir áhorfendur. Taugastríðiö
var mikið en þegar menn fóru að
berjast í vörninni gengu hlutirnir
upp hjá okkur,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, þjálfari Njarðvík-
inga, eftir sigur þeirra á KR,
70-66, í úrvalsdeildinni á föstu-
dagskvöldiö.
„Það var svekkjandi að tapa
þessum leik því við hefðum átt
skilið að vinna hann. En við lent-
um í villuvandræðum og þaö
kostaði okkur sigurinn," sagði
Jonathan Bow, bandaríski leik-
maðurinn í liði KR, við DV.
Njarövíkingar skoruðu aöeins 2
stig fyrstu sex mínúturnar og þá
stóð 2-14 fyrir KR. Síðan komst
KR í 16-32 en Njarðvík lagaði
stöðuna í 26-32 fyrir hlé. Njarðvík
gerði síðan 13 stig í röð snemma
í síðari hálfleik og náði þá tíu
stiga forskoti sem KR tókst ekki
að brúa.
Stig Njarðvíkur: Rondey Robin-
son 26, Teitur Örlygsson 16, Krist-
inn Einarsson 9, Gunnar Örlygs-
son 7, Hreiðar Hreiðarsson 6,
Friðrik Ragnarsson 6.
Stig KR: Jonathan Bow 26, Páll
Kolbeinsson 12, Matthías Einars-
son 8, Axel Nikulásson 8, Bene-
dikt Sigurðsson 8, Gauti Gunn-
arsson 4.
Dómarar voru Bergur Stein-
grímsson og Kristinn Óskarsson
og dæmdu eftir bókinni en gerðu
þó sín mistök.
________________Iþróttir
Fyrsta heima-
tap Tindanna
- öruggur Þórssigur á Króknum, 93-102
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Tindastóll, án Péturs Guðmunds-
sonar sem er meiddur, tapaði í gær
sínum öðrum leik í röð í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik og jafnframt
sínum fyrsta á heimavelli á keppnis-
tímabilinu. Þórsarar komu í heim-
sókn og unnu óvæntan en öruggan
sigur, 93-102, sem styrkir stöðu
þeirra í neðri hluta deildarinnar
verulega. Tindastóll á hins vegar fyr-
ir höndum grimmilega baráttu við
Grindavík og Keflavík um tvö sæti í
úrslitakeppninni.
Framan af leik stefndi allt í örugg-
an sigur Tindastóls og eftir 14 mínút-
ur stóð 40-23, heimamönnum í hag.
En Þórsarar nýttu 13 næstu sóknir
sínar á meðan ekkert gekk hjá Tinda-
stóli og Þór komst yfir fyrir hlé,
47-49.
í síðari hálfleik náðu Akureyringar
fljótlega fimmtán stiga forystu og
héldu henni lengst af, og ekki bætti
úr skák fyrir Tindastól að Ivan Jonas
hvarf af velli með 5 villur um miðjan
hálfleikinn.
Dan Kennard átti stórleik með Þór
og Jón Örn Guðmundsson var einnig
gífurlega sterkur. Ivan Jonas og Val-
ur Ingimundarson voru bestir í slöku
liði Tindastóls.
Stig Tindastóls: Ivan Jonas 34, Val-
ur Ingimundarson 30, Einar Einars-
son 9, Sverrir Sverrisson 9, Haraldur
Leifsson 5, Kristinn Baldvinsson 5,
Karl Jónsson 1.
Stig Þórs: Dan Kennard 40, Jón Örn
Guðmundsson 26, Konráð Óskarsson
13, Björn Sveinsson 13, Sturla Ör-
lygsson 8, Helgi Jóhannesson 2.
Dómarar voru Jón Otti Ólafsson
og Bergur Steingrímsson og voru
slakir.
Njarðvík hafði
betur í lokin
- og vann baráttuglaða Hólmara, 88-98
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykknshólmi:
Mikil og góð barátta Snæfells dugði
ekki til aö sigrast á hinu sterka hði
Njarðvíkinga í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gær. Reynsla gest-
anna kom þeim til góða í lokin og
þeim tókst að sigra með tíu stigum,
88-98.
Snæfell var yfir megnið af fyrri
hálfleik en Njarðvík náði forystunni
í lokin, 46-48. Síðari hálfleikur var
líka jafn, þegar þrjár mínútur voru
eftir stóð 80-81 og allt gat gerst. Þá
voru hins vegar Hreinn Þorkelsson
og Sæþór Þorbergsson í liði Snæfells
horfnir af velli með 5 villur, félagar
þeirra gerðu sig seka um slæm mis-
tök á lokakaflanum og því fór sem
fór.
Heimamenn léku vel og börðust af
miklum krafti og komu Njarðvíking-
um greinilega í opna skjöldu. Tim
Harvey var bestur í liði Snæfells,
mjög öflugur leikmaður sem er alls
ekki eigingjarn og fellur vel inn í lið-
ið. Sæþór var einnig mjög góður, sem
og Bárður Eyþórsson. Rondey Robin-
son var yfirburðamaður hjá Njarð-
vík. Teitur Örlygsson komst vel frá
leiknum og Friðrik Ragnarsson lék
mjög vel í síðari hálfleik.
Stig Snæfells: Tim Harvey 26, Bárð-
ur Eyþórsson 22, Brynjar Harðarson
18, Sæþór Þorbergsson 13, Ríkharður
Hrafnkelsson 7, Þorkell Þorkelsson 2.
Stig Njarðvíkur: Rondey Robinson
36, Teitur Örlygsson 26, Friðrik
Ragnarsson 16, ísak' Tómasson 8,
Kristinn Einarsson 6, Hreiðar Hreið-
arsson 4, Rúnar Jónsson 2.
Árrii Freyr Sigurlaugsson og Krist-
inn Óskarsson dæmdu erfiðan leik
sæmilega, en vantaði greinilega sam-
æfingu.
Kef lavík upp að
hlið Tindastóls
- eftir sigur á Val í gær, 102-107
Keflavík er komið upp að hlið
Tindastól í efsta sæti B-riðils í úrvals-
deildinni í körfuknattleik eftir sigur
á Val, 102-107, í íþróttahúsi Vals í
gærkvöldi. Tindastóll heldur samt
efsta sæti er með tvo vinninga gegn
einum í innbyrðisviðureignum sín-
um gegn Keflavík.
Keflvíkingar þurftu að hafa fyrir
sigrinum gegn Valsmönnum, eftir að
hafa leitt í leikhléi með 12 stiga mun
söxuðu Valsmenn jafnt og þétt á for-
skot Keflvíkinga og náðu um tíma
að jafna metin Keflvíkingar voru
sterkari á lokakaflanum og sigruðu
með 5 stiga mun.
Leikurinn var í jafnvægi fyrstu 15
mínúturnar í fyrri hálfleik en undir
lok hálfleiksins dró í sundur með lið-
unum og staðan í leikhléi, 47-59.
Keflvíkingar náðu í upphafi síðari
hálfleiks 16 stiga forskoti, 50-66, en
þá fóru Valsmenn í gang og þá sér-
staklega þeir Magnús Matthíasson
og David Grissom sem skoruðu
hverja körfuna á fætur annarri og
þegar 7 mínútur voru til leiksloka
jafnaði Matthías Matthíasson metin,
89-89. í kjölfarið fylgdu fimm stig
Keflvíkinga í röð og þar með var sig-
urinn í höfn.
Þeir Magnús Matthíasson og David
Grisson fóru á kostum í liði Vals og
Matthías Matthíasson var drjúgur á
kafla í síðari hálfleik.
Keflvíkingar hafa yfir mikilli
breidd að ráða og nánast hver ein-
asti leikmaður liðins er virkur. Tom
Lytle, Sigurður Ingimundarson og
Hjörtur Harðarson léku þó best Kefl-
víkinga að þessu sinni og Jón Kr. var
drjúgur að vanda.
• Stig Vals: Magnús 38, Grissom
33, Matthías 13, Guðni 6, Brynjar 6,
Símon 4 og Jón Bender 2.
Stig ÍBK: Lytle 23, Sigurður 19,
Hjörtur 19, Jón Kr. 18, Albert 8, Egill
8, Falur 8 og Júlíus 6.
• Leikinn dæmdu þeir Kristján
Möller og Guðmundur Stefán Mar-
íasson, þeir gerðu sín mistök en
dæmdu í heild ágætlega.
-GH
EINSTAKT TÆKIFÆRI
NÝ „KOMATSU" HJÓLASKÓFLA
GERÐ: WA-420 / 220 HP / 18,9 TONN
Á FRÁBÆRU TILBOÐSVERÐI
MARKAÐSÞJÓNUSTAN, SÍMI: 2 69 84
HS: 5 39 96
Einstakt tækifæri
Af sérstökum ástæðum veröur mjög nýleg og fullkomin bila-
þvottavélasamstæða seld á hálfvirði. Þessi bilaþvottavél er
sú eina á landinu sem getur þvegið allar stærðir af bilum, t.d.
flutningabíla með aftanivagni, rútur, olíubíla, strætisvagna,
sendibila, jeppa og venjulega fólksbila.
Þetta er frábært tækifæri fyrir 1-2 menn til að skapa sér rif-
andi tekjur. Verðið er svipað á vélinni og þokkalegum bíl.
Þeir sem hafa áhuga hafi samb. við Tækjamiðlun íslands,
Bíldshöfða 8, sími 91-674727.
Leitum að umboðsaðila.
Andrews hitablásarar
fyrirgaseðaolíu
eru fáanlegir í fjolmörgum
stærðumoggerðum
Algengustu geröireru nú fyríHiggjandi
Skeljungsbúðin
Síðumúla 33
símar 603870 og 38125.