Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1991, Page 8
24
MÁNUDAGUR 21. JAN.ÚAR 1991.
íþróttir
Blak
l.deild karla
HK-KA .2-3
Fram - KA. .0-3
KA „14 12 2 39-14 24
ÞrótturR... „13 9 4 34-15 18
ÍS „10 6 4 21-19 12
HK „10 5 5 25-20 10
ÞrótturN... „12 3 9 13-27 6
Fram „14 1 13 641 2
1. deild kvenna
HK-KA 0-3
Breiðablik - Víkingur... TS KA .0-3 2-3
Víkingur-HK„ 3-0
Víkingur 15 15 0 45-6 30
Breiðablik ...15 11 4 35-20 22
Völsungur.„13 7 6 26-25 14
ÍS 14 7 7 27-26 14
KA 17 7 10 31-36 14
ÞrótturN 14 3 11 17-36 6
HK „„13 0 13 6-39 0
KA-liðin
sigursæl
syðra
- sigruðu Qórfalt
KA-fólk getur veriö ánægt meö
afrakstur Reykjavíkurferöar
sinnar um helgina. Karla- og
kvennaliöið léku tvo leiki hvort
og héldu í gær heim á leið með
samtals átta stig í farteskinu.
Af kvennablaki
HK-stúlkur voru Akureyringun-
um lítil hindrun og þurfti ekki
nema þijár stuttar hrinur til aö
gera út um viðureign liðanna
(15-4, 15-11, 15-10).
• ÍS-stúlkur léku án Ursulu
Junemann og var það ógæfa
þeirra. KA-víf nýttu sér það til
fullnustu og í flmm hrinu hörku-
leik tókst þeim aö knýja fram sig-
ur með Birgittu Guðjónsdóttur í
fararbroddi (15-0, 15-3, 13-15,
14-16,15-12).
• Víkingsstúlkur áttu ekki í
neinum vandræðum með að
vinna sigur gegn Breiöabliki á
laugardag. Kópavogsliðið var
hálfslappt og vonlítið og töluvert
frá sínu besta. Rauðsvörtu val-
kyrjurnar léku ágætlega bæði í
vörn og sókn og uppskáru sam-
kvæmt því (15-10, 15-7, 15-3).
• HK-fljóö léku hins vegar
ágætlega gegn Víkingum daginn
eftir en allt kom fyrir ekki því það
var einfaldlega viö ofurefli að
etja. Leikurinn tók ekki nema 38
mínútur (15-5, 15-12, 15-8).
Af karlablaki
Einn skemmtilegasti leikur vetr-
arins fór fram á_laugardag þegar
hð HK og KA mættust. HK-ingar
léku á als oddi til að byrja með
og sýndu þá hvers þeir eru megn-
ugir. Þeir unnu í fyrstu hrinu eft-
ir mikla baráttu og síðan skiptust
liðin á að vinna og stóðu að lokum
frammi fyrir því að leika þurfti
úrslitahrinu. Leikurinn hafði
fram aö þessu einkennst af jafn-
ræði og ótrúlegri baráttu þar sem
hvert stig var dýrkeypt. í fimmtu
hrinu tóku KA-ingar öll völd og
sterk hávöm þeirra gerði lítið úr
sóknarmætti andstæðinganna.
KA-menn komust í 9-0 áður en
HK-ingum tókst að finna glufu á
hávöm þeirra. Eftir þessa háðu- ■
legu útreið var útlitið vonlítið
fyrir hið lágvaxna en léttleikandi
HK-lið enda lyktaði baráttunni
með 15-9 sigri KA.
• Framarar fengu að kljást við
þá varamenn, sem KA hafði til-
tæka en máttu sín engu að síður
lítils og töpuðu þeir örugglega
(0-15, 6-15, 9-15).
-gje
• Ósk Víðisdóttir brýst framhjá norsku stúlkunni Karin Pettersen og
skorar eitt þriggja marka sinna í Evrópuleiknum í gær. DV-mynd GS
ÍBV-Valur...............20-15
FH - Selfoss.............29-18
Grótta - Stjaman........15-21
Fram - Víkingur........frestað
1
S KR.........13 11 1 1 306-223 23
| Keflavík....ll 9 1 1 237-168 19
I Ármann.... 12 5 1 6 213-199 11
I Haukar.....12 5 1 6 210-212 11
I ÍR.........12 3 2 7 206-232 8
1 Grindavík.12 0 0 12 166-304 Oi
Stjaman....21 18 0 3 483-350 36
Fram..17 14 1 2 354-282 29
FH....20 11 2 7 373-358 24
Víkingur...20 10 3 7 400-352 23
Valur.21 8 1 12 400-428 17
Grótta.19 6 3 10 332-344 15
ÍBV...22 5 1 16 403-487 11
. Selfoss.20 2 1 17 352-516 5 1 j
i 1|j
1 • Leikin er fjórfold umferð og tvö |
1 efetu liðin vinna sér sæti í 1. deild. 1
I I
Markahæstar:
Stefanfa Guöjónsdóttir, ÍBV
Judit Esztergal, ÍBV
Halla Helgadóttir, Vfklngi
Laufey Sigvaldadóttir, Gróttu
100
Erla Rafnsdóttir, Stjörnunni
133
114
HM kvenna í handknattleik:
Dregið í riðla
fyrir C-keppnina
Dregið hefur veriö í riðla fyrir C-
heimsmeistarakeppnina, Evrópuriö-
il, í handknattleik kvenna sem fram
fer á Ítalíu í mars. Þar keppa 13 þjóð-
ir um fimm sæti í B-keppninni og
jafnframt er um að ræða forkeppni
fyrir ólympíuleikana í Barcelona.
ísland er í A-riðli ásamt Hollandi,
Portúgal, Belgíu, Ítalíu og Finnlandi.
í B-riðlinum eru Tékkóslóvakía,
Ungveijaland, Spánn, Sviss, Grikk-
land, Tyrkland og ísrael.
Tvær efstu þjóðirnar í hvorum riðli
komast áfram og liðin sem verða í
þriðja sæti leika um fimmta sætið í
keppninni. Keppt verður í borgunum
Cassano Magnago og Mortara, sem
eru í nágrenni Mílanó á Norður-
Ítalíu, dagana 13.-23. mars.
-VS
Fram stóð
sig betur
- tapaði fyrir Byásen, 15-23
Síðari leikur Fram viö norska
liðið Byásen í 2. umferð Evrópu-
keppni meistaraliða í kvennaflokki
fór fram í Laugardalshöllinni í
gær. Fram tapaði fyrri leiknum
með stórum mun 34-16 en leikur-
inn í gær fór 23-15, sigruðu þvi
norsku meistararnir með samtals
57 mörkum gegn 31 og halda áfram
í 3. umferð Evrópukeppninnar.
„Það var allt annað að sjá til okk-
ar núna heldur en í fyrri leiknum,
Byásen gerði aðeins 2-3 mistök í
öUum leiknum úti en í dag voru
þau mun fleiri. Það var mikil bar-
átta í okkur í fyrri hálfleik en í síð-
ari hálfleik náði norska liöið sér á
strik,“ sagði Ingunn Bemódusdótt-
ir í samtali við DV eftir leikinn.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og
mestur var munurinn 3-6 þegar 18
mínútur voru búnar af leiknum en
Fram minnkaði muninn í aðeins
eitt mark fyrir hlé, 8-9.
Byásen hóf síðari hálfleik af mikl-
um krafti og hreinlega sundurspil-
aði vörn Fram og breytti stöðunni
úr 8-9 í 9-18. í 15 mínútur skoraði
Fram aðeins eitt mark enda vörn
þeirra norsku firnasterk.
Hjá Fram voru það Guðríður
Guðjónsdóttir og Ingunn Bernód-
usdóttir sem stóðu upp úr. Kolbrún
Jóhannsdóttir markvörður hefur
oft leikið betur en hún varði alls 7
skot og þar af eitt víti. Byásen var
með varamarkvörð sinn Heidi Jo-
hansen inn á mestallan tímann og
varði hún alls 14 skot þar af eitt
víti. Þá var sænska stúlkan Mia
H. Högdahl mjög góð og einnig'
Trine Haltvik.
• Mörk Fram: Guðríður Guð-
jónsdóttir 5/1, Ingunn Bernódus-
dóttir 5/1, Ósk Víðisdóttir 3, Inga
Huld Pálsdóttir 1, Sigrún Blomster-
berg 1.
• Mörk Byásen: Mia H. Högdahl
6/1, Trine Haltvik 6/2, Kristin
Karlsen 3, Kari Knudsen 3, Mona
Dahle 3, Ann Cathrin Eriksen 1,
Marit Johnsen 1/1.
-ÁBS
1. deild kvenna í handknattleik:
Valur lá tví-
vegis í Eyjum
- Stjaman jók forskot sitt
Um helgina fóru fram fjórir leikir
í 1. deild kvenna í handknattleik.
Stjarnan styrkti stöðu sína á toppn-
um með sigri á Gróttu en leik Fram
og Víkings var frestað vegna þátt-
töku Fram í Evrópukeppninni. Þá
sigraði ÍBV í báðum leikjum sínum
við Val í Eyjum og bætti fjórum stig-
um við sig. FH vann svo léttan sigur
gegn Selfossi.
Stjörnusigur á Nesinu
Grótta og Stjarnan áttust við á Sel-
tjarnarnesinu á laugardaginn.
Stjarnan hóf leikinn mun betur og
komst fljótlega í 1-6, staðan í hálfleik
var 7-12 Stjörnunni í vil. Síðari hálf-
leikur var frekar jafn en Grótta náði
þó ekki að vinna upp muninn frá
fyrri hálfleik og sigur Stjömunnar
ekki í hættu. Lokatölur leiksins urðu
15-21.
• Mörk Gróttu: Laufey Sigvalda-
dóttir 6/4, Elísabet Þorgeirsdóttir 2,
Brynhildur Þorgeirsdóttir 2, Gunn-
hildur Ólafsdóttir 2, Sigríður Snorra-
dóttir 1, Sara Haraldsdóttir 1, Helga
Sigmundsdóttir 1/1.
• Mörk Stjörnunnar: Ásta Kristj-
ánsdóttir 5, Herdís Sigurbergsdóttir
4, Guöný Gunnsteinsdóttir 3, Erla
Rafnsdóttir 3/1, Margrét Theodórs-
dóttir 3/2, Drífa Gunnarsdóttir 2,
Ragnheiður Stephensen 1.
Rut með13 mörk
FH og Selfoss áttust við í Hafnarfirði
á laugardag og unnu FH-stúlkur létt,
29-18. FH byrjaði af krafti og tók leik-
inn strax í sínar hendur, staðan í
hálfleik var 13-9. í síðari hálfleik jók
FH muninn enn meir og skoraði mik-
ið úr hraðaupphlaupum. FH-liöið
spilaði vel en þó var Rut best og gerði
alls 13 mörk. Hjá Selfossi bar mest á
Huldu B. og Auði en annars var liðið
frekar slakt.
• Mörk FH: Rut Baldursdóttir 13/4,
Björg Gilsdóttir 4, Kristín Péturs-
dóttir 3, Amdís Aradóttir 2, Berglind
Hreinsdóttir 2, Helga Egilsdóttir 2,
Helga Gilsdóttir 2, Hildur Harðar-
dóttir 1.
• Mörk Selfoss: Auður Hermanns-
dóttir 7/3, Hulda Bjamadóttir 5, Lísa
Ingvarsdóttir 3, Guðrún Hergeirs-
dóttir 1, Vigdís Ásmundsdóttir 1,
Guðfinna Tryggvadóttir 1.
ÍBV vann tvöfalt
ÍBV tók á móti hálfvængbrotnu Vals-
liði um helgina, hjá Val vantaði þijár
lykilmanneskjur liðsins og varð hðið
að sætta sig við tap í báðum leikjun-
um. Fyrri leikur liðanna endaði með
25 mörkum gegn 20, eftir að staðan
í hálfleik hafði verið 12-10 ÍBV í vil.
Valur komst í 4-1 en það dugði
skammt því ÍBV náði að jafna 5-5 og
var með forystuna það sem eftir var
af fyrri hálfleik. í síðari hálfleik náði
Valur að jafna, 14—14, en lengra
komst liðið ekki því ÍBV hafði foryst-
ima eftir það.
• Mörk ÍBV: Stefanía Guðjóns-
dóttir 7/4, Judith Esztergal 5, Sara
Ólafsdóttir 5, Ingibjörg Jónsdóttir 4,
íris Sæmundsdóttir 2, Lovísa Ás-
geirsdóttir 1, Ragna Birgisdóttir 1.
• Mörk Vals: Katrín Friðriksdóttir
6/4, Berglind Ómarsdóttir 6/4, Guð-
rún Kristjánsdóttir 4, Anita Páls-
dóttir 2, Ásta Sveinsdóttir 1, Ragn-
heiður Júlíusdóttir 1.
Síðari leikur hðanna endaði 20-15
eftir að Valur hafði haft yfir í hálf-
leik, 6-7. Fyrri hálfleikur var frekar
jafn en Valur þó ahtaf fyrri til að
skora, í síðari hálfleik náði ÍBV fljót-
lega forystu og Valur varð að sætta
sig við annaö tap sitt í Eyjum þessa
helgi. ÍBV tók Katrínu úr umferö
allan leikinn og var sóknarleikur
Vals hálfráðleysislegur.
• Mörk ÍBV: Stefanía Guðjóns-
dóttir 5, Judith Esztergal 4, íris Sæ-
mundsdóttir 4, Ragna Birgisdóttir 3,
Ingibjörg Jónsdóttir 2, Sara Ólafs-
dóttir 2.
• Mörk Vals: Guðrún Kristjáns-
dóttir 7, Katrín Friðriksen 3, Gerður
Jóhannsdóttir 2, Ragnheiöur Júhus-
dóttir 2, Berghnd Ómarsdóttir 1.
• Víkingur og FH mætast í Laug-
ardalshölhnni í kvöld klukkan 18.30.
-ÁBS