Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991. Utlönd Hermenn bandamanna bíða þess nú i eyðimörkinni i Saudi-Arabíu sem verða vill. Herdeildir hafa verið fluttar að landamærunum við Kúvæt en hafa ekki aðhafst enn. Hermennirnir sóla sig og á fallbyssuhlaupið er skrifað „dauði". Símamynd Reuter Niðurstaðan úr sendifor Primakovs til Bagdad: Saddam vill frið með skilyrðum - bandamenn sjá ekkert nýtt í hugmyndmn íraksforseta Persaflóastríðið: ísraelskar her- flugvélargeta veriðmeð Bandaríkjamenn hafa fallist á að gefa ísraelsher upp merki sem flugmenn bandamanna nota til að aðgreina flugvélar sínar frá flugvélum íraka. Um er að ræða rafeindaboð sem notað er til að skera úr um hverjir eru vinir og hverjir óvinir. Þó er sagt að Bandaríkjamenn hafi sett það sem skilyrði að ísra- elsmenn lofi á móti að bíða enn um stund með að blanda sér í átökin við íraka. Þessar upplýs- ingar hafa ekki verið staöfestar en bandaríska sjónvarpsstööin CBS telur sig hafa öruggar heim- ildir fyrir fréttinni. Vaxandi óánægja er í ísrael með að ekki skuli hefnt fyrir endur- teknar árásir íraka á landið með Scud-flaugum. Nú síðast létu tveir lífið og nokkrir særðust í árás á Tel Aviv í fyrrinótt. ísraels- menn hafa til þessa hefnt allra árása á landið. íranar segja að ef ísraelsmenn blandi sér í Persaflóastríðið og ráðist gegn einhverri þjóða araba þá sé hlutleysi þjóðarinnar úr sögunni og hún muni fylkja liði með írökum. Þessar hótanir eru þóekkiteknaralvarlega. Reuter Aðeins fyrir- sölumenn ★ Viltu njóta starfs- ins betur? ★ Ljúka sölunni á auðveidan hátt? ★ Svara mótbárum af meira öryggi? STJÓRNUNARSKÓLINN Konráö Adolphsson Sími 82411 Lærið að fijúga hjá fullkomnum flugskóla. + Bjóðum kennslu til einka- og atvinnuflug- mannsprófs. + Fullkomin 2 hreyfla flugvél til blindflugs- kennslu. * Flughermir. Greiðsluskilmálarog fyrirgreiðsla. fGamla Flugturninum Reykjavikurflugvelli 101 Reykjavik Síml 91-28122 Kt. 651174-0239 Jevgeni Primakov, sérlegur sendi- maður Michails Gorbatsjov Sovét- forseta, hefur flutt þau boð frá Sadd- am Hussein að hann geti fallist á við- ræður um frið ef vandamál Palest- ínumanna verða rædd á sömu ráð- stefnu. Primakov átti fund með Sadd- am f Bagdad í gær í von um að finna lausn á Persaflóadeilunni. í orðum íraksforseta kom ekkert fram sem benti til að hann hygðist draga herlið sitt frá Kúvæt þótt deil- an snúist um hemám landins. Bandamenn hafa sett brottflutning herjanna frá Kúvæt sem skilyrði þess að ræða um frið og hafa stuðn- ing í ályktunum Sameinuðu þjóð- anna um að hernám Kúvæts hafi verið brot á alþjóðalögum. Útvarpið í írak sagði frá því sem Saddam og Primakov fór á milli. Farið var fögrum orðum um friðar- vilja Saddams og áhuga hans á að tryggja rétt allra araba og þá sérstak- Eldar í f immtíu olíulindum Talið er aö eldar logi nú í fimm- tíu olíulindum í Kúvæt. Ekki er vitað hvort eldarnir hafa kviknað vegna loftárása bandamanna eða írakar hafi lagt eld í lindirnar. Upplýsingamar um þetta koma frá bandaríska varnarmálaráðu- neytinu. Bandaríkjamenn segja að írak- ar hafi kveikt eldana til að mynda reykský svo að flugvélar banda- manna eigi erfiðara með að koma auga á skotmörk sín. Eldarnir hafa að sögn logað í viku hiö minnsta og valda mikilli mengun. Bandaríkjamenn segja líklegt að eldamir logi allt til þess að her íraka verður hrakinn frá Kúvæt. Embættismenn í varnarmála- ráöuneytinu segja að eldarnir líti ekki út fyrir að vera það alvarleg- ir að erfiðleikum verið bundið að slökkva þá ef friður kemst á. ír- akar hótuðu að kveikja í olíulind- um við upphaf deilunnar. Reuter lega Palestínumanna. Perez de Quellar, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagðist fagna hugmyndum um frið við Persaflóa en sagði að tómt mál væri að tala um frið ef írakar ætluðu sér ekki að fara frá Kúvæt. < „Orð Saddams Hussein um frið em marklaust hjal ef hann fellst ekki á að kalla heri sína heim frá Kúvæt,“ sagði Marhn Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforsta, eftir að hugmynd- ir Saddams voru lýðum ljósar. í vamarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna var sagt að ekkert nýtt kæmi fram í hugmyndum Saddams. Hann væri enn að tala um að tengja Palest- ínumálið við Persaflóadeiluna en á það gætu Bandaríkjamenn ekki fall- ist þar sem máhn væru óskyld. „Saddam Hussein hefur haft það á valdi sínu frá upphafi að binda enda á deiluna með þvi að draga herhð sitt frá Kúvæt,“ sagði embættismað- Vopnaðir sjóræningjar réðust á lít- ið dansk flutningaskip á miðjum Persaflóa í nótt. Skipið heitir Artic Sun. Neyðarkall kom frá bandarísku ohuskipi í nágrenninu og lét það vita í land aö sjóræningjar hefðu ráðist til uppgöngu í danska skipið. Sjóræningjum var lýst þannig að þeir væru klæddir í svört föt og með arabíska klúta á höfði. Útvarpsstöð í Bahrain sagöi fyrst frá árásinni en fréttin var síðar staðfest hjá Lloyds, tryggingafélagi skipsins í Lundún- um. Útvarpið í Bahrain sagði að öllum peningum áhafnarinnar hefði verið stolið og sömuleiðis öhum skjölum ur í ráðuneytinu. Bandamenn halda uppi linnulaus- um loftárásum á írak og Kúvæt og leggja nú í auknum mæli áherslu á að lama bardagamátt framvarða- sveita íraka. Þetta hefur gefið hug- myndum um að stutt sé í árás á landi byr undir báða vængi. George Bush hefur gefið í skyn að bið kunni að verða á að lagt verði til atlögu á landi en ýmsir hemaðarsér- fræðingar segja að hugmyndin geti verið að blekkja íraka og hefja árás fyrirvaralaust á næstu dögum. Nokkrir herforingjar bandamanna í Saudi-Arabíu segja að yfirstjórn ír- aska hersins sé nú lömuð og herinn sé ekki eins erfiður viðureignar og tahö hefur verið til þessa. Aðrir vara við of mikihi bjartsýni og segja að drjúgur hluti hersins sé enn bar- dagahæfur og muni veita snarpa mótspyrnu þótt yfirstjórnin sé í mol- um. Reuter og pappírum skipsins. Þá var sagt að herskip hafi verið í nánd og að sjóliðar af því hafi komið til hjálpar og „séð um að gæta laga og réttar,“ eins og það var orðað. Artic Sun er um 1500 tonn að stærð. Það var statt um 120 mílur vestur af Dubai þegar sjóræningjarnir réðust til uppgöngu. Ekki er talið að hættu- ástand ríki á þeim slóðum vegna stríðsins því átök hafa aðeins verið fyrir botni Flóans. Fjöldi herskipa er þó á þessum slóðum. Artic Sun er gert út frá Hellerup í Danmörku. Ekki er annað vitað en að áhöfnin hafi sloppið ósár frá árás- inni. Reuter 3r|jp ?V?fTlÖ3FVTtDQf fiplyt i iqen i •sJiiíifl bnymBmiS Stríðsástand á Persaflóa: Sjóræningjar réðust á danskt skip 9.20 - Flugmenn bandamanna segja fjóra eldflaugaskotpalla lik- lega eyðilagða eftir loftárásir næturinnar, 10.10 - Kúvætar segja íraska her- menn vera að flytja inn í íbúöar- blokkir í Kúvætborg. 11.25 - írakar tilkynna um níutíu og sex loftárásir handamanna, þar á meðal á fæöingarheimih. 12.40 - Breskur herforingi segir flota bandamanna hafa yfirráð á Persaflóa. 12.50 - Utanrikisráðherrar fimmt- án óháðra ríkja og fulltrúi Frels- issamtaka Palestínu, PLO, hittast í Belgrad í Júgóslavíu til að ræða um leiðir til að binda enda á stríð- ið. 13.50 - Aðstoðarforsætisráðherra iraks, Yassin Ramadan, hvatti í gær stuðningsmenn íraka til að ráðast gegn bandamönnum og eignum þeirra hvar sem því yrði komið við í heiminum. 14.05 - ísraelskur embættismaður segir Moshe Arens, varnarmála- ráöherra ísraels, hafa sóst eftir samþykki Bandaríkjanna fyrir þáttöku israela i að eyðileggja eldflaugaskotpalla íraka. 14.20 - Innanríkisráðherra Ítalíu, Vincenzo Scotti, segir lögregluna hafa leyst upp net skæruliða frá Miðausturlöndum. 14.30 - Sameinuöu arabísku furstadæmin samþykkja 500 milljóna dollara framlag til uppí- halds breskra hermanna við Persaflóa. 14.50 - Roland Dumas, utanríkis- ráðherra Frakklands, ræðir við sovéska ráðamenn um Persaflóa- stríðið. 15.45 - Embættismenn segja að kostnaðurinn vegna oliubrákar- innar við strendur Saudi-Arabíu muni nema einum milljarði doll- ara næsta hálfa árið. 16.15 - Forsætisráðherra Pakist- ans, Nawaz Sharif, kemur til Marokkó með sex liða friðaráætl- un í farteskinu. írakar vísa á bug beiðni hans um að fá að heim- sækja Bagdad. 18.15 - Varnarmálaráöherrar Bretlands og Frakklands ræða við Bush Bandaríkjaforseta. 18.20 - Talsmenn Bandarfkjahers segja bandamenn hafa gert árásir á Iraka í suðausturhluta Kúvæt linnulaust í þrjár klukkustundir. 18.30 - Talsmaður franska hers- ins segir nær sjö hundruð franska sjóliða á leiöinni til Pers- aflóa. Þar eru nú fyrir fjórtán þúsund franskir hermenn. 19.30 - Breskur liösforingi ráð- leggur óbreyttum borgurum í ír- ak að halda kyrru fyrir heima og forðast að koma nálægt brúm ef þeir vilji forðast loftárásir. 21.20 - Embættismenn bandaríska varnarmálaráðu- neytisins tilkynna um elda í yfir fimmtíu olíulindum í Kúvæt. Sagt er að þeir stafi annaðhvort af íkveikju íraka eða misheppnuö- um loftárásum bandamanna. 22.15 - Útvarpið í Bagdad sakar óvini íraka um hugleysi þar sem þeir hefji ekki þegar sókn á landi. Jafnframt er þeim hótað þungri refsingu þegar þeir láti til skarar skríða. 22.40 - Talsmenn Bandaríkjahers segja sumar brýr í Bagdad hafa verið sprengdar þar sem í þeim hafi verið símalínur. 23.14 - Útvarpið í Bagdad segir Saddam Hussein íraksforseta fúsan til samvinnu við Sovétríkin tii að reyna fmna friðsamlega lausn á Persaflóastríðinu. 13. febrúar 00.53 - Talsmenn Hvíta hússins í Washington vilja lítið tjá sig um friðarvilja Saddams. 2.40 - Li Peng, forsætisráöherra Kína, segir fríðsamlega lausn á Persaflóastríðinu ekki timabæra. 07.44 - Sjóræningjar ráðast á danskt skip á Persaflóa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.