Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 9
.rwr HAtrflím .sr HtiÐAauJíiivöiM MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991. Útiönd Danmörk: Meirihluti vill stjórnmálasam- band við Litháen Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir að ekki verði tekið upp stjórnmálasamband við Eystrasaltslönd meðan Moskva hafi í raun völdin. Mikill meirihluti Dana er hlynntur stjórnmálasambandi viö Litháen. Þetta er niðurstaða skoðanakönnun- ar sem danska dagblaðið BT birti í gær. UfTe Ellemann-Jensen, utanrík- isráðherra Danmerkur, segir að tek- ið verði upp stjórnmálasamband við Eystrasaltslöndin eins fljótt og unnt verði en ekki á meðan Moskva hafi í reynd völdin. Formaður utanríkismálanefndar danska þingsins, Arne Melchior, leggur til að skipaður verði sérstakur sendifulltrúi í Vilnius, höfuðborg Lit- háens, en hann verði ekki látinn fara þangað strax til að ögra ekki stjórn- inni í Moskvu. Forsætisnefnd danska þingsins hefur verið í heimsókn í Vilnius í Litháen að undanfórnu og hafa Lit- háar komið á framfæri þeirri ósk að Danir feti í fótspor íslendinga. Lettneska þingið samþykkti í gær að halda þjóðaratkvæöagreiðslu um sjálfstæði landsins 3. mars næstkom- andi. Tass-fréttastofan sovéska sagði að 101 af þeim 105 þingmönnum, sem viðstaddir hefðu verið, hefðu sam- þykkt þjóðaratkvæðagreiðsluna. Alls eru 201 þingsæti á lettneska þinginu en stjórnarandstaðan, sem hlynnt er Moskvuvaldinu, var fjar- verandi. Þingið í Lettlandi samþykkti einnig að leyfa þjóðaratkvæðagreiðslu 17. mars um nýja sambandsríkjasamn- inginn. Lettnesk yfirvöld neita hins vegar að skipuleggja þá atkvæða- greiðslu. Yfirvöld í Litháen, Eist- landi, Georgíu og Armeníu hafa lýst því yfir að þau taki ekki þátt í at- kvæðagreiðslunni sem sovésk yfir- völd hafa boðað um sambandsríkja- samninginn. Ritzau og Reuter Svíþjóð: Nýr f lokkur í þriðja sæti Svo viröist sem stóru stjórn- málaflokkarnir í Svíþjóð verði að taka nýja óánægjuflokkinn, Nýtt lýðræði, alvarlega. Samkvæmt niö- urstöðum skoðanakönnunar, sem birt var í gær, myndi flokkurinn fá 11,7 prósent atkvæða ef kosið yrði nú. Yrði hann þar með þriðji stærsti flokkurinn með yfir þrjátíu þingsæti. Stofnendur flokksins eru hljóm- plötuframleiðandinn og skemmti- garðseigandinn Bert Karlsson og greifinn og atvinnurekandinn Ian Wachtmeister. Þeir lýstu því yfir í gær að úr því að svona vel gengi nú væri ljóst að þeir myndu bjóða fram til kosninganna í haust. Skoðanakönnunin leiddi einnig í ljós að yfir 30 prósent aðspurðra voru óákveðin. Þriðjungur að- spurðra kvaðst geta hugsað sér að kjósa nýja flokkinn. Þeir sem uröu hvað verst úti í skoðanakönnuninni voru gömlu miðflokkarnir tveir, Þjóðarflokk- urinn með 8,4 prósent og Miðflokk- urinn með 7,5 prósent. Hægri flokkurinn fékk 24,5 prósent, Jafn- aðarflokkurinn 31,9 prósent, Kristilegi demókrataflokkurinn 6,3 prósent, Nýtt lýðræði 11,7 prósent, Vinstri flokkurinn 5 prósent og Umhverfisflokkurinn 3,6 prósent. TT Afram réttað yf ir Winnie Mandela Ákveðiö var að halda réttarhöldun- um yfir Winnie Mandela, eiginkonu blökkumannaleiðtogans Nelsons Mandela, áfram í gær eftir aö mikil- vægt vitni samþykkti að koma fyrir réttinn þrátt fyrir dularfullt hvarf annars vitnis. Saksóknari tilkynnti í gær aö lög- reglan hefði ekki fundið eitt höfuð- vitna hans, Gabriel Mekgwe, sem rænt var um helgina frá kirkjunnar mönnum í Soweto. Kvaðst saksójcn- ari óttast að ekki væri hægt að halda áfram réttarhöldunum yfir Winnie Mandela og þremur fyrrum lífvörð- um hennar þar sem önnur vitni væru hrædd. Staðan breyttist hins vegar þegar að minnsta kosti eitt þeirra, Kenneth Kgase, samþykkti að bera vitni. Saksóknari fullyrðir að Winnie Mandela og fyrrum sjálfskipaðir líf- verðir hennar hafi rænt Kgase, Mekgwe, Stompie Seipei og einum félaga þeirra fyrir tveimur árum og misþyrmt þeim í húsi Mandela. Sei- pei, sem var fjórtán ára, fannst síðar látinn í skurði og í fyrra var einn líf- varða Mandela dæmdur til dauða fyrir morðið á honum. Winnie Mandela neitar sakargift- um og segir lífverði sína hafa verið að bjarga unglingunum undan presti sem notað hafi þá kynferöislega. Reuter Símamynd Reuter ÉJ LANDSVIRKJUN STÆKKUN BÚRFELLSVIRKJUNAR ÚTBOÐ Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í að grafa fyrir stöðvarhúsi og pípustæði vegna stækkunar Búrfellsvirkjunar, ásamt vegagerð o.fl. Helstu magntölur: Gröftur lausra jarðlaga um 200.000 m3 Sprengigröftur um 90.000 m3 Vegagerð um 25.000 m3 Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar frá þriðjudeginum 12. febrúar nk. gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 5.000,- fyrir fyrsta eintak, en kr. 2.000,- fyrir hvert viðbótareintak. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa- leitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 12.00 8. mars 1991. Tilboðin verða opnuð þar sama dag kl. 14.00. Laus er til umsóknar staða sérfræðings við jarðfræðistofu RAUNVÍSINDASTOFNUNAR HÁSKÓLANS Staðan veitist til þriggja ára frá 1. apríl 1991. Umsækjandi skal hafa lokið doktorsprófi og hafa a.m.k. þriggja ára reynslu við rannsóknir. Starfsmann- inum er ætlað að starfa að athugun á rannsóknavið- búnaði vegna eldvirkni. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Ráðningin er til rannsóknarstarfa en kennsla starfs- mannsins við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar Raun- vísindastofnunar Háskólans. Skal þá m.a. ákveöa hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu við- komandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist Raun- vísindastofnun Háskólans, Dunhaga 3, 107 Reykja- vík, fyrir 15. mars 1991. Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm- bærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindastörf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans. Laus er til umsóknar staða sérfræðings við jarðeðlisfræðistofu RAUNVÍSINDASTOFNUNAR HÁSKÓLANS Staðan veitist frá 1. júlí 1991. Fastráðning kemur til greina. Umsækjandi skal hafa lokið doktorsprófi og hafa reynslu í notkun massa- greinis. Starfsmanninum er ætlað að sjá um daglegan rekstur massagreinis Raunvísindastofnunar og ann- ast meðal annars rannsóknir á sviði fornveðurfars, vatnafræði og aldursgreininga með geislakolsaðferð. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Ráðningin er til rannsóknarstarfa en kennsla starfs- mannsins við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar Raun- vísindastofnunar Háskólans. Skal þá m.a. ákveða hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu við- komandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist Raun- vísindastofnun Háskólans, Dunhaga 3, 107 Reykja- vík, fyrir 15. mars 1991. Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm- bærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindastörf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.