Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991. Iþróttir Bikarkeppnin í körfuknattleik: Stórskotahríð Booker kom of seint fyrir ÍR - Þór sigraöi, 103-101, og er kominn í undanúrslit Stúfarfrá Englandi Guimar Svembjömssan, DV, Englandi: • Þaö er nú næsta víst að David Seaman, markvörður Arsenal, mun ekki verja mark Englend- inga í landsleiknum viö íra á Wembley í næsta mánuði. Sea- man var í byrjunarliðinu gegn Kamerún í síöustu viku en fékk ekkert að gera og hefði alveg eins getaö setið heima og sötrað te. Slök frammistaða Afríkubúanna var Seaman mjög í óhag því að hann fékk ekki tækifaeri til að sýna hvaö í honum býr og nú bíður hans það hlutverk að vera varamaður Chris Woods í næsta leik. McCoistkom, sá og sigraði • Ally McCoist, framherji Glas- gow Rangers, kora, sá og sigraði í viöureigninni við St.Mirren um nýliöna helgi. McCoist hefur ver- ið úti í kuldanum hjá Souness nánast í allan vetur en á laugar- daginn þakkaöi hann fyrir sig aö fá að vera í byrjunarliðinu með þvi að skora eina mark leiksins og tryggja Rangers sigurinn. McCoist var þó aðeins í liðinu sökum þess að Mo Johnston var með hlaupabóluna og Mark Hat- ely með flensu. Leeds leitar framherja • Leeds United er enn á höttun- um eftir frambærilegum marka- skorara, enda veitir ekki af því að liðið er í baráttunni á mörgum vígstöðvum. Carl Shutt og John Pearson eru báðir meiddir og Lee Chapman verður aö fá almenni- legan stuðning i fremstu vxglínu. Peter Beardsley er sem fyrr efst- ur á óskalistanum hjá Howard Wilkinson en til vara er Gary Penrice, leikmaöur Watford. Penrice er 26 ára og myndi kosta í kringum eina milljón punda. Ronnie Wheian fótbrotinn • Sigur Liverpool á nágrönnum sínum í Everton gæti reynst lið- inu dýrmætur. Fyrirliðinn Ronnie Whelan varö aö fara af leikvelli eftir samstuð við Peter Beagrie, útherja Everton. Eftir leikinn kom síöan í Ijós að Whel- an hafði fótbrotnað. Auk leikja meö Liverpool missir Whelan af mikilvægum landsleik i Evrópu- keppni landsliða gegn Englend- ingum í næsta mánuði. Speedie bað áhangendur Everton afsökunar • David Speedie, leikmaöur Li- verpool, bað áhangendur Everton afsökunar eftir nágrannaslaginn á Anfield Road á laugardaginn. Speedie skoraði tvö mörk í leikn- um og nánast sökkti Everton en þaö vóru ekki mörkin tvö sem leikmaðurinn var að biðjast af- sökunar á heldur fagnaðarlætin sem fylgdu í kjölfarið á fyrsta markinu. Speedie sagðist ekki vera alveg kunnugur staðháttum á Anfield Road og því hefði hann óvart steytt hnefann framan í áhangendur Everton, enda haldiö að þar væru Liverpool-aðdáend- ur á ferð. Gary Walsh líklegur til að taka við Sealey • Gary Walsh, hinn ungi mark- vörður Man. Utd„ virðist vera búinn að ná sér af meiðslum sem taliö var að myndu binda enda á feril hans. Annað kom á daginn og hinn 22 ára gamli markvöröur hefur sýnt mjög góða leiki með varaliði United aö undanfómu. Nú þykir víst aö Ferguson þarf ekki að leita langt yfir skammt aö eftirmanni Sealeys en samn- ingur hans rennur út í sumar. Walsh lék á sínum tima með enska u-2l landsliöinu og var fastamaður í marki Man. Utd. áöur en hann meiddist fyrir tveiraur árum. Gylfi Kristjánsson, DV, Alcureyri: Ævintýraleg stórskotahríð Banda- ríkjamannsins Franc Booker í liði ÍR á lokamínútum bikarleiksins gegn Þór á Akureyri í gærkvöldi veröur án efa lengi í minnum höfö. Hann fór hamforum síðustu mínútur leiksins og var nærri búinn áð vinna upp á sitt eindæmi 21 stigs forskot Þórsara. En það gekk ekki upp, Þór sigraði 103:101 og leikur í undanúrslitum bikarkeppninnar. „Við náðum loks að spila góða maður á mann vörn í fyrri hálfleik og það skóp sigurinn," sagði Sturla Örlygsson, þjálfari og leikmaður Þórs, eftir ieikinn. „Það var vissulega farið að fara um mann undir lokin en okkur tókst að hanga á þessu og það er fyrir öllu,“ bætti Sturla við. Sem dæmi um hamfarir Booker í leiknum má nefna að eftir að staðan var 81:60 fyrir Þór um miðjan síðari hálfleik skoraði hann 37 af 41 stigum ÍR. Hann skoraði 23 stig síðustu 3 mínútur leiksins og 14 stig á síðustu mínútunni. Á þessum tíma brenndi hann ekki af skoti og var sama hvernig færið var. Kappinn var hins vegar lengi í gang og skoraði ekki stig fyrr en á 11. mínútu leiksins en hann fékk líka á sig góða vörn Jóhanns Sigurðssonar á þeim tíma. Booker skoraði 15 stig Keflvikingar eru komnir í undan- úrslit í bikarkeppni karla í körfu- knattleik eftir sigur á Valsmönnum í gærkvöldi, 76-87, í íþróttahúsi Vals við Hlíðarenda. Leikurinn var nokkuð sveiflu- kenndur. Eftir jafnar upphafsmínút- ur fóru Valsmenn virkilega í gang, breyttu stöðunni úr 25-24, í 38-24. Keflvíkingar létu þetta ekki slá sig út af laginu og náðu að komast einu stigi yfir fyrir leikhlé og staðan í hálfleik var 44^45. Síðari hálfleikurinn var mjög jafn og liðin skiptust á að hafa forystu. En það var eins og úthald Valsmanna breysti á lokakafla leiksins. Þegar um 8 mínútur voru til leiksloka Þórhallur Asmundssan, DV, Sauðárkröki: Annarrar deildar lið Tindastóls í knattspymu hefur ráðið Bandaríkja- manninn Tim Hankinson sem þjálf- ara fyrir komandi tímabil og kemur hann til starfa um aðra helgi. Hank- inson kom til Sauðárkróks fyrir 3 vikum og forráðamönnum Tinda- stóls leist rajög vel á störf hans og komust að samkomulagi að hann tæki við liöinu. Hankinson hefur þjálfað háskólalið frá Bandaríkjun- í fyrri hálfleik en 49 í þeim síðari. Þórsarar náðu strax undirtökun- um, voru yfir í hálfleik 55:37 og 21 stig um miðjan síðari hálfleik sem fyrr sagði svo sigurinn hefði átt að vera kominn í ömgga höfn. Þórsliðið lék lengst af ágætlega í þessum leik og sérstaklega var vörn- in betri en venjulega lengst af og á köflum var sóknarleikur liðsins mjög góður. Jóhann Sigurðsson, Sturla Orlygsson, Dan Kennard og Jón Öm Guðmundsson voru bestu menn liðs- ins. ÍR-liöið var hins vegar bara einn maður í þessum leik enda gekk ekk- ert þar til Booker fór loks í gang og sterkur leikmaður eins og Björn Stcffensen sást t.d. hreinlega ekki í leiknum. En hvað um það, það er ekkert lið öfundsvert af að lenda í klónum á Booker í þessum ham enda hafa ekki mörg lið sloppið með sigur gegn ÍR undanfarið. Stig Þórs: Dan Kennard 25, Jón Örn 22, Sturla 20, Konráð Óskarsson 16, Jóhann og Helgi Jóhannesson 6 hvor, Bjöm Sveinsson 4, Eiríkur Sigurðs- son og Högni Friðriksson 2 hvor. Stig ÍR: Franc Booker 64, Ragnar Torfason 12, Karl Guðlaugsson 9, Björn Steffensen 6, Eggert Garðarsson 4, Gunnar Ö. Þorsteinsson 3, Bjöm Leós- son 2, Hilmar Gunnarsson 1. höfðu Keflvíkingar þriggja stiga for- skot, 69-72, en næstu 6 stig voru Suð- umesjamanna og eftir það var sigur liðsins í höfn og lokatölur, 76-87. Sem fyrr í vetur voru Magnús Matthíasson og David Grissom í að- alhlutverkum hjá þeim rauðklæddu. Grissom skoraöi 28 stig og Magnús 24. Næstflest stig fyrir Val gerði Guðni Hafsteinsson með 12 stig. Falur Harðarson, Jón Kr. Gíslason og Sigurður Ingimundarson vom at- kvæðamestir Keflvíkinga. Falur skoraði 21 stig og þeir Jón Kr. og Sigurður skorðu 15 stig hvor. Leikinn dæmdu þeir Leifur Garð- arsson og Helgi Bragason og stóðu þeirfélagarsigíheildinavel. -GH um og í fyrra hafnaði lið undir hans stjórn í 3. sæti á bandaríska háskóla- mótinu. Svo gæti farið að Hankinson kæmi með tvo erlenda leikmenn með sér til Tindastóls. Ekki verður mikið um breytingar á leikmannahópi Tindastóls næsta sumar. Nýverið gekk Þórður Gísla- son í félagið en hann lék með Fylki og nokkrir leikmenn, sem höföu ákveðið að hætta, hafa hug á að vera með í baráttunni í sumar. -GH Keflavík sló Valsmenn út - voru sterkari í lokin og sigruðu, 76-87 Hankinson ráðinn til Tindastóls - tveir erlendir leikmenn með liðinu í sumar? • Geir Sveinsson átti ágætan leik í gærkvöldi þegar íslendingar lögðu Ungvc mörkum sinum í leiknum. Héðinn ví - var besti maöur íslendinga í sig íslendingar sigruðu Ungverja öðru sinni á jafnmörgum dögum í landsleik í handknattleik í Laugardalshöll í gær- kvöldi. Lokatölur urðu 22-19 eftir að íslendingar höfðu haft fimm marka for- skot í leikkléi, 11-6. Leikurinn í gær- kvöldi var sveiflukenndur af hálfu ís- lenska liðsins líkt og í fyrri leiknum en sigur liðsins þó öruggur þar sem ísland haföi yfirhöndina allan leiktímann. íslenska liðið lék oft ágætlega í fyrri hálfleik, eftir jafnar upphafsmínútur skoruðu íslendingar fimm mörk í röð, breyttu stöðunni úr 3-3 í 8-3 og lögðu grunninn að sigrinum. Á þessum góða leikkafla var vömin mjög sterk, sterkur 6-0 varnarmúr sem Ungverjum gekk illa að ráða við. í sókninni fékk Héðinn Gilsson loks að spreyta sig og var hann í miklum ham í fyrri hálfleik og skor- aði glæsileg mörk. Bjarki Sigurðsson átti fyrsta orðið í síðari hálfleik og þeir fáu áhorfendur, sem lögðu leið sína í Höllina, áttu von Spennandi fallbarátta - flögur liö eiga á hættu að missa sæti sitt Allt stefnir í hörkuspennandi fallbar- áttu í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á næstu vikum. Fjögur lið eiga það á hættu að missa sæti sitt í deildinni þegar hvert þeirra á eftir að spila 5-7 leiki; Valur, Þór, Snæfell og ÍR. Það lið, sem fær fæst stig í riölunum tveimur, fellur niöur í 1. deild og það sem fær næstfæst stig þarf að leika aukaleik við lið númer tvö í 1. deild um úrvals- deildarsæti. Staða fjögurra neðstu lið- anna er þessi: Valur..............21 6 15 1739-1854 12 Snæfell...........20 5 15 1570-1776 10 Þór................19 5 14 1743-1821 10 ÍR.................19 4 15 1518-1765 8 Verði tvö eða fleiri hð jöfn að stigum ráða úrslit innbyrðisleikja þeirra rc inni. Að þessu leyti stendur Snæfell bi að vígi því að liðið er með hagstæða í komu í innbyrðisleikjum við alla þi keppinauta sína. Liðin fjögur eiga eftirtöldum leikji ólokið, heinia og úti í svigum: Valur: Snæfell (H), Tindastóll (Ú), Þ (Ú), Keflavík (Ú), Grindavík (H). Snæfell: Grindavík (H), Valur (I Haukar (H), KR (Ú), Njarðvík (H), ÍR (F Þór: Haukar (H), ÍR (Ú), Njarðvík (I Grindavík (Ú), Valur (H), Keflavík (I Tindastóll (H). ÍR: Keflavík (Ú), Þór (H), Grinda\ (Ú), Njarðvík (U), KR (H), Haukar (I Snæfell (Ú). -'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.