Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991. 33 Lífsstíll Hækkanir tryggingafélaganna: Bílatryggingar dýrari en í nágrannalöndunum „Neytendasamtökin telja það ótrú- legt ábyrgðarleysi hjá stóru trygg- ingafélögunum að hækka iðgjöld sín eins og raun ber vitni um. Það vekur einnig furðu mína að það eru stóru tryggingafélögin sem hækka mest en fyrir einungis ári lofuðu þau lækkun Neytendur á iögjöldum í kjölfar þeirrar hagræð- ingar sem myndi nást með samein- ingu þeirra í tvö stór félög,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Jóhannes segist hafa fengið íjölda ábendinga upp á síðkastið um að tryggingaiðgjöld, einkum vegna bif- reiða, séu mun hærri hér á landi en í nágrannalöndunum. Þessar upplýs- ingar segist hann einkum hafa fengið frá íslendingum sem nýfluttir eru heim eftir langa búsetu erlendis. Hann segir sljórn Neýtendasamtak- anna hafa tekið þessar ábendingar alvarlega og því sé verið að ræða um að ráða sérstakan starfsmann til að gera úttekt á starfsemi tryggingafé- laganna og gera samanburð á ið- gjöldum þeirra og erlendra félaga. Neytendasamtökin ráða starfsmann til að gera verðsamanburð Bílatryggingar á Islandi mun dýrari en i nágrannalöndunum Að sögn Páls Gunnarssonar, sem nýverið flutti heim eftir áralanga búsetu í Svíþjóð, eru bifreiðatrygg- ingar hér á landi meira en þrisvar sinnum dýrari. Hann segist hafa keypt sér svipaðan bíl og hann átti ytra við komuna til íslands. Engu aö síður þurfti hann að greiða helmingi hærra verð fyrir skyldutrygginguna eina heldur en hann þurfti að borga fyrir slysa- og kaskótryggingu í Sví- þjóð. „Að mínu mati er þessi verðmunur með öllu óskiljanlegur. Bónusinn var sá sami og þó varahlutir séu á íviö lægra verði þar þá vega þar upp á móti hærri laun hjá viðgerðarmönn- um. Eina hugsanlega skýringin á þessu væri sú að íslenskir ökumenn séu þrisvar sinnum verri ökumenn er Svíar. Það finnst mér þó ótrú- legt,“ segir Páll. „Aö mínu mati er engan veginn nægjanleg samkeppni meðal trygg- ingafélaganna hér á landi og full ástæða til að ætla að ekki sé nægjan- legt aðhald meö rekstri þeirra. Hins vegar hljóta neytendur að velta því fyrir sér í alvöru að fara með trygg- ingar sínar til þeirra félaga sem hækka iögjöldin minnst," segir Jó- hannes Gunnarsson. -kaa Selfoss: Aukin neysla - meira rasl Kristján Einarsson, DV, Selfossi: Selfyssingar henda 22 tonnum af rusli á hverri viku, eða um 1150 tonn- um á ári. Að sögn Guðjóns Egilsson- ar, eiganda fyrirtækis sem sér um að koma öllu rush frá heimilum bæjarbúa, eykst neysla Selfyssinga stöðugt og þar af leiðandi rushð. 30% heimila þurfa tvo svarta plastpoka Guðmundur H. Garðarsson: Skattleysismörk mið- ist við 100 þúsund króna laun á mánuði Guðmundur H. Garðarsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, vill að skattleysismörkin verði miðuð við 100 þúsund króna laun á mánuði. Hann leggur þetta til í þingsályktun- artillögu sem hann er einn flutnings- maður að. Hann rökstyður þingsályktunartil- lögu sína með því að neikvæð þróun hafl átt sér stað á undanfórnum árum í skattamálum með sérstöku tilliti til launatekna. Hann segir að frá þvi staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp hafi skattprósentan hækk- að en skattleysismörkin ekki tekið eðhlegum breytingum með tilliti til verðbólgunnar síðastliðin þrjú ár. Niðurstaðan verði stóraukin skatt- byrði á milhtekjufólk á sama tíma og átt hefur sér stað kaupmáttar- skerðing. Hann segir að eftir því sem næst verði komist þyrftu skattleysis- mörkin hjá einstakUngi að vera hið minnsta 100 þúsund krónur á mán- uði. _. ,-S.dór Skattleysis- morkin vikulega en heimilin eru 1200 talsins. Fyrirtæki Guðjóns sér um að fjar- lægja sorp af nánast öllu Suður- landi. Er sorpinu komið fyrir í landi Selfoss og urðað þar. Til stendur að finna Sorpstöð Suðurlands nýjan stað þar sem sorphaugar Selfyssinga taka ekki lengur við öllu því drasli sem neysluglaðir Sunnlendingar henda frá sér. Fjöldi bílasala, bíla- umboöa og einstaklinga auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og í öllurn verðflokkum með góðum árangri í DV-BÍLAR á laugardögum. Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum. Smáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla daga frá kl. 09.00 til 22.00 nema laugardaga frá kl. 09.00 ti I 14.00 og sunnudaga frá kl. 18.00 til 22.00. Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verðurað berastfyrirkl. 17.00 á föstudögum. Auglýsingadeild cj’skitaull iíii ii i úiiidíiiIiiíiííiííliíÍílííliíííúúP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.