Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1991.
Skák
Enski stórmeistarinn John Nunn
er yngstur allra sem stundað hafa
nám við Oxford-háskóla og hann
var aðeins 23 ára gamall er hann
tók doktorsgráðu í stærðfræði.
Hann kenndi við skólann í nokkur
ár en nú hefur hann á tíunda ár
verið atvinnumaður í skák.
Talfmennska Nunns ber þess
merki að þar fer fræðimaður af
guös náð. Ef líkja ætti einhverjum
stórmeistara við tölvu kæmi Nunn
fyrstur upp í hugann. Fáir standast
honum snúning í „byrjanateóríu"
og gildir þá einu hvort grilli í tafl-
borðið fyrir ílækjum eður ei. Nunn
er snillingur að leysa úr flóknustu
gátum og finna rökréttan þráð.
Hann hefur enda getið sér gott orð
við að leysa skákdæmi og hefur
orðið enskur meistari á því sviði.
Nunn varð einn efstur á alþjóða-
mótinu í Wijk aan Zee á dögunum
og kom það nokkuð á óvart þar sem
hann sýndi htil tilþrif á ólympíu-
mótinu í Novi Sad fyrir jólin. Mér
er að vonum ofarlega í huga skák
mín við hann þar sem tefldist af-
brigði af spænskum leik sem ný-
lega kom út á bók eftir Nunn og
Harding. Nýr leikur Nunns leiddi
hreinlega til tapaðs tafls en eftir
skákina sagðist Nunn ekki hafa
munað hvað hann skrifaði í bókina
góðu!
En jafnvel hálærðir doktorar eiga
sína góðu og slæmu daga. Með nýju
ári virðist Nunn hafa hrist duglega
af sér sleniö. í Sjávarvík var
Enski stórmeistarinn John Nunn: Snillingur að greiða úr flóknustu gátum og finna rökréttan þráð og fáir standast honum snúning í „byrjanateóriu'
Doktor í stærðfræði
og skákbyrjunmn
Frábær byrjanakunnátta færði John Nunn sigur í Wijk aan Zee
minnið óbrigðult og sigur sinn á
mótinu getur hann að miklu leyti
þakkað frábærum byrjanaundir-
búningi.
Að mínum dómi eru bækur
Nunns um skákbyrjanir - og þær
eru allmargar - þær vönduðustu
og skýrustu sem um getur. Þær
hafa fallið vel í kramiö en koma
andstæðingunum þó ekki alltaf að
gagni. Bandaríski stórmeistarinn
Fedorowicz tapaði í aðeins 24 leikj-
um í Sikileyjarvörn gegn Nunn í
Sjávarvík en nýjasta bók Nunns
fjallar einmitt um vinningsskákir
gegn þeirri ágætu byrjun. Engu
betri örlög voru búin Júgóslavan-
um Ivan Sokolov, sem beitti Mars-
hall-árásinni gegn Nunn - eftirlæt-
isbyrjun doktorsins sjálfs og einnig
efni nýlegrar ritsmíðar hans. En
Nunn þurfti ekki að hafa mikið
fyrir því að brjóta niður varnir
Sokolovs sem gafst upp í 41. leik.
Ein er sú byrjun sem gefið hefur
Nunn fleiri vinninga en nokkur
önnur. Það er kóngsindverska
vörnin - byrjun, sem Garrí Kasp-
arov beitti gjarnan í einvíginu við
Karpov í haust sem leið. Nunn og
Kasparov eru mestir sérfræðinga í
þessari byrjun sem einnig var eftir-
lætisvopn Bobby Fischers á sínum
tíma. Fischer kaus þó að hvíla hana
í einvíginu við Spassky 1972. Hefur
e.t.v. ætlað að geyma hana þar til
nauðsyn krefði, sem aldrei varð.
Kóngsindverska vörnin á nú
miklum vinsældum að fagna og í
Wijk aan Zee átti hún sér marga
fylgismenn. Nunn fékk tvo væna
punkta með henni, gegn Júgóslav-
neska stórmeistaranum Kozul í
fyrstu umferð og Dananum Curt
Hansen í 6. umferð. Skoðum þessar
tvær skákir sem sýna vel kunnáttu
Skák
Jón L. Árnason
Nunns og leikni í þessari líflegu
byijun.
Hvítt: Zdenko Kozul
Svart: John Nunn
Kóngsindversk vörn
1. d4 RfB 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. f4
Fjögurra peða árásin er djarfasta
leið hvíts til að mæta kóngsind-
versku vörninni en þegar djarft er
teflt aukast möguleikar mótheij-
ans til gagnsóknar. Svartur þarf
vissulega að gæta að því að verða
ekki kafsigldur en í „praxís“ hefur
hann mátt una glaður við sitt.
5. - c5 6. d5 0-0 7. Rf3 e6 8. Be2 exd5
9. cxd5 Bg4 10. 0-6 Rbd7 11. Hel He8
12. h3 Bxf3 13. Bxf3 Da5 14. Be3 b5
15. a3 Rb6 16. Bf2
Endurbót Júgóslavans á skák
tveggja Sovétmanna, Gleks og
Jurtajevs í Moskvu 1989, þar sem
tefldist 16. e5 Rc4! 17. exfB Rxe3 18.
Hxe3 Hxe319. fxg7 Hae8 og svartur
náði góðu tafli. Þar sem Kozul beit-
ir gjarnan fjögurra peða árásinni
hafði Nunn kynnt sér þetta allt
saman kvöldið fyrir skákina.
16. - Rc4 17. Dc2 Rd7 18. Be2?
Að sögn Nunns er 18. a4 strax
betra er taflið er u.þ.b. í jafnvægi.
18. - Hab8! 19. a4 b4 20. Bxc4 bxc3
21. b3 a6
Til að hindra 22. Bb5. Svartur
hefur náð góðri stöðu en nú þarf
hann að opna taflið drottningar-
megin til að frelsinginn á c-línunni
fái notið sín.
22. Hecl Rb6 23. Bfl c4! 24. Bxc4
Rxc4 25. bxc4 Hb2 26. Dd3 Hd2 27.
Df3 f5!
Enn brýst hann fram! Eftir aö
e-línan opnast ræður hvítur ekki
við innrás svörtu hrókanna.
28. e5 dxe5 29. fxe5 Hxe5 30. Khl He4
FANGELSISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
auglýsir eftir starfskrafti til aö annast félagslega
þjónustu við fanga og sjá um eftirlit með þeim sem
dæmdir eru skilorðsbundið, fá skilorðsbundna
reynslulausn, náðun eða frestun afplánunar. Æski-
legt er að viðkomandi hafi félagsráðgjafamenntun
eða sambærilega menntun. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 623343.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Borg-
artúni 7, 150 Reykjavík, eigi síðar en 1. mars nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins, 12. febrúar 1991.
31. Bel Dc7! 32. Habl
Ekki 32. Bxd2 cxd2 og báðir hrók-
arnir eru í uppnámi.
32. - Hde2 33. Bxc3 H2e3 34. d6 Dxd6
35. Bb4
35. - Dc6! 36. Dfl Hxh3 + ! 37. gxh3
Eöa 37. Kgl Bd4+ og tjaldið fell-
ur.
37. - He2 +
Og hvítur gafst upp.
Hvítt: Curt Hansen
Svart: John Nunn
Kóngsindversk vörn
1. c4 g6 2. Rc3 Bg7 3. d4 Rf6 4. e4
d6 5. Rf3 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6 8.
d5 Re7 9. b4
Ein margra leiða sem hvítum
standa til boða. Aðrir kostir eru 9.
Bd2, 9. Rd2 og 9. Rel.
9. - Rh5 10. g3 f5 11. Rg5 Rf6 12. f3
f4 13. c5
8 S I#
7 i i i & Sl a
6 A
5 A&i
4 A A A
3 A A
2 A JL A
1 m é W
A B C D E F G H
13. - dxc5!
Að því er ég best veit hristir Nunn
hér nýjung fram úr erminni. Hefð-
bundið framhald er 13. - h6 (eða
peðakaup á g3 fyrst) 14. Re6 Bxe6
15. dxe6 er hvítur getur gert sér
vonir um eilítið frumkvæði, því að
ekki er hlaupið að því fyrir svartan
aó komast í færi við peðið fram-
sækna á e6.
Hygmynd Nunns gæti verið 14.
bxc5 h615. Re6 Bxe616. dxe6 Dd4 +!
17. Dxd4 cxd4 18. Rb5 er 18. - fxg3
19. hxg3 Rxe4! er einn freistandi
möguleiki, því að 20. fxe4 strandar
á 20. - d3 með tvöfaldri hótun. Þetta
skýrir næsta leik Danans en ljóst
er þó að Nunn hefur einnig tekið
hann með i reikninginn.
14. Bc4 cxb4! 15. d6+ Kh8 16. Rb5
Ef 16. dxe7 Dxe7 17. Ra4 (annars
kemur 17. - Dc5 + og hirðir biskup-
inn) h618. Rf7+ Hxf719. Bxf7 Dxf7
hefur svartur fengið þijú peð fyrir
skiptamun og á góða möguleika.
16. - h6 17. Rf7+ Hxf7 18. Bxf7 cxd6
19. Rxd6 Bh3 20. Bb3 Kh7 21. Hf2 Rc6
Byijunarorrustunni er lokið og
svartur má vel við una. Riddarinn
stefnir á d4 til að auka enn á þrýst-
inginn.
22. Bb2 De7 23. Hcl Rd4 24. gxf4!?
Hraustlega leikið, því að nú opn-
ast kóngsstaða hvíts.
24. - Rh5 25. fxe5 Bxe5 26. Rf7?
Ekki 26. Bxd4 Bxd4 27. Dxd4
Dg5+ og hrókurinn á cl er í skot-
máli. En 26. Rc4 var nauðsynlegt.
26. - Rxb3! 27. Rxe5
Nú er sigur svarts ekki í hættu
en 27. Dxb3 Bxb2 28. Hxb2 HfB var
engu betra, því að riddarinn á f7
er dauðans matur.
27. - Rxcl 28. Dxcl Hc8 29. Hc2 Hxc2
30. Dxc2 Dg5+ 31. Khl De3 32. Dc7+
Rg7 33. Dcl De2 34. Dgl g5 35. Bd4
Re6 36. Dg3 Rf4
Og hvítur gafst úpp, því að enginn
ræður við hótunina 37. - Bg2+ 38.
Kgl Dfl mát.
-JLÁ