Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 19
íEAUGASRDAGUR 16..REBRÖAR; 1991. Si 19 íslendingar við Eystrasalt: Sj álfstæðisbaráttan lifir í leikhúsinu „Við urðum vör við að barátta þessa fólks fyrir sjálfstæði er því mikið hjartans mál. Við sáum þetta best í þeim leiksýningum sem komu frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Harðstjóm, kúgun og ósýnilegt vald var gegnumgangandi viðfangsefni sýninganna. Sérstaklega er okkur minnisstæð sýning litháískra ungl- inga sem var ákaflega beinskeytt og sterk,“ sögðu Dagur Gunnarsson og Sæmundur Andrésson í samtali við DV. Þeir fóru ásamt félögum sínum í áhugaleikhópnum Fantasíu til Eist- lands og Litháen í október síðastliðn- um og sýndu leikritið Vagnadans á leiklistarhátíð Eystrasaltsríkja sem var sú fyrsta í 40 ár sem erlendum leikhópum er leyft að taka þátt í. - Hvernig urðu þeir varir við sjálf- stæðisbaráttu þjóðanna? „í Eistlandi bjuggum við inni á einkaheimilum og náðum því að kynnast fólkinu talsvert. Okkur fannst kúgun vera nokkuð áberandi enda hefur hingað til verið bannað að láta útlendinga gista annars stað- ar en á hótelum. Það var mismun- andi hvað við ræddum þessi mál við gestgjafa okkar. En þegar það var gert voru biturð og reiði þær tilfinn- ingar sem mest voru áberandi,“ segja Dagur og Sæmundur. Hermenn á öllum hornum Þegar þeir stóðu við í Eistlandi voru hermenn afar áberandi á öllum götum og á almannafæri. Vörus- korti, bensínskömmtun og almenn- um skorti og dýrtíð virtust Eistlend- ingar taka eins og sjálfsögðum hlut. „Daginn sem við fórum voru brauðin hækkuð um 400% í einu, úr 20 kópekum í 80,“ segir Sæmundur. „Gestgjafi minn sagði mér frá þessu en yppti jafnframt öxlum og sagði að þetta væri bara svona og við þvi væri ekkert að gera.“ Þeir félagar eiga vart orð tO þess að dásama gestrisni Eistlendinga sem tóku þeim með kostum og kynj- um þrátt fyrir skort. Þannig komst hópurinn að því eftir á að sérstakur leiðangur ók 200 kílómetra til þess að kaupa vodka svo hægt væri að bjóða erlendum gestum upp á drykk. Stoltir af baráttu sinni „Okkur fannst andrúmsloftið í Vil- nius vera öðruvísi. Þar var léttara yfir fólki og það virtist bera höfuðið mjög hátt og vera stolt af þeim skref- um sem þá þegar höfðu verið stigin í átt til sjálfstæðis. Litháíski fáninn blakti við hún á þinghúsinu og okkur voru sagðar sögur af krossahæðinni þar sem fólkið stingur niður heima- tilbúnum krossum til minningar um látna ættingja og það er tengt sjálf- stæðisbaráttunni. Það skipti engu máh hve oft sovéskir hermenn fjar- lægðu krossana alltaf voru þeir reist- ir á ný.“ - • ■ Fantasía sýndi Litháum Vagna- dans í Borgarleikhúsinu í Vilnius og komust færri að en vildu. Fólkið þjappaði sér meðfram veggjum og stóð jafnvel bak við sviöið og alls staðar þar sem hægt var að drepa niður fæti. Og tárin flóðu „Þessi sýning er án orða og hægt að leggja ýmsa merkingu í það sem fram fer. Þó er valdið að ofan sem kæfir og heftir sterkur og skýr þáttur í sýningunni. Það virtist snerta ein- hvern streng í brjósti fólksins því það tók sýningunni geysilega vel og setti það sem að las út úr henni í samband við eigin raunveruleika,“ sagði Dag- ur. „Eg var leiddur fyrir litháíska konu, sem er þekktur leikstjóri í sinu heimalandi. Við gátum ekkert talað saman því hún talaði bara sitt móð- urmál. Hún rétti mér þess vegna styttu með litháíska fánanum og síð- an strauk hún mér um kinnina með- an tárin streymdu úr augum henn- ar.“ í lok hátíðarinnar í Vilnius fékk Fantasía boð um að koma með leik- sýningu að eigin vali á leiklistarhátíð sem halda á í Moskvu á þessu ári. Óvissa ríkir hins vegar um starfs- grundvöll hópsins sem kom með 1.200 þúsund króna skuld á bakinu heim úr Eystrasaltsfórinni. Þess ut- an er óljóst um framvindu mála í Rússlandi. Fantasía fór fyrir íslands hönd á norræna leiklistarhátíð í Vesterás í Svíþjóð. Þar fengu þau boð frá Eist- lendingi nokkrum um að koma á Eystrasaltshátíðina. „Starfsgrundvöllur áhugaleikhópa í Reykjavík er nánast engin," sögðu Dagur og Sæmundur að lokum. „Við höfum fjármagnað þetta úr eigin vös- um að mestu ef frá er talin 100 þús- und króna styrkur frá menntamála- ráðuneytinu til fararinnar. Að öðru leyti erum við upp á velvilja og lang- lundargeð skuldunauta okkar kom- in.“ Ein fjáröflunin er sýning á ljós- myndum úr ferðinni eftir Dag Gunn- arsson sem nú stendur yfir á Mokka. -Pá Ein myndanna á sýningu Dags sem sýna daglegt lif Litháensbúa. y ... 1 Dagur og Sæmundur. DV-mynd GVA r 18.FEB. gengur Landsbankinn til samvinnu vi5 Skagfirðinga í íramhaldi af kaupum Landsbankans á Samvinnu- bankanum flyst útibúið í nýtt húsnæði í Skagfuðinga- A búð á Sauðárkróki og opnar par undir merkjum Landsbankans. Landsbankinn býður viðskiptavini Samvinnubankans á Sauðárkróki og í Skagafirði ' velkomna í nýtt útibú og óskar starfsfólki velfamaðar undir nýju merki. Afgreiðslutími útibúsins í Skagfirðingabúð er alla virka daga frá kl. 9:15 -16:00. Sírninn er 95-35353. Verið velkomin í Landsbankann. atí Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.