Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Side 6
6
^LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991.
Útlönd
íraksher skilur eftir
sviðna jörð í Kúvæt
George Bush Bandaríkjaforseti
fullyrðir að írakar skilji eftir sviðna
jörð í Kúvæt. Forsetinn gaf þessa
yfirlýsingu um leið og hann tilkynnti
um frestinn sem írakar fengju til að
kalla herlið sitt heim frá Kúvæt.
Orð Bush komu eins og til að undir-
strika viljaleysi íraka til að ljúka
Persaflóadeilunni með friði þrátt fyr-
ir aö Tareq Aziz utanríkisráðherra
hefði lýst samþykki þeirra við frið-
aráætlun Mikhails Gorbatsjov Sovét-
forseta.
Bandamenn segja að írakar hafi
nú kveikt í um 140 olíuhndum í Kú-
væt á síðustu sólarhringum. „Um
fjórðungur af olíuvinnslusvæðum í
Kúvæt er nú hulið reykjarmekki,"
sagði Richard Neal, hershöfðingi og
talsmaður hers Bandaríkjamanna í
Saudi-Arabíu, skömmu eftir að Bush
sagði að írakar ætluðu sér að skilja
eftir sviðna jörð í Kúvæt.
„Þeir eru kerfisbundið að eyðilegga
mannvirki í Kúvæt. Svo er að sjá sem
þeir hafi tekið upp þá stefnu að skilja
eftir sviðna jörð í Kúvæt,“ sagði
Neal.
Áður en Bush setti fram úrslita-
kostina höfðu bandamenn aðeins tal-
að um að írakar hefðu kveikt í 40
olíulindum og ekkert getið um
skemmdarverk í Kúvæt. Neal sagði
að bandamenn væru að athuga leiðir
til að koma í veg fyrir að írakar gætu
framfylgt eyðileggingarstefnu sinni
en tiltók ekki hvað væri til ráða.
Harka hefur verið í bardögum við
landamæri Saudi-Arabíu síðasta sól-
arhringinn. í gær tilkynntu írakar
að sókn bandamanna á landi væri
hafin en bandamenn báru þær fréttir
til baka og sögðu að átökin væru
ekki alvarlegri en undanfarna daga.
Bandamenn hafa einkum beitt stór-
skotaliði og árásarþyrlum.
Reuter
Friðartillögur Gorbatsjovs:
Krókur á móti
harðlmumönn-
um heima
Friðartillögur Mikhails Gor-
batsjov Sovétforseta virðast hafa
miðað að því öðru fremur að kaupa
frið frá harðlínumönnum heima fyr-
ir svo hægt væri að halda áfram vin-
samlegri sambúð við Bandaríkin.
Fréttaskýrendur eru sammála um
að Gorbatsjov hafi veriö undir mikl-
um þrýstingi þegar hann gerði úr-
slitatilraunir til að'fá íraka til að yfir-
gefa Kúvæt með samningum.
Nú er ljóst að hugmyndir Gor-
batsjovs eru að engu orðnar og allt
bendir til að úrslitaorrustan um Kú-
væt verði háð á næstu dögum. Mönn-
um þykir hins vegar líklegt að Gor-
batsjov hafi viljað kom fram með til-
boð sem báðir aðilar gátu sætt sig
við og sannaði um leið fyrir harð-
línumönnum heima að forsetinn
væri ekki aðeins leiksoppur í hönd-
um Bandaríkjamanna.
Ein helsta ástæðan fyrir að Eduard
Sévardnadze, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, varð að hrökklast úr emb-
ætti var að harðlínumönnum í hern-
um líkaði ekki hvernig hann hélt á
málum í samskiptum við Bandarík-
in. Þeim þótti sem ráðherrann væri
allt of eftirgefanlegur við Vesturlönd
og að í valdatíð hans hefðu Sovétrík-
in tapað verulegu af áhrifavaldi sínu
á alþjóðavettvangi.
Endaði Persaflóadeilan með fullum
sigri bandamanna var ekki annaö
sýnt en að Sovétmenn hefðu tapaö
miklu af áhrifum sínum í Mið-Aust-
urlöndum með því að írakar, helstu
bandamenn þeirra á svæðinu, hefðu
lent undir hæl Bandaríkjamanna.
Fréttaskýrendur segja að Gor-
batsjov hafi séð það ráö vænst að
reyna að miðla málum og bjarga því
sem eftir er af veldi íraka og sýna
andstæðingum sínum heima um leið
að Sovétríkin séu enn stórveldi á
heimsmælikvarða.
„Ef friður kemst á við Persaflóa,
án þess að írakar verði svínbeygðir,
þá hafa harðlínumenn í Sovétríkjun-
um misst af tækifæri til að knýja
fram breytingar á utanríkisstefn-
unni,“ hefur Reutersfréttastofan eft-
ir sendiráðsmanni í Moskvu. „Endi
deilan hins vegar með algerum ósigri
íraka þykjast áhrifamenn í hernum
geta sannað aö stefna Gorbatsjovs
hafi leitt til þess Sovétmenn misstu
fótfestu sína í Mið-Austurlöndum.“
Undanfarið hafa harðlínumenn í
Sovétríkjunum lýst yfir samstöðu
sinni með Saddam Hussein og sagt
að stefna Bandaríkjanna í Persaflóa-
deilunni sýni hvert sé hið rétta and-
lit heimsvaldasinnanna í vestrinu.
Orð í þessa veru hafa m.a. fallið á
fundum miðnefndar kommúnista-
flokksins. Gorbatsjov hefur hins veg-
ar ávallt lýst yfir stuðningi við álykt-
anir Öryggisráðs Sameinuöu þjóð-
anna um framtíð Kúvæts.
Reuter
Gorbatsjov Sovétforseti er í þeirri kátlegu stöðu að geta fallið með Saddam
Hussein. , Teikning Lurie
Albanir f lúðu á
stolnu herskipi
Elsta kona Svi-
þjóðar 109 ára
Hulda Johnsson kann vel að
meta góðar afmælisveislur og þó
metur hún mest að geta sjálf boð-
ið í afmæli. Hún hefur enda feng-
ið nokkur tækifæri til þess þvi í
gær varð hún 109 ára.
Hulda býr í Svíþjóö, nærri
Gautaborg. Hún man þegar sím-
inn kom til Svíþjóðar og var kom-
in af uynglingsaldri þegar hún sá
fyrsta bílinn.
Afmælisveisla Huldu stendur í
tvo daga og þegar einhver spuröi
hana hvort ekki væri rétta að
fara aö slaka á svaraði hún það
kæmi ekki til greina því „það
gæti orðið að leiðum ávana“.
TT
Hópur velvopnaðra albanskra sjó-
hða flúði í gær á einu af skipum hers-
ins yfir til Ítalíu og báðu þar um
hæli sem pólitískir flóttamenn. Þeir
tóku tankskip traustataki og sigldu
því yfir til Brindisi á Suður-Ítalíu.
Skip úr ítalska flotanum tóku á
móti Albönunum og fylgdu þeim til
hafnar. Lögreglan í Brindisi segir að
um borð hafi veriö 24 sjóliðar og þar
að auki fjórir óbreyttir borgarar.
Ekki var ljóst hvort skip úr al-
banska flotanum veittu flóttamönn-
unum eftirför en ekkert benti til að
átök hefðu orðið um borð. Albönsku
sjóliöarnir sögðu lögreglunni að þeir
hefðu stolið skipinu á fimmtudaginn
þegar yfirmennirnir höfðu farið frá
borði.
Þeir sögðu einnig að borgararnir
íjórir hefðu komið um borð í hafi.
Flóttamennirnir höfðu nokkra riffia
og skammbyssur með sér en voru
óvopnaðir fyrir utan það.
I síðustu viku komu 15 flóttamenn
frá Albaníu til Ítalíu á fiskibáti en
menn úr sjóhernum hafa ekki flúið
áður. Mikill órói hefur verið í Alban-
íu síðustu daga og stööug mótmæli
gegn stjórn kommúnisfa í landinu.
Mest hafa mótmælin verið í höfuð-
borgini Tirana þar sem námsmenn
hafa krafist umbóta og náð að fella
styttu af Enver Hoxa, fyrrum eirv
valdi í landinu.
Reuter
Flugmaður
sótturyfir
víglínuna
Bandarískri þyrluflugsveit
tókst að bjarga þotuflugmanni
sem skotinn var niður um 160
kílómetra innan við landamæri
íraks. Flugmaðurinn, Scott
Thomas að nafni, varð að bíða í
tvo klukkutima eftir björguninni.
Hann var í árásarferð á F16 orr-
ustuþotu þegar hann var skotinn
niður.
Svo virðist sem bandamenn eigi
greiða leið inn fyrir landamæri
Iraks, fyrir utan þá staði þar sem
meginherafli íraka er saman
kominn. Þá hafa bandamenn far-
ið árásarferir inn í Kúvæt án þess
að mæta verulegri mótspyrnu af
hálfu Iraka.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp
6mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1.1 Sp
Sértékkareikningar 4,5-5 Lb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
6mán.uppsögn 2.5-3,0 Allirnema Ib
15-25mán. 6-6,5
Innlán með sérkjörum 5,25-5,75 Bb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 5,7-6 Lb.lb
Sterlingspund 12,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Ib
Danskarkrónur 8,5-9 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15.25-15,75 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
, Hlaupareikningar(yfirdr.) 18,75-19 Bb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 7,75-8,25 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl.krónur 14,75-15,5 Lb
SDR 10-10,5 Lb
Bandarikjadalir 8,8-9 Sp
Sterlingspund 15,5-15,7 Lb.lb
Vestur-þýskmörk 10,75-10,9 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. jan. 91 14
Verðtr. jan. 91 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala mars ,3009 stig
Lánskjaravisitalafeb. 3003 stig
Byggingavísitala mars. 566 stig
Byggingavísitala mars 177.1 stig
Framfærsluvísitala feb. 149,5 stig
Húsaleiguvísitala 3% hækkun . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,374
Einingabréf 2 2,905
Einingabréf 3 3,527
Skammtímabréf 1,801
Kjarabréf 5.289
Markbréf 2,818
Tekjubréf 2,059
Skyndibréf 1,577
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,580
Sjóðsbréf 2 1,832
Sjóðsbréf 3 1,791
Sjóðsbréf 4 1,548
Sjóðsbréf 5 1,079
Vaxtarbréf 1,8185
Valbréf 1,7046
Islandsbréf 1,117
Fjórðungsbréf 1,069
Þingbréf Öndvegisbréf 1,115
1,106
Sýslubréf 1.124
Reiðubréf 1.094
Heimsbréf 1,026
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100
nafnv.:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,80 7.14'
Eimskip 5.72 6.00
Flugleiðir 2.43 2,57/
Hampiðjan 1,76 1.84 1.85
Hlutabréfasjóðurinn 1,77
Eignfél. Iðnaðarb. 1,96 2,05
Eignfél. Alþýðub. 1.40 1.47
Skagstrendingur hf. 4,20 4,45
Islandsbaéki hf. Eignfél. Verslb. 1.47 tM
1.36 1M3 6.30 2,40
Olíufélagið hf. 6,00
Grandi hf. 2,30
Tollvörugeymslan hf. 1.10 1.15
Skeljungur hf. 6,40 6,70
Ármannsfell hf. 2.35 / 2,45
Fjárfestingarfélagið 1,28 í 1,35
Útgerðarfélag Ak. 3,62 3,80
Olís 2,18 2.28
Hlutabréfasjóður VlB 0,96 1.01
Almenni hlutabréfasj. 1.01 1,05
Auðlindarbréf 0,96 1,01
islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb=lslandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.