Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Page 6
6 ^LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991. Útlönd íraksher skilur eftir sviðna jörð í Kúvæt George Bush Bandaríkjaforseti fullyrðir að írakar skilji eftir sviðna jörð í Kúvæt. Forsetinn gaf þessa yfirlýsingu um leið og hann tilkynnti um frestinn sem írakar fengju til að kalla herlið sitt heim frá Kúvæt. Orð Bush komu eins og til að undir- strika viljaleysi íraka til að ljúka Persaflóadeilunni með friði þrátt fyr- ir aö Tareq Aziz utanríkisráðherra hefði lýst samþykki þeirra við frið- aráætlun Mikhails Gorbatsjov Sovét- forseta. Bandamenn segja að írakar hafi nú kveikt í um 140 olíuhndum í Kú- væt á síðustu sólarhringum. „Um fjórðungur af olíuvinnslusvæðum í Kúvæt er nú hulið reykjarmekki," sagði Richard Neal, hershöfðingi og talsmaður hers Bandaríkjamanna í Saudi-Arabíu, skömmu eftir að Bush sagði að írakar ætluðu sér að skilja eftir sviðna jörð í Kúvæt. „Þeir eru kerfisbundið að eyðilegga mannvirki í Kúvæt. Svo er að sjá sem þeir hafi tekið upp þá stefnu að skilja eftir sviðna jörð í Kúvæt,“ sagði Neal. Áður en Bush setti fram úrslita- kostina höfðu bandamenn aðeins tal- að um að írakar hefðu kveikt í 40 olíulindum og ekkert getið um skemmdarverk í Kúvæt. Neal sagði að bandamenn væru að athuga leiðir til að koma í veg fyrir að írakar gætu framfylgt eyðileggingarstefnu sinni en tiltók ekki hvað væri til ráða. Harka hefur verið í bardögum við landamæri Saudi-Arabíu síðasta sól- arhringinn. í gær tilkynntu írakar að sókn bandamanna á landi væri hafin en bandamenn báru þær fréttir til baka og sögðu að átökin væru ekki alvarlegri en undanfarna daga. Bandamenn hafa einkum beitt stór- skotaliði og árásarþyrlum. Reuter Friðartillögur Gorbatsjovs: Krókur á móti harðlmumönn- um heima Friðartillögur Mikhails Gor- batsjov Sovétforseta virðast hafa miðað að því öðru fremur að kaupa frið frá harðlínumönnum heima fyr- ir svo hægt væri að halda áfram vin- samlegri sambúð við Bandaríkin. Fréttaskýrendur eru sammála um að Gorbatsjov hafi veriö undir mikl- um þrýstingi þegar hann gerði úr- slitatilraunir til að'fá íraka til að yfir- gefa Kúvæt með samningum. Nú er ljóst að hugmyndir Gor- batsjovs eru að engu orðnar og allt bendir til að úrslitaorrustan um Kú- væt verði háð á næstu dögum. Mönn- um þykir hins vegar líklegt að Gor- batsjov hafi viljað kom fram með til- boð sem báðir aðilar gátu sætt sig við og sannaði um leið fyrir harð- línumönnum heima að forsetinn væri ekki aðeins leiksoppur í hönd- um Bandaríkjamanna. Ein helsta ástæðan fyrir að Eduard Sévardnadze, fyrrverandi utanríkis- ráðherra, varð að hrökklast úr emb- ætti var að harðlínumönnum í hern- um líkaði ekki hvernig hann hélt á málum í samskiptum við Bandarík- in. Þeim þótti sem ráðherrann væri allt of eftirgefanlegur við Vesturlönd og að í valdatíð hans hefðu Sovétrík- in tapað verulegu af áhrifavaldi sínu á alþjóðavettvangi. Endaði Persaflóadeilan með fullum sigri bandamanna var ekki annaö sýnt en að Sovétmenn hefðu tapaö miklu af áhrifum sínum í Mið-Aust- urlöndum með því að írakar, helstu bandamenn þeirra á svæðinu, hefðu lent undir hæl Bandaríkjamanna. Fréttaskýrendur segja að Gor- batsjov hafi séð það ráö vænst að reyna að miðla málum og bjarga því sem eftir er af veldi íraka og sýna andstæðingum sínum heima um leið að Sovétríkin séu enn stórveldi á heimsmælikvarða. „Ef friður kemst á við Persaflóa, án þess að írakar verði svínbeygðir, þá hafa harðlínumenn í Sovétríkjun- um misst af tækifæri til að knýja fram breytingar á utanríkisstefn- unni,“ hefur Reutersfréttastofan eft- ir sendiráðsmanni í Moskvu. „Endi deilan hins vegar með algerum ósigri íraka þykjast áhrifamenn í hernum geta sannað aö stefna Gorbatsjovs hafi leitt til þess Sovétmenn misstu fótfestu sína í Mið-Austurlöndum.“ Undanfarið hafa harðlínumenn í Sovétríkjunum lýst yfir samstöðu sinni með Saddam Hussein og sagt að stefna Bandaríkjanna í Persaflóa- deilunni sýni hvert sé hið rétta and- lit heimsvaldasinnanna í vestrinu. Orð í þessa veru hafa m.a. fallið á fundum miðnefndar kommúnista- flokksins. Gorbatsjov hefur hins veg- ar ávallt lýst yfir stuðningi við álykt- anir Öryggisráðs Sameinuöu þjóð- anna um framtíð Kúvæts. Reuter Gorbatsjov Sovétforseti er í þeirri kátlegu stöðu að geta fallið með Saddam Hussein. , Teikning Lurie Albanir f lúðu á stolnu herskipi Elsta kona Svi- þjóðar 109 ára Hulda Johnsson kann vel að meta góðar afmælisveislur og þó metur hún mest að geta sjálf boð- ið í afmæli. Hún hefur enda feng- ið nokkur tækifæri til þess þvi í gær varð hún 109 ára. Hulda býr í Svíþjóö, nærri Gautaborg. Hún man þegar sím- inn kom til Svíþjóðar og var kom- in af uynglingsaldri þegar hún sá fyrsta bílinn. Afmælisveisla Huldu stendur í tvo daga og þegar einhver spuröi hana hvort ekki væri rétta að fara aö slaka á svaraði hún það kæmi ekki til greina því „það gæti orðið að leiðum ávana“. TT Hópur velvopnaðra albanskra sjó- hða flúði í gær á einu af skipum hers- ins yfir til Ítalíu og báðu þar um hæli sem pólitískir flóttamenn. Þeir tóku tankskip traustataki og sigldu því yfir til Brindisi á Suður-Ítalíu. Skip úr ítalska flotanum tóku á móti Albönunum og fylgdu þeim til hafnar. Lögreglan í Brindisi segir að um borð hafi veriö 24 sjóliðar og þar að auki fjórir óbreyttir borgarar. Ekki var ljóst hvort skip úr al- banska flotanum veittu flóttamönn- unum eftirför en ekkert benti til að átök hefðu orðið um borð. Albönsku sjóliöarnir sögðu lögreglunni að þeir hefðu stolið skipinu á fimmtudaginn þegar yfirmennirnir höfðu farið frá borði. Þeir sögðu einnig að borgararnir íjórir hefðu komið um borð í hafi. Flóttamennirnir höfðu nokkra riffia og skammbyssur með sér en voru óvopnaðir fyrir utan það. I síðustu viku komu 15 flóttamenn frá Albaníu til Ítalíu á fiskibáti en menn úr sjóhernum hafa ekki flúið áður. Mikill órói hefur verið í Alban- íu síðustu daga og stööug mótmæli gegn stjórn kommúnisfa í landinu. Mest hafa mótmælin verið í höfuð- borgini Tirana þar sem námsmenn hafa krafist umbóta og náð að fella styttu af Enver Hoxa, fyrrum eirv valdi í landinu. Reuter Flugmaður sótturyfir víglínuna Bandarískri þyrluflugsveit tókst að bjarga þotuflugmanni sem skotinn var niður um 160 kílómetra innan við landamæri íraks. Flugmaðurinn, Scott Thomas að nafni, varð að bíða í tvo klukkutima eftir björguninni. Hann var í árásarferð á F16 orr- ustuþotu þegar hann var skotinn niður. Svo virðist sem bandamenn eigi greiða leið inn fyrir landamæri Iraks, fyrir utan þá staði þar sem meginherafli íraka er saman kominn. Þá hafa bandamenn far- ið árásarferir inn í Kúvæt án þess að mæta verulegri mótspyrnu af hálfu Iraka. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp 6mán. uppsögn 5,5-8 Sp Tékkareikningar, alm. 1-1.1 Sp Sértékkareikningar 4,5-5 Lb Innlan verðtryggð Sparireikningar 6mán.uppsögn 2.5-3,0 Allirnema Ib 15-25mán. 6-6,5 Innlán með sérkjörum 5,25-5,75 Bb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 5,7-6 Lb.lb Sterlingspund 12,5 Allir Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Ib Danskarkrónur 8,5-9 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 15.25-15,75 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir , Hlaupareikningar(yfirdr.) 18,75-19 Bb Utlan verðtryggð . Skuldabréf 7,75-8,25 Lb Utlán til framleiðslu Isl.krónur 14,75-15,5 Lb SDR 10-10,5 Lb Bandarikjadalir 8,8-9 Sp Sterlingspund 15,5-15,7 Lb.lb Vestur-þýskmörk 10,75-10,9 Lb.lb.Bb Húsnæðislán 4,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,0 MEÐALVEXTIR Óverðtr. jan. 91 14 Verðtr. jan. 91 8.2 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala mars ,3009 stig Lánskjaravisitalafeb. 3003 stig Byggingavísitala mars. 566 stig Byggingavísitala mars 177.1 stig Framfærsluvísitala feb. 149,5 stig Húsaleiguvísitala 3% hækkun . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,374 Einingabréf 2 2,905 Einingabréf 3 3,527 Skammtímabréf 1,801 Kjarabréf 5.289 Markbréf 2,818 Tekjubréf 2,059 Skyndibréf 1,577 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,580 Sjóðsbréf 2 1,832 Sjóðsbréf 3 1,791 Sjóðsbréf 4 1,548 Sjóðsbréf 5 1,079 Vaxtarbréf 1,8185 Valbréf 1,7046 Islandsbréf 1,117 Fjórðungsbréf 1,069 Þingbréf Öndvegisbréf 1,115 1,106 Sýslubréf 1.124 Reiðubréf 1.094 Heimsbréf 1,026 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,80 7.14' Eimskip 5.72 6.00 Flugleiðir 2.43 2,57/ Hampiðjan 1,76 1.84 1.85 Hlutabréfasjóðurinn 1,77 Eignfél. Iðnaðarb. 1,96 2,05 Eignfél. Alþýðub. 1.40 1.47 Skagstrendingur hf. 4,20 4,45 Islandsbaéki hf. Eignfél. Verslb. 1.47 tM 1.36 1M3 6.30 2,40 Olíufélagið hf. 6,00 Grandi hf. 2,30 Tollvörugeymslan hf. 1.10 1.15 Skeljungur hf. 6,40 6,70 Ármannsfell hf. 2.35 / 2,45 Fjárfestingarfélagið 1,28 í 1,35 Útgerðarfélag Ak. 3,62 3,80 Olís 2,18 2.28 Hlutabréfasjóður VlB 0,96 1.01 Almenni hlutabréfasj. 1.01 1,05 Auðlindarbréf 0,96 1,01 islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn, lb=lslandsbanki Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.