Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 2I. ‘FEBRUÁR 1991. 13 Meiming FERÐALOK! (UMFERÐAR RÁÐ Bíóhöllin - Passað upp á starfið ★★ Allsherjar misskilningur Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Laufási, Tálknafirði, þingl. eign Mið- víkur h/f, þriðjudaginn 26. febrúar 1991 kl, 10.00 á eigninni sjálfri. Upp- boðsbeiðandi er Landsbanki Islands. Þórsgötu 9, Patreksfirði, þingl. eign Iðnverks h/f, þriðjudaginn 26. febrúar 1991 kl. 11.00 á eigninni sjálfri. Upp- boðsbeiðandi er Eyrasparisjóður. Aðalstræti 39, neðri hæð, Patreks- firði, þmgl. eign Finnboga Pálssonar, þriðjudagmn 26. febrúar 1991 kl. 11.30 á eigninni sjálfri. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. SÝSLUMAÐURBARÐASTRANDARSÝSLU Jimmy er lífsglaður og kátur bOa- þjófur sem er að afplána síðustu daga dómsins. Hann vinnur tvo miða á úrslitaleik í hafnabolta og af hrein- um stráksskap brýst hann út sér- staklega til þess að mæta á leikinn. Spencer er stressaður og þaul- skipulagður auglýsingasölumaður sem er á leið til Chicago á mikilvæg- an fund. Hans lífæð slær í minnis- bókinni, Filofaxinu - þar er allt sem hann þarf að vita. í stresskasti leggur hann frá sér möppuna á flugvellin- um. Þar sér Jimmy hana og misskiln- Kvikmyndir Páll Ásgeirsson ingurinn getur hafist. Jimmy stelur Filofaxinu og tekur að sér hlutverk Spencers um helgina. Spencer garm- urinn situr uppi með gamla vin- stúlku sem hengdi sig á hann í flug- vélinni. Hún er eina manneskjan sem trúir því hver hann er. Þetta er klassísk gamanmynd sem byggist á þrautreyndri uppskrift mistaka, ruglings og misskilnings. Tempóið er þó frekar hægt í byrjun en myndin nær sér á gott flug sem dugar í frábæran endasprett. James Belushi er býsna góður sem Jimmy og leiftrar af orku og öryggi. Charles Grodin er traustur í van- þakklátu hlutverki Spencers. Anne DeSalvo er frábær í hlutverki vin- konu Spencers sem er dæmigerður nýaldarsinni. Ekkert tækifæri er lát- ið ónotað til þess að gera góðlátlegt stólpagrín að yfirborðsmennsku, stressi og auglýsingamennsku. Þannig geta þeir sem ekki sjá neitt fýndið við söguna auðveldlega lesið dýpri boðskap út úr handritinu sem virðist vera vel skrifað. Upphaflega átti myndin víst að heita Filofax eftir möppunni góðu sem bindur menn í hlekki hverdags- ins og stjórnar lífi þeirra. Nafninu var breytt til samræmis við titillagið, trúlega í von um góðan árangur, sbr. Pretty Woman. Það tókst kannski ekki en þetta er býsna góð skemmtun samt. Taking Care of Business - amerísk Leikstjórn: Arthur Hiller Aðalhlutverk: James Belushi, Charles Grodin og Anne De Salvo Spencer og Jimmy saman á leiknum langþráða. ÞEIR VÆGAST SAGT REMMAÚT Þetta eru þær hliðar sem við helst sjáum á riissan Sunny þessa dagana, því viðtökur hafa verið hreint frábærar. Nú er svo komið að verulega er gengið á fyrstu sendingu og ráðleggjum við þér því að bíða ekki með að koma og skoða riissan Sunny hafir þú áhuga á að fá hann strax. Sýning laugard. og sunnud. frákl. 14:00-17:00. Einnig B.Q. Bílakringlunn! Qrófinni 8, Keflavík, laugard. frákl. 10:00-17:00 ogsunnud. 13:00-17:00. Ingvar Helgason hf Sævarhöföa 2 sími 91-674000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.