Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Side 14
14 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr. Mastrið bilaði ekki „Ég tel, að ástandið hjá sjómönnum hafi skánað mik- ið við, að langbylgjumastrið á Vatnsenda fauk niður. Eftir það voru allir veðurfréttatímar sendir út á stutt- bylgju í gegnum Gufunes og við sjómenn erum allt í einu farnir að heyra þær.“ Þetta sagði einn sjómaðurinn í viðtali við DV eftir ofsaveðrið mikla í upphafi þessa mánaðar. Sjónarmið hans hafa síðan endurspeglazt víða í fréttum og grein- um, þar sem tæknimenn og sjómenn hafa fjallað um, hvort við þurfum nýtt langbylgjumastur fyrir milljarð. Víðast hvar hefur verið íjallað um þetta á vitrænan hátt, nema í sölum Alþingis. Þar hóf Árni Johnsen umræðu utan dagskrár um, hvílík vá væri fyrir dyrum sjómanna. Þingmenn kepptust síðan hver um annan þveran um að lofa milljarði í langbylgjumastur. Daginn eftir umræðuna utan dagskrár gaf Svavar Gestsson menntamálaráðherra út svofellda yfirlýsingu: „Ný langbylgjustöð verður byggð og það verður hafizt handa við undirbúning strax.“ Þessi viðbrögð Alþingis og ríkisstjórnar sýna óþarfa æðibunugang á þeim bæj- um. Rétt er að hafa í huga, að mastrið mikla á Vatnsenda- hæð féll ekki í óveðrinu af því að það væri orðið 60 ára gamalt og fúið. Það féll ekki heldur af því, að eigandi þess hefur ekki hirt um að halda því við í 20 ár. Það féll, af því að festing á stagi bilaði niðri við jörð. Ef menn hirða um slíkt, er mjög einfalt mál að halda við festingum á stögum, ef þeir hafa einhverjar raun- verulegar áhyggjur af mannvirkjum sínum. Það kostar sáralitla peninga, meðan menn eru að gamna sér við skýjaborgir um nýtt mastur fyrir einn milljarð. Einnig er gott að hafa í huga, að Ríkisútvarpið gat reist nýtt mastur, ef það hefði í rauninni talið slíkt vera þvílíkt forgangsmál, sem nú er gefið í skyn. Á liðnum áratugum hefur stofnunin fjárfest gífurlega í öðru, þar á meðal í kastala sínum við Efstaleiti í Reykjavík. Langbylgjan er orðin svo úrelt, að framleiðsla sendi- tækja er um það bil að leggjast niður. í Bandaríkjunum hafa miðbylgja og örbylgja tekið við. í öllum þorra út- varpstækja, sem hér á landi hafa verið seld um langan aldur, hefur alls ekki verið nein langbylgjumóttaka. Stuttbylgjusendingarnar, sem tóku við, þegar stag- festingin brotnaði á Vatnsendahæð, eru mörgum sinn- um ódýrari lausn. Einnig kemur til greina, að efla bún- aðinn á strandstöðvum Landssímans til að koma þar fyrir veðurspám og tilkynningum til sjómanna. Loks fer að koma að því, að gervihnattastöðvar leysi landstöðvar af hólmi. Það er mjög freistandi leið, því að hún er óháð truflunum, sem verða á raforkudreif- ingu hér á landi, ef eitthvað er að veðri, enda virðist dreifikerfið vera miðað við suðlægari slóðir. Við eigum nóga kosti í þessu máli, aðra en að reisa nýtt langbylgjumastur fyrir milljarð króna. Vandinn er miklu fremur fólginn í að velja milli nokkurra annarra leiða, sem hver fyrir sig hefur kosti umfram hinar. Þær geta jafnvel farið saman að töluverðu eða öllu leyti. Athyghsvert er, hversu auðvelt er að æsa þingmenn og ráðherra til örlætis á peninga, sem þeir eiga ekki. Á Alþingi og í ríkisstjórn ríkir þvílík óreiðustefna í með- ferð fjármuna, að menn voru tilbúnir til að kasta millj- arði í skyndilega geðsveiflu 4. og 5. febrúar. Nýtt landbylgjumastur er óþarft. Það vissu þeir, sem létu hjá líða að styrkja stagfestingar á Vatnsendahæð, svo að forngripurinn mætti standa í önnur 60 ár. Jónas Kristjánsson Það sem þarf til að sigra í stríði Síðustu daga hefur heimsbyggðin béðið eftir fréttum af bardögum við Persaflóann. Ekki svo að skilja aö lát sé á hemaðaraðgerðum allt frá því gagnsókn bandamanna gegn Irökum hófst þann 17. janúar, held- ur eru menn að bíða eftir gamal- dags stríði á landi í stað einstefn- unnar sem verið hefur í lofti í rúman mánuð. Dag eftir dag er frá því sagt að hermennimir séu í viðbragðsstöðu og fréttaþyrstir áhorfendur em hka reiðubúnir að taka við fréttum af því hvort afkomendur vígreifra bedúína em makráðum Vestur- landabúum snarari í snúningum á vígvellinum. Og á meðan beðið er saxa bandamenn á herstyrk íraka og Sovétmenn reyna að safna sér trompum á hendi til að nota þegar spila verður úr stöðunni að stríði loknu. Saddam segirnei -Azizjá Þessa dagana sem beðið er nýrra tíðinda af vígvöllunum dregur Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti enn að sér athyghna með tilraun- um til að koma á friði - tilraunum sem engan árangur hafa borið frek- ar en von var á. Saddam Hussein segir ýmist nei við kröfum um aö draga her sinn frá Kúvæt og heitir því að beijast með þjóð sinni til sigurs eða lætur Tareq Aziz, skósvein sinn, segja já. Fáir eiga þó von á að heitstrenging- ar um sigur gangi eftir - slíkur er hðsmunurinn - en Saddam gæti bjargað höfðinu og heiðrinum. Það er þó gömul og ný staðreynd úr hernaði að það er ekki aðeins heraflinn, sem þjóðir hafa á að skipa, sem ræður úrshtum. Her- mönnum er teflt fram til að ná markmiðum sem ákveðin eru ann- ars staðar og fyrir tilverknað afla sem ekki sjást heldur í orrustun- um. Einn af herforingjum banda- manna í Saudi-Arabíu lét hafa eftir sér aö það tæki álíka langan tíma fyrir skriðdrekahð bandamanna að fara til Bagdad og það hefði tekið Djengis Khan að fara sömu leið. Herforinginn vildi meina að í sókn á landi skipti tæknin ekki öhu 4náh því tíminn, sem færi í aö brjóta á bak andstöðu, væri ahtaf svipaður. Sama sagan aftur Reyndar er ekki ástæða til að taka þessi orð bókstaflega en hins vegar hafa herfræðingar bent á að lögmálin í þessu stríöi séu þau sömu og hafa veriö um aldir. Nú- tíma hertækni bjóði aðeins upp á tilbrigði við gamla reynslu. Árið 1830 lést í Þýskalandi maður sem taldi sig hafa gert grein fyrir lögmálum ahra stríða og enn eru uppi menn sem trúa aö honum hafi tekist það. Þetta var Carl von Clausewitz, prússneskur herfor- ingi og höfundur bókarinnar Um stríð. Sagt er að bókin sú Uggi á náttborðinu hjá Colin PoweU, for- seta bandaríska herráðsins, og að úr henni fái hann hugmyndir sínar um baráttuaðferðir Bandaríkja- manna í Persaflóastríðinu. Clausewitz þessi hafði aö vísu engar sérstakar hugmyndir um hvemig ætti að beijast í eyðimörk og hvemig í fenjum og hann taldi að aUur stríðsrekstur hvíldi á þremur aðskUdum þáttum. Ef einn brigðist þá væri stríðið að öUum likindum tapað. Markmiðið verður að vera á hreinu Fyrst taldi Clausewitz stjóm rík- Erlend tíðindi Gísli Kristjánsson blaðamaður isins sem setti markmiðið með stríðinu. Síðustu daga hefur eink- um reynt á þenna þátt í hinu flókna sjónarspih kringum friðartillögur og endurbætur á þeim. Bandamenn og þá einkum Bandaríkjamenn, sem fara fyrir andstæðingum ír- aka, verða að meta hvort verið sé að drepa markmiðum þeirra á dreif. í Bandaríkjunum eru miklar efa- semdir um að friðartilboð Gor- batsjovs Sovétforseta miði að nokkru öðm en að bjarga höfði Saddams Hussein og tryggja stöðu Sovétríkjanna í Mið-Austurlönd- um. Aðrir vilja skoða tillögumar nánar en það er stjórnarinnar að ákveöa hvort þær samræmast markmiðunum með herförinni til Persaflóa. Tilboðin fela í sér frið sem þó kann að reynast enginn friður og endar ef til vih með því að banda- menn verða að gera upp við sig hvort markmiöið sé það eitt að hrekja herhð íraka frá Kúvæt eða að útíloka að Saddam Hussein geti efnt tíl ófriðar öðm sinni. Okkar maður hefur því haft rétt fyrir sér að sigur í stríði veltur á þvi að stjórnin viti að hveiju hún stefnir. í öðm sæti hjá Clausewitz kom herinn sem teflt er fram á vígvelhn- um. TU að sigra í stríði þarf að hafa á að skipa sterkari her en andstæðingurinn. í Persaflóastríð- inu virðist ekki þurfa vitnanna við um að bandamenn hafa á að skipa sterkari her og hafa sannað það í lofthemaðinum undanfarnar vik- ur. Styrkur heijanna á landi er jafnari en samt ættu bandamenn að geta neytt aflsmunar þegar og ef lagt verður tU atlögu við íraska herinn. Hræðsla við að taka af skarió í þriðja lagi fjallaði Clausewitz um fólkið sem styddi eða afneitaði eftir atvikum hemum og stjórninni sem vUdi stríð. Án þess að hafa þjóðina að baki er tómt mál að tala um sigra í hernaði, í besta falli er hægt að vinna einstakar ormstur en ekki sjáift stríðið. Þetta era bitur sannindi sem margir Bandaríkjamenn benda á þegar minnst er á Vítnamstríðið. Þeir tala um að bandaríski herinn hafi orðið að berjast með aðra höndina bundna fyrir aftan bak því þjóðin hafi ekki vUjað þetta stríð og stjómin því ekki þorað að heyja það af fullum krafti. Þegar meiri- hluti þjóðarinnar var orðinn á móti stríðinu var það tapað. í Persaflóastríðinu fer ekki milh mála að hemaðurinn á hendur írökum en studdur af yfirgnæfandi meirihluta manna í löndum banda- manna. í Bretlandi og Bandaríkj- unum styöja 80 tU 90% landsmanna stefnu stjómanna. Stuðningurinn virðist minni í Frakklandi og á ítal- íu en samt afgerandi. Menn hafa haft meiri áhyggjur af að samstaðan gegn írak kunni að ghðna meðal arabísku þjóðanna. Þar er töluverð andstaða gegn hernaði á hendur bræðraþjóð í írak en einnig mikU hræðsla við yfír- gangsmanninn Saddam Hussein. Nágrannarnir í Mið-Austurlöndum vilja flest tU gefa að þurfa ekki aö búa við stöðuga ógn frá írak og standa þétt með bandamönnum. í Bandaríkjunum óttast menn helst að almenningsálitið snúist gegn stjórninni ef verulegt mann- faU verður í liði þeirra. Þetta er lærdómur sem menn draga af Víet- namstríðinu. Stutt stríð ætti þó ekki að valda kúvendingu í stuðn- ingi þjóöarinnar. Viðunandi friðartilboð kann Uka að hafa sömu áhrif. Öllum er Ula við stríð og það kann að virðast vænlegur kostur að hætta hemaði, jafnvel þótt markmiðin hafi ekki náðst. Viðbrögð Roland Dumas, utanrUdsráöherra Frakka, eftir síðustu friðartiUögur frá Sovétríkj- unum eru í þessa vem. En sá gamU Clausewitz hafði þó ömgglega á réttu að standa þegar hann gerði stuðninginn á heimavígstöðvunum að úrsUtaatriði í hemaði. Gísli Krístjánsson Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti hefur komiö bandamönnum í vanda meö friðartilboöum sínum. Hann hefur rétt írökum hálmstrá svo þeir geti haldiö höfði en geta bandamenn einnig samþykkt og haldið höföi? Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.