Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Page 16
16
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991.
Maria hefur ekki eingöngu saumað kjóla því hún laetur sig
ekki muna um að prjóna þá líka. Hér eru þær Ásta Beggí
Ólafsdóttir kórfélagi og Hulda Svavarsdóttir, fyrrum kórfé-
lagi i Skagfirsku söngsveitinni í prjónakjólum sem Maria
hefur hannað og prjónað.
Einn fallegur frá árinu 1970. Kjólarnir sem Maria ætlar
að sýna á morgun eru allt frá árinu 1958 til 1979.
Samkvæmiskjóll sem gæti verið keyptur i verslun í gær
en þessi er orðinn tuttugu ára gamall og hannaður og
saumaðuraf Mariu. DV-myndirGVA
Geymir alla kjóla frá árinu 1958:
„Hef alltaf haftgaman
af fallegum kjólum"
- segir María K. Einarsdóttir saumakona, hönnuður og söngkona
„Ég hef alla tíð saumað mikiö og
hannað en aldrei tímt að henda
neinu. Þess vegna á ég orðið all-
stórt safn kjóla og hef fyllt alla skápa
og ferðatöskur. Elstu kjólarnir eru
síðan 1958 og þeir yngstu tíu ára
gamlir," segir María Kristín Einars-
dóttír, saumakona og söngkona í
Skagfirsku söngsveitinni í Reykja-
vík, sem ætlar að halda allsérstæða
sýningu á gömlum kjólum í Domus
Medica á morgun. Skagfirska söng-
sveitin ætlar að halda kaffiveislu til
styrktar kórnum og verður gestum
boðið að skoða gömlu kjólana henn-
ar Maríu í leiöinni.
„Ég er í Kvenfélaginu Björk og
þar kom upp beiðni um að ég sýndi
þessa kjóla mína á skemmtun. Mér
haíði aldrei dottið neitt shkt í hug.
Sýningin þótti skemmtileg og þess
vegna bað fjáröflunarnefnd kórsins
mig um að endurtaka hana á þeirra
skemmtun. Núna hef ég einnig
fengið boð frá Bústaðasókn um að
sýna kjólana þar þannig að þetta
er farið að koma mér mikiö á
óvart,“ segir María ennfremur.
Flestír eru kjólarnir samkvæmis-
kjólar, jafnt stuttir og síðir en einn-
ig nokkrir brúðarkjólar og brúðar-
meyjakjólar. „Þetta er einungis
brot af öllu því sem ég á sem ég
sýni enda er talsverð vinna aö fara
yfir allt, laga og hreinsa,“ segir
María á meðan hún tekur hvern
kjólinn af öðrum út úr skápum sín-
um. Kjólarnir tilheyra Uðinni tísku
en margir hverjir eru að komast í
tísku aftur og því hafa ungar stúlk-
ur mjög heillast af þeim.
„Ung stúlka hringdi í mig og bað
• mig að lána sér kjól á menntaskóla-
ball því hún sagði aö þeir væru í
hátísku," segir María og hlær. „Ég
hafði alltaf mjög gaman af fallegum
fötum og saumaskap. Ég valdi allt-
af dýr og vönduð efni og nostraði
mikiö við saumaskapinn. Vegna
þess hversu mikla vinnu ég lagði í
kjólana hef ég haldið upp á þá.
Sumt fór ég ekki í nema einu
sinni,“ segir María.
Þeir eru einnig ófáir brúðarkjól-
arnir sem hún hefur saumað en
María tók að sér að sauma fyrir
fólk áöur en hún fór að vinna útí.
„Ég er að mestu hætt að sauma,
hef ekki lengur tíma,“ segir hún.
Fyrir utan saumaskapinn hefur
María Kristín margvísleg áhuga-
mál. Söngurinn er þar ofarlega á
blaði en hún hefur starfað meö
Skagfirsku söngsveitinni frá upp-
hafi en kórinn átti tuttugu ára af-
mæli í haust. Þegar María var 43ja
ára dreif hún sig í söngnám til Sig-
urðar Demetz og lauk áttunda stígs
Brúðarkjólar þeir sem Maria hefur saumað eru ófáir og er þetta aðeins
brot af þeim.
prófi þegar hún var 51 árs. Þá hefur
hún fengist viö myndlist sér tíl
ánægju og eru allnokkur verk sem
skreyta heimih hennar. Þá dreif
María sig í að læra silkimálun og
hefur þegar komiö nokkrum hsta-
verkum í ramma. Það má því með
sanni segja að hún sé fjölhæf.
María og eiginmaður hennar,
Gestur Pálsson, æfa með Skag-
firsku söngsveitinni tvö kvöld í
viku. Það er óhætt að fullyröa að
áhugamáhn eru margvísleg á
heimihnu og þau gefa sér góðan
tímatilaðsinnaþeim. -ELA
María Kristín Einarsdóttir saumakona og söngkona með einn kjóla sinna. Hún segist oft breyta kjólum sínum
og laga þá til. Flestir fá þó að halda sínu upprunalega sniði.