Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Síða 18
18
.Wi U. Jfím &£ SUDAaílA.TJAJ
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991.
Veiðivon
Þrátt fyrir mikinn veiðiáhuga unglinga:
Unglingastarf í veiðifélögum
landsins lítið sem ekkert
A síðasta aðalíundi Landssam-
bands stangaveiðifélaga var lítillega
rætt um stangaveiðar unglinga sem
er „ekkert“ í veiðifélögum landsins.
Skipaðar hafa verið nefndir til að
vinna í þessum málum en lítið komið
út úr þeim enn sem komið er.
Fyrir einum tíu til fimmtán árum
var til veiðiklúbbur hjá Æskulýðs-
ráði sem var mikið sóttur af ungling-
um.
Þama fengu margir sína fyrstu eld-
skírn í veiðinni. Farnir voru veiöi-
túrar í Elliðavatn, Hafravatn, Þing-
vallavatn og Úlíljótsvatn. En allt í
einu hætti klúbburinn og fáir hafa
reynt að reisa hann við aftur. Þó er
áhugi fyrir veiði miklu meiri en var
þá og ennþá fleiri í veiðinni núna.
Til em unglingar sem eru svo
heppnir að fá aö fara með mömmu
og pabba til veiða en ekki eru það
Hvergerðingar
æfa fluguköst
snemma á
sunnudögum
„ Aðsóknin hefur verið ágæt það
sem af er og þetta hitar veiði-
menn upp íyrir sumarið,"
sagði Gunnar Kristófersson,
formaður Stangaveiðifélags
Hveragerðis i vikunni. En Hver-
gerðingar em byrjaðir að æfa
fluguköst í íþróttahúsinu klukk-
an níu á sunnudagsmorgnum.
„Við verðum eitthvað áfram
næstu sunnudaga með þessi
fluguköst en það er ekki búið að
ákveða hvaö lengi. Um leið og
köstin eru æfð er ein og ein veiði-
saga látin fljóta með,“ sagði
Gunnar formaöui1 ennfremur.
-G.Bender
allir. Sumir foreldrar hafa ekki
áhuga á veiði og er það miöur fyrir
marga unglinga sem haldnir eru
þessari dellu.
„Mínir foreldrar hafa ekki áhuga á
veiði og ég kemst lítið í veiði sjálfur,
frændi minn hefur tekið mig með
nokkrum sinnum," sagði ungur
veiðimaður i vikunni og bætti við: „í
stangaveiðifélögum landsins er öll-
um sama um okkur, lítið er gert fyr-
ir okkur.
Innan stjórnar Landssambands
Stangaveiðifélaga hefur verið reynt
að hreyfa þessu máli en lítill áhugi
verið.
„Þessi mál hafa verið rædd og bréf
veriö send til veiðifélaganna en að-
eins eitt þeirra svaraði því,“ sagöi
Siguröur Bjamason, stjórnarmaður
í stjórn LS, en hann hefúr aðeins
unnið í þessum unglingamálum.
„Áhuginn hérna er ekki mikill fyr-
ir unglingastarfi, hnýtingaklúbbar
eru í skólum og eitthvert starf er hjá
Ármönnum. Annars staðar á Norð-
urlöndum er unnið mikið starf og þar
eru menn á fullum launum að vinna
í þessum málum,“ sagði Sigurður í
lokin.
Þó sumir vilji gera eitthvað er það
bara alls ekki nóg. Unglingarnir virð-
ast ekki hafa mikinn áhuga á málinu
eins og er, þeir eru kannski ein-
hveijir búnir að gefast upp á að
reyna aö komast í veiði.
Endurreisn veiðiklúbbs Æsku-
lýðsráðs væri kannski fyrsta skrefið
í þessu máli, þá væri hægt að sjá stöð-
una, hveijir hefðu raunverulega
áhuga.
-G.Bender
Þjóðar-
spaug DV
Hætturað
drekka
Maður einn, sem þótti frekar
drykkfelldur, kom eitt sinn til
læknis síns og sagðist vera hætt-
ur að drekka brennivín.
„Það var nú sveí mér gott,"
sagði læknirinn, „en hvað drekk-
urðu i staðinn?"
„Vodka og spira,“ svaraði mað-
urinn án þess að blikna.
Höglin
Guðmundur . Karl Pétursson,
sem lengi var yfirlæknir á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri,
tók eitt sinn á móti manni sem
hafði dottið með haglabyssu og
fengið öll höglin í sig. Guðmund-
ur Karl gerði að sárum mannsins
og er „skyttan" rankaði viö sér
spurði hann hvort læknínum
hefði tekist aö ná öll höglunum.
Þá svaraði Guðmundur Karl:
„Ekki þori ég nú að fullyrða
það, því ef ég ætti að vera alveg
viss yröi ég að skera þig niður í
sneiðar eins og rúllupylsu “
Einán
ábyrgðar
Læknir nokkur var eitt sinn að
kryfja mann sem látist hafði úr
sárasótt. Eftir krufninguna var
læknirínn eitthvað utan við sig
og stakk óvart líffæri því, sem
hann skoðaði mest, í jakkavasa
sinn. Á leiðinni heim keypti hann
eitthvað smáræði handa konu
sinni og stakk því í hinn vasann.
Er heim kom ætlaðifhann að rétta
konu Mnni það sem hann hafði
keypt en tók óvart upp líffæriö
umrædda og rétti henni. Konan
virti það fyrir sér um stund en .
brast síöan í grát og sagði:
„Jcmen. Er hann Einar virki-
Iega dáinn?“
Sumir ungir veiðimenn eru heppnari en aðrir og komast með foreldrum sinum i lax- og silungsveiði. Margir
þeirra hafa lært veiðiskapinn af foreldrum og vinum. DV-myndir G.Bender og GVA
Finnur þú fímm breytingai? 94
Hér kemur smálesefni meðan þú bíður eftir matnum.
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
2. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
Vinningarnir koma frá versl-
uninni Hljómbæ, Hverfisgötu
103, Reykjavík.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 94
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir nítug-
ustu og aðra getraun reynd-
ust vera:
1. Svandís Bára Steingrimsdóttir,
Vogalæk,
311 Borgarnes.
2. Brynja Bárðadóttir,
Brekkubyggð 25,
540 Blönduósi.
Vinningarnir verða sendir
heim.