Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Page 20
20
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991.
Kvikmyndir
Robert de Niro og Robin Wiiliams hafa báðir fengið hrós fyrir leik sinn í Awakenings og þá sérstaklega De Niro sem hefur verið tilnefndur
til óskarsverðlauna.
Awakenings:
Endurreisn sálar
eða kraftaverk?
Penny Marshall kann mun betur við sig bak við kvikmyndavélina en fyrir framan hana.
Awakenings, sem Penny MarshaU leikstýr-
ir, hefur vakið mikla athygli, ekki síst fyrir
það efni sem myndin íjaliar um. Myndin ger-
ist 1969 og er byggð á sönnum atburðum. Fjall-
að er um sálfræðinginn dr. MaLcolm Sayer
og reynslu sem hann verður Tyrir þegar hann
hefur meðferð á sjúklingum sem eru að öllu
leyti útundan í þjóðfélaginu.
I byijun myndarinnar kynnumst við Sayer
sem telur hæfa sér betur rannsóknarstörf
heldur en beinar lækningar. Sayer veröur því
með öllu óviðbúinn þegar hann þarf að með-
höndla „lifandi“ sjúklinga á Bainbridge spít-
ala, sjúklinga sem þjást af alvarlegum tauga-
sjúkdómum. Sayer dregst mjög að sjúklingun-
um, sérstaklega einum þeirra, Leonard Lowe.
Sjúklingar hans geta engan veginn tjáð sig,
hvorki með hreyfingum eða tali, og það er því
efst í huga Sayers hvort þeir séu „lifandi" að
innan eða ekki. Hann byrjar að nota á sjúkl-
inga sína nýtt lyf sem er á tilraunstigi og til-
raun hans til að koma „lífi“ í Leonard Lowe
er rauði þráðurinn í myndinni. Sayer fylgist
svo með því ásamt aöstoöarfólki sínu þegar
þessi gleymda sál fer loks að lifna við og
skynja ýmislegt í kringum sig.
Awakenings er saga um endurreisn sálar
eða kraftaverk sem á sér stað. Awakenings
kom fyrst út í bókarformi 1973 og hefur síðan
verið innblástur fyrir mörg bókmennta- og
heimildarverk. Meðal annars samdi Harold
Pinter einþáttunginn A Kind of Alaska eftir
að hafa lesið bókina.
Langur
undirbúningur
Framleiöendurnir Walter F. Parkes og Law-
rence Lasker eyddu þremur árum í undirbún-
ing og heimsóttu meöal annars þann spítala
sem er fyrirmynd að Bainbridge spítalanum
og hittu suma sjúklingana sem fjallað er um
í bókinni, meðal annars hinn raunverulega
Leonard Lowe. Þeir kusu að fá Steven Zaillian
til að skrifa handritið en hann hefur meöal
annars skrifað handritiö að The Falcon and
the Snowman.
Það var svo 1988 að þeir sendu handritiö til
Penny Marshall en mynd hennar, Big, var
þá vinsælasta myndin í Bandaríkjunum. Hún
var fljót að átta sig á gæðum handritsins og
samþykkti það.
Þaö eru varla til ólíkari myndir en Big og
Awakenings en þegar að er gáð er hægt að
finna samlíkingu. Báöar myndimar fjalla um
persónur sem fara beint inn í heim sem þær
hafa á engan hátt haft áhrif á aö búa til. Eins
og framleiðendurnir sá Marshall í handritinu
meiningarfulla og tilfinningarríka sögu sem
var þó ekki laus við húmor.
Engan leikara hefði veriö hægt aö fá betri
i hlutverk Lowe en Robert De Niro. Hlutverk-
ið er eins og skapað fyrir hæfileika hans.
Engum hefur tekist betur í kvikmyndum aö
sýna sálarlega einangraða menn. Og eins og
við mátti búast er leikur hans stórkostlegur.
Robert de Niro sannar að hann er sjálfsagt
besti kvikmyndaleikarinn í heiminum í dag.
Robin Williams var valinn til að leika lækn-
inn eftir að Marshall sá hann í Dead Poet
Society. Williams segist lengi hafa verið að
bíða eftir handriti sem þessu.
Þegar byrjað var að kvikmynda var höfund-
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
ur bókarinnar Oliver Sacks fenginn til að
vera sérstakur ráðunautur og hann fór með
leikstjórann og aðalleikara á spítala þar sem
sams konar sjúklingar eru og þeir sem fjallað
er um í myndinni. Er óhætt að segja að þessi
reynsla hafði mikil áhrif á þau.
Gamanleikkonan sem
varó leikstjóri
Penny Marshall á að baki langan feril sem
leikkona. Awakenings er þriðja kvikmyndin
sem hún leikstýrir. Marshall er fædd og upp-
alin í New York. Hún lauk að hluta til há-
skólanámi í stærðfræði og sálfræði við há-
skóla Nýju Mexíkó.
Leikhúslífið heillaði hana þó meira en nám-
ið og sagði hún skilið við skólann og tók þátt
um stund í starfi lítilla leikhópa. Eins og fleiri
ungar leikkonur lagöi hún leið sína til Holly-
wood þar sem hún fékk fljótlega hlutverk í
sjónvarpsþáttum. Næstu ár lék hún mörg
smáhlutverk í sjónvarpi og kvikmyndum auk
þess sem hún starfaöi með leikhópum.
Hennar stóra stökk var þegar henni var
boðið annað aðalhlutverkið í sjónvarpsser-
íunni Laverne and Shirley. Sería þessi gekk
í nokkur ár við miklar vinsældir. Leikstjórn-
arferill hennar byrjaði með því að hún tók
að sér að leikstýra nokkrum þáttum.
Eins og var viðbúiö lauk sjónvarpsseriunni
þegar flestir voru búnir að fá nóg. Marshall
tók þá til við að leika í kvikmyndum og sjón-
varpsmyndum en löngunin i að leikstýra var
sterk og fékk hún tækifærið þegar henni var
boöið að stjórna Jumpin Jack Flash með
Whoopi Goldberg í aöalhlutverki. Jumpim
Jack Flash fékk fremur óblíöar viðtökur hjá
gagnrýnendum en ágætis viðtökur hjá al-
menningi. Var það til þess að henni var boöið
að leikstýra Big sem sló í gegn.
Awakenings hefur fengið mjög góðar við-
tökur gagnrýnenda og Penny Marshall þykir
með eftirtektarverðari leikstjórum sem nú
starfa í Holluwood.
Awakenings hefur fengiö nokkrar óskars-
tilnefningar í ár. Meðal annars er hún tilnefnd
sem besta kvikmynd og Robert de Niro er til-
nefndur sem besti leikari í aöalhlutverki.
Stjörnubíó mun bráðlega taka Awakenings til
sýningar.
-HK
Kvikmyndahátíðm í Berlin stendur nú
sem hæst og í næstu viku veröa gullbirn-
irnir afhentir. Tuttugu og sex kvik-
myndir keppa um þann heiður að verða
valin besta kvíkmyndin í ár. Bandaríkja-
menn eiga flestar kvikmyndirnar í þess-
um hópi eða fimm talsins. Þar ber fyrst
að telja mynd Kevins Costners, Dances
With the Wolwes, sem sópaði til sín
óskarstilnefningum í síðustu viku. Aðr-
ar bandarískar kvikmyndir eru The
Godfather Part III, The Russia House,
Mr. Johnson og nýjasta kvikmynd Jon-
athan Demme og The Silence Of the
Lambs sem hefur fengið geysigóðar við-
tökur gagnrýnanda undanfamar vikur.
Það er raerkilegt við bandarísku kvik-
myndimar að það eru ástralskir leik-
stjórar sem leikstýra tveimur þeirra.
Bruce Beresford leikstýrir Mr. Johnson
og Fred Schepisi leikstýrir The Russia
House. Þriðji ástralski leikstjórinn, Pet-
er Weir, leikstýrir svo einu bandarisku
kvikmyndinni sem sýnd er utan aðal-
keppninnar Green Card.
* * ★
Fjórar kvikmyndir koma frá ítaliu í
keppnina um Gullbjöminn. Má þar
nefna nýjustu kvikmynd Ettore Scola II
Viaggio Di Capitan Fracassa og einnig
nýja kvikmynd, La Condanna eftir
Marco Bellocchio. Sú ítalska kvikmynd
sem vekur samt mesta athygli er Ultra
sem leikstýrð er af Rícky Tognazzi. í
þeirri kvikmynd er fjallaö um óeirðir á
knattspyrnuleikjum, Tveir leikarar fara
með aöalhlutverkin en mikið af mynd-
inni er kvikmynduð á óeirðum sem orð-
ið hafa á knattspymuvöllum og fékk
Tognazzi marga fótboltaaödáendur sem
stunda óeírðir á knattspyrnuvöllum til
að leika í myndinni. Ricky Tognazzi er
sonur hins þekkta leikara Ugo Tognazzi.
Fjórða ítalska kvikmyndin er La casa
Del Sorriso, leikstýrð af Marco Ferrert
* * *
Aðeins ein kvikmynd fr á Norðurlöndum
tekur nú þátt í keppninni um bestu kvik-
myndina. Er það sænska myndin God
aften, Mr. Wallenberg sem leikstýrð er
af Kjell Grede. Fjallar myndin um goö-
sagnapersónuna Raoul Wallenberg sem
hjálpaöi gyöingum í Búdapest og hvarf
í Rússlandi í lok fyrri heimsstyrjaldar-
innar. Hefur hann ýraist verið talinn
látinn eða lifandi sfðan. Wallenberg er
leikinn af Stellan Skarsgárd. Aörir leik-
arar í stórum hlutverkum eru Katarina
Thalbach, Károly Eperjes og Erland Jos-
ephson. Stutt er síðan Sviar kusu God
aften Mr. Wallenberg bestu sænsku
kvikmyndina sem gerð var á síðasta ári.
Auk þess fékk hún verðlaun fyrir leik-
stjórn og handrit.
* * *
Mikill heiöur fylgir því að fá gullbjöm-
inn. Yfirleitt er þeirri mynd þá tryggður
fjárhagslegur grundvöllur. Ekki era
samt allir sáttir við val dómnefndarinn-
ar og hafa harðar deilur spunnist út frá
því. Satt er það að nokkrar era þær kvik-
myndimar sem hafa fallið í gleymsku
eftir að hafa fengið hinn eftirsótta bjöm.
Hér fer á eftir listi yfir þær kvikmyndir
sem hafa hlotið hann á síðastliðnum ell-
efu árum. í fyrra skipti dómnefndin gull-
biminum á milli tveggja mynda, banda-
rísku kvikmyndarinnar Music Box
(Costa-Gavras) og tékknesku myndar-
innar Skrivánci Na Nitíteh (Jiri Menzel.
1989: Rain Man, Bandaríkin (Barry Le-
venson). 1988: Red Sorghum, Kína
(Zhang Yimou). 1987: The Theme, Sovét-
rikin (Gleb Panilov). 1986: Stammheim,
Vestur-Þýskaland (Reinhard Hauff).
1985: Weatherby, England (David Hare).
1984: Love Streams, Bandaríkin (John
Cassavettes). 1983: Ascendancy, Eng-
land. 1982: Die Sehnucht Der Veronika
Voss, Vestur-Þýskaland (Rainer Werner
Fassbinder). 1981: Ðeprisa, Deprisa.
Spánn. 1980. Heartland, Bandaríkin(Rie-
hard Pearce). Aðeins Rain Man og Ver-
onika Voss hafa ratað inn á almennar
sýningar í kvikmyndhúsum hér á landi.
Music Box veröur væntanlega sýnd í
Bíóborginni áöur en langt um líöur.