Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Page 27
LÁÍÍéÁTáDÍA:Guá 23: FEÉRtfÁR 1991.'
3^
Góð gabbhreyfing Fylkisstúlkunnar dugði ekki hér til
því varnarleikmennirnir voru vel með á nótunum og
komu í veg fyrir mark aö þessu sinni.
Handbolti unglinga
Stórskytta Fylkis er hér að undirbúa langskot að marki
Stjörnunnar og stuttu seinna söng boltinn í netinu eftir
gott skot.
Stjaman sigraði
á heimavelli
Á dögunum var leikið á íslands-
móti 6. flokks karla og 5. flokks
kvenna. Þeir flokkar leika ekki á-
sama hátt og eldri flokkanir og eru
þrjú sjálfstæð mót í hvorum flokki
og geta því þrjú félög orðið íslands-
meistarar Það hlýtur að vera nánast
einsdæmi að hægt sé að verða ís-
landsmeistari oft á sama keppnis-
tímabili, allavega kannast DV ekki
við þetta fyrirkomulag annars staðar
frá.
Eins og áður hefur komið fram í
DV er alveg orðið tímabært að móta-
nefnd HSÍ og handknattleiksþingið
geri þær breytingar að þessi þrjú
mót séu ekki höíð að féþúfu eins og
hin eru vissulega orðin því ekki eiga
liðin að geta borið fyrir sig hærri til-
kostnaði en á venjulegu íslandsmóti.
Þessa helgi munum við gera grein
fyrir hvernig mótið gekk fyrir sig í
5. flokki kvenna og um næstu helgi
munum við hta nánar á 6. flokk
karla.
Lokastaða í 5. flokki kvenna í
keppni A-liöa var sú að stúlkunar
úr Stjömunni báru sigur úr býtum
eftir spennandi úrslitaleik við IR og
Grótta sigraði KR í leik um þriðja
sætið. í keppni B-liða sigraði lið ÍBV
og það sama gerðist í keppni C-liða
og er það alveg ljóst að stúlkunar úr
Eyjum verða sterkar í framtíðinni
ef svo heldur fram sem horflr.
En látum nú myndirnar tala sínu
máli.
KAUPMANNAHÖFN
-LONDON
Leiguflugið okkar gerir öllum kleift að komast til út-
landa. Sannkölluð kjarabót i anda þjóðarsáttar.
London Verð frá kr. 14.700 (Báðar leiðir!!) Kaupmannahc Verð frá kr. 15.800 (Báðar leiðir!!) ifn
Fjölbreytt ferðaþjónusta á áfangastöðum. Ferðir með dönskum og enskum ferðaskrifstofum. Margvíslegir gistimöguleikar. Sumarhús - bílaleigur o.fl.
Dæmi um okkar verð: London: Flug og bíll, 1 vika, 4 í bíl, kr. 19.80 Kaupmannahöfn: Flug og bíll, 1 vika, 4 í t kr. 21.98 D líl, 0
Úll þessi verð miðast við staðgreiðslu.
Takmarkaður sætafjöldi á þessu ótrúlega verði.
— »IHFERPIR
=SULRRFLUC
Vesturgata 12. Simar 620066 og 22100.
LÁnU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Stúlkurnar í ÍBV urðu i fyrsta sæti í keppni B-liða og eru þær hér eftir
verðlaunaafhendinguna. Liðið lék skemmtilegan handknattleik og var liðið
vel að sigrinum komið.
Velgengni ÍBV hélt áfram í keppni C-liða og fetuðu stúlkurnar i C-liðinu i
fótspor stallna sinna i B-liðinu og unnu góðan sigur í keppninni.
Þau leiðu mistök urðu í umíjöll-
un um Islandsmót 4. flokks kvenna
um síðustu helgi að nokkur úrslit
voru röng og því ekki rétt röðun
liða í 1. og 2. deild.
Um leið og viö birtum rétta röð
liðanna i deildum biðjumst viö vel-
virðingar á þessum mistökum.
I.deild
1. Sljarnan
2. Grótta
3. KR
4. UBK
5. FH
6. Haukar
2. deild
1. Valur
2. Víkingur
3. ÍBV
4. Fram
5. UMFG
6. UMFA
Blaðauki
um
ferðir
alla mánudaga
Mánudaginn 25. febrúar verður fjall-
að um það sem Mallorka hefur upp
á að bjóða í ár, viðtal við Pál Helga-
son, nýkjörinn ferðafrömuð ársins,
snjóþykktarkort o.fl. o.fk