Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Qupperneq 38
> tr,
50
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991.
Skák_____________________________________pv
Fyrstu lotu áskorendaeinvígjanna lokið:
Úrslit fjögurra einvígja
réðust í bráðabana
>
Anatoly Karpov teflir væntanlega í fyrsta sinn á íslandi i haust á heimsbikarmótinu i Reykjavik. Skyldi honum
takast að halda velli í áskorendakeppninni og tefla í sjötta sinn við Kasparov árið 1993?
Heimsmeistarinn Garry Ka-
sparov hefur lýst þvi yfir að hann
hyggist taka sér frí frá taflmennsku
næstu árin til að sinna hugðarefni
sínu, pólitík. Þaö verður því vænt-
anlega stirður heimsmeistari sem
þarf að verja titil sinn áriö 1993 en
baráttan um réttinn tii að skora á
hann þá er nú í algleymingi.
Fyrstu lotu áskorendaeinvígj-
anna er lokið og átta stórmeistarar
standa uppi: Karpov, Gelfand,
Ivantsjúk, Timman, Kortsnoj,
Short, Anand og Jusupov. í gær,
fóstudag, átti að draga um það í
Linares á Spáni hverjir myndu
tefla saman í 2. umferð sem fyrir-
huguð er í ágúst. Samkvæmt regl-
um keppninnar geta fjórir stiga-
hæstu menn, Karpov, Gelfand,
Ivantsjúk og Timman, ekki teflt
innbyrðis í 2. umferð en úrslit
dráttarins í Linares höfðu ekki bor-
ist er blaðið fór í prentun.
Karpov og Kasparov hafa teflt um
heimsmeistaratitilinn fimm sinn-
um á sex árum og ekki kæmi á
óvart þótt þeir mættust í sjötta
sinn. Hins vegar er ljóst að hart
verður sótt að Karpov í áskorenda-
keppninni og hann má eflaust hafa
sig allan við ætli hann að halda
velli. Þess má geta að Karpov teflir
væntanlega í fyrsta sinn á íslandi
í haust, ásamt valinkunnum görp-
um, á heimsbikarmóti í september
og október.
Sovésku ungstirnin Gelfand og
Ivantsjúk eru auk Karpovs líkleg-
astir til afreka en þeir eru nú í
hópi áskorenda í fyrsta sinn, auk
Indverjans Anands. Aðrir hafa að
minum dómi ekki möguleika, nema
ef vera skyldi Nigel Short. Jusupov
er að vísu traustur en Timman er
mistækur, Kortsnoj er kominn af
Skák
Jón L. Árnason
léttasta skeiði og Anand teflir of
hratt
tvær skákir. Þá fyrri vann Jusupov
og í seinni skákinni hélt hann jafn-
tefli með peði undir í hróksenda-
tafli. Þar með komst Jusupov
áfram í 2. umferð. Lítum á vendi-
punkt einvígisins, stöðuna eftir 33
leiki í 11. skákinni. Dolmatov hafði
hvítt og átti leik:
IL HWA FJÖGURRA STÖRNU &
EKTA GINSENGÞYKKNI
II HWA ginsengþykkni er framleitt undir strongu gæðaeftirliti emka-
leyfisskrifstofu Suður-Kóreu sem hefur heiðrað IL HWA-fyrirtækið
með hæstu viðurkenningum fyrir staðal og gæði voru sinnar. IL HWA
er eina ginsengið sem fengið hefur fjögurra stjornu flokkun. IVIiðaó
við þyngdarhlutföll inniheldur okkar þykkni efnislega meira ginseng
en nokkur önnur tegund á markaðnum og er alveg án tilbúinna rot-
varnarefna. i hverri 100 g flösku er þykkni af fjórum og hálfri fyrsta
flokks sex ára gamalli ginsengrót, ræktaðri í Kóreu.
Með IL HWA-aðferðinni er búið að draga full ómenguð gæði úr rótum
ginsengplöntunnar til að gefa yður full not af áhrifum ginsengs, Ef
þér drekkið ginsengþykkni fáið þér hrein gæði ginsengs í sinni þétt-
ustu, auðveldustu og eðlilegustu mynd. Þegar ginsengs er neytt sem
vökva er það hagnýtasta aðferðin til að draga út og melta hin lífsnauð-
synlegu efni rótarinnar.
Það má þlanda IL HWA ginsengi i hvort heldur sem er heitt eða kalt
vatn, ávaxtasafa eða mjólk þar sem það er búið til úr kjarnaþykkni
rótarinnar, án nokkurra ónauðsynlegra grænmetisefna, og leysist upp
samstundis.
Útsölustaðir:
Yggdrasill hf. Kárastig 1, simi 624082
Opið 12-18 virka daga, 11-13 laugardaga.
Heilsubúðin Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði, sími 652233
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-12.
Fjörugir bráðabanar
í áskorendakeppninni í Saint
John 1988 var í fyrsta skipti tekin
upp sú nýbreytni að stytta um-
hugsunartímann ef úrslit réðust
ekki eftir tilskilinn skákfjölda.
Bráðabanar af þessu tagi virðast
ætla að vinna sér fastan sess þótt
þetta fyrirkomulag hafi fallið í mis-
jafnan jarðveg. Nú voru tefldar
tvær skákir með umhugsunartíma
45 mínútur á mann á 60 leiki og
síðan 15 mínútur á 20 leiki, ef úr-
slit fengust ekki eftir fyrstu átta
skákirnar. í fjórum einvígjum af
sjö kom til framlengingar. Það voru
einungis Ivantsjúk, sem vann Jud-
asin, 4,5-0,5, Timman, sem vann
Húbner, 4,5-2,5, og Anand, sem
vann Dreev, 4,5-1,5, sem komust
áfram eftir „venjulegan leiktíma".
Það er álitamál hvort rétt sé aö
finna áskoranda heimsmeistarans
með því að etja mönnum út í hrað-
skák því að þar gilda dálítið önnur
lögmál en í hefðbundinni kapp-
skák. Ekki verður t.a.m. séö að
þessir fjórir, sem komust áfram
eftir bráðabana, hafl sýnt einhverja
yfirburði í einvígjunum nema ef
vera skyldi nauösynlega heppni og
liprari fingur á úrslitaaugnablik-
um.
Jafnt var eftir átta skákir í ein-
vígi Englendinganna Short og Spe-
elmans. Fyrri skák bráðabanans
varð jafntefli en þá seinni vann
Short í hróksendatafli eftir að Spe-
elman missti peð. Þar með hafði
hann náð fram hefndum frá einvígi
þeirra fyrir þremur árum er Speel-
man sigraði óvænt. Einvígið var
jafnt og í raun hefði allt getað gerst.
Sömu sögu er að segja af einvígi
Gelfands og Nikolic sem skiptust á
um að hafa forystu. Fyrri skák
bráðabanans lauk með jafntefli en
þá seinni vann Gefland tiltölulega
auðveldlega án þess að Nikolic tæk-
ist nokkru sinni að jafna taflið.
Dolmatov og Jusupov unnu hvor
sína skákina í bráðabana (9. og 10.
skákin). Enn var framlengt um
Svartur á trausta og góöa stöðu en
eftir 34. Df3 getur þó allt gerst enn,
einkum þar sem umhugsunar-
tíminn var farinn að styttast
ískyggilega. í stað þessa tefldist: 34.
h6? gxh6 35. Hel? Ha6? 36. Df3 h5!
Þetta var einnig mögulegt í 34. leik.
37. Rh2 Rxf4 38. Dxf4 Bh6 og eftir
að drottningin vék sér undan
missti Dolmatov hrókinn á d2 fyrir
biskup og Jusupov vann auðveld-
lega.
Svona illa hefðu þessir meistarar
aldrei teflt í venjulegri kappskák
en ennþá meiri sviptingar urðu þó
i tafli Kortsnojs og Sax. Ungverjinn
var ótrúlega seinheppinn í einvíg-
inu. í fyrri skák bráðabanans átti
hann unnið tafl en gamli bragðaref-
urinn náði óvæntri mátsókn og
vann í 49. leik. Sax var við það að
jafna í næstu skák er hann hafði
hvítt. Hann náði stöðuyfirburðum
sem hann jók jafnt og þétt. Það var
ekki fyrr en í endataflinu sem
Kortsnoj tókst að sýna hvað í hon-
um býr. Hann náði að reisa óvinn-
andi vígi með hrók og riddara gegn
drottningu og eftir 84 leiki sættist
Sax loks á jafntefli.
Hvítt: Guyla Sax
Svart: Viktor Kortsnoj
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6
5. Rf3 Bd7 6. Be2 Rge7 7. 0-0 Rg6 8.
Be3 cxd4 9. cxd4 Be7 10. Rc3 0-0 11.
Bd3 Be8 12. Hcl f6 13. exfB Bxffi 14.
Dd2 Kh8 15. Bbl Hc8 16. Hfel Hc7
17. Hcdl Hd7 18. Khl Be7 19. Rg5
Hffi 20. f4 Rffi 21. Hfl h6 22. RÍ3 Bg6
23. Bxg6 Rxg6 24. g3 Bffi 25. Dg2 Kg8
26. Dh3 Bb4 27. Re2 Rffi 28. g4 De8
29. g5 hxg5 30. fxg5 HfT7 31. Rf4 g6
32. Rd3 Bd6 33. Rf2 Re7 34. Rg4' Rf5
35. Bcl Dd8 36. Rffi+ Hxffi 37. gxffi
Hh7 38. f7+ Kg7 39. Dg4 Rg3+ 40.
Kgl Rxfl 41. Hxfl Dc7 42. h4 Dc2 43.
Bg5 Dxb2 44. Bf4 Db6 45. Be5 + Bxe5
46. Rxe5 Dd8
47. Rxg6! Rxg6 48. ffi = D + ?
Nærtækur leikur sem vinnur
drottninguna en nú verður hreint
ekki auðvelt að vinna taflið. Mun
sterkara er 48. h5! er hvítur vinnur
í nokkrum leikjum. T.d. 48. - Dffi
49. Dxg6+ Kh8 50. Khl (hótar 51.
Dffi+ Hg7 52. h6) Hh6 51. Dg5 (hót-
ar 52. Hgl) Kh7 52. Hffi Hxffi 53.
Dxffi og næst 54. Dg6 + , 55. h6 og
56. h7 og vinnur - svartur getur sig
hvergi hrært.
48. - Dxffi 49. Hxffi Kxffi 50. Dxe6
Eftir 50. h5 Re7 er heldur ekki
hlaupið að því að vinna en þetta
var þó betri tilraun. Hins vegar
ekki 50. Dxg6? Hg7 og svartur vinn-
ur!
50. - Rxh4 51. Dc8+ Kf7 52. Dxb7 +
Kg6 53. Dxd5 Rf5 54. De6+ Kg5 55.
d5 Hh6!
Kortsnoj er engum líkur í enda-
töflum. Taflmennska hans er lær-
dómsrík þótt umhugsunartími sé
af skornum skammti. Hann veit
nákvæmlega hvað hann er að gera.
Það er óvíst hvort vinningur leyn-
ist enn í stöðunni en Sax tókst allt-
énd ekki að finna hann. Eftir...
56. Dg8+ Hg6 57. Dd8+ Kf4+ 58.
Kf2 Hd6 59. Db8 a6! 60. Dc7 Ke5 61.
Dc4 Re7 62. De2+ Kffi 63. Df3+ Ke5
64. De3+ Kffi 65. Df4+ Rf5 66. De4
Re7 67. Dh4+ Kf7 68. Dh7+ Ke8 69.
Dh8+ Kd7 70. Dh3+ Kc7 71. Dh7
Kd7 72. Dh3+ Kc7 73. Dc3+ Kd7 74.
Dg7 Hxd5 75. Ke3 a5! 76. Ke4 Hf5 77.
Dd4+ Hd5 78. Da7+ Ke6 79. Dc7 Hf5
80. Kd4 Hd5+ 81. Kc4 Hf5 82. Db6 +
Kd7 83. Db7+ Kd6 84. Db8+
... var samið um jafntefli og þar
með var Kortsnoj kominn áfram.
Helgarskákmót TR
Um mánaðamótin stendur Taflfé-
lag Reykjavíkur að helgarskákmóti
í skákmiðstöðinni Faxafeni 12.
Tefldar verða sex umferðir eftir
Monrad-kerfi og er umhugsunar-
tími 90 mín. á keppanda á fyrstu
30 leikina og síðan hálf klukku-
stund til að ljúka skákinni.
Mótið hefst fimmtudaginn 28. fe-
brúar kl. 20 og síðan hefjast um-
ferðir föstudaginn 1. mars kl. 20,
laugardaginn 2. mars kl. 10 og 17
og sunnudaginn 3. mars kl. 9 og 20.
Veitt verða þrenn verðlaun, 25
þúsund, 15 þúsund og 10 þúsund
krónur fyrir þijú efstu sætin. Öll-
um er heimil þátttaka en skráning
hefst klukkustundu fyrir fyrstu
umferð.
-JLÁ
/