Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1991, Síða 39
51 C_
LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991.
dv Afmæli
Pétur Pétursson
Pétur Pétursson bifreiðarstjóri,
Elliðavöllum 14, Keflavík, er sjötug-
urídag.
Starfsferill
Pétur fæddist í Krossanesi í
Skagafirði og ólst upp í Skagafirðin-
um. Hann og unnusta hans, Guðrún
Sæmundsdóttir, fluttu til Keflavík-
ur 1942 og hafa þau búið þar síðan.
Fyrstu ár sín í Keflavík stundaði
Pétur sjómennsku og almenn verka-
mannastörf en árið 1955 keypti hann
vörubíl og hóf akstur á Vörubílastöð
Keflavíkur. Þar var hann til 1964 er
hann réð sig sem bílstjóra hjá varn-
arliðinu á Keflavíkurflugvelli þar
sem hann starfar enn.
Pétur tók virkan þátt í félagsstörf-
um í Keflavík. Hann átti i mörg ár
sæti í stjórn Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur. Hann var
formaður Vörubílstjórafélags Kefla-
víkur, ritari í stjórn Landssaræ
bands vörubílstjóra og formaður
Bílstjórafélagsins Keilis. Pétur er
mikill aiþýðuflokksmaður og hefur
gegnt mörgum trúnaðarstörfum
fyrir Alþýðuflokkinn.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 3.9.1942 Guðrúnu
Ósk Sæmundsdóttur, f. 22.7.1924,
húsmóður, en hún er dóttir Sæ-
mundar Skúlasonar og Júlíönu
Gísladóttur.
Stjúpsonur Péturs og sonur Guð-
rúnar er Jóhannes Gíslason, f. 20.1.
1941, sjómaður í Keflavík, kvæntur
Dim Gíslason húsmóður og eiga þau
eitt barn, auk þess átti hún tvö böm
fyrir. Börn Péturs og Guðrúnar eru
Hrefna, f. 7.1.1943, húsmóðir í
Njarðvík, ekkja eftir Tómas Sigur-
geirsson vélstjóra og eru börn þeirra
íjögur en sambýlismaður Hrefnu er
Almar Þórólfsson vélstjóri og eiga
þaueittbarn; Sæmundur, f. 16.8.
1945, rafvirki og starfsmaður hjá
Hitaveitu Suðurnesja, búsettur í
Keflavík, kvæntur Valgerði Þor-
steinsdóttur, starfsmanni hjá Pósti
og síma, og eiga þau tvö börn; Fann-
ey, f. 25.6.1947, verslunarmaður í
Svíþjóð, gift Sven Áke Johnson
kaupmanni og eiga þau tvö börn;
Júlíana, f. 20.2.1949, starfsmaður hjá
varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli,
búsett í Keflavík, og á fjögur börn;
Pétur Gunnar, f. 26.6.1953, sendibíl-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Margréti
Ragnarsdóttur skrifstofumanni; Val-
garöur, f. 18.11.1963, starfsmaður á
vélaverkstæði í Svíþjóð en sambýlis-
kona hans er Olga Guðmundsdóttir
og eiga þau einn son.
Systkini Péturs: Steindór Péturs-
son, f. 31.12.1905, d. 19.8.1975; Jó-
hannaRannveigPétursdóttir, f. 11.6.
1909, búsett á Sauðárkróki; Valgarð-
ur Pétursson, f. 16.12.1911, búsettur
í Keflavík; Arnljótur Ólafsson Pét-
ursson, f. 27.3.1913, d. 19.3.1973; Sig-
ríður Pétursdóttir, f. 30.4.1915, bú-
sett á Siglufirði; Þórey Sigríður Pét-
ursdóttir, f. 28.7.1917, d. 1968; Rósa
Pétur Pétursson.
Pétursdóttir, f. 26.5.1918, búsett á
Skagaströnd.
Foreldrar Péturs: Pétur Magnús-
son, f. 15.3.1883, d. 8.6.1920, b. á
Krossanesi, og Fanney Þorsteins-
dóttir, f. 21.9.1885, d. 4.8.1981.
Pétur og Guðrún taka á móti gest-
um í húsi Alþýðuflokksins að Hafn-
argötu 31, Keflavík, á afmælisdag-
innfrákl. 16-19.00.
Guðrún Einarsdóttir
GuðrúnEinarsdóttir, Skólavegi
91, Fáskrúðsflrði, verður sextug á
morgun.
Starfsferill
Guðrún fæddist á Odda á Fá-
skrúðsflrði og ólst þar upp. Hún
stundaði nám við Húsmæðraskól-
ann á Hallormsstað 1947^9 og var
síðan í saumanámi. Auk þess hefur
Guðrún sótt fjölda námskeiða á
ýmsum sviðum við KNÍ og víðar.
Guðrún var handavinnukennari
um árabil og heimilisfræðikennari
í þrj ú ár við Grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar. Þá hefur hún haldið nám-
skeið í fatasaumi og fleiri greinum.
Hún hefur tekið virkan þátt í félags-
starfl á Fáskrúðsfirði, sat í hrepps-
nefnd eitt kjörtímabil og átti sæti í
ýmsum nefndum hreppsins og fé-
lagasamtökum.
Fjölskylda
Guðrún giftist 26.12.1953 Albert
Stefánssyni, f. 26.3.1928, skipstjóra
en hann er sonur Stefáns Á'rnasonar
sjómanns og Guðfinnu Jóhanns-
dóttur.
Börn Guðrúnar og Alberts eru
Stefán, f. 5.10.1954, rafmagnsfræð-
ingur í Vogum á Vatnsleysuströnd,
kvæntur Snjólaugu Valdimarsdótt-
ur, f. 29.10.1956, hjúkrunarfræðingi,
og eiga þau fjórar dætur, Guðrúnu,
f. 5.6.1980, Maríu, f. 10.10.1985, Völu,
f. 12.8.1987 og Þóreyju, f. 8.4.1990;
Þórhildur, f. 15.-12.1955, kennari í
Reykjavík, gift Elíasi Ólafssyni, f.
21.2.1953, sérfræðingi í taugalækn-
ingum, og eiga þau tvær dætur,
Katrínu, f. 23.10.1978, og Helgu, f.
22.1.1986; Margrét, f. 8.11.1959,
þjónn í Reykjavík, gift Guðmundi
Karli Erlingssyni, f. 17.10.1954, flug-
manni hjá Flugleiðum, og er sonur
þeirra Jón Erlingur, f. 12.6.1989;
Kristín Björg, f. 20.8.1963, hjúk-
runarfræðingur og hjúkrunarfor-
stjóri á Heilsugæslustöðinni á Seyð-
isfirði, gift Helga Jenssyni, f. 14.9.
1962, sýslufulltrúa, en sonur þeirra
erHögni, f. 27.8.1989; dóttir, f. 17.6.
1965, d. 18.6. sama ár.
Bræður Guðrúnar eru Sigurður,
f. 14.4.1932, byggingatæknifræðing-
ur, kvæntur Helgu Eysteinsdóttur,
f. 26.6.1938, bókara, og eiga þau fjög-
ur börn og þrjú barnabörn; Guð-
laugur, f. 4.6.1935, skipasmíðameist-
ari, kvæntur Guðnýju Guðmunds-
dóttur, f. 4.6.1935, húsmóöur, og eiga
þau fjögur börn og fimm barnabörn.
Foreldrar Guðrúnar voru Einar
Sigurðsson, f. 8.4.1897, d. 3.2.1980,
skipasmíðameistari á Fáskrúðsfirði,
og Þórhildur Þorsteinsdóttir, f. 25.5.
1907, d. 13.3.1940.
Ætt
Einar var sonur Sigurðar á Búð-
um í Fáskrúðsfirði, Einarssonar, b.
á Hlíðarenda á Djúpavogi, Sigurðs-
sonar, b. í Hamraseh í Hálssókn,
Antoníusarsonar, hreppstjóra á
Hálsi, Sigurðssonar, á Hamarsseli,
Antoníusarsonar, b. á Hamri, ætt-
fóður Antoníusarættarinnar, Árna-
sonar. Móðir Sigurðar á Búðum var
Björg Jóhannsdóttir Malmquist.
Móðir Einars skipasmiðs var Guð-
rún, dóttir Ögmundar Runólfssonar
á Svínahólum í Lóni og Guðrúnar
Marteinsdóttur, systur Þorsteins,
langafa Más Elíssonar, fyrrv. fiski-
málastjóra.
Þórhlldur, móðir Guðrúnar, var
systir Einar Þórs, prófasts á Eiðum.
Guðrún Einarsdóttir.
Þórhildur var dóttir Þorsteins, b. á
Löndum, Kristjánssonar, b. á Lönd-
um, Þorsteinssonar, b. á Heyklif,
Sigm'össonar. Móðir Kristjáns var
Guðbjörg Jónsdóttir, b. í Keldu-
skógi, Guðmundssonar, bróður
Guðmundar, langafa Finns listmál-
ara og Ríkarðs myndskera Jóns-
sona. Móðir Þorsteins á Löndum var
Margrét Höskuldsdóttir, b. á Þver-
hamri í Breiðdal, Bjarnasonar,
bróður Jóns, langafa Jóns, foður
Eysteins, fv. ráðherra, og Jakobs,
prests og rithöfundar, Jónssona.
Móðir Þórhildar var Guðlaug,
systir Guöríðar, móður Péturs,
sýslumanns í Búðardal, Skúla
námsstjóra, og Pálínu Þorsteins-
dóttur, móður Björns Guðmunds-
sonar lagaprófessors. Guðlaug var
dóttir Guttorms, prófasts á Stöð,
bróður Páls, afa Hjörleifs Guttorms-
sonar alþingismanns og Sigurðar
Blöndals skógræktarstjóra. Gutt-
ormur var sonur Vigfúsar, prests á
Ási, Guttormssonar.
Guðrún verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Elisabeth Vilhj álmsson
Elisabeth Vilhjálmsson, Reykja-
hhð 12, Reykjavík. verður sjötug
mánudaginn 25.2. nk.
í tilefni þess verður opið hús að
Reykjahlíð 12 sunnudaginn 24.2. frá
klukkan 16.00. Þar sýnir hún næstu
daga frá klukkan 17.00-19.30 tölvu-
teiknaðar myndir og önnur verk
eftir sig.
Elisabeth afþakkar persónulegar
Guðmundur S. Guðmundsson.
Guðmundur S.
Guðmundsson
Guðmundur S. Guðmundsson
rekstrarráðgjafi, Garðsenda21,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Kona Guðmundar er Fríða Björg
Aðalsteinsdóttir.
Þau taka á móti gestum í Golfskál-
anum í Grafarholti frá klukkan
18.00 í dag.
gjafir en henni þætti vænt um að
gestir létu fremur gjafmildi sína í
ljós með framlagi til íþróttafélags
fatlaðra í Reykjavík.
Gjafakort fást á skrifstofu félags-
ins að Hátúni 14, Reykjavík, alla
virka daga frá 10.00-12.00 og frá
13.00-18.00.
Studioblóm
Þönglabakka 6
Njódd, sími 670760
Blóm og
skreytingar.
Sendingarjijónnsta.
Nunið bláa kortið.
90 ára 50 ára
Steingrimur Eggertsson, Ránargötu 1, Akureyri. Sigrún B. Halldórsdóttir, Erluhólum 3, Reykjavík. Gudmundur Sörlason,
80 ára Vesturbergi 81, Reykjavík. Kolbrún Ingólfsdóttir, Ásgarði 6, Reykjavík.
Guölaug Bjarnadóttir, Máváhlið 22, Reykjatdk. Anna Kristín Jónsdóttir, Heiðargerði 96, Reykjavik.
40 ára
Elisabet Ingvarsdóttir,
75 ára Eyjabakka 9, Reykjavík. Hjalti Berg Hannesson, Borgarholtsbraut 15, Kópavogi. Guðrún Margrét Sveinsdóttir, Álfhólsvegi 78, Kópavogi. Bergfiót Sigurðardóttir,
Guðjón Óiafsson, Blómsturvöllum, Skaftárhreppi.
70 ára Kristnesi 7, Hrafnaghshreppi. Hólmgeir Helgi Hákonarson, Snorrabraut 69, Reykjavík. Elísabet A. Kristjánsdóttir, Bakkastig 12B, Bolungarvik. Sveinbjöm Sveinbjörnsson, Sólbarði, Bessastaðahreppi. Edda Gísladóttir, Vallargerðí 7, Reyðarfirði.
Jóhannes G. Haraldsson, Freyjugötu 10, Sauðárkróki. Þórður Sigurðsson, Laufvangi 2, Hafnarfirði. Guðrún Geirsdóttir, Leifsstöðum, Austur-Landeyjahreppi.
Til hamingju með afmælið 24. febrúar
80ára 50 ára
Heigi Helgason Árnason, Hraunteigi 5, ReyKjavík. Þórunn S. Rafnar, Brautarlandi 8, Reykjavík. Arnfriður Rikarðsdóttir, Prestbakka 1, Reykjavík. Rannveig Matthíasdóttir, Holtagerði 84, Kópavogi.
75 ára
Ólöf Bernharðsdóttir, Vogatungu 11, Kópavogi.
Ketill R. Sigfússon, Háteigsvegi 22, Reykjavik. 40 ára
70 ára Ólafur Guðmundsson, Álftahólum 2, Reykjavfk.
Guðmundur Vignir Jósefsson, Rauðalæk 50, Reykjavík. Guðmundur Ingvarsson, Akurgeröi, Ölfushreppi. Reynir Örn Ólason, Silfurbraut 31, Höfn í Homafirði, Karl Hálfdánarson, Sólbrekku 20, Húsavik.
60 ára
Daníel Jónsson, Austurvegi 16, Þórshöfn. Zophonías Zophoníasson, Húnabraut 8, Blönduósi. Ingi S. Erlendsson, Hrauntungu 30, Kópavogi. Gunnar Eliasson, Höfðabraut 10, Akranesi. Kristján Svavarsson, Árgötu 2, Húsavik. Helgi Jónatansson, Flatahrauni 16B, Hafnarfirði. Ingi Valur Jóhannsson, Drápuhlíö 40, Reykjavlk. Hólmsteinn Pétursson, Bugðulæk 7, Reykjavík.
FANGELSISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
auglýsir eftir starfskrafti til að annast félagslega
þjónustu við fanga og sjá um eftirlit með þeim sem
dæmdir eru skilorðsbundið, fá skilorðsbundna
reynslulausn, náðun eða frestun afplánunar. Æski-
legt er að viðkomandi hafi félagsráðgjafamenntun
eða sambærilega menntun. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 623343.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Borg-
artúni 7, 150 Reykjavík, eigi síðar en 1. mars nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins, 12. febrúar 1991.