Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Síða 2
EÖSTUDAGUR 16. MARS .1991.
Fréttir
Stjómarliðar sammála um lánsflárlagafrumvarp:
Fjárlagahallinn eykst
enn um 2,2 milljarða
Landsvirkjun fær að hefla undirbúning að orkuframkvæmdum
Ráðherrar og þingmenn hafa fundað stíft að undanförnu um afgreiðslu þing-
mála. Hér situr Jón Helgason í forsetastóli og ræðir við Steingrím Her-
mannsson, forsætisráðherra, Jóhann Einvarðsson og Ólaf Ragnar Gríms-
son, fjármálaráðherra. DV-mynd: BG
Stjórnarliðar hafa orðið ásáttir um
umtalsverðar breytingar á lánsfjár-
lagafrumvarpinu fyrir 1991. Sam-
komulag er um að auka við láns-
heimildir fjármálaráðherra um 3,5
milljarða, þar af með erlendu lánsfé
upp á 600 milljónir. 1,3 milljarður er
ætlaður til endurlána en 2,2 milljarð-
ar til aukinna útgjalda, þar af 700
miiijónir til að flýta afborgunum á
eldri lánum.
Frumvarpið hefur verið að velkjast
í þinginu frá því í desember. Þá gerði
frumvarpið ráð fyrir lánsfjárþörf
ríkissjóðs upp á tæplega 11,9 millj-
arða en samkvæmt síðustu breyting-
um á því er nú gert ráö fyrir lánsfjár-
þörf upp á 15,4 milljarða.
Komi ekki til auknar tekjur ríkis-
sjóðs á þessu ári og nýti fjármálaráð-
herra sér þessar lánsfjárheimildir til
fulls er ljóst að fjárlagahalli þessa árs
mun aukast verulega. Samkvæmt
fjárlögum er gert ráð fyrir halla upp
á ríflega 4 milljarða en yrði 6,2 millj-
arðar verði lánsfjárlagafrumvarpið
samþykkt í núverandi mynd.
A þriðja tug breytinga
Alls hafa stjórnarliðar hugmyndir
um að gera á þriðja tug breytinga á
frumvarpinu. Meðal þessara hug-
mynda er að heimila fjármálaráö-
herra að kaupa jörðina Flekkuvík á
Keilisnesi fyrir nýtt álver. Takist
slíkir samningar ekki verði ráðherra
heimilað af Vatnsleysustranda-
hreppi að taka eignarnámi vatnsrétt-
indi, land, aðstöðu og önnur nauð-
synleg réttindi vegna byggingar ál-
vers á Keilisnesi og hafnar vegna
þess.
Þá er gert ráð fyrir að Landsvirkj-
un verði heimilað að taka 3,4 millj-
arða í erlend lán til fjármögnunar á
raforkuframkvæmdum fyrirtækis-
ins. Einnig leggja stjórnarliðar til að
Landsvirkjun verði heimilað að
fengnu samþykki ríkisstjórnar að
taka 800 milljónir í erlend lán til
undirbúnings Fljótsdalsvirkjunar,
stækkunar Búrfellsvirkjunar,
fimmta áfanga Kísilveitu og stofnlína
eins og nauðsynlegt er til þess að
unnt veröi að sjá nýju álveri fyrir
nægjanlegri raforku frá árslokum
1994.
Til að mæta vanda loðnuverk-
smiðja er lagt til að fjármálaráðherra
verði heimilað að taka allt að 600
milljónir í erlend lán og endurlána
að tveim þriðju hlutum tíl Fiskveiði-
sjóðs íslands og einum þriðja til Síld-
arverksmiðja ríkisins.
Að auki er lagt til að ráðherra verði
veitt heimild til að taka 100 milljónir
í lán til opinberra framkvæmda og
aögerða í atvinnumálum í byggðar-
lögum sem hart hafa orðið úti vegna
loðnubrests og slæms atvinnu-
ástands.
Niðurfelling gjalda
Lagt er til að hætt verði við að
skerða framlög til Framkvæmda-
sjóðs aldraðra og Bjargráðasjóðs,
fjármálaráðherra verði heimilt að
fella niður virðisaukaskatt af gjöfum
til björgunarsveita sem og til mann-
úðar- og líknarstarfa og rannsóknar-
stofnana.
Þá er lagt til að fjármálaráðherra
verði heimilað að fella niður opinber
gjöld sem tengjast fyrirhugðuðum
framkvæmdum Flugleiða við bygg-
ingu nýs flugskýlis á Keflavíkurflug-
velh og að veita meðferðarstöðinni
að Fitjum 20 milljónir í framlag.
Einnig er lagt til að 100 milljónir
verði teknar að láni til kaupa á þyrlu
fyrir Landhelgisgæsluna.
Auk þessara heimildaákvæða er
fjöldi annarra sem leitt geta til auk-
inna útgjalda fyrir ríkissjóð. Til
dæmis er gert ráð fyrir að ríkissjóður
yfirtaki um 1,2 milljaröa af skiddum
Byggðastofnunar hjá Framkvæmda-
sjóðiíslands. -kaa
Verkamenn vinna nú hörðum höndum við að rífa gamla prestsetrið á Bergþórshvoli, sem var orðið afar illa farið.
DV-mynd Brynjar Gauti
Gamla prestsetrið á Bergþórshvoli loks riíið:
Maöurinn sem flutti kíló af amfetamíni tíl landsins:
Ákærður fyrir stór-
fellt f íknief nabrot
- úrskuröaðurívarðhaldþartildómurgengur
Ríkissaksóknari gaf í gær út ákæru
á hendur manninum sem flutti um
eitt kíló af amfetamini til landsins í
febrúarmánuði. Sakadómur Reykja-
víkur hefur úrskurðað manninn í
áframhaldandi gæsluvarðhald eða
þar til dómur gengur í máli hans -
þó ekki lengur en til 15. maí. Máhð
verður því bráðlega tekið th dóms-
meðferðar í Sakadómi Reykjavíkur.
Úrskurðurinn um áframhaldandi
gæsluvarðhald yfir manninum var
kveöinn upp þar sem ætla má að
brot hans varði að minnsta kosti
tveggjá ára fangelsi. Eftir því sem
DV kemst næst hefur refsing varö-
andi innflutning á 10 grömmum af
amfetamíni varðað eins mánaðar
fangelsi. Samkvæmt því má ætla að
fangelsisrefsing umrædds manns
gæti mest orðið 100 mánuðir eða um
átta ár. Sami maður hefur áður hlot-
ið dóm vegna fíkniefnamáls.
Maðurinn er ákærður samkvæmt
þeirri lagagrein er kveður á um
ströngustu viðurlög vegna innflutn-
ings á fikniefnum. Heimht er að
dæma menn til 10 ára fangelsisrefs-
ingar samkvæmt þeirri lagagrein.
Maðurinn flutti um eitt kíló af
amfetamíni th landsins í febrúar með
því að senda sjálfum sér fíkniefnin
vel fahn í stofuborði th afgreiðslu
Flugfraktar Flugleiða. Tohverðir í
Reykjavík komust á snoðir um efnin
og var maðurinn handtekinn eftir að
hafa vitjað þeirra. Hann var í fram-
haldinu úrskurðaöur í gæsluvarð-
hald sem nú hefur verið framlengt.
Við yfirheyrslur hjá fíkniefnalög-
reglunni játaði maðurinn að hafa
keypt efnin í Hollandi en sent þau frá
Lúxemborg. Hann gekkst einnig við
því að hafa selt um hálft kíló af hassi
th að fjármagna kaupin á amfetamín-
inu. Hann er þó ekki ákærður fyrir
þá sölu.
-ÓTT
Eg er mjög ánægður
- segir séra Páll Pálsson
„Ég er mjög ánægður með að nú
skuli loksins hafa verið hafist handa
við að rífa gamla prestsetrið. Ég er
búinn að berjast fyrir því í 10 ár að
það verði fjarlægt, án þess að á mig
væri hlustað," segir Páll Pétursson,
sóknarprestur á Bergþórshvoli.
Það var í byijun vikunnar sem
verkamenn hófust handa við að rífa
húsið.
Ekki hefur verið búið í gamla hús-
inu síðan árið 1975 og allar götur síð-
an hefur það verið að drabbast nið-
ur. DV heimsótti Bergþórshvol í fe-
brúar síðasthðinn og tók myndir af
húsinu og í kjölfar þess birtist frétt
í blaðinu undir yfirskriftinni: Ósómi
í þjóðbraut. í henni var meðal ann-
arra rætt við ráðuneytisstjóra í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu þar
sem hann sagðist ekki hafa hugmynd
um hyers vegna væri ekki búið að
rífa gamla húsið.
Það eru þúsundir manna sem
heimsækja þennan sögufræga staö á
ári hverju en hvaða hugmyndir hef-
ur séra Páll um framtíðarskipan
mála á staðnum:
„Það er náttúrlega margt sem hægt
er að gera en númer eitt er að gera
aðkomuna hlýlega og fallega fyrir
alla þá ferðamenn sem hingað koma.
Það þyfti að leggja göngustíga. En
fyrst þyrfti þó að byija á því að slétta
grunninn og græða upp sárið. Svo
mætti hugsa sér að reisa minnis-
merki uppi á hólnum þar sem allir
gömlu Bergþórshvolsbæirnar hafa
staðið. Á því mætti hafa texta á ís-
lensku og erlendum tungumálum
þar sem greindi frá helstu staðreynd-
um í sögu staðarins. Efst á hólnum
væri svo sjálfsagt að setja útsýnis-
skífu þar sem bent væri á öh þekkt-
ustu kennileitin í nágrenninu," segir
Ný stjama á skákhimninum:
Ivanchuk sigraði í Linares
Sovétmaðurinn ungi, hinn 21 árs
Váshy Ivanchuk, sló heldur betur
í gegn á skákmótinu mikla í Linar-
es á Spáni - öflugasta móti frá upp-
hafi hvað skákstigum keppenda
viðkemur. Hann varð ekki aðeins
efstur á mótinu með 9 'A v. eftir
jafntefli við Timman á svart í loka-
umferðinni í gær, heldur vann
hann það mikla afrek að sigra 3
stigahæstu skákmenn heims,
Kasparov heimsmeistara, Karpov
og Gelfand á mótinu. Þarna er á
ferð efni í heimsmeistara.
Ivanchuk og Timman gerðu jafn-
tefli í 24 leikjum en Kasparov tókst
ekki að vinna Yusupov í gær.
Missti niður vinningsstöðu og þeir
sömdu um jafntefli eftir 40 leiki.
Heimsmeistarinn varð því hálfum
vinningi á eftir Ivanchuk með 9 v.
Karpov vann Beljavsky í 63 leikj-
um, Kamsky vann Ehlvest,
Gurevich vann Gelfand, Salov
vann Anand en jafntefli varð hjá
Speelman og Ljubojevic.
Lokastaðan á mótinu. Ivanchuk
9 ‘/2, Kasparov 9, Beljavsky 8, Speel-
man og Yusupov 7‘A, Salov 7, Tim-
man og Karpov 6'A, Anand,
Ljubojevic og Gurevich 6, Gelfand
5'4, Ehlvest 314 og Kamsky 2'4.
-hsím