Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Blaðsíða 3
FÖSTUÐAGUR 15. MARS 1991.
Fréttir
Dæmd fyrir að kæra
tvo menn ranglega
x?
Sakadómur Reykjavíkur hefur
dæmt 21 árs konu í 45 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir rangan upp-
ljóstur vegna nauögunar sem ekki
átti sér stað. Mjög óvenjulegt er að
kona, sem kærir nauðgun, sé síðar
ákærð og sakfelld fyrir að hafa
spunnið upp sögu hjá lögreglu.
Konan kærði tvo menn fyrir að
hafa nauðgað sér í bifreið við kirkju
í Breiðholti í október síðastliðnum.
Sagðist hún hafa séð mennina áður
en ekki vita um nöfn þeirra. Konan
bar hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
að mennirnir heföu tekið sig upp í
bifreið þeirra hjá Bjórhöllinni og
ekið með sig að kirkjubyggingu í
Breiðholti. Þar áttu báðir mennirnir
að hafa komið fram vilja sínum áður
en þeir hentu henni út úr bílnum.
Rannsóknarlögregla ríkisins yfir-
heyrði sex menn vegna málsins. Af
þeim var einn grunaður um að hafa
átt aðild að verknaðinum. Læknis-
skoðun benti hins vegar til að nauðg-
un hefði ekki átt sér stað. RLR lagði
mikla vinnu í málið en fljótlega fór
að gæta verulegs misræmis í frá-
sögnum konunnar. Þegar 25 dagar
voru liðnir frá því hún kærði at-
burðinn dró hún kæruna til baka. í
kjölfarið ákærði ríkissaksóknari
konuna fyrir rangan uppljóstur.
Málið var síðan sent sakadómi. í nið-
urstöðu sakadóms segir meðal ann-
ars að konan sé sakfelld fyrir rangar
sakargiftir sem leiddu til rannsóknar
og yflrheyrslu lögreglu á sex aðilum,
þar af einum sem sætti réttarstöðu
grunaðs manns. Niðurstaðan var að
brotið væri alvarlegt og varðaði
þyngstu refsingu eftir hegningarlög-
um.
Konan var dæmd í 45 daga skilorðs-
bundið fangelsi. Við ákvörðun refs-
ingar tók sakadómur mið af ungum
aldri konunnar og að hún hefur ekki
sætt refsingu áður. Sverrir Einars-
son, sakadómari í Reykjavík, kvað
upp dóminn.
-ÓTT
55=
’'ö
Veitingastadur
í miðbæ Kópavogs
---Æ,
Tilbod vikunnar
Lax- og skelfiskpaté med sýrðri rjómasósu
eða rjómalöguð aspargussúpa.
Rauðvínsmarinerað lambafillet með villi-
sveppasósu, grœnmeti og bakaðri kartöflu.
Kr. 1.190
Skyndibitatilboð virka daga.
Hamraborg 11 - sími 42166
m.
s
I
Tölur sem tctlct sínu mtxli
INNLAN
27,2 milljarftar
Heildarinnlán Búnaðarbankans 31.12.1990
námu alls 27,2 milljöröum króna.
Innlánsaukning á árinu 1990 nam
5,4 milljöröum króna eða 25|1%
Þetta er mesta innlánsaukning viðskiptabanka
á árinu 1990 og jafnframt mesta innlánsaukning
innlánsstofnana í krónum talið.
Þetta er einföld staöreynd sem talar
sínu máli um traustan banka.
Hlutdeild Búnaðarbankans í innlánum
viðskiptabankanna var:
UTLAN
25,0 milðjaröar
Heildarútlán Búnaðarbankans 31.12.1990
námu alls 25,0 milljöröum króna.
Skipting útlána var eftirfarandi:
Opinberir aðilar
20.8%
31.12.1989 24,0%
31.12.1990 26,3%
Einstaklingar
16.6%
Sjávarútvegur
6.6%
Samgöngur og þjónusta
15.2%
Landbúnaður
17.2%
lönaður
10.3%
Verslun
13.3%
BUNAÐARBANKINN
- Traustur banki