Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Síða 5
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991.
5
Fréttir
Rithöfundur gistir í tjaldi á Reykjavikurflugvelli:
í tveggja ára heimsreisu
Claytor nývaknaður i tjaldi sinu á Reykjavíkurflugvelli á tali við blaðamann DV. Á innfelldu myndinni má sjá hvar
hann hefur komið sér upp haganlegri snúru og hengt þvott sinn til þerris. „Fyrst fraus hann en þornaði svo að
lokum,“ sagði landkönnuðurinn. DV-myndir GVA/BG
„Ég var tvo mánuði á Grænlandi
áður en ég kom til Reykjavíkur. Þar
var 30 gráðu frost. Miðað við það
finnst mér veöráttan hér minna
meira á vor- en vetrarveðráttu," seg-
ir Thomas Claytor, flugmaður og rit-
höfundur. Hann dvelur þessa dagana
í tjaldi við væng flugvélar sinnar á
Reykjavíkurflugvelh.
Claytor er í heimsreisu sem á að
taka tvö og hálft ár. Að henni lokinni
ætlar hann að rita bók um ferð sína.
Það er vika síðan hann kom til
Reykjavíkur en hann ætlar að vera
á íslandi í um það bil mánuð. „Mig
langar til að fara út á land og heim-
sækja þorpin þar og kynnast fólkinu
sem byggir þau. Ég býst við að ég
leggi í hann innan skamms þó ég sé
ekki enn búinn að ákveða nákvæm-
lega hvaða staði ég heimsæki.
Þetta er kostnaðarsöm ferð og ég
get sparað mér peninga með því að
búa í tjaldi í stað þess að gista á hótel-
um, það er miklu ódýrara.
Ég er að hluta til styrktur til farar-
innar af einstakhngum og félagasam-
tökum en upphafleg kostnaðaráætl-
un gerir ráð fyrir að ferðin muni
kosta 70 þúsund dollara eða tæpar
fjórar milljónir íslenskra króna.
Tilgangur ferðarinnar er að heim-
sækja þau samfélög heimsins sem
eru í útjaðri heimsmenningarinnar
og skoða þær breytingar sem hafa
orðið á þeim á undanfornum árum
og áratugum. Ég mun heimsækja
lönd í öllum heimsálfununum og
Suðurskautslandið verður síðasti
viðkomustaðurinn áður en ég held
til baka til Bandaríkjanna."
Ef ferðin gengur að óskum verður
Claytor fyrsti flugmaðurinn sem
heimsækir ahar álfurnar í einum og
sama leiðangrinum. Hann kemur því
einnig til með að setja nýtt heimsmet
á þessum tveimur og hálfa ári sem
hann áætlar að ferðin muni taka sig.
„Áhuginn á þessum leiðangri
vaknaði fyrst þegar ég vann sem
flugmaður í Afríku en þar var ég í
þrjú og hálft ár og vann meðal ann-
ars fyrir National Geographic Ex-
plorer’s. Þar heimsótti ég afskekkta
staði þar sem villtum dýrategundum
hafði verið útrýmt og einnig staði þar
sem maðurinn hafði gengið á lífríki
regnskóganna. í kjölfarið hafði líf
fólks á þessum slóðum tekið miklum
breytingum. Mig langaði til að sjá
hvort svipuð þróun hefði átt sér stað
á öðrum afskekktum stöðum í heim-
inum. Dvölin í Afríku var líka góður
undirbúningur undir þennan leið-
angur,“ segir Claytor.
Frá íslandi mun svo leið rithöfund-
arins fljúgandi liggja um Evrópu þar
sem hann mun dvelja næstu mánuð-
ina.
-J.Mar
Sjö mánaöa skilorðsbundið fangelsi:
Dæmdur fyrir
húsbrot og
líkamsárás
- réðst nakinn inn í herbergi hjá ungum bamfóstrum
Hæstiréttur hefur mildað refsi-
ákvæði héraðsdóms yfir rúmlega
þrítugum manni sem ákærður var
fyrir húsbrot, nauðgunartilraun og
alvarlega líkamsárás. Ríkissaksókn-
ari krafðist einnig sviptingar öku-
réttinda vegna ölvunaraksturs
mannsins. Hæstiréttur dæmdi sak-
borninginn til að sæta sjö mánaða
fangelsi, skilorðsbundið. í héraði var
maðurinn dæmdur í sjö mánaða
fangelsi - þar af þrjá mánuði óskil-
orðsbundið.
Atburðurinn átti sér staö að nætur-
lagi á Kirkjubæjarklaustri sumarið
1989. Maðurinn, sem er af Suðurnesj-
um, hafði verið í veiðiferð ásamt fé-
lögum sínum og ók bifreið sinni á
staur og í gegnum girðingu umhverf-
is kapelluna á Kirkjubæjarklaustri.
Samkvæmt lögregluskýrslum rudd-
ist maðurinn síðan inn í íbúðarhús
í byggðakjamanum. Vakti hann tvær
15 ára bamfóstrur upp þegar hann
ruddist allsnakinn inn í herbergi til
þeirra. Annarri stúlkunni mis-
þyrmdi hann og reyndi að fá hana
til fylgilags við sig, segir í lögreglu-
skýrslu. Maðurinn var ölvaður.
í héraðsdómi var maðurinn sak-
felldur fyrir húsbrot og líkamsárás
og fyrir að hafa misboðið stúlkunni
kynferðislega. Þar var hann dæmdur
í sjö mánaða fangelsi - þar af fjóra
mánuði skilorðsbundið. Máhnu var
áfrýjað til Hæstaréttar.
í dómi Hæstaréttar segir að maður-
inn hafi lítið getað borið um atvikið
vegna minnisleysis af völdum áfeng-
isdrykkju. Engin vitni voru að at-
burðinum nema stúlkurnar tvær en
þær komu ekki fyrir héraðsdóm.
Hæstiréttur taldi framferði manns-
ins gagnvart annarri telpunni sær-
andi og til þess falliö að valda henni
miklum ótta. Þó þótti ósannað að
fyrir manninum hefði vakað að
þröngva henni með ofbeldi til hold-
legs samræðis. Maðurinn var því
sýknaður í Hæstarétti af því ákæru-
atriði.
Héraðsdómari sakfelldi manninn
fyrir að hafa misboðið stúlkunni
kynferðislega, þó ekki fyrir nauðg-
unartilraun. Þar sem í ákæru ríkis-
saksóknara var ekki verknaðarlýs-
ing á slíku kom ekki til álita í Hæsta-
rétti að refsa samkvæmt því. Ákvæði
héraðsdóms varðandi húsbrot og al-
varlega hkamsárás, svo og sviptingu
ökuréttinda, voru hins vegar staðfest
í Hæstarétti. Refsing mannsins þótti
því hæfilega ákveðin 7 mánaða fang-
elsi - öll refsingin skal vera skilorðs-
bundin. Sakborningnum var einnig
gert að greiða sakarkostnað.
í undirrétti dæmdi í málinu Sigurð-
ur Hallur Stefánsson héraðsdómari
í Keflavík. í Hæstarétti dæmdu í
máhnu hæstaréttardómararnir Guö-
rún Erlendsdóttir, Bjarni K. Bjama-
son, Hjörtur Torfason, Hrafn Braga-
sonogÞórVilhjálmsson. -ÓTT
„Þjófagengi“ á Akureyri?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ekki er talið ólíklegt að sömu aðilar
hafi verið aö verki í þremur inn-
brotum sem framin hafi verið á Ak-
ureyri síöustu daga.
Þessi innbrot eiga það sammerkt
að í öllum tilfeUunum hafa verið
unnar miklar skemmdir á innbrots-
stöðunum, hurðir sparkaðar upp og
skemmdir unnar á annan hátt. Menn
nyrðra eru farnir að ræða það að
sama „þjófagengið“ sé þarna á ferð-
inni, en innbrotin þrjú em óupplýst.
Tvö þeirra voru framin um helg-
ina, í Barnaskóla Akureyrar og í
Skipasmíðastöðinni Vör hf. í fyrri-
nótt var síðan farið inn í Endur-
hæfingarstöðina Bjarg, miklar
skemmdir unnar á innréttingum og
einhverjum tugum’ þúsunda króna
stohð.
Bjóddu
fermf ngarbarnf nu
framtíðarefgn
Markmið NAD er að framleiða hágæða hljómtæki sem þjóna sínum
tilgangi. Allar tór.stillingar eru einfaldar í notkun og hafa hagnýtan
tilgang. Engin áhersia er lögð á tilgangslitla stillitakka og Ijósabúnað sem
hækka verð tækjanna, heldur gæði sem heyrast. NAD hljómtækin hafa
áunnið sér alheimsviðurkenningu í öllum helstu fagtímaritum fyrir gæði og
gott verð.
í þessu tilboði eru eftirtalin tæki:
NAD 7020i Útvarpsmagnari 2x40 vött
NAD 5320 Geislaspilari
WHARFEDALE Delta 30, 100 vatta enskir verðiaunahátalarar
Verðið er aðeins kr. 63.000 staðgreitt.
þar sem gœðin heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840, 685149, 83176