Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991.
Útlönd
FmgurmeSn eyðilagði kynlífið
Áfrýjunarréttur á Nýja-Sjálandi hefur synjað ósk manns nokkurs um
sérstakar bætur vegna skurðar sem hann fékk á litlafmgur við húsverk.
Maðurinn segir að kaunið komi illa við kynlíf sitt og hafi í reynd valdið
honum varanlegri örorku, Hann sagðist fyrir rétti vera viðþolslaus af
verk í hendinni þegar hann sængaði með konum.
Hinn ólánsami er 46 ára gamall einstæður faðir og heitir Brian Arthur
Fumell. Hann lýsir örorku sinni svo að eftir að hann skar sig í fingurinn
eigi hann erfitt meö að styðja sig við vinnu þvi hann treysti ekki hönd-
inni. Þá segist hann lifa í stöðugum ótta við aö missa það sem hann held-
ur á og þar að auki hefur hann ekki getað leikið keilu eftir slysið vegna
sársauka í fingrinum. Þá segist Fumell ekki þora lengur aö fara á krána
sína af ótta við að brjóta veíka fmgurinn i slagsmálum.
í fyrstu höfðu Furnell verið dæmdar bætur vegna fingursins en hann
fékk aðeins sem svaraði til nokkurra þúsunda íslenskra króna en vildi
fá fullar örorkuhætur. í áfrýjunarréttinum hafhaði dómarinn öllum kröf-
um og tók útlistanir mannsins á örorkunni ekki til greina.
Slóvakar gera hróp að Vaclav Havel
Flokkur fasista hefur sig nú æ meira í frammi í Slóvakíu. Þeir berjast
fyrir sjálfstæði héraðsins og skiptingu Tékkóslóvakiu.
Símamynd Reuter
Reiðir þjóðernissinnar ffá Slóvakíu geröu hróp að Vaclav Havel, for-
seta Tékkósíóvakíu, og hann fylgdist með kröfugöngu þeirra. Slóvakar,
sem búa í austurhluta landsins, krefjast sjálfstæðis enda segja beir að
Tékkar ráði mestu í sambandi þjóðanna tveggja.
Havel fór skyndilega til Bratislövu, höfuðborgar Slóvakíu, og hvatti
heimamenn til aö falla frá hugmyndum um að kljúfa Tékkóslóvakíu í
tvent. í Bratislövu var haldið upp á aö 52 ár eru hðin frá því Slóvakía
var lýst sjálfstætt ríki. Þrátt fyrir mikinn æsing i borginni fór Havel á
aðaltorgið. Þar var m.a. 5000 manna hópur félaga i gamla fasistaflokki
landsins og höfðu þeir sig einkum í frammi gegn forsetanum.
Hróp eins og „Farðu heim til Prag, Júdas,“ heyrðust frá fasistunum og
mikið uppnám varð i mannþrönginni. Hópur lífvarða fylgdi forsetanum
og slapp harrn án meiösla. Eftir aðtvikið sagði Havel í sjónvarpi að aðeins
með þj óðaratkvæðagreiðslu væri hægt að skera úr um framtíð Slóvakíu
innan ríkjasambandsins.
Imelda ætlar heim að svara til saka
Imelda Marcos ætlar heim til
Filippseyja og mæta þar fyrir rétti
vegna ásakana um spillingu og
stuld á opinberu fé. Imelda hefur
ekki komið heim frá því hún og
Ferdinand heitinn forseti hröktust
í útlegö árið 1986. Lögfræðingur
Imeldu segir hún hafi mikinn hug
á aö komast heim og standa fyrir
máli sínu.
„Hún er mjög sátt við þessa niö-
urstöðu, mjög sátt,“ sagði lögfræð-
ingurinn eftir að stjórnvöld á
Filippseyjum létu þau boö út ganga
að útlegð forsetaekkjunnar væri
senn lokið. Hún yrði hins vegar aö
gera sér grein fyrir að hennar biöu
réttarhöld við heimkomuna. Frétt-
in hefur reyndar ekki verið staöfest
formlega en embættismenn segja
að svo geti farið að Imelda komi
heim í næsta mánuði. Imelda er
nú í New York en lengst af hefur
hún verið í útlegðinrú á Hawaúeyj-
um og þar Iést maður hennar árið
1989.
Imelda Marcos, fyrrum forsetafrú
á Filippseyjum, hefur hug á að
komast heim og standa þar fyrir
málisínu. Simamynd Reuter
Tíræður sjúklingur stökk út um glugga
Tæplega tiræður Hollendingur liföi af fall út um glugga á þriðju hæð
sjúkrahússins þar sem hann átti að liggja banaleguna. Honum leiddist
meðferð lækna og hjúkrunarfólks og ákvað að kasta sér út um giugga.
Fyrir neðan var sólskyggni og fór raaðurinn í gegnum það. Hann slasað-
ist óveruiega en var iagöur inn aftur.
Maðurixm er 99 ára og var fyrir nokkrum dögum iagöur inn á gjörgíeslu-
deild sjúkrahúss í Amsterdam. Hann bar síg allan tímann illa undan vist-
inni og reif sig á endanum lausan frá öllum tækjum og tólum og freist-
aöi útgöngu. Eftir flóttatilraunina er hann þó ekki lengur í gjörgæslu.
Rcuter
George Bush og Francois Mitterrand ræddu saman á eyjunni Martinique. Þeir voru sammála um nauðsyn þess
að leysa deilumálin í Mið-Austurlöndum en ekki hvernig.
Simamynd Reuter
Bush og Mitterrand ræða vandamál Mið-Austurlanda:
Bush vill ryðja
Araf at úr vegi
- forsetamir ósammála um leiðir til friðar
George Bush Bandaríkjaforseti og
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti eru sammála um að nú sé
rétti tíminn til að koma á sáttum
milli ísraela og Palestínumanna. Þeir
ræddu málefni Miö-Austurlanda á
fundi á eyjunni Martinique í Karíba-
hafi en komust ekki að sameiginlegri
niðurstöðu um hvað bæri að gera á
þessari stundu.
Fundur forsetanna þótti mjög af-
slappaður og eftir að þeir höföu snætt
saman sögðust þeir sammála um aö
viðræðurnar heföu verið mjög gagn-
legar þótt enn bæri mikið í milli. Á
undanfórum árum hafa Frakkar
hallast aö stuðningi við Palestínu-
menn. Ágreiningur Bandaríkja-
manna og Frakka um málefni Miö-
Austurlanda er því enn óbreyttur
þótt viljinn til að ná samkomulagi sé
meiri nú en oft áður.
„Það er skemmst frá því aö segja
að við náðum ekki samkomulagi um
sameiginlega leið til að leysa deilu-
mál ísraela og Palestínumanna. Þó
viðurkennum við báðir að deiluna
verður að leysa,“ sagði Bush eftir
fundinn.
Mitterrand sagði að Frelsissamtök
Palestínu, PLO, væru enn löglegur
málsvari Palestínumanna og að ekk-
ert yrði gert til að leysa deiluna án
þess að samtökin væru með í ráðum.
Bandaríkjamenn hafa verið tregir til
að viðurkenna PLO sem samnings-
aðila vegna andstöðu ísraela.
Bush lagði áherslu á að Yasser
Arafat, leiðtogi PLO, hefði sett mjög
ofan með stuðningi sínum við Sadd-
am Hussein í Persaflóastríðinu.
Hann sagðist vonast til að hófsamari
leiðtogar Palestínumanna gætu ef til
vill samið um lausn sem væri lík-
legri til að ná fram að ganga. Með
þessu er Bush að gefa í skyn að
Bandaríkjamenn eigi umfram allt
erfitt með að sætta sig við Arafat og
séu tilbúnir að ganga lengra til móts
viö þá ef ný forysta tæki við innan
PLO.
Arafat svaraði þessu í morgun og
sagði að hann hefði ekki í hyggju að
víkja úr embætti. Þá sagði hann í
viðtali við New York Times að PLO
stæði nú betur að vígi en áður þrátt
fyrir andúð Vesturlandabúa í kjölfar
Persaflóastríðsins. Reuter
Ástin eftir Persaflóastríðið:
Peter Arnett trúlof aður
Bandaríski fréttahaukurinn Peter
Arnett er nú trúlofaður Kimberley
Moore, 24 ára gamalli stúlku frá
Florida í Bandaríkjunum. Hjónaleys-
in eru nú stödd i ísrael og gerðu þar
lýðum ljósa fyrirætlun sína um að
ganga í hjónaband. Mikill aldurs-
munur er á þeim því Arnett er á sex-
tugsaldri.
Kimberley Moore er fréttamaður
viö ensku deildina hjá sjónvarpinu í
ísrael og er því á sama starfsvett-
vangi og Amett. Þau hafa þekkst um
nokkurt skeið en urðu að bíða þess
að átökum við Persaflóa lyki til að
geta látið verða af trúlofuninni.
Amett er frægasti stríðsfréttaritari
heims. Hann hefur flutt fréttir af öll-
um helstu átökum í heiminum allt
frá því snemma í Víetnamstríðinu.
Eiginlega heimsfrægð hlaut hann þó
ekki fyrr en í Persaflóastríðinu þegar
hann var lengi eini vestræni frétta-
maðurinn í Bagdad. Arnett vinnur
fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina
CNN og á stóran þátt í aö auka veg
hennar og virðingu.
Reuter
Sjónvarpsfréttamaðurin Peter Arnett og fréttakonan Kimberley Moore opin-
beruðu trúlofun sína í ísrael í gær. Simamynd Reuter