Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
VALUR
Aöalfundur Knattspyrnufélagsins Vals verður haldinn
fimmtudaginn 21. mars 1991 kl. 20.00 í félags-
heimili Vals að Hlíðarenda.
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf skv. 7. gr. samþykkta fé-
lagsins.
Stjórnin
VETRARTILBOÐ
Uflönd
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, hefur tapað miklu af því áliti sem hann hafði áunnið sér á Vesturlöndum fyrir Persa-
flóastríðið. Dr. Eugene Makhalouf segir að Arafat hafi þó enn fullan stuðning þjóðar sinnar. Hér sést hann í heim-
sókn hjá Saddam Hussein i Bagdad 23. október í haust. Simamynd Reuter
Dr. Eugene Makhlouf, upplýsingafulltrúi PLO, í viðtaii við DV:
HAFIÐ SAMBAND I SIMA
91-61-44-00
BlLALEIGA ARHARFLUGS
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
FLUGMENN FLUGAHUGAMENN !!
WE SEEK QUALIFIED STUDENTS IN ICELAND
WITH AIRLINE PILOT CAREER AMBITIONS
i ACADEMY OFFICERS WILL BE IN REYKJAVIK IN
APRIL 1991 TO PRESENTTHE SCHOOL,
CONDUCT ADMISSIONS TEST AND
PERSONAL INTERVIEWS
rMINIMUM QUAUFICATIONS: 18 YEARS OLD PRIOR TO ACA GRADUATION,
HIGH SCHOOL GRADUATE OR EQUIVALENT, PASS AN FAA MEDICAL EXAM.
RESIDENT PROGRAMS START IN'JANUARY, APRIL, JULY & OCTOBER
IF YOUR INTEREST IS GENUINE AND YOUR DESIRE SINCERE, CONSIDER
ENTERING THE CAREER PATH TRAVELLED BY MANY OF OUR OTHER GRADS
WHO TODAY FLY FOR MAJOR AIR CARRIERS IN THE U.S. AND ABROAD.
THINK YOU MIGHT QUALIFY?
PHONE, FAX OR WRITE US TODAY FOR MORE DETAILEDINFO ON TRAINING
WITH ACAIN THE U.S. NORTHEAST CORRIDOR AND OUR VISIT TO ICELAND.
TRE ACAÐEMTS PR0GRAMS ARE FAA APPR0VED AN0 WE ARE DESIGNATED BY M U.SJ A T0 ACCEPT KTERNAT10NAL
STTJ0ENTS JNOER THEI8 M0NTH J-1STTJ0ENT EXCHANGE PROGRAM KCUJOING PRACTICAL TRAIMNG AFTER GRADUAT10N
AVIATION CAREER ACADEMY
FOSTERTOWN ROAD, MEDFORD, NEW JERSEY 080S5 U.S.A.
TEL: 609-267-1200 • FAX: 609-265-1111
Professionals in Pursuit of Excellence
„Almennings-
áíitið kaus ekki
Yasser Arafat“
- Palestínumenn binda vonir við fríðarför Bakers
Dr. Eugene Makhlouf hitti Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra og
einnig Steingrím Hermannsson forsætisráöherra og kynnti þeim afstöðu
PLo. DV-mynd GVA
„Yasser Arafat var ekki kjörinn til
valda af almenningsálitinu í heimin-
um heldur af sínu eigin fólki. Það
styöur hann enn, hvað sem sagt er á
Vesturlöndum," sagði dr. Eugene
Makalouf, upplýsingafulltrúi Palest-
ínumanna á Norðurlöndum, í viðtali
við DV.
Dr. Eugene er staddur hér til að
kynna málstaö Palestínumanna nú
þegar meiri von er um að þeir fái
lausn á málum sínum en verið hefur
mörg undanfarin ár. Þó er ljóst að
Palestínumenn eru í miklum vanda
vegna stuðnings síns viö íraka í
Persaflóastríðinu.
Þar mæðir mikið á Arafat sem að
mati margra hefur glatað mestu af
því áliti sem hann haföi áunnið sér
á Vesturlöndum síöustu ár. Dr. Eug-
ene vill þó ekki túlka stöðu Arafats
svo aö hann standi höllum fæti á
meöan hann nýtur stuðnings þjóðar
sinnar.
Stöndum betur að vígi en áður
„Ég fullyrði að við stöndum sterkar
að vígi nú en fyrir Persaílóadeiluna.
Styrkur okkar veltur á fólkinu sem
styöur okkur. Frelsissamtök Palest-
ínumanna eru eins sterk og fólkið
vill hafa þau,“ sagöi dr. Eugene.
„Það eina sem Arafat geröi var að
túlka skoðun Palestínumanna. Það
studdi íraka gegn ógninni sem steöj-
aöi að írösku þjóðinni. Það voru fleiri
möguleikar en aö vera annað hvort
með eða á móti Bandaríkjamönnum
því eins og viö vitum þá er heimurinn
ekki bara svartur eða hvítur. En það
er rétt að þeir sem studdu okkur
aðeins í orði áöur hafa snúið við okk-
ur baki en við þurfum ekki á slíkum
stuöningi að halda.“
Dr. Eugene sagði að viðleitni
Bandaríkjamanna nú til að koma á
friði í Mið-Austurlöndum og að finna
lausn á vanda Palestínumanna benti
til að PLO heföi þrátt fyrir allt ekki
glatað allri viröingu umheimsins.
Bush viöurkennir pólitísk rétt-
indi Palestínumanna
„George Bush Bandaríkjaforseti
hefur í fyrsta sinn talað um pólitísk
réttindi Palestínumanna. Áður höfðu
Bandaríkjamenn aðeins talað um
mannréttindi þeim til handa. Þetta
er ný áhersla hjá þeim og mikilvægt
skref í áttina að koma til móts við
kröfu okkar um fóöurland," sagði dr.
Eugene.
, ,Núna veltur allt á því hvaða þrýst-
ingi Bandaríkjamenn treysta sér til
aö beita ísraela. Ég hef trú á því að
ferð James Baker utanríkisráðherra
eigi eftir að leiða gott af sér þótt við
vitum ekki enn hvaö hefur verið
rætt bak við tjöldin. Viö veröum aö
sýna þolinmæði.“
í gær talaði Baker um að glufa hefði
opnast fyrir frið eftir að hann hafði
átt langar viðræður með Assad Sýr-
landsforseta. Afstaða Sýrlendinga
ræður miklu um framhaldið, ekki
síður en afstaða ísraela. Baker talaði
um lausn á vanda Palestínumanna á
grundvelli ályktana Sameinuðu
þjóðanna en til þessa hafa Banda-
ríkjamenn ekki veriö fúsir til að
fylgja þeim ályktunum eftir.
Enn járn í járn á herteknu
svæðunum
Eftir stendur þó að ísraelsmenn
vilja ekki sleppa hendi af herteknu
svæðunum sem þeir lögðu undir sig
í Sex daga stríðinu 1967. Palestínu-
menn telja sig hins vegar hafa laga-
legan rétt til þessara svæða og dr.
Eugene ítrekaði þá afstöðu í viðtal-
inu. Hann sagðist lengi hafa trúað
því að á endanum yrðu ísraelsmenn
að láta undan og skila þessum svæð-
um.
„Ég hef enn trú á að þetta gerist
þótt ég vilji ekki gerast sekur um of
mikla bjartsýni. Ég veit að Banda-
ríkjamenn hafa ekki sömu hags-
muna að gæta við að leysa Palestínu-
málið eins deiluna um Kúvæt. Ég
vona að þeir ákveði að fylgja einnig
eftir ályktunum Sameinuðu þjóð-
anna um Palestínu en fyrir alla muni
ekki með sömu aöferðum og í Kú-
væt,“ sagði dr. Eugene.