Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1991, Blaðsíða 17
16
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991.
íþróttir
Hrun í síðari hálfleik
- þegar ísland tapaöi fyrir Ítalíu, 18-14, á heimsmeistaramótinu
• Guðný Gunnsteinsdóttir, fyrirliði
islenska landsliðsins, átti góðan leik
í gær og skoraði 3 mörk.
íslenska kvennalandsliðið tapaði
fyrir ítölum, 14-18, í fyrsta leik sínum
í C-heimsmeistarakeppninni sem nú
stendur yfir á Ítalíu. ísland hafði
tveggja marka forystu í leikhléi, 10-8,
en í síðari hálfleik gekk ekkert upp
hjá liðinu og ítölsku stúlkurnar sigu
fram úr og sigruðu örugglega.
„Það voru margir jákvæðir punkt-
ar í leik liðsins og þá sérstaklega í
varnarleiknum. Við lékum vel í fyrri
hálfleik en í síðari hálfleik breytti
ítalska liðið um varnaraðferö, lék þá
5:1 vörn og það virtist setja okkar
stelpur út af laginu. Ef við hefðum
leikið eðlilega í síðari hálfleik þá
hefði sigurinn lent okkar megin en
ég tel okkur eiga nokkuð inni og þá
sérstaklega betri markvörslu,“ sagði
Gústaf Björnsson landsliðsþjálfari í
samtali við DV.
Að sögn Gústafs áttu þær Guðný
Gunnsteinsdótti? og Björg Gilsdóttir
bestan leik íslenska liðsins.
• Mörk íslands: Guðríður Guðjóns-
dóttir 4/1, Guðný Gunnsteinsdóttir
3, Erla Rafnsdóttir 2, Ósk Víðisdóttir
1, Halla Helgadóttir 1, Björg Gils-
dóttir 1, Inga Lára Þórisdóttir 1 og
Svava Sigurðardóttir 1.
• Næsti leikur íslenska liðsins er
gegn Portúgal á sunnudag. Portúgal
tapaði í sínum fyrsta leik fyrir Finn-
landi, 14-16, en í gær sigraði Portúg-
al lið Belgíu, 18-16.
„Leikurinn gegn Portúgölum
leggst ágætlega í okkur. Eins og stað-
an er í dag eigum við raunhæfa
möguleika á 6 stigum og ef þetta
gengur eftir þá er 3. sætið í riðlinum
tryggt og leikur um 5. sætið á mótinu
sem gefur rétt til þátttöku í B-keppn-
inni,“ sagði Gústaf.
-GH
íslandsmótið í blaki
Enn lágu Víkingar
töpuðu fyrir baráttuglöðum IS-stúIkum
Heldur viröist nú hafa dregið af
hinum fyrrumfjallhressu Víkings-
stúlkum sera fyrr i vetur virtust
nánast ósigrandi. í fyrrakvöld
máttu þær þola sitt þriöja tap og
nú gegn baráttuglöðum IS-ingum.
Það mátti sjá aö öðrum megin nets
fór lið, sem hafði til mikils að vinna
en hinum megin var lið, sem þegar
hafði tryggt sér íslandsmeistaratit-
ilinn.
Leikurinn var nokkuð jafh fram-
an af. Fyrsta hrinan var Víkinga,
15-13, en tvær næstu eignuðu IS-
stúlkur sér, 15-10, 15-7. í fjóröu
hrinu, 15-5, vöknuðu Víkingar til
lífsins og virtust til alls líklegir í
oddahrinu. Þær höfðu yfirhöndina
fram i miðja hrinu en nýttu illa
uppgjafir sínar og slík mistök eru
dýrkeypt í úrslitahrinu. Stúdínur
unnu 15-12 í hrinunni.
Fram - ÍS: 2-3
Framarar léku ágætlega á móti
slöppum ÍS-ingum og máttu hinir
síðamefndu teljast heppnir að
ganga á brott með stigin tvö. Fram-
arar unnu í fyrstu tveimur hrinun-
um, 15-12 og 15-9, og léku á tíðum
þokkalega með hinn unga Hreiðar
Þór Pálsson í stöðu uppspilara, Nú
brugðu ÍS-ingar á það ráð aö skipta
um uppspilara og inn á kom Am-
grímur Þorgrímsson og við það
breyttist leikur liðsins mjög til hins
betra. Amgrímur spilaði mjög vel
upp og dreif sína menn áfram. Þor-
varður Sigfússon komst í gang og
þar með voru dagar andstæöíng-
anna taldir. Næstu þrjár hrinur
áttu ÍS-menn en urðu þó að hafa
fyrir sigrum sínum því Framarar
voru i. baráttuskapi (15-12, 15-4,
15-10).' -gje
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1991.
Búist við hörkuleik
• Fyrirliðar KR og Keflavíkur taka hér léttan sjómann en þeir verða i eldlínunni á sunnudag með félögum sínum. Sigurð-
ur Ingimundarson, Keflvíkingur, er til vinstri og Guðni Guðnason, KR-ingur, til hægri. DV-mynd Brynjar Gauti
- þegar KR og Keflavlk leika til úrslita 1 bikarkeppni í körfu
Hápunktur keppnistímabilsins í
körfuknattleik til þessa í vetur verður
í Laugardalshöllinni á sunnudaginn
þegar KR og Keflavík mætast þar í úr-
slitaleik hikarkeppni KKÍ sem hefst
klukkan 16.
Bæði lið hafa leikið vel í vetur, Kefl-
víkingar unnu B-riðil úrvalsdeildarinn-
ar og mæta einmitt íslandsmeisturum
KR í undanúrslitunum um íslands-
meistaratitilinn en KR varð í öðru sæti
A-riðils. KR og Keflavik hafa leikið til
úrslita á íslandsmótinu tvö síðustu árin.
Keflavik hafði betur 1989 en KR í fyrra.
Ekki minna metnaðarmál
að sigra KR en Njarðvík
„Þetta eru áþekk lið að styrkleika. Við
byggjum mest á hraðanum en KR-ingar
á sterkri vörn og þetta verður spurning
um hvort liðið nær að spila sinn leik,“
sagði Sigurður Ingimundarson, fyrirliði
Keflvíkinga, í samtali við DV í gær.
„Við erum að mæta KR í úrslitaleik
þriðja árið í röð og það er alltaf mikil
stemmning þegar liðin mætast. Nú orð-
ið er það ekki minna metnaðarmál fyrir
okkur að sigra KR en að sigra Njárðvík.
Það er líka á hreinu að við ætlum ekki
að tapa úrslitaleik í bikarkeppninni
annað' árið í röð,“ sagði Sigurður en
Keflavík beið lægri hlut fyrir Njarðvík
í bikarúrslitunum í fyrra.
Úrslitin ráðast
á lokamínútunni
„Það eru alltaf miklar rimmur þegar
við mætum Keflavík og þetta eru það
jöfn lið að ég býst við að úrshtin ráðist
á lokamínútunni," sagði Guðni Guðna-
son, fyrirliði KR.
„Eg er bjartsýnn á okkar gengi því að
viö höfum verið að spila vel að undan-
förnu. Vörnin hefur verið sterk hjá okk-
ur í vetur og sóknarleikurinn hefur
smollið í síðustu leikjum. Keflvíkingar
mæta sterkari til leiks en áður því Guð-
jón Skúlason er með þeim á ný. Hann
eykur breiddina og verður okkur án efa
erfiður," sagði Guðni.
Forsala aðgöngumiða hefst í Keflavík
um hádegið í dag og verður þar allan
laugardaginn. KR-ingar selja miða í
KR-heimilinu á morgun, laugardag, frá
klukkan 11 til 14 og þeir verða síðan
með strætisvagnaferðir á leikinn frá
KR-heimilinu klukkan 15 á sunnudag
og heim aftur að leik loknum.
-VS
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Skriðustekkur 19, þingl. eig. Andrés
Sighvatsson, mánud. 18. mars ’91 kl.
10.45. Uppl)oðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Smiðjustígur 13, hluti, þingl. eig. Ból
hf., mánud. 18. mars ’91 kl. 10.45. Upp-
boðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í
Reykjavík og Eggert B. Ólafsson hdl.
Smiðshöfði 1, hluti, þingl. eig. Elín
Adolfsdóttir og Ingólfur Sigurðsson,
mánud. 18. mars ’91 kl. 10.45. Upp-
boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Smiðshöfði 9, þingl. eig. Garðaval hf.,
mánud. 18. mars ’91 kl. 10.45. Upp-
boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Smiðshöfði 23, kjallari við Dvergsh.,
þingl. eig. Sveinn Þ. Jónsson, mánud.
18. mars ’91 kl. 11.00. Uppboðsbeið-
andi er Landsbanki íslands.
Sogavegur 36, hluti, þingl. eig. Gunnar
Jakob Haraldsson, mánud. 18. mars
’91 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild
Landsbanka íslands og Landsbanki
íslands.
Staðarsel 5, þingl. eig. Reynir Ragn-
arsson, mánud. 18. mars ’91 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Staðarsel 6, þingl. eig. Gissur Jó-
hannsson, mánud. 18. mars ’91 kl.
11.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Stangarholt 5, hluti, þingl. eig. Frið-
þjófur Helgason og Guðfinna Sva-
varsd., mánud. 18. mars ’91 kl. 11.15.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Stelkshólar 8, hluti, þingl. eig. Jóna
Ström og Guðbjörg Guðmundsdóttir,
mánud. 18. mars ’91 kl. 11.15. Upp-
boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Stíflusel 3, hluti, þingl. eig. Stjóm
Verkamannabústaða, mánud. 18.
mars ’91 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur
eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Veð-
deild Landsbanka íslands.
Strandasel 11, hluti, þingl. eig. Stjóm
verkamannabústaða, mánud. 18. mars
’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Stuðlasel 11, þingl. eig. Þorlákur Her-
mannsson, mánud. 18. mars ’91 kl.
13.30. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild
Landsbanka íslands.
Suðurgata, biðskýli, talinn eig. Ami
Bergur Eiríksson, mánud. 18. mars ’91
kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Suðurhlíð 35, þingl. eig. Magnús Sig-
urjónsson, mánud. 18. mars ’91 kl.
13.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Suðurhólar 6, hluti, talinn eig. Elsa
Hafsteinsdóttir, mánud. 18. mars ’91
kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík og Iðnlána-
sjóður.
Suðurhólar 18, hluti, þingl. eig. Bertha
Richter, mánud. 18. mars ’91 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Suðurhólar 28, hluti, þingl. eig. Oddný
Jónsdóttir, mánud. 18. mars ’91 kl.
14.15. Uppboðsbeiðendur em Gjald-
heimtan í Reykjavík, Veðdeild Lands-
banka fslands, Tryggingastofhun rík-
isins, Ævar Guðmundsson hdl., Toll-
stjórinn í Reykjavík og Ólafur Axels-
son hrl.
Suðurlandsbraut 6, hluti, þingl. eig.
Þorgrímur Þorgrímsson, mánud. 18.
mars ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Suðurlandsvegur, Selásblettur 9A-B,
þingl. eig. Kjartan Ingimarsson,
mánud. 18. mars ’91 kl. 14.15. Upp-
boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Svarthamrar 28-36, hluti, talinn eig.
Samúel Ingi Þórarinsson, mánud. 18.
mars ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur
em Gjaldheimtan í Reykjavík og Toll-
stjórinn í Reykjavík.
Svarthamrar 52-54, hluti, talinn eig.
Jón Guðnason, mánud. 18. mars ’91
kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Svarthamrar 60, talinn eig. Guðný
Aðalbjörg Sigurðardóttir, mánud. 18.
mars ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi
er Tollstjórinn í Reykjavík.
Tangarhöfði 4, hluti, þingl. eig. Óskar
M. Alfreðsson, mánud. 18. mars ’91
kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Teigasel 4, hluti, þingl. eig. Gunnar
N. Bjömsson, mánud. 18. mars ’91 kl.
14.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Torfufell 25, hluti, þingl. eig. Halldóra
Friðg. Sigurðardóttir, mánud. 18. mars
’91 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík, Steingrím-
ur Eiríksson hdl. og Guðjón Ármann
Jónsson hdl.
Torfufell 27, hluti, þingl. eig. Kristín
Ellý Egils, mánud. 18. mars ’91 kl.
14.45. Uppboðsbeiðendur em Gjald-
heimtan í Reykjavík, Veðdeild Lands-
banka íslands og Hákon H. Kristjóns-
son hdl.
Torfufell 29, hluti, þingl. eig. Jónína
Guðrún Ámadóttir, mánud. 18. mars
’91 kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Torfufell 50, hluti, þingl. eig. Bryn-
hildur Kristinsdóttir, mánud. 18. mars
’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em
Tollstjórinn í Reykjavík og Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Tómasarhagi 40, hluti, þingl. eig. Guð-
mundur Hafþór Valtýsson, mánud. 18.
mars ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur
em Gjaldheimtan í Reykjavík, Hró-
bjartur Jónatansson hrl., Fjárheimtan
hf. og Tryggingastofium ríkisins.
Tryggvagata, Hamarshús, hluti, þingl.
eig. Böðvar Sveinbjamarson, mánud.
18. mars ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeið-
andi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
BORGARFÚGETAEMBÆTTH) í REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Álakvísl 25, þingl. eig. Haffún Sigurð-
ardóttir og Einar Þórisson, mánud.
18. mars ’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðend-
ur em Gjaklheimtan_ í Reykjavík,
Veðdeijd Landsbanka Islands, Lands-
banki Islands, Öm Höskuldsson hdl.,
Ólafur Axelsson hrl., Ásdís J. Rafnar
hdl. og Kristinn Hallgrímsson hdl.
Álakvísl 25, þingl. eig. Einar B. Þóris-
son, mánud. 18. mars ’91 kl. 10.30.
Uppboðsbeiðendur em Fjárheimtan
hf., Ásgeir Thoroddsen hrl., Reynir
Karlsson hdl., Klemens Eggertsson
hdl., Búnaðarbanki íslands, Lands-
banki íslands og Tollstjórinn í
Reykjavík.
Laufásvegur 38, hluti, þingl. eig. Katr-
ín Friðriksdóttir, mánud. 18. mars ’91
kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em ís-
landsbanki, Valgarður ' Sigurðsson
hdl., Landsbanki íslands og Guð-
mundur Jónsson hrl.
Öldugata 29, 2. hæð, þingl. eig. Sif
Gunnarsdóttir, mánud. 18. mars ’91
kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em Veð-
deild Landsbanka Islands, Ólafur
Gústafsson hrl., Gjaldheimtan í
Reykjavík, Ásgeir Thoroddsen hrl. og
Sveinn H. Valdimarsson hrl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTH) í REYKJAVÍK
Nauðungamppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Asparfell 4, 7. hæð B, þingl. eig. Bjöm
Hafsteinsson, fer ffam á eigninni
sjálfri mánud. 18. mars ’91 kl. 17.00.
Uppboðsbeiðendur em Veðdeild
Landsbankajslands, Tryggingastofh-
un ríkisins, íslandsbanki, Ævar Guð-
mundsson hdl. og Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Bústaðavegur 69, hluti, talinn eig.
Þorgrímur Þorgrímsson, fer ffam á
eigninni sjálffi mánud. 18. mars ’91
kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur em Egg-
ert B. Ólafsson hdL Gjaldheimtan í
Reykjavík og Bjöm Ólafur Hallgríms-
son hrl.
Grýtubakki 12, 3. hæð hægri, þingl.
eig. Benedikt Pálsson, fer fram á eign-
inni sjálffi mánud. 18. mars ’91 kl.
16.00. Uppboðsbeiðendur em Ásgeir
Thoroddsen hrl., Andri Ámason hdl.,
Innheimtustofnun sveitarfélaga og
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Viðarhöfði 2, 02-06, þingl. eig. J.L.
Byggingavörur sf., fer ffam á eigninni
sjálfii mánud. 18. mars ’91 kl. 16.30.
Uppboðsbeiðendur em Jóhannes Al-
bert Sævarsson hdl. og Steingrímur
Þormóðsson hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTH) í REYKJAVÍK
Fjögurfélög
eiga moguleika
- á sæti 1 úrválsdeild
Þegar aðeins tveimur leikjum er ólokíð í 1.
deild karla í körfuknattleik eiga enn fiögur
lið möguleika á að vinna sér sæti í úrvals-
deildinni. Vikverji og Skallagrímur geta unn-
iö l. deildina og þar með farið beint upp og
UÍA og Akranes geta, auk hinna tveggja, hafn-
að í öðru sæti sem þýðir aukaleik við Val um
úrvalsdeildarsæti.
í lokaumferðinni á laugardaginn mætast
þessi fiögur lið í innbyrðisleikjum og það eyk-
ur enn spennuna. Skallagrímur og Víkverji
leika í Borgamesi klukkan 16 og UÍA maetir
Akranesi á Egilsstöðum klukkan 14. Staðan
fyrir leikina er þessi:
Víkverji............11 8 3 862-805 16
Skallagr............11 7 4 844-745 14
UÍA.................11 7 4 772^739 14
Akranes.............11 6 5 931-913 12
ÍS..................12 6 6 868-825 12
UBK.................12 4 8 845-924 8
Reynir..............12 2 10 888-1059 4
Möguleikarnir sem eru fyrir hendi eru
hvorki fleiri né færri en 9 talsins og eru
eftirtaldir:
• Víkverji vinnur Skallagrím og UÍA
vinnur Akranes. 1. Víkverji, 2. UÍA.
• Víkverji vinnur Skallagrím og Akranes
vinnur UÍA. 1. Vikverji, 2. Akranes.
• Skallagrímur vinnur Vikverja með 1-4
stiga mun og Akranes vinnur UIA. 1. Vík-
veiji, 2. Skallagrímur.
• Skallagrímur vinnur Víkvetja með 5
stiga mun eða meiri og Akranes vinnur
UÍA. 1. Skallagrímur, 2. Víkverji.
• Skallagrímur vinnur Víkveija meö 1
stigi og UÍA vinnur Akranes. l. Víkverji, 2.
Skallagrímur.
• SkallagrímurvinnurVíkverja með2-l0
stigum og UÍA vinnur Akranes. 1. Skalla-
grimur, 2. Víkverji.
• Skallagrímur vinnur Víkverja með 11
stigura og UÍA vinnur Akranes með 1-13
stigum. 1. Skallagrímur, 2. Vikverji.
• Skallagrímur vinnur Víkvetja með li
stígum og UÍA vinnur Akranes með 14 stig-
um eða meira. 1. Skallagrímur, 2. UÍA.
• Skallagrimur vinnur Víkveija meö 12
stigum eða meira og UÍA vinnur Akranes.
1. Skailagrímur, 2. UÍA. -VS
r
25
Pólverjar til Víðis
- tveir pólskir leikmenn koma á sunnudag og verða hj á félaginu til reynslu
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
1. deildar lið Víðis úr Garði í
knattspymu á von á góöum liðs-
styrk eftir helgina. Þá eru vænt-
anlegir til liðsins tveir pólskir
leikmenn og munu þeir verða hjá
félaginu til reynslu og ef forráða-
mönnum Víðis líst vel á leik-
mennina munu þeir klæðast bún-
ingi liðsins í sumar. Þetta eru
Janus Jakubib, 25 ára sóknar-
maður, og Jacek Grybos, sem
einnig er 25 ára og leikur ýmist í
stöðu varnar- eða og miðju-
manns. Koma þeir frá félaginu
KKS í borginni Gdansk í Póllandi.
„Þetta er happdrætti“
„Það má kannski segja að þetta
sé hálfgert happdrætti. Við höf-
um ekki séð til leikmannanna og
vitum því ekki nákvæmlega um
styrk þeirra en erlendir aðilar
sem við höfum verið í tenglsum
ið hafa gefið þeim góð meömæli.
Pólveijarmr eru væntanlegir til
landsins á mánudaginn og verða
til reynslu hjá okkur til að byija
með. Ef þetta eru góðir leikmenn
koma þeir til með að styrkja lið
okkar til muna í baráttunni á
komandi keppnistímabili," sagði
Sigurður Gústafsson, formaður
knattspyrnudeildar Víðis, í sam-
tali við DV.
Víðismenn unnu sér sæti í 1.
deild að nýju eftir sigurinn í 2.
deild á síðasta keppnistímabili.
Félagið ætlar sér greinilega stóra
hluti og víst er að hinir baráttu-
glöðu Garðsbúar ætla sér að
halda sæti sínu í 1. deild. Óskar
Ingimundarson er þjálfari Víðis.
Ystad í undanúrslit
- eftir tvo sigra á Redber gslid
• Gunnar Gunnarsson átti góða
leiki með Ystad gegn Redbergslid.
Gunnar Gunnarsson og félagar
hans í Ystad eru komnir í undanúr-
slit í úrslitakeppninni um sænska
meistaratitilinn í handknattleik eftir
tvo sigra á Redbergslid. Fyrri leikinn
sem fram fór á heimavelli Red-
bergslid sigraði Ystad, 23-27. Gunnar
skoraði 5 mörk í þeim leik og var
útnefndur besti maður Ystad eftir
leikinn.
í gærkvöldi sigraði Ystad, 21-17, á
heimavelli sínum. Staðan í leikhléi
var 10-9 en eftir að Ystad haföi gert
fimm fyrstu mörkin í síðari hálfleik
var sigurinn í höfn. Gunnar skoraði
1 mark og var hann tekinn úr um-
ferð stóran hluta leiksins.
Ystad mætir Irsta í undanúrslitun-
um en Drott mægir sigurvegurunum
í leik Savehof og Lugi sem þurfa að
mætast í þriðja leiknum.
• í gær tryggði Saab, gamla lið Þorg-
bergs Aðalsteinssonar, sér sæti í úr-
valsdeildinni að nýju.
-GH
Birgir markahæstur
- hefur skorað 28 mörk í þremur leikium
Birgir Sigurðsson, línumaðurinn
harðskeytti úr Víkingi, er marka-
hæsti leikmaður úrslitakeppninnar
um íslandsmeistaratitiiinn í hand-
knattleik að þremur umferðum lokn-
um. Birgir hefur skorað 28 mörk, eða
rúmlega 9 að meðaltali í leik, og ekk-
ert þeirra úr vítakasti.
Víkingar eiga einnig annan marka-
hæsta leikmanninn, en röð þeirra
efstu er þessi:
Birgir Sigurðsson, Víkingi....28/0
Bjarki Sigurðsson, Víkingi....22/0
Petr Baumruk, Haukum..........22/2
Valdimar Grímsson, Val........21/5
Óskar Ármannsson, FH........18/7
Karl Karlsson, Akureyringurinn
ungi í liði Framara, er markahæstur
í fallkeppninni og hefur eins og Birg-
ir gert 28 mörk í fyrstu þremur um-
ferðunum. Markahæstir í fallkeppn-
inni eru eftirtaldir:
Karl Karlsson, Fram............28/5
Páll Ólafsson, KR..............27/8
Halldór Ingólfsson, Gróttu.....26/13
Jóhann Ásgeirsson, ÍR..........21/6
Konráð Olavsson, KR............19/1
Gústaf Bjarnason, Selfossi.....19/2
-VS
Stúfar f rá Englandi
Guimar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
Tony Coton, markvörð-
ur Man. City, hefur beðið
Peter Beardsley hjá Li-
verpool afsökunar á að
hafa kallað hann svindlara. Coton
sagði að Beardsley hefði látið sig falla
vísvitandi til að fiska vítaspyrnu en
því neitaði Beardsley sem segist aldr-
ei hafa stundað þá iðju og ætli sér
alls ekki að fara að taka upp á því nú.
Ferguson óánægður
með leikmenn sína
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var
ekki ánægður með sína menn eftir
tapið gegn Chelsea um síðustu helgi.
Ferguson sagði að frammistaða
sinna manna heíöi verið til skammar
og þaö væri greinilegt aö margir
þeirra væru með hugann við Evr-
ópuleikinn í næstu viku og úrslita-
leikinn í deildarbikarkeppninni í
næsta mánuöi en bætti viö að slíkur
hugsunarháttur næöi auðvitað engri
átt.
Luton í miklum
fjárhagsvandræðum
Luton Town á nú í miklum fjár-
hagsvandræðum og eina leiðin til að
leysa málið virðist vera að selja
Kingsley Black sem er metinn á eina
milljón punda. Luton verður örugg-
lega ekki í miklum vandræðum með
að selja Black enda eru mörg lið á
höttunum eftir honum og má þar
nefna West Ham, Sheffield Wednes-
day, Everton, Aston Villa og Nott.
Forest.
Stewart á leið
frá Tottenham
Paul Stewart, leikmaður Tottenham,
mun væntanlega yfirgefa félagið um
leið og þátttöku þess í bikarnum er
lokið. Það sem ýtir undir þessa frétt
er sú staðreynd að Stewart hefur
selt hús sitt fyrir utan London og
eiginkona hans er farin heim til
Blackpool. Stewart kostaði Spurs 1,7
milljón punda á sínum tíma en hefur
örugglega lækkað um helming í verði
síðan þá.
Sovéskur leikmaður
dvelur hjá Man. Utd
Sovéskur varnarmaður
dvelur hjá Man. Utd þessa
dagana. Kappinn heitir
Andrej Kontschelskis og
er Alex Ferguson mjög áhugasamur
um að sjá Sovétmanninn í leik.
Andrej átti að spila með United gegn
Sotuhampton í gærkvöldi en ekkert
varð af því þar sem atvinnuleyfið
hefur ekki enn borist.
Bobby Charlton ekki
vinsæll hjá Man. City
Bobby Charlton hefur aldrei verið
vinsæll hjá áhangendum og forráða-
mönnum Man. City og skyldi engan
undra. Ekki var það til að auka á
vinsældimar þegar fréttist að Charl-
ton hefði áhuga á að gerast umboðs-
maður tveggja leikmanna City en
gömlu hetjunni var sagt hið snarasta
að gleyma öllum slikum vangavelt-
um og haldi sig fjarri Maine Road.
• Birgir Sigurðsson hefur skoraö
flest mörk í úrslitakeppninni.
Einarfékk
rauða spjaldið
Einar Einarsson og félagar hans
í Vogel-Pumpen töpuðu fyrir Linz,
28-27, í 8 liða úrslitum austurrísku
bikarkeppninnar í handknattleik á
dögunum. Eftir venjulegan leik-
tíma skildu liðin jöfn, 24-24, og í
framlengingunni höfðu leikmenn
Linz betur og tryggðu sér sæti í
undanúrslitunum. Einar varð fyr-
ir því óláni að fá að líta rauða
spjaldið í byrjun síðari hálfleiks
vegna þriggja brottvísana en hann
var mjög atkvæðamikill í liði Vog-
el-Pumpen, skoraði 3 mörk og var
kjölfestan í vörn liðsins.
Lið Linz varð á dögunum deild-
armeistari en úrslitakeppni 6 efstu
liða í deildarkeppninni hefst um
helgina og þar verða lið Linz og
Vogel-Pumpen í eldlínunni.
„Það var mjög svekkjandi að
tapa þessum leik gegn Linz, sem
undanfarin 3 ár hefur hampað bik-
armeistaratitlinum og er talið
sterkasta félagslið í Austurríki í
dag. Við erum þó nokkuð bjartsýn-
ir á komandi úrslitakeppni og ætl-
um við okkur að gera stóra hluti,“
sagði Einar við DV. -GH
!á Handbolti
HK úr Kópavogi styrkti stöðu
sína á toppi úrslitakeppninnar í
2. deild karla þegar liðið vann
stórsigur á Njarðvík, 29-15, í gær-
kvöldi. Þá var einn leikur í fall-
keppni 2. deildar. Afturelding
sigraöi ÍS, sem þegar er fallið í
3. deild, með 22 mörkum gegn 11.
-GH
idiuiiuhfBhi
44 '411 i «i
íþróttir
Sport-
stúfar
Það þurfti -tvær fram-
lengingar tfi að knýja
íram úrslit í viðureign
Atlanta Hawks og
Philadelphia 76ers i bandarísku
NBA-deildinni á þriðjudags-
kvöldið. Það var 76ers sem að lok-
um fagnaði fjögurra stiga sigri.
Úrslit á þriðjudag og miðvikudag
urðu þessi:
Charlotte - Wáshington.....100-103:
Miami - LALakers......... 95-102
Atlanta - 76ers..........129-133
Chlcago -Minnesota.......131-99
Houston-Seattle..........93-91
Denver- LA Clippers.....123-126
GoldenState - Indiana...129-117
Sacramento - Boston..... 95-110
Detroit-Chariotte.........94-83
76ers-NYKnicks...... 94-102
Dallas - Seattle..........98-96
Milwaukee-Chicago..........101-102
Utah Jazz -Boston........112-109
Phoenix - Portland..............116-108
LACIippers-SASpurs...... 97-93
Grissom varð fimmti
Sú vfila slsgddist inn á lista DV
yfir 40 stigáhæstu leikmenn úr-
valsdeildarinnar i körfuknatt-
ieik, sem birtist í miðvikudags- .
blaðinu, að heil 99 stig vantaði
hjá Vaismanninum David Gris-
som. Hann var sagður í 12. sæti
með 482 stig en það rétta er að
Grissom varð 5. stigahæsti leik-
maður deiidarinnar með 581 stig.
Stjörnuleikur í Grindavík
Ægir Mar Kárason, DV, Suðumfisjum:
Það verður sannkallaður
stjörnuleikur í Grindavik i kvöld
þegar úrvaisdeildarlið heima-
manna i körfuknattleik mætir ■
öflugu úrvalsliði. Með gestunum
leika Franc Booker, David Gris-
som, Tim Harvey og Dan Kenn-
ard ásamt landsliðsmönnunum
Magnúsi Matthiassyni og Jóni
Arnari Ingvarssyni og fleiri.
Leikurinn hefst klukkan 20.
Stefan Reuter á
leið til Juventus
Allt bendir tfi þess að Stefan
Reuter, einn þýsku heimsmeist-
aranna í knattspymu, gangi til
liðs við ítalska félagið Juventus í
vor. Að sögn talsmanna Bayern
mun Juventus greiða um 215
milljónir íslenskra króna fyrir
Reuter, sem er 24 ára gamall.
„Samningurinn verður tilbúinn
til undirritunar eftir sex vikur,“
sagði Uli Höness, framkvæmda-
stjóri Bayem. Reuter verður þá
áttundi þýski landsliðsmaðurinn
á Ítalíu og mun leika við hlið
landa síns, Thomasar Hásslers,
sem hefur spilaö með Juventus í
vetur.
Stóra borðtennis-
mót Víkings
Stóra borötennismót
Víkings verður haldið
í TBR-húsinu á sunnu-
daginn kemur, 17.
mars. Keppt verður í meistara-
flokkum og 1. flokkum karla og
kvenna og i 2. flokki karla. Keppt
verður í riðlum og í fjölmennari'
flokkum fara sigurvegarar úr
riðlum áfram og keppa í einföld-
um útslætti. Síðasti skráningar-
dagur er á morgun, fóstudag, en
þátttökutilkynningar eiga að ber-
ast að Laugarásvegi 22, Reykja-
vik, sími 36862, eða í síma 51775
(Sigurður), 652618 (Ingólfur),
25268 (Hilmar), 43077 (Kristján).
Tobi vann Stjömuhlaupið
Tobi Tanser, ÍR, sigr-
aði með mikium yfir-
burðum í karlafiokki í
Stjörnuhlaupi FH sem'
fram fór um síðustu helgí. Orri
Pétursson, Aftureldingu, sigraði
í drengjaflokki, Reynir Jónsson,
UMSB,.í piltaflokki, Unnur Berg-
sveinsdóttir, UMSB, 1 telpna-
flokki, Jakob Bragi Hannesson,
ÍR, í flokki 35 ára og eldri og Lauf-
ey Stefánsdóttir, Fjölni, sigraði í
kvennaflokki.
^444*1*14^>;s*~»_x • jt 4:íi