Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Side 3
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991. 3 Fréttir mt Birgir Bjöm Sigmjónsson, hagfræðingur BHMR, um lánsflárlögin: Ottast um sparifé bundið í ríkisskuldabréf um „Lánsfjárlögin taka ekki beint á okkar samningamálum að öðru leyti en því að í lánsfjárlögum hafa fram- lög til Lífeyrissjóðs starfsmanna rík- isins verið skert. Þar er verið að stefna þeim sjóði í geigvænlegan fjár- mögnunarvanda sem er sams konar vandi og húsnæðiskerímu hefur ver- ið stefnt í. Það vita allir að það er stutt í gjaldþrot þess kerfis ef framlög til þess eru skert áfram með þessum hætti,“ sagði Birgir Björn Sigurjóns- son, hagfræðingur BHMR, vegna nýsamþykktra lansfjárlaga upp á um 25 milljarða króna. „Á síðustu dögum þingsins hafa verið samþykktar óhemju stórar íjár- hæðir sem munu, ef ekki verða gerð- ar aðrai' breytingar, leiða til verð- bólgu og verulegrar þenslu. Ef ég væri spariijáreigandi mundi ég óttast að fjárfesta frekar í skuldabréfum ríkisins. Þær ábyrgðir sem ríkið er að takast á hendur með þessum láns- fjárlögum og þeim milljörðum sem fyrir eru leiða sjálfsagt til þess að þeir hjá ríkinu segja við sparifláreig- endur það sama og við launamenn í BHMR: „Við borgum þetta ekki“. Kannski kemur sá dagur að þeir skella inn bráðabirgalögum og segjast annaðhvort ekki borga þetta eða að vaxtaprósentan sé 2 prósent en ekki 6 prósent eins og nú. Auk þessa er fullt tilefni til að óttast verulegar vaxtahækkanir sem munu koma verulega illa við launafólk. Launafólk skerðingu og ég held að það megi hefur tekið á sig mikla kaupmáttar- ekki við fekari röskun." -hlh Ogmundur Jónasson, formaður BSRB: Áhrif laganna réttlæta ekki okurvaxtastef nuna „Við höfum áhyggjur af halla ríkis- sjóðs og samkvæmt lánsfjárlögum er verið að auka hann um 1,2 milljarða króna. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur lagt ríka áherslu á að leita leiða til að draga úr þessum halla en við þurfum að hyggja að því hvernig ríkisútgjöldin eru samansett í heild. Það sem kemur til viðbótar með lánsflárlögum á sumt fyllilega rétt á sér eins og margt sem áður var inni í fjárlögum. Má þar nefna fram- lag til aldraðra og fatlaðra. Veikleiki þessarar umræðu er hve alhæfinga- söm hún er. Það þarf að skoða dæm- ið í heild sinni, bæði útgjöld, tekjur og samsetningu þeirra. Sumt má skera stórlega niður hjá ríkinu sem hægt er að gera án þess að þjónusta sé stórlega skert. Annað þarf að efla og setja meiri fhjármuni í,“ sgði Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB. „Það hefur verið bent réttilega á að halli á ríkissjóði, sem fjármagnað- ur hefur verið innanlands, hefur áhrif á vexti. Það réttlætir hins vegar ekki okurvaxtastefnu fjármagns- markaðarins sem nú hleypur fagn- andi fram til að réttlæta eigin okur- prósentu." -hlh Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda: Ríkið stóð við búvörusamninginn „Ég er ekki búinn að sjá lánsfjár- lögin í endanlegri mynd. Eg veit hins vegar að það sem snýr að fyrsta áfanga búvörusamningsins er inni í lögunum. Ég er út af fyrir sig ánægð- ur með að það skuli sett í lánsfjárlög- in sem þurfti að vera til að hægt væri að byrja á þessari aðlögun sauð- fjárframleiðslu að innanlandsmark- aði. Þar er ég að tala um heimild til fjármálaráðherra til að gefa út skuldabréf að upphæð allt að 1.700 milljónir. Ríkisvaldið stóð við það sem gert var ráð fyrir við undirritun búvörusamningsins, að þessi heimild yrði veitt á lánsfjárlögum,“ sagði Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda. - Nú eru formenn launþegahreyf- inganna uggandi vegna 'vaxtanna sem spáð er að hækki þegar ríkið þarf að taka mikil lán hér innan- lands? „Auövitað er það slæmt ef sam- þykkt laganna leiðir til hækkunar vaxta. Hins vegar má segja að eftir því sem meira fjármagn er tekiö að láni innanlands er dregið úr þenslu. Þannig eru bæði kostir og gallar við þetta. Ég viðurkenni að þetta ertví- bent en innlendar lántökur draga úr þensluáhrifum og þensla hefur líka áhrif á verðbólguna. Hins vegar verður erflðara að ná niður vöxtum þar sem þessar lántökur draga kannski úr framboði á fjármunum." Haukur sagði að það væri von hans að lánsijárlögin væru innan þeirra marka sem viðráðanleg væru. „Hvað landbúnaðinn varðar kem- ur ekkert af þessum fjárhagsskuld- bindingum til greiðslu á þessu ári þó heimildir séu til að stofna til þeirra. Það á ekki að nota heimildina í ár og því kemur ekki króna inn í þensl- una á árinu. Fyrsta greiðslan er í janúar á næsta ári og dreifist restin á skuldabréf til fjögurra ára. Því hef- ur heimild fjármálaráðherra til að stofna til þessara fjárskuldbindinga ekki áhrif á vexti eða verðbólgu á þessu ári.“ , -hlh Aðalfundur Eignarhaldsfélags Verslunar- bankans hf., Reykjavík, árið 1991 verður haldinn í Höfða, Hótel Loftleiðum, Reykjavík, fimmtudaginn 4. apríl nk. og hefst kl. 17.00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. ákvœðum greinar 3.03 t samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins til útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árínu 1991. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka, Krínglunni 7, dagana 2., 3. og 4. apríl nk. Ársreikningur félagsins fyrír árið 1990, ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn, þurfa að hafa borist stjóm félagsins skriflega í síðasta lagi 27. mars nk. Reykjavík, 12. mars 1991 Stjórn Eignarhaldsfelags Verslunarhankans hf. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ: Hef áhyggjur af hækkandi vaxtastigi „Það er alveg ljóst að mikillar lán- töku ríkisins gætir á lánamarkaði og hefur gert. Skuldabréfasala ríkisins hefur leitt til hærri vaxta en viö hefð- um ella haft. Margt bendir til þess að af sömu ástæðu verði um tölu- verðan þrýsting að ræða á því árL sem er tiltölulega nýbyrjað," sagði ‘Ásmundur Stefánsson, forseti' Al- þýðusambndsins. „Ég hef áhyggjur af því að vaxta- stigið er illilega hátt, ekki bara vegna þess að það kemur niður á launa- fólki, heldur bremsar það ýmislegt af í fyrirtækjunum jiem æskilegt væri að færi fram. Þá á ég við að vaxtastigið geti dregið' úr eðlilegri uppbyggingu í fyrirtækjunum “ < -hlh k i V i t a r LIPUR OG ÖFLUGUR LÚXUSJEPPI * Aflmikill - bein innspýting * Vökvastýri - rafmagnsrúður, -læsingar og -speglar * Lúxus innrétting * Grindarbyggður - auðvelt að breyta * Eyðsla frá 81 á 100 km Til afgreiðsiu strax. Verð: 1.323.000,- beinskiptur. 1.406.000,- sjálfskiptur. SUZUKI VITARA VISTVÆNN BÍLL $ SUZUKI SUZUKIBILAR HF. SKEIFUNNI 17 • SÍMI 685100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.