Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991. Fréttir Hætt við 1,5 prósentu- stiga hækkun vaxtanna - og allt aö 12 prósent veröbólgu vegna lánsíjárlaganna Uppsprengd lansflarlög: Grafiö sýnir, hvernig vextir og verölag hafa breytzt undanfarna mánuði og hver líklegt er, að breytingin verði sem afieiðing hinna uppsprengdu láns- fjárlaga. Líklegt er, að hin uppsprengdu lánsfjárlög, sem samþykkt voru á Alþingi í fyrrinótt, leiði tiUþess að vextir hækki um 1,5 prósentustig. Verðbólgan í ár gæti farið 1 allt að 12 prósent sem afleiðing þessara miklu lántökuáforma hins opinbera. Þetta er mat kunnra hagfræðinga, sem DV ræddi þessi mál við í gær. Taka til sín 65% Ríkissjóður og aðir opinberir aðilar hyggjast samkvæmt þessum lögum taka 24-25 milljarða að láni. Enn er ekki séð hversu mikill hluti verður tekinn innanlands, ef á annað borð Sjóiiarhom Haukur Helgason yrði unnt að ná svo miklu á innan- landsmarkaði. Líklegt er, að tals- verður hluti fjárins verði að lokum tekinn að láni erlendis. Lántakan innanlands keyrir upp vextina. Er- lend lán ýta upp verðbólgunni. Framboð og eftirspurn eftir lánsfé ræður mestu um þróun vaxta. Spari- fé hefur aukizt mikið síöustu ár en dugir ekki til. Hrein lánsfjáröflun ríkis og sjóða á innlendum markaði var 19 milljarðar árið 1990, eða um helmingur af nýjum spamáði. En nú er líklegt, að þetta hlutfall geti hækk- að í 65 prósent með voveiflegum af- leiðingum, sem sagt mikilli vaxta- hækkun. Vaxtahækkun upp á 1,5 prósentustig er nefnilega mikil hækkun og snertir almenning í landinu. Menn geta séð, eins og sagt var í blaðinu í gær, að 25 milljarðar jafn- gilda 1660 góðum einbýlishúsum eða 29 þúsund nýjum fjölskyldubílum af smærri gerð. Þetta er kosningavíxill- inn, sem ríkisstjórnin hefur gefið út, vafalaust til aö afla stjórnarflokkun- um atkvæða með auknum fram- kvæmdum. Kostnaðurinn kemur mestur fram síðar, sem sé eftir kosn- ingarnar. Spá Þjóðhagsstofnunar fellur Hagfræðingar, sem DV ræddi við í gær, nefndu margir líklega vaxta- hækkun á bilinu 1-1,5 prósentustig, vegna lántökunnar, þegar á líður árið. Auðvitað veltur þetta á því, hversu mikill hluti lánsflárins verð- ur tekinn innanlands og hve mikill erlendis. En hagfræðingar telja ekki ólíklegt, að verðbólgan veröi í ár allt að 12 prósent vegna þessa. Sumir hafa áður spáð allt að 12 prósent verðbólgu og þá verið búnir að gera ráð fyrir svona „kosningavíxli". Aðr- ir hagfræðingar vilja fara hægar í spám sínum og tala enn um nálægt 9 þrósent verðbólgu sem líklegri út- komu. Vel að merkja hefur Þjóö- hagsstofnun nýlega spáð aðeins 7 prósenta verðbólgu, en það var áður en lánsfjárlögin komu til. Sú stofnun reynir auk þess að hafa yfirboðara sína, ríkisstjórnina, góða og heldur verðbólguspám sínum lágum. Landsfeðurnir voru einmitt í eld- húsdagsumræður fyrir skömmu að stæra sig af því, að hraði verðbólg- unnar væri bara 5,3 prósent miðað við heilt ár. Menn sögðu, að þetta þýddi, að við værum loks komin á þokkalegt stig, svipað og í grannríkj- unum. Leikaraskapur ráðherra Og ríkisstjórnin var nýlega að biðja um lækkun vaxta, lækkun raun- vaxta, vaxta umfram verðbólgustig- ið. Stjórnin bað Seðlabankann um þetta. En milli ríkisstjórnar og sér- fræðinganna er nú orðið talsvert bil. Sérfræðingarnir hafa auðvitað átt erfitt með að skilja þessa stjórn í efnahagsmálum. í bréfi, sem við- skiptaráðherra ritaði Seðlabankan- um 21. febrúar, var bankanum falið að beita sér fyrir lækkun raunvaxta með óbeinum aðgerðum eða fyrir- mælum. í bréfinu var sagt, að þrjár leiðir væru líklegastar: Lækkun bindiskyldu bankanna. Þeir þyrftu ekki að hafa jafnmikið fé og nú á reikningi hjá Seðlabankanum en yrðu á móti skikkaðir til að kaupa ríkisskuldabréf. Þá skyldi Seðla- bankinn stýra vöxtum með kaupum og sölu markaðsverðbréfa. Ennfrem- ur skyldi vaxtaákvörðunardögum banka fækkað, en slíkir dagar eru nú þrír í mánuði. Vextir miðist ekki við spá um verðlag heldur þekkta verðbólgu. En nær allar þessar leiðir mundu stuðla að þenslu og skapa verðbólguhættu. Því var rétt hjá Seðlabankanum að vísa þessu á bug. Þess í staö lagði bankinn fram tillög- ur um leiðir til lækkunar vaxta, sem ekki mundu stuðla að þenslu að sama skapi og tillögur ráðherra. Þær til- lögur beindust einkum að húsbréfa- kerfinu. En hvað nú um þessar bréfa- skriftir ríkisstjórnar og Seðlabanka? Auðvitað sjá menn, að þetta var bara leikaraskapur hjá ríkisstjórninni, sem á meðan var aö undirbúa kosn- ingavíxilinn, sem kollvarpar öllu slíku. Akureyri: Vetrarleikar hesta* manna um páskana Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyii: Það verður væntanlega mikið um dýrðir meðal hestamanna á Akureyri um páskana, en íþrótta- deild hestamannafélagsins Léttis ætlar þá að gangast fyrir vetrar- leikum hestamanna. Dagskrá leikanna verður mjög íjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Leikarnir verða settir á skírdag kl. 14 en þá fara hestamenn í hóp- reið og síðan taka við sýningar af ýmsu tagi. Laugardaginn 30. mars hefst opin töltkeppni kl. 10, en þá verð- ur keppt í bamaflokki, unglinga- flokki, ungmennaílokki og full- orðinsflokki. Þá verður einnig opin keppni i 150 metra skeiði sem hefst kl. 14.45. Annan dag páska hefst dag- skráin með hópreiö kl. 13. Síðan taka við úrslit í töltinu og skeið- inu og gæðingakeppni verður síð- ust á dagskrá. Alla dagana verða fjölbreyttar sýningar, má þar nefna söðulreið, unghnga- og kvemtasýningu, fim- leika á hesti og fleira. Valin kyn- bótahross verða sýnd, stóðhestar og hryssur eldri en 6 vetra og ræktunarbúm áHöskuldsstöðum og i Litla-Garði i Eyjafirði verða með sýningar. Kammermúsík- vika á Akureyri Gylfi Kriatjánsson, DV, Akureyri: Nú stendur yfir Kammermus- íkvika í Tónlistarskólanum á Akureyri með fjölbreyttri dag- skrá, skólaheimsóknum og tón- leikum. Prófessor Marek Podhajski flyt- ur i kvöld kl. 20 fyrirlestur um tónlist pólska tónskáldsins Karol Szymanowsky á sal skólans. Fyr- irlesturinn verður íluttur á ensku en þýddur jafnóðum. Á morgun kl. 15-17 verður opið hús í Tónlistarskólanum. Á sal skólans verður flutt íjölbreytt tónlist, hægt verður að skoða og kynna sér hljóöfæri, ræða við kennara og veitingar verða á boð- stólum. Kl. 17 mun D-blásarásveit skólans leika á götunni fyrir framan skólann. í dag mælir Dagfari_:____________ Kerlingar í saumaklúbbum Fátt er alþingismönnum óviðkom- andi enda þeirra hlutverk að fylgj- ast með mannlífinu og kynna sér hagsmunahópana og kjósendurna og hafa þekkingu á ólíkum við- horfum, viðræðum og viðmóti ein- stakra þjóðfélagshópa. Annars væru þeir ekki alþingismenn og ekki komnir til metorða í sínum flokkum. Nema það að nýkjörinn varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, Frið- rik Sophusson, var staddur í miðri efnahagsumræðu í þingsölum á dögunum og skiptist á skoðunum við forsætisráðherra um tilurð vaxta og vaxtaákvarðana. Sú um- ræöa var á mjög háu og lærðu stigi, þar sem þeir Steingrímur, Friðrik og fleiri vitibomir menn í þinginu fræddu hver annan um hvað vextir eru og hvernig.þeir veröa til. Þegar Steingrímur hafði enn einu sinni lýst hagfræðikenningum sín- um um vextina þótti Friðrik Sop- hussyni svo mikið til þess koma, að hann átti ekki til önnur eða betri lýsingarorð heldur en þau að bera saman Steingrím og „einhveijar kerhngar í saumaklúbb úti í bæ“. Var gerður góður rómur að þessari samlíkingu í þinginu og menn voru sammála um að Steingrími væri mikill sómi sýndur með samjöfn- uðinum við kerlingarnar í sauma- klúbbunum. Var Friðrik jafnvel skammaður af ílokksfélögum sín- um fyrir að gera Steingrími svo hátt undir höfði. En varaformaöur Sjálfstæðis- flokksins gerði þetta ekki út í blá- inn. Friðrik hefur einmitt verið kosinn varaformaður í flokknum vegna þess að hann þekkir kjósend- ur og hina einstöku hópa þeirra og veit hverjir líkjast Steingrími og hverjir ekki. Má ætla að Friðrik hafi og nokkra vitneskju um saumaklúbba og kerhngarnar í þeim og hefði aldrei komist th áhrifa í Sjálfstæöisflokknum nema vegna þess aö hann þekkir sitt heimafólk. Ekki veit Dagfari hvort Friðrik Sophusson hefur sjálfur tekiö þátt í saumaklúbbum eða hefur daglegt samband við kerlingar í sauma- klúbbum en maðurinn er ekki yfir það hafinn að kynna sér kjósenda- hópana og vegna þess að hann er sömuleiðis orðvar og málefnalegur ræðumaður, hefúr honum þótt við hæfi að bera saman Steingrím og saumaklúbbana. Báðir aðilar mega vel við þennan samjöfnuð una. En svo undarlega hefur brugðið við að hvorugur hef- ur verið sérlega uppnæmur fyrir samjöfnuðinum. Steingrímur telur þetta niðrandi ummæh og segir það margt um framsóknarmanninn, sem ekki þekkir mikilvægi ís- lenskra saumaklúbba og má þakka fyrir að vera loksins kominn upp að hhðinni á fólki sem hefur þekk- ingu á vaxtamálum. Ekki sam- þykkir Steingrímur vaxtakenning- ) ar hagfræðinganna og ekki sam- þykkir hann kenningar stjórnar- andstöðunnar eða Seðlabankans og hvers vegna er hann þá ekki ánægður meö að fá loksins stuðn- ingsmenn í saumaklúbbum þessa lands? Þaðan koma jú atkvæðin. Það sem verra er þó kemur fram í viðbrögðum saumaklúbbanna sjálfra. Þær afneita samlíkingunni og segjast eiga lítið sem ekkert sameiginlegt með forsætisráð- herra. Saumaklúbbarnir telja það ærumeiðandi fyrir sig að vera nefndir í sömu andránni og Stein- grímur Hermannsson. Þær hafa ekki smekk fyrir Steingrími sem þó er vinsælasti stjómmálamaður þjóðarinnar. Það er ekki leiðum að líkjast. Verstar eru þær þó út í Friörik Sophusson, varaformann Sjálf- stæðisflokksins, sem þær segja að hafi sig í flimtingum í þinginu. Þær halda að þetta hafi verið hótfyndni hjá varaformanninum og telja virö- ingu sinni misboðið. Hvílík rang- túlkun! Hvílík firra. Friörik vara- formaður hefur það ekki fyrir sið að tala niður til fólks í þinginu og þegar hann minnist á einhverjar kerlingar í saumaklúbbum úti í bæ, þá er það öllum hlutaðeigandi til vegsauka. Hann ræðir vaxtamál og lögmáhn í efnahagslífinu og veit sem er, að þá hefur þingið og þing- mennirnir ekkert vit á við kerling- arnar í saumaklúbbunum. Þær tala að minnsta kosti af meiri skynsemi heldur en ræðuræpurnar sem hafa það fyrir atvinnu að segja ein- hverja vitleysu um efnahagsmálin. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.