Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991. 5 Fréttir Loðnuvertíðiiuii lokið: Hrun vegna mis- ræmis í mæling- um f iskifræðinga Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Á loðnuvertíðinni tók Hraðfrysti- hús Eskifjarðar hf. við 38.100 tonnum af loðnu til bræðslu. Það eru um 14% af heildarveiðinni á vertíðinni sem nam 279 þúsund tonnum. Þá tók bræðslan við 10.500 tonnum af síld og úrgangi þannig að aUs fóru til bræðslu 49 þúsund tonn. Loðnuvertíðin, sem nú er á enda runnin, verður um margt minnis- stæð fyrir sjómenn, útvegsmenn og aðra hagsmunaaðila vegna mjög mismunandi mælinga fiskifræðinga á loðnustofninum. Sjómenn, sem stundað hafa loðnuveiðar í yfir 20 ár, efast um sannleiksgildi mæhnga fiskifræðinganna, hafa dregið þær í efa. Samkvæmt mælingum íiskifræð- inga átti vertíðin í ár að vera ein sú besta frá upphafi. Verður hins vegar ein sú allra lélegasta hvað veitt magn varðar, þar sem bannað var að veiða meira en 279 þúsund tonn. Þó hafa sjómenn varla séð annað eins magn af loðnu og var á miðunum nú.' í desember sl. voru áður útgefin veiðileyfi á loðnu dregin til baka þar sem þessir sömu fiskifræðingar töldu stofninn hruninn og aö engin loðna mundi finnast. Svona misvísandi skoðanir í sín hvora áttina á stuttum tíma hafa ekki orðið til að auka hróð- ur né álit á vísindalegu mati fiski- fræðinga. Mistök við mælingar eða kunnáttuleysi geta reynst þjóðarbú- inu dýrkeypt. EyjaQörður: 150 sjómenn sögðu upp Gylfi Rristjánsson, DV, Akureyri: Um 150 sjómenn á ísfisktogurum Útgerðarfélags Akureyrar, Utgerð- arfélags Dalvíkur og á skipi KEA, Súlnafellinu senvgert er út frá Hrís- ey, sögðu upp störfum í gær. Ástæð- an er óánægja með fiskverð og er ekki að sjá í augnablikinu að lausn á þessari launadeilu sé í sjónmáh. Hásetar á togurum eru með viku uppsagnarfrest og því munu togar- arnir stöðva hver af öðrum strax í næstu viku er þeir koma inn til lönd- unar. Sjómenn á þessum togurum fá greitt heimalöndunarálag en laun þeirra eru þó mun lægri en á togur- um sem landa afla á fiskmarkaði. Sjómannafélagi Eyjafjaröar bárust í gær þau boð frá Útgerðarfélagi Akur- eyringa að fyrirtækið hygðist ekki hækka verð til sjómanna umfram þá hækkun er heimalöndunarálag var hækkað úr 30% í 40% fyrir nokkrum dögum, en sjómenn telja þá hækkun langt frá því fullnægjandi. Ólafsij arðarmúli: Bifreiðar lokuðust á milli snjóf lóða Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Tvær bifreiðar lokuðust inni á mhh tveggja snjóflóða sem féllu í Ólafs- fjarðarmúla í gær, skammt fyrir inn- an gangaopiö í Múlanum Dalvíkur- megin. Fólk í bifreiðunum var ekki í hættu, og lögreglan á Ólafsfirði sótti það. Mjög slæmt veður hefur verið undanfarinn sólarhring við utan- verðan Eyjaijörð, en mun skaplegra á Akureyri. Færð á vegum út frá Akureyri hef- ur verið mjög slæm og allt að því ófært. Rútubifreið á leið til Húsavík- ur lenti í erfiðleikum í Víkurskarði í gær, en björgunarsveit frá Akur- eyri fór á staðinn og aðstoðaði við að koma bifreiðinni yfir skarðið. í morgun var þungfært á Öxnadals- heiði, Víkurskarð var ófært og í Skagafirði var mikil ófærð og m.a. ófært til Siglufjarðar. Alþingi: Sjóðshappdrættið strandaði Stjórnarfrumvarp um sjóðshapp- drætti til stuðnings kaupum á björg- unarþyrlu var ekki afgreitt frá þing- inu í gær. Sömu örlög fengu frum- vörp um virðisaukaskatt, um bann við sölu á eignum ríkisins án laga- heimhda, um almenn hegningarlög og frumvarp um opinbera réttarað- stoð. Síðastnefnda frumvarpið var dómsmálaráðherra, Óla Þ. Guð- bjartssyni, afar hjartfólgið og harm- aði hann afdrif þess í umræðum um þingsköp. Kom meðal annars fram í máli annarra þingmanna að vinnan sem lögð hefði verið í málið væri ekki unnin fyrir gýg og það kæmi aftur til kasta Alþingis þó dómsmála- ráðherrann yrði ekki í hópi þing- manna eftir kosningar. Um sum þessara mála var full samstaða en þau féllu á tíma. Frumvarpi um ábyrgðardeild fisk- eldislána var vísað th ríkisstjórnar- innar. -hlh Dómkirkjan: Stolið úr söf nunarbauk Söfnunarbaukur í Dómkirkjunni Nýlega var búið að tæma úr söfnun- var brotinn upp og peningum stolið arbauknum. Umsjónarmaður í kirkj- úr honum síðdegis í gær. Lás var unni kom að en þá var þjófurinn á 'sþennturuppogbaukurinnópnaðúr. bakogburt. -ÓTT OG NU IVIEÐ 3JA ÁRA ÁBVRGÐ BRIMBORG FAXAFENI 8 • SIMI 91-68 58 70 Hóimaborg við bryggju að landa siðustu loðunni og lokareykur loðnubræðslunnar í vor liðast út f jörðinn. DV-mynd Emil DAIHATSU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.